Þjóðviljinn - 17.04.1984, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 17. aprfl 1984
Krabbameinsfélag Reykjavíkur:
Fjölþætt starfsemi
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
átti 35 ára afmæli 8. mars sl. Af því
tilefni hélt félagið fræðslufund fyrir
almenning I Norræna húsinu 19.
mars. Þar var gerð grein fyrir
fræðslustarfi félagsins og reykinga-
varnastarfi þess í grunnskólum sér-
staklega og flutt erindi um veirur og
krabbamein.
Aðalfundur félagsins var svo
haldinn 26. mars. Var þar skýrt frá
starfseminni á sl. ári. Félagið hélt
tvo fjölsótta fræðslufundi, annan
um brjóstkrabbamein og hinn í
samvinnu við Manneldisfélag ís-
lands, um fæðu og krabbamein.
Félagið bauð kvenfélögum
fræðsluerindi og kvikmynd um or-
sakir krabbameina og forvarnir
gegn þeim. Þá hefur félagið gefið
framhaldsskólum og sérskólum
kost á námskeiðum um sama efni.
Hafa 24 námskeið verið haldin í 7
skólum, en í nokkrum skólum hafa
kennarar staðið fyrir námskeiðum
með aðstoð félagsins. Ýmis önnur
þjónusta var veitt í skólunum,
einkum í sambandi við ritgerðir og
verkefni um krabbamein.
f vetur hafa allir grunnskólar á
höfuðborgarsvæðinu verið heim-
sóttir og margir skólar úti á landi.
Er nemendum leiðbeint um mikil-
vægi heilbrigðra lífshátta og sér-
stök áhersla lögð á reykingavarnir.
Kvikmyndir eru mikið notaðar við
fræðslustarfið og þær fást einnig að
láni. Fjölgar stöðugt myndum í
safni félagsins.
Út kom 10. bæklingurinn af
fræðsluritum félagsins, um krabba-
mein í eggjastokkum, eftir Kristján
Sigurðsson, yfirlækni. Sjö fyrri
bæklingar hafa verið endurprent-
aðir. Heildarupplag bæklinganna
er tæp 160 þús. Þeir eru sendir fé-
lagsmönnum og eiga að liggja
frammi á heilsugæslustöðvum. Tvö
FLUGLEIDIR
Gott fólkhjá traustu félagi
Flugleiðir oaSAS
opnanýiarleiðto
fyrír landkönnuði!
Framhaldsflug frá Kaupmannahöfn tækniundrinu, standa á Rauða to'rginu, kynnast könnun, sjá Flugleiðir um að flytja ykkur til
Ef þú ert landkönnuður sem stefnir i frumbyggjum Amazon-landsins eða telja bjór- Kaupmannahafnar, á almennu ferðamanna-
fjarlæga heimshluta er bæði fljótlegt og nota- krárnar í Munchen? - Þegar félög eins og gjaldi, eða á „SACA CLASS", ef þú vilt lifa lúxuslífi
legt að fljúga með Flugleiðum til Kaupmanna- Flugleiðir og SAS leggjast á eitt, áttu visa þægi- á leiðinni. Síðan getur þú verslað í fríhöfninni á
hafnar. Þar býður SAS þér framhaldsflug til lega og ógleymanlega ferð. Kastruþ, áður en þú heldur áfram út í heim, i
áfangastaða um víða veröld. Ekkert flugfélag Enn á ný er borgin við sundið orðin dyr hinu þekkta EUROCLASS-farrými SAS-flugfélags-
flýgur til eins margra áfangastaða frá Kaup- íslendinga að umheiminum. ins eða „First Business Class" farrými, t.d. til
mannahöfn og einmitt SAS. Það er næstum Singapore eða Tokyo.
sama hvað þig langar að kanna, Flugleiðir og „EUROCLASS" og „SAGA CLASS":
SAS gera þér það fært. Langar þig að Ijúka uþp vellíðan á ferðalögum Fluglelðir og SAS velta þér óteljandl ferða-
leyndardómum Austurlanda, átta þig á japanska Þegar þú og þínir halda af stað f land- tækifæri!
tbl. af blaðinu Takmark komu út
og var dreift bæði til skóla og ann-
arra. Nokkrum einstaklingum var,
sem áður, veittur styrkur til utan-
ferða á fundi og ráðstefnur um
krabbamein, átt margvíslegt sam-
starf við Samhjálp kvenna og þátt-
ur í því var heimsókn Else Lunde
frá norska krabbameinsfélaginu og
flutti hún erindi og leiðbeindi á
námskeiðum um aðstoð við konur,
sem fengið hafa brjóstkrabba.
Félagið greiddi á árinu 4 milj. kr.
til Krabbameinsfélags íslands, eð
meðtöldum styrk til tölvukaupa og
framlagi í byggingarsjóð félag-
anna. Að mestu leyti er þetta fé
ágóði af happdrættinu og það
stendur einnig að mestu undir
kostnaði við fræðslustarf félagsins.
Félagið hefur nú flutt skrifstofur
sínar á Tjarnargötu 4 en mun í
sumar flytja til frambúðar í hið
nýja hús Krabbameinsfélagsins við
Skógarhlíð.
Formaður stjórnar Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur er Tómas
Á. Jónasson læknir en aðrir í stjórn
eru: Baldvin Tryggason, spari-
sjóðsstjóri, Erla Einarsdóttir
gjaldkeri, Jón Þ. Hallgrímsson
læknir, Páll Gíslason yfirlæknir,
Sigríður Lister hjúkrunarfræðing-
ur og Þórarinn Sveinsson yfir-
læknir. Framkvæmdastjóri félags-
ins er Þorvarður Örnólfsson.
-mhg
Verkalýðsfélag
Hrútfirðinga
50 ára
afmælis-
fagnaður
Verkalýðsfélag Hrútfirðinga
heldur uppá 50 ára afmæli sitt mið-
vikudagskvöldið 18. apríl nk. í
bamaskólanum á Borðeyri. Húsið
verður opnað kl. 19.30 og verður
þá opnuð sýning á heimilisiðnaði
úr Hrútafirði. Sömuleiðis verður
opnuð listaverkasýning frá Lista-
safni alþýðu. Síðan verður boðið
uppá kaffiveitingar kl. 20.30. Sýn-
ingarnar verða opnar
fimmtudaginn 19. apríl frá kl. 14-
17 og á sama tíma föstudaginn 20.
apríl.
Verkalýðsfélag Hrútfirðinga var
.stofnað 16. febrúar 1934, stofnfé-
jlagar voru 12. Núverandi formaður
er Böðvar Þorvaldsson og eru 111
félagar í félaginu nú. Allir núver-
andi og fyrrverandi félagar eru
boðnir velkomnir til fagnaðarins
18. apríl.
Ný stjórn
í félagi
lögmanna
265 félagsmenn eru nú í Lög-
mannafélagi fslands, sem nýlega
hélt aðalfund sinn. Formaður var
endurkjörinn Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl. og aðrir í stjórn fé-
lagsins eru: Páll A. Pálsson, hrl.,
EiríkurTómasson hrl., Hallgrímur
B. Geirsson hdl. og Gísli Baldur
Garðarsson, hdl. Framkvæmda-
stjóri félagsins er Hafþór Ingi Jóns-
son hdl.
Betra er að fara
seinna yfir akbraut
en of snemma.