Þjóðviljinn - 17.04.1984, Page 9
Þriðjudagur 17. apríl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
inBKiaiJWL S£ wmt*m Umsjón:
I g3l roit 1 tT Víðir Sigurðsson
Endurnýjað hjá
KSÍ og Adidas
Eimskip aftur með 500 þúsund
Steinn Jóhannsson, ÍR, nálgast markið og sigur í Lillý Viðarsdóttir, nýja hlaupastjarnan frá Stöðvarfirði,
sveina- og drengjaflokki. Mynd: -eik. á lokasprettinum á laugardaginn. Mynd: -eik.
Víðavangshlaup íslands:
Lillý hin stöðfirska
óvæntur sigurvegari
Knattspyrnusamband íslands
hefur endurnýjað samning sinn við
Heildverslun Björgvins Schram
hf., umboðsaðila Adidas, um notk-
un á íþróttafatnaði Adidas, og einn-
Íg hlotið nýjan 500 þúsund króna
styrk frá Eimskip.
KSÍ og Adidas hafa lengi haft
samstarf, þetta er áttunda árið sem
þessir aðilar gera samkomulag um
að öll lið KSI leiki í búningum frá
Adidas. Eimskip styrkti KSI einnig
myndarlega í fyrra og í ár óska for-
ráðamenn fyrirtækisins þess sér-
staklega að upphæðinni verði eink-
um varið til verkefna sem tengjast
starfsemi yngri flokka í knatt-
spyrnu. Eimskip hefur boðist til að
gefa bikar sem veittur yrði sem
verðlaun í 6. flokksmót sem haldið
yrði í sumar, og einnig farandbikar
sem keppt yrði um á landsmóti
fyrir telpur.
Jón Ásgeirsson, formaður sið-
ferðislegu styrkveitendanna.
Siðferðileg-
ur styrkur!
Stuðningsmannalið landsliðsins í
knattspyrnu hefur verið sett á lagg-
irnar. KSÍ bauð til sín á dögunum
35 landsþekktum áhugamönnum
um íslenska knattspyrnu. Hlutverk
þeirra verður að veita landsliðinu
siðferðilegan styrk, auk þess sem
þeir munu vinna að því að styrkja
landsliðið fjárhagslega. Formaður
hefur verið skipaður Jón Ásgeirs-
son, sá landsfrægi fyrrum útvarps-
maður og gamall Þróttari.
- Frosti.
Frá Heimi Bergssyni
fréttamanni
Þjóðviljans í Englandi:
Zola Budd, hin 17 ára suður-
afríska stúlka sem á dögunum fékk
breskan ríkisborgararétt á um-
deildan hátt, náði ólympíulág-
markinu í 3000 m hlaupi í fyrstu
atrcnnu nú um helgina. Hún keppti
á móti í Dartford, setti breskt ung-
lingamct og var þremur sekúndum
undir lágmarkinu þrátt fyrir að
hún fengi enga keppni og hlaupa-
brautin væri léleg. Tími hcnnar var
9:02,6 mín.
Það er þó alls ekki öruggt að hún
fái að keppa fyrir hönd Breta á Ól-
KSÍ hefur ráðið fjóra menn til
starfa fyrir komandi keppnistíma-
bil. Anton Bjarnason starfar fyrir
tækninefnd KSÍ og sér um mót 6.
flokks og stúlkna sem Eimskip
styrkir. Guðni Kjartansson hefur
verið ráðinn þjálfari 21 árs lands-
liðsins og Lárus Loftsson sér um
drengjalandsliðið. Þá hefur Aðal-
steinn Steinþórsson, Austfirðingur
og háskólaleiðtogi með meiru, ver-
ið ráðinn starfsmaður móta-,
dómara- og aganefndar.
- Frosti/VS.
Fyrirmyndar
mótanefnd
Fyrir nokkru sendi Mótanefnd
Knattspyrnusambands íslands frá
sér leikjaskrá fyrir komandi
keppnistímabil. Þetta er nánast
einsdæmi hérlendis, skráin var til-
búin tveimur mánuðum fyrir fyrsta
leik og á nefndin mikið hrós skilið
fyrir vel unnin störf. Það er alltof
algengt hérlendis að mótaskrár í
hinum ýmsu íþróttagreinum birtist
ekki fyrr en viðkomandi mót er
löngu komið í fullan gang og móta-
nefndir annarra sérsambanda
mættu taka kollega sína hjá KSÍ sér
til fyrirmyndar í framtíðinni.
- Frosti/VS.
Knattspyrnudeild Fram og IBM
hafa gert með sér auglýsingasamn-
ing þess efnis að meistaraflokkur
Fram mun leika með IBM-
auglýsingu á keppnispeysum sínum
lciktímabilið 1984. Samningurinn
gekk í gildi þann 1. apríl sl. og renn-
ur út 1. apríl 1985.
IBM mun greiða Fram 300 þús-
und krónur á þessu leiktímabili og
félagið fær aukagreiðslur ef góður
árangur næst í sumar. Halldór B.
Jónsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fram, og Gunnar Hansson,
fulltrúi IBM, lýstu báðir yfir
ánægju með samningsgerðina.
„Auka- og hliðartekjur eru
nauðsynlegar til að halda knatt-
spyrnufélögum gangandi í dag, það
er ekki lengur hægt að treysta á
innkomu af leikjum, og því eru
svona samningar geysilega mikils
ympíuleikunum í sumar. Aðferð
Breta við að koma henni í gegnum
kerfið hjá sér og setja hana fremst í
röð umsækjenda um ríkisborgara-
rétt hefur sætt mikilli gagnrýni,
innan Bretlands og utan. Olympíu-
nefnd Evrópu á eftir að ræða ntálið
og erfitt að spá hvað gerist. Breska
blaðið Daily Mail og amerískur
auðjöfur, Mark McCormick,
komu máli Zolu í gegn, í eiginhags-
munaskyni að flestra mati. En
hvað sem því líður er hin berfætta
Zola Budd frábær hlaupari á
heimsmælikvarða og ætti að verða í
fremstu röð á Ólympíuleikunum í
Los Angeles, svo framarlega sem
henni verði leyft að keppa þar.
Lillý Viðarsdóttir, 16 ára stúlka
úr Súlunni á Stöðvarfirði, kom, sá
og sigraði í kvennaflokki Víða-
vangshlaups Islands sem haldið var
á Miklatúni í Reykjavík á laugar-
daginn. Hún kom mjög á óvart og
sigraði örugglega. Önnur varð
Rakel Gylfadóttir, FH, og þriðja
virði“, sagði Halldór á blaða-
mannafundi fyrir helgi.
Framarar standa í stórræðum um
þessar mundir, þeir eru að byggja
við félagsheimili sitt við Safamýri
og í sumar verður grasvöllur félags-
ins tekinn til gagngerrar endurnýj-
unar. Ekki er þó reiknað með að
hann verði tilbúinn til notkunar
fyrr en eftir þrjú ár. Við hann er
fyrirhugað að reisa áhorfenda-
stúku fyrir 1000-1500 áhorfendur.
Framarar hafa einnig samið við
Heildverslun Björgvins Schram
um að öll knattspyrnulið félagsins
leiki í Adidas-búningum í sumar.
Verður það fjórða árið í röð sem
knattspyrnumenn Fram klæðast
þeim.
- VS.
Paul McStay, hlnn bráðefnilegi 19
ára landsliðsmaður hjá Celtic, skor-
aði sigurmarkið í undanúrslitaleikn-
um gegn St. Mirren.
Unnur Stefánsdóttir, HSK. Þær
hlupu 3 km.
Sigurður P. Sigmundsson, FH,
sigraði í karlaflokki (8 km), Sigfús
Jónsson, ÍR, varð annar og Haf-
steinn Óskarsson, ÍR, þriðji.
Gunnar Guðmundsson, FH, sigr-
aði í strákaflokki, Guðrún Valdi-
marsdóttir, ÍR, í stelpnaflokki,
Finnbogi Gylfason, FH, í pilta-
flokki, Guðrún Eysteinsdóttir,
FH, í telpnaflokki og Steinn Jó-
Celtic er komið í úrslit skosku
bikarkeppninnar í knattspyrnu í
42. skipti eftir 2-1 sigur á St. Mirr-
en í undanúrslitunum á laugardag.
Paul McStay skoraði sigurmark
Celtic níu mínútum fyrir leikslok,
áður hafði Brian McClair fært lið-
inu forystuna en Frank McDougall
jafnað fyrir St. Mirren.
Aberdeen verður andstæðingur
Glasgow-búanna, vann Dundee 2-
0 í hinum undanúrslitaleiknum.
Ian Porteus skoraði fyrra markið
en Gordon Strachan það síðara á
lokamínútu leiksins. Aberdeen
stefnir því á þrennuna miklu,
hannsson, ÍR, í flokki sveina og
drengja. ÍR og FH skiptu með sér
sigrum í sveitakeppni, nema hvað
HSK sigraði í einni.
Keppendur voru um 150 en þar
vantaði 50 manna hóp frá
Vestur-Húnavatnssýslu sem ekki
komst vegna ófærðar á Holta-
vörðuheiði. Elsti keppandinn var
, sjónvarpsmaðurinn Haukur Herg-
eirsson, 53 ára, og var hann sér-
staklega heiðraður. - VS.
Skotlandsmeistaratitilinn, skoska
bikarinn og sigur í Evrópukeppni
bikarhafa annað árið í röð.
Einn leikur var í úrvalsdeildinni,
Dundee United vann St. John-
stone 3-0 og voru Paul Sturrock og
John Reilly meðal markaskorar-
anna. Allar líkur eru á að Morton
og Dumbarton komist í úrvals-
deildina, þau eru efst í 1. deild með
47 og 46 stig en Partick Thistle, sem
hefur leitt í nánast allan vetur, er
að dragast aftur úr, hefur 42 stig.
Forfar hefur þegar unnið 2. deild
með miklum yfirburðum.
Zola fór létt með
Ólympíulágmarkið
Framarar semja
við IBM og Adidas
Sigurður P. Sigmundsson, FH, heldur á lofti sigurlaunum sínum en hann
sigraði í karlaflokki Víðavangshlaups íslands. Honum á hægri og vinstri
hönd eru ÍR-ingarnir Sigfús Jónsson og Hafsteinn Óskarsson, sem urðu í
öðru og þriðja sæti. Mynd: -eik.
Skoska knattspyrnan:
Celtic í úrslit
í 42. skiptið!
Aberdeen stefnir á þrennuna
- VS.