Þjóðviljinn - 17.04.1984, Page 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNl Þriðjudagur 17. aprfl 1984
Útboð -
gatnagerð
Hafnarfjaröarbær leitar tilboða í gerö gatna
og lagna í Setberg, samtals um 430 lengdar-
metra í götu. Útboösgögn eru afhent á skrif-
stofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6,
gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboöin veröa
opnuð á sama stað kl. 15 miðvikudaginn 25.
apríl nk.
Bæjarverkfræðingur.
Njarðvíkurbær
Starf skólastjóra viö tónlistarskóla Njarövíkur
er laust til umsóknar frá og meö 1. sept.
1984. Umsóknarfrestur er til 1. maí. Allar
nánari upplýsingar gefur skólastjóri Örn Ósk-
arsson í síma 92-3154.
Skólanefnd.
ÚTBOÐ
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerö
Norðurlandsvegar í Fnjóskadal frá Víði-
völlum að Fnjóskárbrú.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Fylling 75.000 rúmm.
Burðarlag 13.000 rúmm.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október
1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum
Vegagerðar ríkisins Miðhúsavegi 1, Akur-
eyri, og Borgartúni 5, Reykjavík, gegn 2.500
kr. skilatryggingu.
Skilafrestur tilboða er til kl. 14.00 hinn 30.
apríl 1984 og kl. 14.15 sama dag verða til-
boðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóð-
endum, sem þess óska.
Reykjavík í apríl 1984.
Vegamálastjóri.
RAFVIRKJAR -
RAFVERKTAKAR
SÝNING
Eftirmenntunarnefnd rafiðnaðar efnir til sýn-
ingar á kennslutækjum og kynnir starfsemi
sína í tilefni 10 ára afmælis Eftirmenntunar-
nefndar rafiðnaðar. Sýningin, sem er öllum
opin, verður haldin í Félagsmiðstöð rafiðnað-
armanna, Háaleitisbraut 68, III. hæð. Hún
stendur í aðeins tvo daga og er opin MIÐVIK-
UDAGINN 18. APRÍL FRÁ KL. 9.00 TIL
18.00 OG FIMMTUDAGINN 19. APRÍL FRÁ
KL. 13.00 TIL 18.00.
FYRIRLESTUR
Komið og hlustið á fyrirlestur Arne Nielsen,
framkvæmdastjóra þróunardeildar EFU, um
gildi eftirmenntunar vegna tilkomu hátækni í
rafiðnaði.
FYRIRLESTURINN HEFST KL. 14.00 Á
FIMMTUDAG.
EFTIRMENNTUN
RAFIÐNAÐAR
Auglýsið í Þjóðviljanum
búsýslan
Fjölgun stofuplantna
Nú er daginn farið að lengja aftur og vorið í nánd
(vonandi) og tími til kominn að fara að huga að
inniblómunum. Flestar plöntur eru laslegar eftir vet-
urinn og þurfa endurnýjunar við. Hér eru sýndar
aðferðir við að endurnýja fimm algengar stofu-
plöntur. Þetta eru sterkar plöntur og mjög auðvelt að
endurnýja þær, þannig að byrjendum ætti að reynast
þetta leikur einn.
Jólakaktus
Sánktipála
Klippið stórt blað af plöntunni
með um 4 sm löngum stilk. Sting-
ið blaðinu í mold og þjappið vel
að. Eftir 3 vikur sést árangurinn:
ný jurt vex upp úr moldinni.
Kornblöndufé
í leikskóla
Kornblöndurnar Granola og Múslí hafa fengið mjög góðar viðtökur hjá ís-
lenskum almenningl, enda um kjarngóða og bragðgóða fæðu að ræða.
Flestir þekkja víst núorðiö
morgunverðarblönduna
Granola sem framleidd er hér
á landi og seld víða í verslun-
um. Það eru félagar í hreyfing-
unni Ananda Marga sem fram-
leiða blönduna og þeir hafa vart
undan því eftirspurnin er mikil.
Ananda Granola er framleitt úr
lífrænt ræktuðu korni, þ.e. ekki
eru notuð kemísk eitur- eða
áburðarefni við ræktunina. Sömu
sögu er að segja af nýrri blöndu,
sem Ananda Marga hefur sett á
markað, svokallað MúslS, sem inni-
heldur svipaða blöndu af korni,
fræjum, rúsínum og hnetum ásamt
döðlum, en Múslíið er ekki ristað.
Samkvæmt lauslegri könnun blaðs-
ins stenst íslenska Granolað og
Múslíð fyllilega samanburð við
innfluttar tegundir, bæði hvað verð
og gæði snertir. Ananda Marga fé-
lagar hafa nú í huga að framleiða
einnig sykurlaust Granola og setja
á markað, en talsverð eftirspurn er
eftir slíku í verslunum.
Framleiðsla þessi var m.a. hafin
með það fyrir augum að fjármagna
byggingu leikskóla, sem Kvenna-
hreyfing Ananda Marga ásamt for-
eldrum hefur í hyggju að reisa í
sumar. Hreyfingin rak um 5 ára
skeið leikskóla í Skerjafirði en
missti húsnæðið fyrir 3 árum. f>á
var ákveðið að fara ekki út í
leikskólastarf nema öruggt hús-
næði fengist. Borgarstjórn Reykja-
víkur hefur nú úthlutað hreyfing-
unni landi við Reykjavíkurveg í
Skerjafirði og vonast félagar eftir
að geta gert leikskólann sinn fok-
heldan fyrir haustið og byrjað starf
þar í vetur.
Á leikskólanum verður pláss
fyrir 40 börn og áætlað er að gefinn
verði kostur á allt að 6 tíma dagvist-
un fyrirbörnin. Leikskólinn verður
rekinn eins og aðrir leikskólar í
landinu og er opinn öllum landsins
börnum, svo lengi sem húsrými
leyfir að sjálfsögðu.
Leikskólinn fær ekkert fjármagn
frá ríkinu, þrátt fyrir skýr lagaleg
ákvæði um að ríkið leggi fram
helming stofnkostnaðar við leik-
skóla og dagheimili í landinu, hvort
heldur er á vegum ríkisins, bæjar-
félaga eða einstaklinga. Veldur
þessu niðurskurður ríkisvaldsins til
þessa málaflokks sem annarra.
Leikskólinn verður því að treysta á
eigin fjármögnun svo og framlög
frá almenningi, en slík framlög eru
skattfrjáls. Póstgírónúmer félags-
ins er 12801-5 Leikskólinn Sælu-
kot. Ingibjörg Karlsdóttir gefur
upplýsingar um leikskólann í síma
27638.
Jólakaktus er fjölgað með
blaðskotum. Brjótið nokkur blöð
af plöntunni og geymið þau á
þurrum og svölum stað í ca. 6
daga eða þar til sárið er orðið
alveg þurrt. Stingið þeim þvínæst
í mold og látið pottinn sanda á
heitum stað og vökvið vel.
Skerið grein af plöntunni og
takið neðstu laufblöðin af. Látið
greinina í glas með vatni eða
beint í mold og plastpoka yfir.
Hitinn þarf að vera um 20 gráður.
Moldin þarf ávallt að vera vel
rök.
Jómfrúarhár
Þessari plöntu er fjölgað með
skiptingu og best er að skipta
henni í lok vetrar. Setjið hvern
hluta í pott og látið nægilega
mold í pottinn með plöntunni.
Þjappið fast að og látið plastpoka
yfir pottinn og hafið hann þar í
2-3 vikur. Munið að best er að
hafa dálítið vatn í skálinni undir
pottinum hj á þessari plöntu - hún
þarf mikla vætu.
Húsfriður
Húsfriðinn þarf að klippa nið-
ur um miðjan vetur og hægt er að
nota hluta af afklipptum greinum
til að fjölga plöntunni. Setjið
góða gróðurmold í pott og mynd-
ið holur í moldina með mjóu
priki. Afklipptu greinunum er
stungið í holurnar og moldinni
þjappað að. Vökvið lítillega og
látið síðan plastpoka yfir. Pok-
ann þarf að taka af pottinum einu
sinni á dag - 10-15 mínútur nægja
- en hann er tekinn alveg af eftir
viku og þá eiga greinarnar að
vera orðnar ræktarlegar.