Þjóðviljinn - 17.04.1984, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 17. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV 1
7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. Þáttur Sigurðar Jónssonar frá kvöld-
inu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Unnur Halldórsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis
Karlsson" ettir Marlu Gripe Þýðandi: Torf-
ey Steinsdóttir. Sigurtaug M. Jónasdóttir les
(12).
9.20 Leiktimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 „Ljáiu mér eyra“ Málmlriður Sigurðar-
dóttir á Jaðri sér um þáttirnn (RÚVAK).
11.15 Við Pollinn Gestur E. Jónasson velur
og kynnir létta tónlist (RÚVAK).
12.00 tóagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 Feriaminningar Sveinbjarnar Egils-
sonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson
les (5).
14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlist Magnús Blöndal Jó-
hannsson leikur á hljóðgerfil eigin tónverk
„Adagio" og „Dans'VSinfóníuhljómsveit Is-
lands leikur „Forna dansa” eftir Jón Ás-
geirsson; Páll P. Pálsson stj ./Óskar Ingólfs-
son leikur á klarinettu íslensk Ijóðalög í út-
setningu Þorkels Sigurbjörnssonar. Snorri
Sigfús Birgisson leikur með á píanó/Ágústa
Ágústssdóttir syngur Iðg eftir Stefán Sigur-
kartsson og Hallgrim J. Jakobsson. Jónas
Ingimundarson leikur með á píanó.
17.10 Síidegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tílkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét Ól-
afsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir.
20.00 Barnalög Á framandi slóðum. (Áður
útv. 1982). Oddný Thorsteinsson segir frá
Indónesíu og leikur þarlenda tónlist; fyrri
hluti. (Seinnihluti verður á dagskrá 24.
Þ-m.).
20.40 Kvöldvaka a. Úr minningum Ólafs
Tryggvasonar í Arnarbæli; siðari hluti
Kjartan Eggerfsson tekursaman og flytur. b.
Karlakórinn Vísir á Siglufirði syngur
Stjórnandi: Geirharður Valtýsson.
21.15 Skákþáttur Stjórnandi: Guðmundur
Arnlaugsson.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævis og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur les
(15).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passíusálma (48).
22.40 Kvöldtónleikar Chick Corea leikur
eigin tónlist og tónlist eftir Béla Bartók o.fl. -
Kynnir: Sigurður Einarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV«
19.35 Hnáturnar 6. Litla hnátan hún Hrekk-
vís. Breskur teiknimyndaflokkur. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen. Sögumaður Edda
Björgvinsdóttir.
19.45 Fráttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Árið þegar brann Bresk náttúrulífs-
mynd um gróðureyðingu og skemmdir á lif-
rikinu á fenjasvæðum Flórida sem urðu
vegna elda árið 1980 i kjölfar mikilla þurrka.
21.15 Skarpsýn skötuhjú Lokaþáttur -
Falspeningarnir Breskur sakamálamynda-
flokkur gerður eftir sögum Agöthu Christie.
Aðalhlutverk: Francesca Artnis og James
Warwick. Þýðandi Jón Ó. Ewald.
22.10 ÞingsjáUmsjón: Páll Magnússon frétta-
maður.
23.00 Fréttir i dagskrárlok.
frá lesendum
Samhent er
fólkið ósigrandi
Sundrungaröfl hafa ætíð verið
til staðar á hverri tíð, sem eins-
konar draugalýður. Þær eru ó-
teljandi - ennþá fremur en
stjörnurnar - allar þessar gróu-
sögur af báðum kynjum.
Það er næsta furðulegt hvað
mannskepnan hefur haft ríka og
ódrepandi náttúru til þvílíkrar
iðju. Þó er með öllu ógerningur
að skýra hverju hún þjónar í
raun. Það er engu líkara en þessi
skelfilega ónáttúra mannskepn-
unnar hafi magnast stórlega með
vaxandi svokallaðri menntun og
tæknibúnaði okkar aldar. Segja
má að allur þessi draugagangur
hafi reynst auðveldari og þyki
sjálfsagðari en nokkru sinni fyrr
og var hann þó allnokkur á öldum
áður. Eða svo segir sagan. Þessir
draugafimleikar hafa verið sóttir
fast og sumir eru svo svartsýnir á
ástandið, að þeir vita varla hvort
hægara er að telja draugana en
hina. Ég held nú að sem betur fer
séu draugarnir miklum mun færri
en hinir. En e.t.v. mun betur
búnir að öllum nauðsynjum en
fyrrum. Tæknin bjargar þar sem
annarsstaðar á öldinni okkar tutt-
ugustu.
Þessi draugagangur virðist fast
sóttur af stórveldum okkar sam-
tíðar. Beinlínis jafn sjálfsagður
og svefn og matur. Síðustu fréttir
herma að nú sé svo komið, að
sjálfur Nixon, fyrrum forseti
Bandaríkja N-Ameríku, sé loks-
ins orðinn hræddur. Þótti hann
þó mikil hetja þegar hann lagði í
þá miklu svaðilför að heimsækja
Kínverja.
„Það er ekki andskotalaust að
fást við þessa drauga“, sögðu ís-
lenskir á öldinni sautjándu. Sjálf-
sagt hafa það verið orð að sönnu.
Þó er verst ef satt er, að þeir, sem
töluðu hvað mest um draugagang
þeirrar aldar, hafi verið hættuleg-
ustu draugarnir sjálfir. Svo að
fólk sér að þetta er margslungið
þótt ekki sé það skemmtilegt
rannsóknarefni.
Ég vona að íslensk æska þurfi
sem allra minnst að eyða orku
sinni í að fást við drauga. Lífið er
of dýrmætt til slíkrar iðju. Og
samhent er fólkið ósigrandi. -
Verið þið sæl að sinni.
Gísli Guðmundsson
frá Steinholti,
(Óðinsgötu 17).
Sjónvarp
kl, 21,15:
Loka-
þáttur
skarp-
sýni
Falspeningarnir heitir síð-
asti þátturinn um skarpsýnu
skötuhjúin sem sjónvarpið
sendir frá sér. Þættir þessir
eru gerðir eftir sögum Agöthu
Christie og hafa nú glatt ís-
lenska sjónvarpsáhorfendur
11 þriðjudaga í röð og munu
víst m^rgir sakna þeirra.
Aðalhlutverkin leika
Francesca Annis og James
Warwick, en þau leika hjóna-
korn, sem reka leynilögreglu-
stofu og upplýsa mörg saka-
mál fyrir Scotland Yard af
mikilli snilld.
Þýðandi er Jón O. Edwald.
Skarpsýnu skötuhjuin syngja sitt
sí&asta á skjánum í kvöld.
Sjónvarp kl. 20.40:
Bruni á
fenj asvæðum
Árið þegar brann heitir bresk
náttúrulífsmynd, sem sjónvarpið
sýnir í kvöld. Hún var tekin árið
1980 á fenjasvæðum Flórída í
Bandaríkjunum.
Þessi fenjasvæði hýsa margs
konar dýralíf, þar á meðal fugl af
hauksættinni, er kallast á ensku
Kite og er býsna sjaldséður.
Þarna var verið að taka mynd
fyrir breska sjónvarpið af þessum
fugli, en miklir þurrkar urðu um
sumarið þannig að fenjasvæðin
þornuðu upp og biðu nánast eftir
því að eldur blossaði upp. Og það
gerðist. Myndin um ránfuglinn
var aldrei gerð, en sjónvarps-
menn voru á staðnum og filmuðu
annað sem gerðist. „Árið þegar
brann“ þykir einstök heimilda-
mynd um náttúruhamfarir og af-
leiðingar þeirra fyrir allt kvikt á
stóru landsvæði.
„Ég skal segja þér þaö Jóhanna
mín aö maöurinn minn tilbiöur
beinlínis jörðina sem ég geng á.“
Skrifið
eða
hringið
Lesendadálkur Þjóðviljans
stendur opinn öllum landsins
mönnum og konum, sem vilja
tjá sig í stuttu máli á opinberum
vettvangi. Nafnleyndar verðut
!gætt, sé þess óskað, en nafn
verður að fylgja bréfi. Utan-
áskriftin er: Lesendaþjónusta
Þjóðviljans, Síðumúia 6, 105
Reykjavík. Þá nægir einnig ac
hringja í síma 81333 milli 10 oj.
18 hvern virkan dag.
bridge
Það er óhætt að fullyrða að aldrei
í sögu bridgesins hafi úrslit verið
eins óvænt og í undanúrslitum is-
landsmótsins si. helgi.
Þrjár efstu sveitirnar úr úrslitum
Reyicjavikurmótsins duttu út, og að-
eins tvær af átta sveitum í úrslitum
1983 komust áfram.
Ótrúlegt.
Óheppni er ekki einhlít skýring,
getu- eða æfingarleysi er ekki hægt
að kenna um. Eða hvað finnst ykkur
um eftirfarandi spil:
Norður
S AK1098
H 94
T K7
LG 1052
Austur
S 62
H KG72
T DG853
L 63
Suður
S G
H A863
T A1062
L AK98
Þetta spil er úr síðustu umferð, í
leik Samvinnuferða-Landsýnar
gegn Ágústi Helgasyni, sem þeir
fyrrnefndu þurftu að vinna stórt, til
að eiga von. Á þessi kort var því
keyrt í 6 lauf, i suður og við stjórnvö-
linn var Sigurður Sverrisson, og
það jók heldur við vinningslíkurnar.
Útspilið var hjarta sem Sigurður
vann á ás. Ás og kóngur í trompi.
Spaða gosa hleypt, vitaskuld, þeg-
ar vestur lét lítið. Tígull á kóng, þá
spaðaás, hjarta látið að heiman og
spaði trompaður.
Sigurður er sem sagt að spila
vestur með spaða drottningu 4. eða
5. Tígull frá suður, vestur má ekki
sjá af spaða í stöðunni og vitanlega
er uppgjöf að trompa, þá fer hjarta
taparinn úr blindum. Vestur gaf því
hjarta i. Trompað í blindum. Spaða
kóngur og hjarta látið í, og síðasti
spaðinn trompaður með síðasta
trompinu á suður hendinni. 11
slagir. Tígli spilað og síðasta tromp-
ið í boröi lá yfir drottningu vesturs
og tryggði 12.slaginn. Hinn óhjá-
kvæmilegi hjartatapari var því
trompaður af vestur í 13. slag!
Stórkostlegt spil, og glæsilega
leikið Sigurður!
Vestur
S D7543
H D105
T 94
L D74
Tikkanen
Þoli maður gagnrýni á maður
að gcrast gagnrýnandi en ekki
listamaður.