Þjóðviljinn - 18.04.1984, Blaðsíða 1
UÚÐVHHNN
Lissabon-
ályktunin um
samskipti Evr-
ópu við fátækari
þjóðir.
bls. 6-7
miðvikudagur
apríl
90. tbl.
49. árgangur
Brot á helgidagalöggjöfinni
Skýtur mjög
skökku við
segir
fréttaritari
Þjóðkirkjunnar
um kaupstefnu
fjármála-
ráðherra
ríkisstjórnar-
innar á
föstudaginn
langa
„Mér finnst það sannarlega
skjóta skökku við og harla
undarlegt að velja föstudag-
inn langa til þess að vera með
sölukaupstefnu", sagði séra
Bernharður Guðmundsson
fréttafulltrúi Þjóðkirkjunnar í
viðtali við Þjóðviljann í gær.
Fjármálaráðherra hefur boð-
að íslenska athafnamenn til
„kaupstefnu" meðfrönskum
kaupsýslumönnum á Hótel
Sögu á föstudaginn langa.
Þjóðviljinn fékk þær upplýs-
ingar í fjármálaráðuneytinu að
kaupsýsla þessi á hinum helga
degi væri ekki á nokkurn hátt
tengd ráðuneytinu. Hins vegar
væri fjármálaráðherra einnig
franskur konsúll og vörukynning
þessi væri á vegum konsúlsins.
Brot á
helgidagalöggjöftnni
Samkvæmt íslenskum lögum er
hér um skýlaust lagabrot að
ræða. Prófessor Ármann Snæ-
varr vísaði til laga um almanna-
frið á helgidögum Þjóðkirkjunn-
ar. f lögum númer 45 frá 1926 er
kveðið á um bann við vinnu úti og
inni sem raskar friði helgidagsins.
„Kaup og sala má eigi fara fram á
helgidögum Þjóðkirkjunnar í
sölubúðum kaupmanns, kaupfé-
laga né annarra sölumanna“. Og í
þriðju grein laganna er kveðið á
um að ekki megi á neinum
veitingastöðum halda veislur og í
fjórðu grein er einnig kveðið á
um bann við mörkuðum á helgi-
dögum kirkjunnar. í 6. grein lag-
anna er svo kveðið á um bann við
almennum fundum um veraldleg
efni. í 7. grein er kveðið á um að
bönnin í fyrrnefndum greinum
eigi við allan föstudaginn ianga.
Brot við lögunum varða sektum
eða svipting veitingaleyfis.
-óg/lg
Erlendar skuldir sem hlutfall af þjóðarframleiðslu
60.6% í árslok 1983
• Erlendar skuldir jukust um 3000 miljónir á síðasta ári
• Skuld ríkissjóðs við Seðlabanka jókst um 400% á síðasta ári
Heildarskuldir þjóðar-
búsins hjá erlendum lána-
drottnum hafa aldrei verið
meiri í sögunni en núna. í
lok ársins 1983 námu
skuldir hvorki meira né
minna en 36.3 miljörðum
króna, en það er 60.6% aí
þj óðarframleiðslunni.
Skuldirnar jukust á síð-
asta ári um tæpa 3 milj-
arða.
Þessar upplýsingar komu fram á
ársfundi Seðlabanka íslands sem
haldinn var í gær. Jóhannes Nordal
bankastjóri sagði að hlutfall er-
lendra skulda af þjóðarframleiðslu
hefði verið 36.7% í árslok 1981,
47.8% í árslok 1982 og í árslok 1983
60.6% eins og fyrr sagði. Þessi
mikla aukning stafar af miklum
lántökum, hækkun á verði erlends
gjaldmiðils, einkum Bandaríkja-
dollars, og auk þess hefur þjóðar-
framleiðslan minnkað ár frá ári
sem þýðir að skuldabyrðin hækkar
sem hlutfall þar af.
Jóhannes Nordal sagði hina
miklu skuldabyrði þjóðarbúsins út
á við vera eitt meginvandamál í
efnahagsstöðu fslendinga í dag.
Yrði lántökustefnan að verða gæti-
legri í framtíðinni. Hann benti á
það í ræðu sinni að varðandi efna-
hagsstjórn flestra vestrænna ríkja
væri eitt helsta vandamálið það
sem kalla mætti sjálfheldu velferð-
arríkisins. Ríkisvaldið hefði í
auknari mæli tekið á sig vaxandi
skuldbindingar til hagsbóta fyrir al-
menning. Með ókeypis þjónustu,
styrkjum og lánafyrirgreiðslu legð-
ust síþyngri kröfur á ríkissjóð sem
mönnum finndist þeir eiga rétt til
að gera og bera litla ábyrgð á að
greiða. Jafnframt þessu væru menn
ófúsir að bera þyngri skatta til að
standa undir útgjöldunum. Afleið-
ingin væri rík tilhneiging til hallar-
ekstrar sem svo væri fjármagnaður
með sfvaxandi lántökum. Þarna
yrði að stemma stigu við, ekki að-
eins hvað varðaði erlendar lán-
tökur heldur ekki síður vaxandi
skuldasöfnun ríkissjóðs hjá Seðla-
bankanum.
í ársskýrslu Seðlabanka íslands
fyrir árið 1983 kemur fram að ríkis-
sjóður hafi skuldað bankanum um
1.470 miljónir króna í árslok.
Skuldirnar námu til samanburðar
um 300 miljónum króna í árslok
1982. Skuldirnar stighækkuðu árin
1978 til ársloka 1982, samtals um
2.2. miljarða króna mælt á verðlagi
í árslok 1983. Til samanburðar
jókst skuldin um 1.2 miljarð á síð-
asta ári einu.
- v.
Sérrit
um Nes-
kaupstað
Þjóðviljanum í dag
fylgir sérrit um Nes-
kaupstað. Efni í sérritið
var unnið í tengslum við
ferðalag forystumanna
Alþýðubandalagsins
um Austurland fyrir
skömmu, en meira efni
úr þeirri för mun birtast
í páskablaði Þjóðvilj-
ans og síðar.
-ÖS
Fari hlutfall erlendra skulda upp fyrir 60% af þjódarframleiðslu á þessu ári
„Þá er ríkisstjórn Steingríms
sprungin og á að fara frá“
„Éghefsagtþaðáðurog ég segi það enn, að
núverandi ríkisstjórn hefur engu hlutverki að
gegna og verðurað fara frá völdum án skilyrða
efhlutfall erlendra skulda af
þjóðarframleiðslunni verðurlátið vaða upp
fyrir 60% markiðu. (Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra í viðtali við Þjóðviljann 12.
janúarsl.)