Þjóðviljinn - 04.05.1984, Qupperneq 1
DJQÐVILJINN
„I garðinum 1“
- fylgir blaöinu í dag
Sjá 9-16
maí
föstudagur
99. tbl.
49. árgangur
„Bandormur“ stjórnarinnar skerðir kaupið
2% rýrnun kaupmáttar!
„Kœmi ekki á óvart þótt
kaupskerðingin væri meiri
þegar upp er staðið“, segir
GuðmundurJ. Guðmunds-
son
„Þetta kemur mér alls ekki á óvart, en þetta er varleg
spá og það kæmi mér heldur ekki á óvart þótt þetta yrði
töluvert meiri kaupskerðing þegar upp er staðið“, sagði
Guðmundur J. Guðmundsson í viðtali við Þjóðviíjann í
gær um þá spá Þjóðhagsstofnunar að við aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar rýrni kaupmáttur á árinu um rúm 2%.
„Við skulum minnast þess að
það var helsta fullyrðing aðilja við
gerð síðustu kjarasamninga að ver-
ið væri að tryggja kaupmátt launa
og fannst nú flestum nóg um. En
hér skjalfestir ríkisstjórnin, að hún
telur sig þegar vera búna að skerða
kaupmáttinn um 2% með þessum
aðgerðum", sagði Guðmundur J.
enn fremur.
í greinargerð með frumvarps-
bandormi ríkisstjórnarinnar fylgja
spár um þróun kaupmáttar
kauptaxta 1984 þarsem annarsveg-
ar er spáð um framvinduna án að-
gerða stjórnarinnar og hins vegar
eftir að þær eru komnar til fram-
kvæmda. Samkvæmt áliti Þjóð-
hagsstofnunar mun kaupmáttur
kauptaxta allra launamanna verða
97.6 á síðasta fjórðungi þessa árs,
ef hann er settur á 100 á síðasta
ársfjórðung 1983, sem var viðmið-
un kjarasamninga ASWSÍ. Ef
einungis er miðað við kaupmátt
kauptaxta innan ASÍ verður hann
97.9 miðað við 100 á síðasta árs-
fjórðungi si. árs. Fram kemur í
spám Þjóðhagsstofnunar, að ef að-
gerðirnar hefðu ekki komið til,
hefði þessi kaupmáttur frá síðasta
ársfjórðungi 1983 haldist nokkum
veginn óbreyttur út árið.
-óg/lg
Hvað er í bandorminum?
Sjá bls. 3
Búsetamálið:
Ólga á Alþingi
Þingforseti reiður
Harðvítugar deilur stjórnarsinna
Harðvítugar deilur eru nú innan ríkisstjórnarinnar um hvort bygging-
arsamvinnufélagið Búseti falli undir ákvæði um lánakjör til félagslegra
íbúðabygginga. Félagsmálaráðherra telur að svo sé tryggt í þeim lögum
um húsnæðisstofnun ríkisins sem nú liggja fyrir alþingi. Sjálfstæðismenn
eru á móti þeirri túlkun.
Þegar greiða átti atkvæði í neðri
deild síðdegis í gær um hin nýju lög
og breytingartillögur óskuðu þeir
Þorsteinn Pálsson og Alexander
Stefánsson eftir því við þingforseta
að málið yrði tekið af dagskrá. Ing-
var Gíslason forseti neðri deildar
brást reiður við og sleit þegar fundi
þar sem hann hafði fengið vilyrði
fyrir að málið yrði afgreitt til þriðju
umræðu og haldið næturfund um
málið til fjögur í fyrrinótt.
Stjórnarandstöðuþingmenn
höfðu óskað eftir því við umræð-
umar að ríkisstjómin gæfi yfirlýs-
ingu við afgreiðslu húsnæðisfrum-
varpsins um að réttur Búseta væri
tryggður.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans tók félagsmálaráðherra þetta
deilumál um stöðu Búseta í hús-
næðiskerfinu upp á fundi ríkis-
stjórnarinnar í gærmorgun og fékk
þar samþykki fyrir sinni túlkun.
Þegar þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins fréttu af þeirri afgreiðslu í gær
brugðust þeir illir við og þrátt fyrir
klukkustundarlangan þingflokks-
fund síðdegis í gær tókst ekki að
sætta sjónarmið manna.
Félagsmálaráðherra sagði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær að hann
stæði fast á sinni skoðun og það
væri að sínu mati ástæðulaust að
„ráðast svona á þetta félag“, eins
og hann orðaði málflutning Sjálfs-
tæðismanna.
->g-
Sjá bls 3
Þessar gömlu lelfar frá stríðsárunum eru orðnar að dvalarstað helmlllslauss fólks í Reykjavík. Mynd: ATLI.
Á -
ff - gS8B
fl ■ y: xjL
Hellisbúar
í Reykjavík
Öskjuhlíðin, hinn rómaði útivistarstaður, býður
upp á fleira en fagurt umhverfi. Neðanjarðar eru
gömul byrgi frá stríðstímum og ofanjarðar má einnig
finna byrgi sem eru gamlar leifar mannvirkja. í þeim
er dvalarstaður fólks sem ekki á i önnur hús að venda.
A ferð Þjóðviljans um Öskjuhlíð í gær komumst við
að raun um að þar er fleira gert en að ganga um
hlíðina í góðu veðri og njóta náttúru og útsýnis.
í einu byrginu voru svefnpokar og matarleifar
Heimilislaust fólk leitar skjóls
í Öskjuhlíðinni
ásamt glösum og flöskum undan vínföngum, dropum
og pillum. Einnig voru þar sokkaplögg og fleira dót. í
fleiri neðanjarðarbyrgjum voru ummerki eftir fólk en
ekki svefnpokar.
Við fengum þær upplýsingar hjá lögreglunni í gær
að þeir hafi engin afskipti haft af fólki sem dvelst í
Öskjuhlíðinni. Sögðu þeir mikið um að heimilislaust
fólk sofi hjá þeim yfir vetrarmánuðina en á sumrin
sofi það hingað og þangað. -jp