Þjóðviljinn - 04.05.1984, Side 7

Þjóðviljinn - 04.05.1984, Side 7
Föstudagur 4. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Landfræðifélagið með málþing Landafræðikennsla Á morgun, laugardag, gengst Landfræðifélagið fyrir málþingi um landafræðikennslu í framhalds- skólum og gerð námsefnis og stöðu landafræði í efstu bekkjum grunn- skóla. Málþingið hefst kl. 10 árdegis í húsakynnum Kennslumiðstöðvar Námsgagnastofnunar að Lauga- vegi 166 í Reykjavík. Fyrir hádegi mun Karl Kristjáns- son aðstoðarskólameistari fjalla um stöðu landafræðinnar í fram- haldsskólum, og gestur þingsins, Allan Jansson varaformaður félags landafræðikennara í Svíþjóð, ræðir efnið: Hvaða erindi á landafræðin í skóla samtímans? Eftir hádegi ræðir Guðrún Ól- afsdóttir lektor um háskólanám í landafræði og tengsl þess við fram- haldsskólastigið. Erla Kristjáns- dóttir námsstjóri og Aðalsteinn Eiríksson skólastjóri tala um for- sendur námsefnisgerðar í samfé- lagsfræði í grunnskólum og stöðu 2-1984 I máls og menningar ¥ FÆREYJAR Turld S. Joensen Rói Patursson Guðrið Helmsdal Nielsen Oddvor Johansen Jóanos Nielson Sigurður A. Magnússon Þorgoir Þorgelrsson Einar Kárason Kristján Amason Thor Vilhjálmsson íslenskar og færeyskar bók- menntir Annað hefti Tímarits Máls og menningar 1984 er komið út. Er það að hluta helgað færeyskum bókmenntum - til að minna Islend- inga á að þar skrifa fleiri bækur en William Heinesen. Turið S. Joen- sen sem hefur m.a. stundað nám við Háskóla íslands skrifar greinina „í leit að nútíðinni - í uppgjöri við fortíðina" um nýjar færeyskar bókmenntir, og birt eru sýnishorn í bundnu og óbundnu máli eftir fjögur færeysk skáld. íslensk skáld eiga einnig efni í heftinu, þar má finna ljóð eftir Sig- urð A. Magnússon, Kristján Árna- son, Einar Ólafsson, Sigfús Bjartmarsson og Kristján Jóh. Jónsson og sögu eftir Pétur Hraunfjörð. Þorgeir Þorgeirsson hugleiðir grein Milans Kundera sem birtist í síðasta hefti í ádrepunni „Viska sem erfitt reynist að sætta sig við.“ Birt er erindi Einars Kárasonar frá nýlegum fundi um íslenskar bók- menntir, og Thor Vilhjálmsson skrifar um spænska Nóbelsskáldið Vincente Aleixandre. Tvær greinar um bókmenntir eru í heftinu, önnur um nýjar athugan- ir á íslendingasögum eftir Véstein Ólason, hin nefnist „Konan, draumurinn og dátinn", og er eftir Kristin Kristjánsson. Ritdómar eru um nýjustu bækur Ólafs Hauks Símonarsonar og Andrésar Indriðasonar. þeirrar námsefnisgerðar í dag. Loks ræðir dr. Sigfús Jónsson efn- ið: Námsefni í landafræði á fram- haldsskólastigi - hugleiðing um inntak og aðferðir. Að loknum þessum erindum verða umræður um stöðu landa- fræðinnar í íslenska skólakerfinu og hvert stefna beri í framtíðinni. Málþing Landfræðifélagsins er öllum opið og eru kennarar sér- staklega hvattir til þátttöku. Selfyssingar: Útimarkaður Fjáröflun Leikfélagsins fyrir írlandsferð Leikfélag Selfoss ætlar að halda stórkostlegan útimarkað í dag, föstudaginn 4. maí kl. 14 við Austurveg 9-11, Selfossi. Þar verður boðið upp á alls kyns gersemar, kökur, fatnað, húsgögn og gjafavörur, spákona verður á staðnum til að skyggnast inn í fram- tíð manna, breikdansarar munu sýna listir sínar, teiknari mun teikna vegfarendur og allskonar spil og lotterí verða á staðnum að ónefndu ókeypis kaffi fyrir alla. Sem sagt eitthvað fyrir alla á Sel- fossi í dag. Einnig verða boðin nokkur sæti sem enn eru laus í ferð leikfélagsins til írlands en allt er þetta gert vegna ferðar á leiklistar- hátíð í Dundalk á írlandi 25.5.-4.6. með leikrit Jónasar Árnasonar, „Þið munið hann Jörund". FIAT verksmiðjurnar ítölsku bjóða nú FIAT Panda með drifi á öllum hjólum. Meðaleyðsla er aðeins um 5.9 lítrar á 100 km. Úti í Evrópu er Fiat söluhæsti bíllinn um þessar mundir og hér hefur salan gengið vel. Ný Fíat-lína Fíat hefur gert mikla breytingu á framleiðslu sinni síðustu misserin og framleiðir nú 6 megintegundir bifreiða í stað 10-12 að meðaltali á síðasta áratug. Sá nýjasti frá Fíat heitir Fiat Reg- ata. Þetta er meðalstór fjölskyldu- bfll, framdrifinn og hefur hlotið lof fyrir góða aksturseiginleika. Reg- ata eyðir aðeins um 5,4 1 bensíns á hundraðið ef ekið er á 90 km hraða. Hann er boðinn með 68, 82 og 100 hestafla vélum. Fiat Uno var kjörinn bfll ársins í Evrópu 1984 og það sem helst er talið honum til tekna er mikið rými í þetta litlum bfl, ótrúleg spar- neytni og góðir aksturseiginleikar. Fiat Uno eyðir um 4,3 lítrum á hundraðið. Hann býðst með 4 mis- stórum vélum, 45-70 hestöfl. Nú er Fiat Panda boðin í fyrsta sinn hér á landi með drifi á öllum hjólum og er sniðinn fyrir hvers kyns ófærð og slæma vegi. Þá býðst í fyrsta sinn hinn vinsæli Fiat 127 í station-útfærslu en sá bfll nefnist Panoram. Með því að leggja aftur- sætið niður er bflnum breytt í rúm- góðan sendiferðabíl. Flaggskip Fiat verksmiðjanna er Fiat Argenta sem nú er kynntur í breyttri og bættri útfærslu, ýmist með bensín eða dísilvél. Bensínvél- arnar eru 98 og 122ja hestafla og dísilvélarnar 72ja og 90 hestafla. MAI ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA 1. 2. 3 4. Ríkissjóður íslands hefur ákveðið að bjóða út ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár- laga 1984 og með hliðsjón af ákvæðum laga nr. 79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana. í boði verða víxlar að nafnvirði samtals 30.000.000 kr. með útgáfudegi 11. maí 1984 og gjalddaga 10. ágúst 1984. Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald- daga. Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 5 víxlum (þ.e. nafnverð 250.000 kr.). Allir tilboðs- gjafar skulu láta fylgja hverju tilboði sínu gjald- keratékka, þ.e. tékki sem gefinn er út af innláns- stofnun, sem tilboðstryggingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð 10.000 kr. og stílaður á Seðla- banka íslands v/ríkisvíxlaútboðs. Gangi tilboðs- gjafi frá tilboði sínu, sbr. þó 7. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella gengur hún upp í ríkisvíxla- viðskipti viðkomandi aðila eða verður endur- send sé tilboði hafnað af ríkissjóði. Tilboð, sem ekki fylgir greind innborgun, skal meta ógilt. Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru: Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris- sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu- neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru af Tryggingaeftirliti ríkisins. Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem p fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg- ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 9. maí 1984 og séu í lokuðum ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð". 8. 10. 11 Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað- festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu- leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild Seðlabankans fyrir kl. 14.00 hinn 9. maí 1984. Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er, verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00 hinn 10. maí 1984. Staðfestingarbréf verða auk þess send til þeirra. Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér- staklega að öðru leyti en með endursendingu tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til- boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla. Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl. 14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs- gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs- gjafi glatartilboðstryggingu sinni. Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn- unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglur og gilda hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Utboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja lCmm frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar- stræti 10, Reykjavík. Reykjavík, 3. mai 1984 RIKISSJ OÐURISLANDS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.