Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN! Föstudagur 4. maí 1984 Hörður Jóelsson t.v. og Jónas Henningsson, sklpverjar á Hástelnl á bryggjunnl á Stokkseyrl í gœr. Byrjaö var að þétta Hástein ÁR svo hægt verði að sigla honum til viðgerðar í sllpp. (Ljósmyndir - S.dór). Hásteinn ÁR sigldi á Kára VE fyrir utan Stokkseyri: „ Hann sökk á svipstundu“ „Við vorum fjórir sofandi í lúkar og vöknuðum upp við höggið, hent- umst fáklæddir uppá dekk og sáum strax að hverju stefndi. Okkur tókst að koma björgunarbátnum í sjóinn, stukkum allir á eftir og gekk vel að komast um borð í hann. Þetta hefur varla tekið meira en 2-3 mínútur og á þeim tíma sökk Kári, enda drekkhlaðinn af fiski, þetta var okkar besti túr í vetur, við vor- um með 65 lestir af fiski“, sagði Hörður Jónsson, vélstjóri á Kára VE í samtali við Þjóðviljann i gær. Atburðurinn átti sér stað 1.5 sjómflur fyrir utan Stokkseyri, um kl. 6.30 í gærmorgun. Kári VE var 100 tonna trébátur og sem fyrr segir að koma úr róðri á Ieið til Þorlákshafnar, en Hásteinn ÁR 65 tonn var aftur á móti á leið í róður frá Stokkseyri. Hásteinn sigldi á stjórnteorðskinnung Kára sem sökk á innan við 3 mínútum. Veður var mjög gott þegar at- burðurinn gerðist og hefur það án vafa haft sitt að segja hve vel tókst til við björgun skipverja á Kára, sem höfðu svo skamman tíma til að koma gúmmbáti á flot, yfirgefa skipið og komast uppí björgunar- bátinn. Skipverjar á Hásteini björguðu svo skipbrotsmönnum um borð og snéru við til Stok- kseyrar. Hásteinn er nokkuð skemmdur. Leki kom að honum og stefnið skemmdist. Báturinn verð- ur að fara í slipp til viðgerðar. - S.dór Verður mannbjörg? var það fyrsta sem manni datt í hug 'U „Ég var á dekki þegar þetta gerð- ist og það fyrsta sem manni datt í hug var hvort mannbjörg yrði, það var alfyrsta hugsunin. Síðan grip- um við björgunarhringi og hentum til þeirra ef þeim tækist ekki að komast í björgunarbátinn, en það tókst þeim bæði fljótt og vel“, sagði Hörður Jóelsson skipverji á Há- steini ÁR, þegar Þjóðviljinn ræddi við hann og Jónas Henningsson, vélstjóra á Hásteini ÁR. Ég var í stýrishúsinu, hafði lagt mig þar á bekk augnablik, ég kast- aðist af bekknum við áreksturinn. Það fyrsta sem ég gerði var að skreppa ofan í vélarrúm ef leki hefði komið að bátnum hjá okkur, en þegar ég sá að svo var ekki, þaut ég aftur upp og þá var Kári VE að sökkva í hafið. Þetta hafa verið svona 2 mínútur, varla meira", sagði Jónas. Hörður sagði að sér hefði að sjálfsögðu brugðið mjög mikið, enda geta mannslíf alltaf verið í hættu þegar svona nokkuð gerist. En þetta hefði allt gerst svo snöggt, að menn væru varla farnir að átta sig. Þeir félagar sögðu Hástein ÁR allmikið skemmdan, leki hefði komið að skipinu, innréttingar gengið til og Ijóst væri að stefnið væri all mikið skemmt. Skipið verður að fara í slipp, þannig að báturinn fer ekki meira til veiða á þessari vetrarvertíð sem lýkur 11. maí og vertíðin hjá þeim hefði ver- ið í lakasta lagi, þeir væru aðeins búnir að fá um 300 lestir. - S.dór Nýtt íslenskt leikrit frumsýnt: Fj ör eggið __________________________________________________________________ FJÖREGGIÐ, nýtt íslenskt víkur næsta miðvikudag. Leikritið ~ ~ 7 , „. . ~ leikrit eftir Svein Einarsson verð- >gerist í Reykjavík á okkar dögum. Svelnn Einarsson fyrrum lelkhusstjórl er hofundur nys leikríts sem verður ,e . ... , Dovkia ISIeikararkomaframísvnineunni frumsýnt. Iðnó í næstu vlku. Mynd - ATLI. ur frumsynt hja Leikfelagi Reykja- 15 leikarar koma tram i synmgunm 1 ’ _____________________________ sem Haukur J. Gunnarsson leik- stýrir. „Mig hefur lengi langað til að skrifa en hef ekki haft tíma og að- stöðu til þess fyrr en ég hætti sem leikhússtjóri", sagði höfundurinn Sveinn Einarsson sem löngu er þjóðkunnur fyrir störf sín að leiklistarmálum. Hann var leikhús- stjóri Leikfélags Reykjavíkur á ár- unum 1953-1972 og síðan þjóð- leikhússtjóri til 1983. Hann hefur einnig sett upp fjölda sýninga og samið útvarps- og sjónvarpsleikrit Jón Rúnar Sveinsson um húsnæðisfrumvarpið: Opnar fyrir Búseta „Ég fagna því, að félagsmálaráð- herra ætlar að taka af skarið opin- berlega í þessu máli, en hann hefur lýst því yfir við stjórn Búseta, að hann ætli með frumvarpinu að opna húsnæðissamvinnufélögum lánamöguleika úr Byggingarsjóði verkamanna. Aðstoðarmaður fé- lagsmálaráðherra gaf einnig slíkt loforð á stofnfundi félagsins 15. nóvember og ég trúi hreinlega ekki öðru en ráðamenn standi við sín orð“, sagði Jón Rúnar Sveinsson, formaður húsnæðissamvinnufé- lagsins Búseta í Reykjavík og ná- grenni í samtali við blaðið í gær. „Ég tel þetta frumvarp greini- lega opna Búseta leið til lána hjá Byggingarsjóði verkamanna", sagði Jón Rúnar Sveinsson enn- fremur í samtali við Þjóðviljann. „Ég vil sérstaklega benda á athuga- semdir í frumvarpinu við 54. greinina, en þar segir, að Bygging- arsjóði verkamanna sé ætlað að veita lán til félagasamtaka og stofn- ana, sem byggja leiguíbúðir, og sérstaklega tekið fram, að hagsmunaaðilar geta myndað samtök til þess að byggja leiguí- búðir til afnota fyrir félagsmenn eða til leigu á almennum markaði. Þá er í hinum margumrædda c-lið 33. greinar, þar sem upp eru talin hlutverk Byggingarasjóðs verka- manna, hvergi minnst á tekju- mörk, né heldur á öðrum stöðum í frumvarpinu. Ég skil þetta frum- varp því þannig, að það opni tví- mælalaust fyrir Búseta“. ast ásamt því sem hann hefur gert leik- gerðir að þremur sögum Halldórs Laxness. „Þetta er fyrsta leikritið sem ég skrifa en ég er rétt að byrja og er með hugmyndir að öðru verki“, sagði Sveinn í gær. Hann hefur ver- ið í Færeyjum síðusfu vikur við leikstjórn en sagði nýjar tilfinning- ar blandast þeim gömlu við að koma aftur í Iðnó á þennan hátt. Æfingar á Fjöregginu hafa staðið yfir síðan í byrjun mars og sagði Haukur J. Gunnarsson leikstjóri gott að vinna eftir þessu verki. „Það ber þess öll merki að það er maður sem þekkir leikhús sem hef- ur samið það“. Stefán Baldursson leikhússtjóri sagði leikritið alvarlegs eðlis en- með ífléttuðu skopi á skemmti- legan hátt. Sagan er um fjölskyldu í Reykjavík og fjallar um ólík við- horf og skoðanir þriggja kynslóða. -ÍP Afmælishátíð hjá Heklu í dag verður haldin mikil afmæl- ishátíð hjá Heklu h.f. í tilefni 50 ára afmælis fyrirtækisins. Verður i dag haldið bjóð fyrir um 600 manns í husakynnum fyrirtækisins og verða meðal gesta fulltrúar þeirra fyrirtækja sem Hekla h.f. skiptir við erlendis. Um helgina verður fyrirtækið svo kynnt almenningi og verður þá margt á dagskrá. Skemmtiatriði eins og Steini og Olli, Karlakór lög- reglunnar syngur o.fl. Það verða ekki aðeins húsakynni fyrirtækisins sem sýnd verða, heldur þær vörur sem það hefur umboð fyrir hér á landi. Þá verða til sýnis gamlir grip- ir, svo sem Land/Rover og Fólks- vagn frá árinu 1948 en Hekla hefur umboð fyrir þessar bifreiðategund- ir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.