Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 15
Föstudagur 4. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN' — SÍÐA 23 RUV 1 lesendum 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bœn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurðar Jónssonar frá kvöld- inu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Gyða Jónsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Hnífapara- dansinn" eftir Jón frá Pálmholti Höfundur les (7). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.) 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Krist- jánsson frá Hermundarfelli sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15 Tónleikar. 11.35 Heimaslóð. Ábendingar um ferðaleiðir. Umsjón: Ari Trausti Guðmundsson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egils- sonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson les (17). 14.30 Miðdegistónleikar. Belgiska kammer- sveitin leikur Divertimento í D-dúr K. 136 eftir Wolfgang Amadeus Mozarl; Georges Maes stj. 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eíríksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplötur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar. Walter Triebskorn og Sinfóníuhljómsveitin í Beriín leika Kons- ertínu fyrir klarinettu og hljómsveit eftir Fer- uccio Busoni; C.A. Búnte stj. / Aaron Ros- and og Sinfóníuhljómsveit Luxemborgarút- varpsins leika Fiðlukonserl op. 11 eftir Jos- eph Joachim; Siegfried Köhler stj. 17.10 Sfðdegisvakan 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Vlð stokkinn Stjómendur: Margrét Ól- afsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir. 20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thorodd- sen kynnir. 20.40 Kvöldvaka; a) Vatnajökulsleið og Árnakvteði;fyrri hluti Sigurður Kristinsson Ijallar um leið þá er Ámi lögmaður Oddsson er sagður hafa riðið til Þings. b) Einar Krist- jánsson syngur Fritz Weisshappe! leikur á pfanó. 21.10 Frá samsöng Karlakórs Reykjavíkur í Háskólabíói 5. apríl s.l. Stjórnendur: Páll P. Pálsson og Guðmundur Gilsson. Ein- söngvari: Kristinn Sigmundsson. Pianó- leikari: Anna Guðný Guðmundsdóttir. 21.40 „Helpresturlnn“ smásaga eftir Jörn Riel Matthías Kristiansen les þýðingu sína og Hilmars J. Haukssonar. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun- dagsins Orð kvöldsins. 22.35 Traðlr Umsjón: Gunnlaugur Yngvi Sig- fússon. 23.15 Kvöldgestir - Þáttur Jónasar Jónas- sonar. 00.50 Fréttir. Dagskráriok. 24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 hefst með veður- fregnum kl. 01.00 og lýkur kl. 03.00. 10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjómendur: Páll Þorsteinsson, Asgeir Tómasson og Jón Ól- afsson. 14.00-16.00 Pósthólfið. Stjórnendur: Hróbjart- ur Jónatansson og Valdís Gunnarsdóttir. 16.00-17.00 Bylgjur. Stjómandi: Ámi Daníel. 17.00-18.00 í föstudagsskapi. S^ómandi: Helgi Már Barðason. 23.15-03.00 Neeturvakt á Rás 2. Stjómandi: Ólafur Þórðarson. Rásir 1 og 2 samtengdar með veðurfréttum kl. 01.00 og heyrist þá f Rás 2 um allt land. Tilbeiðsla á hégóma er tál Það er flestum kunnugt í okk- ar samfélagi hér norður á hjara veraldar hve mikil og snögg tæknibylting hefur átt sér stað síðastliðna fjóra áratugi. Raun- ar víðast hvar á þessari jarðk- ringlu. Svo ótrúleg bylting í alis- konar tækjakosti til lands og sjávar að engar hliðstæður eru frá fyrri öldum samanlögðum. Nú verður að segjast eins og satt er að margt af þessum tækj- abúnaði er vitanlega af hinu góða, svo sem heimilistæki ým- iss konar, tæknibúnaður til iðn- aðar, landbúnaðar og sjávarú- tvegs o.fl. Það er hinsvegar hálf hlálegt að þurfa að halda því fram í fullri alvöru að íslensk þjóð eigi í svipinn of mörg og stór skip. Og stór og dýr í rekstri. Hverjum hefði dottið þvflíkt í hug fyrir hálfri öld? Því spyrja menn í fullri allvöru: Getur þetta verið satt? Og hverju er þá um að kenna? Minnkandi afla um sinn? Nei, ekki er það fullnægjandi skýring, vegna þess að þau voru einnig talin of mörg á þeim árum þegar aflaðist hvað mest. Og hverju er þá hægt að halda fram, sem fólk almennt tekur mark á? Því er sjálfsagt erfitt að svara. Röngfjárfestinger kann- ski eina svarið sem reynist hald- bært að nokkru. En eru það þá ekki ráðamenn þjóðarinnar á hverri tíð, sem hafa gert þessi axarsköft? Eða er það hinn óbreytti launamað- ur? Svari hver eftir sinni getu og sannfæringu. Reynist tækja- búnaður þjóðarinnar meira og minna út í hött verða ráðandi öfl að bera ábyrgð í raun en ekki aðeins í orðagjálfri á stór- um stundum. Þá ber að saka en ekki óbreytta þegna í okkar sambýli. Nú má með sanni segja að fjárfesting okkar sé röng á mörgum sviðum og ekki bætir það málstað ráðamanna íslensku þjóðarinnar. En svo er það hégóminn, sem ríður röftum í okkar samtíð sem aldrei fyrr. Og það gengur svo langt að varla er framleiddur svo ómerkilegur hlutur að hann þyki ekki beinlínis lífsnauðsyn- legur, meira að segja í sveltandi veröld. Hvað veldur öllum þessum ósköpum? Það er sjálf- sagt margslungið og ekki slungið, - einfalt en þó marg- þætt. Og þá kemur lokaspurning- in: Er mannfólkið á síðustu ára- tugum ánægðara með tilveruna en áður fyrr? Ég held varla. Þrátt fyrir allan hégómann er raunin sú, að fólk var almennt ánægðara fyrir hálfri öld eða svo. Hégóminn skapar ekki þá lífshamingju sem fólk leitast við að finna, hversu magnaður og margslunginn sem hann er, ein- faldlega vegna þess að hann er hégómi. Raunveruleg lífsham- ingja er fólgin í sambýlishæfni fólks fyrst og síðast. Svo einfalt er svarið, þó að alltof mörgum finnist það flókið. - Verið þið sæl að sinni. Gísli Guðmundsson frá Steinholti, (Óðinsgötu 17). Myndln fær góða dóma í kvikmyndahandbókum, en þar leika Henry Fonda og Cliff Robertson stór hlutverk. Bestí Tveir stjórnmálamenn keppa um útnefningu til framboðs í for- seta kosningum í Bandaríkjun- um. Stuðningur ríkjandi forseta er þeim mikið keppikefli og gríp- ur annar frambjóðandinn til ör- þrifaráða til að öðlast hann. Þetta er í stuttu máli söguþráð- Sjónvarp kl. 22.00: maðurinn ur kvikmyndarinnar Besti mað- urinn sem sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 22.00. Myndin er bandarísk, gerð árið 1964, og leikstjóri er Franklin Schaffner. I aðalhlutverkum eru Henry Fonda, Cliff Robertson, Lee Tracy, Shelley Berman og Ma- halia Jackson. Mynd þessi fær góða dóma í kvikmyndahand- bókum okkar eða þrjár stjörnur í báðum bókunum, sem telst full- boðlegt hverri mynd. Hún er sögð óvenjuvel unnin og fyndin í þokkabót. ___________Sjónvarp kl. 21.15:______ Paradís samkvæmt tilskipun 19.35 Tónlistarskólinn. Bresk teiknimynd. 19.45 Fráttaágrip á táknmáli. 20.00 Fráttir og veéur. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.45 Á döfinni. Umsjónarmaður Kari Sig- tryggsson. Kynnir Bima Hrólfsdóttir. 20.55 Dire Straits. Stuttur dæguriagaþáttur með hljómsveitinni Dire Straits sem leikur tvölög. 21.15 Paradís samkvæmt tilskipun. Þýsk heimildamynd frá Norður-Kóreu sem lýsir landi og þjóð og þá ekki sist þjóðskipulaginu en það er reist á kennisetningum kommún- ismans. Þýöandi Veturfiði Guðnason. Þulur Bogi Amar Finnbogason. 22.00 Besti maðurinn (The Best Man). Banda- risk þiómynd frá 1964. Leikstjóri Franklin Schaffner. Aðalhlutverk: Henry Fonda, Cliff Robertson, Lee Tracy, Shelley Berman og Mahalia Jackson. Tveir stjórnmálamenn keppa um útnefningu til framboðs i forseta- kosningum í Bandarikjunum. Stuðningur rikjandi forseta er jreim mikið keppikefli og grípur annar frambjóðandinn til örþrifaráða til að öðlast hann. Þýðandi Guðbrandur Gíslason. 23.40 Fráttir i dagskrárlok. Sjónvarpið sýnir í kvöld þýska heimildamynd frá Norður Kór- eu, sem lýsir landi og þjóð og þá ekki síst þjóðskipulaginu. Mynd- in hefst kl. 21.15 og heitir á ís- lensku: Paradís samkvæmt til- skipun. í kynningu með myndinni, sem þýska sjónvarpið sendi frá sér, segir m.a. að miðaldir hafi ríkt á Kóreuskaga allt fram undir síð- ustu aldamót. Þá tóku Japanir völdin og þeir arðrændu land og þjóð í 35 ár. Ósigur Japana í síðari heimstyrjöldinni losaði Kóreubúa undan áþján nýlend- uskipulagsins, en jafnframt skipt- ist þjóðin í tvo helminga í afstöðu sinni til austurs og vesturs. Stjórnin í norðri aðhylltist kom- múnisma, en stjórnin í suðri vest- ræna háttu. Þessi skipting leiddi síðan til blóðugrar styrjaldar á ár- unum 1950-53, þar sem Banda- ríkjamenn komu mjög við sögu, eins og kunnugt er. Eftir styrjöld- ina var Kórea í sárum og jafn sárfátæk og í upphafi aldarinnar. Norðrið gat ekki lifað án stuðnings hinna voldugu ná- grannaríkja sinna, Kína og Sovétríkjanna, hvorki pólitískt né efnahagslega. En stjórnin hef- ur haft undravert lag á því að spila þessum tveimur grönnum saman og njóta góðs frá báðum,- án þess að láta af sjálfstæði sínu. Nú er hægt að skipa Norður Kór- eu á bekk með „hlutlausum" þjóðum heimsins, þ.e. þjóðum sem hvorki „tilheyra“ vestri né austri. Handritshöfundur mynd- arinnar, Peter Krebbs, segir: „Við getum ekki skipað Norður Kóreu á bekk með austurblokk- inni. Þvert á móti verðum við að sýna skilning og velvilja þegar N- Kóreubúar æskja samskipta við okkur.“ Skrifið eða hringið Lesendaþjónusta Þjóðvilj- ans stendur öllum Iandsins konum og mönnum til boða, er vilja tjá sig í stuttu máli um hvaðeina sem liggur á hjarta. Nöfn þurfa að fylgja bréfi, en nafnleyndar er gætt sé þess óskað. Utanáskriftin er: Les- endaþjónusta Þjóðviljans, Síðumúla 6, 105 Reykjavík. Þá geta lesendur einnig hringt í síma 81333 alla virka daga milli klukkan 10 og 6. bridge Flensan hjó skarö í spilagetu sumra spilara á þessu íslandsmóti. Guðmundur Páll í sveit Þórarins var illa fjarri góðu gamni og munar um minna. Jón Hjaltason, stórfyrirliði íslandsmeistaranna, var einnig hálf slappur (vegna flensu, það er að segja...). Hér er dæmigert „flensu- spil“. Höfundur er Jón Hjaltason: ÁG109 D84 ÁKD3 Á8 D8754 G52 6 K1073 632 K76 G1054 D52 K Á1093 9872 G964 Jón sat í Norður (N/S á hættu) og vakti á 1 laufi (sterkt). Hörður Árn- þórsson í Suður sagði 1 spaða (3 kontról), Jón 1 grand og Hörður sagði 2 grönd. Hval viltu segja á spil Norðurs? Nú, Jón sagði pass og flensan hafði þar með fengið prik. Á hinu borðinu renndu Vilhjálmur Þ. Pálsson og Þórður Sigurðsson sér að sjálfsögðu í 3 grönd og unnu þau með yfirslag. 10 stig til Selfoss, en það dugði þó skammt, því sveit Jóns vann leikinn 17-3. Tikkanen Með því að gefa þeirn meiri inn- sýn skilja þeir ennþá minna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.