Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.05.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 4. maí 1984 ÞJÓDVlLjlNN — SÍÐÁ 3 Bandormur ríkisstjórnarinnar uppí fjárlagagatið Arás á Einstakir hópar almennings illa fyrir ríkisstjórninni segir Svavar Gestsson kjarasamningana rrc illn -fwrir binrsSivill n verið að taka erlend lán til hluta greiéa enn einu sinni. Eg veit ekki iiO LLLLt I yí Lí ULlí L/LÍLLL LL sem aldrei hefur áður verið cert; til betur en kiarasamninear hafi mið- Þessar ráðstafanir ríkisstjórnar- innar eru árás á nýgerða kjara- samninga, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins í viðtali við Þjóðviljann í gær. Ég bendi á að einstakir hópar verða illilega fyrir barðinu á ríkisstjórn- inni í þessum aðgerðum einsog námsmenn, en ekki er annað að sjá en úthlutun það sem eftir lifir árs verði miðuð við 60% fjárþarfar í stað 95% eins og var fyrr á árinu. - Þá gengur sjúklingaskatturinn aftur með hækkun á heimsókn til sérfræðinga úr 100 krónum í 300. Það hefur heldur ekki lítið að segja, þegar hlutdeild þjóðfélags- ins í tannréttingakostnaði og tannviðgerðum barna og unglinga er minnkuð verulega einsog ríkis- stjórnin hefur ákveðið. - Hinar gífurlegu erlendu lán- tökur sem ríkisstjórnin boðar eru með ólíkindum. Þjóðhagsstofnun er látin finna tölu til að halda hlutfallinu innan við 60% en það breytir engu um að í fyrsta skipti er íi hefur áður verið gert; 1 að fjármagna skuldbreytingar á lausaskuldum bænda, í vangoldin bamsmeðlög, viðhald á skipum, ferðalög til útlanda og svo fram- vegis. Gatið í ríkissjóði hefur verið fyllt til málamynda en her- kostnaðinn eiga launamenn að betur en kjarasamningar hafi mið- ast við kaupmátt síðasta ársfjórð- ungs 1983, en ríkisstjórnin segir sjálf frá því í greinargerð með fíumvarpinu að kaupmáttur muni rýma um rúmlega 2% á árinu. Era það ekki samningsrof? sagði Svav- ar Gestsson að lokum. ~úg Erlendu lánin uppí gatið hjá ríkisstjórninni 1852 miljóna erlend lán v * . • ! 1 fA • 1 ! / _ 1 £. ! . £'1 „1 1: A ^ rnilf O A fol/o ollt O 1 I aðgerðum ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að tekin verði erlend lán að jafnvirði 150 miljóna til að fjármagna vangoldin barnsmeðlög. í „bandormi“ ríkisstjómarinnar segir að skuld Innheimtustofnunar sveitarfélaga við Tryggingastofn- unina nemi 150 miljón krónum (árslok 1983) og framvegis verði Innheimtustofnun sveitarfélaga að skila Tryggingastofnun því sem innheimtist mánaðarlega. Síðan segir í einni grein frum- varpsins, að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skuli greiða Inn- heimtustofnuninni það sem á vant- ar að tekjur hennar nægi til endur- greiðslu Tryggingastofnunarinnar. Og í 26. grein bandormsins segir svo: „Félagsmálaráðherra f.h. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er hei- milt að taka allt að 150 m.kr. lán eða jafngildi þeirrar fjárhæðar í er- lendri mynt til að gera upp gjald- fallnar skuldir Innheimtustofnunar sveitarfélaga við Tryggingastofnun ríkisins.“ -6g Erlend lán í bamsmeðlög! Nýjar erlendar lántökur eru fyrirferðamiklar í hinum nýja bandormi ríkisstjórnarinnar, sem ætlað er að fylla gatið margfræga. Þannig gerir frumvarpið ráð fyrir heimildum til að taka 150 miljón króna lán til að greiða vangoldin barnsmeðlög, 1022 miljón króna lán fyrir ríkissjóð og 680 miljón króna lán fyrir Framkvæmdasjóð íslands. Samtals er hér um erlend lán fyrir 1852 mifjónir króna til við- bótar við önnur. 150 miljónimar á Alexander fé- lagsmálaráðherra að taka fyrir Inn- heimtustofnun sveitarfélaga vegna vangoldinna barasmeðlaga, Albert fjármálaráðherra fær heiðurinn af að taka 1022 miljón króna lánið fyrir ríkissjóð, en Framkvæmda- sjóðurinn fær að taka lán að upp- hæð 680 miljónum króna og „endu- rlána til atvinnuveganna“. í athugasemdum með frumvarp- inu kemur fram af þessum 680 milj- ónum sé fjárþörf í sjávarútvegi 300 m. kr., skuldbreytingin í landbún- aði 80 miljónir, 150 miljónir til við- haldsverkefna á skipaflotanum og 150 miljónir til „nýsköpunar í at- vinnulífinu“, sem ekkert er skýr- greint nánar. -óg Frá samkomu á Hernum úr Sölku Völku hjá Lelkfálagl Húsavíkur. Frá vlnstrl eru: Bjarnl Slgurjónsson sem Guömundur Kadett, Hretna Jónsdóttlr, Guð- mundur Orn Ragnarsson og Unnur Jónsdóttir. Efnahagsráðstafan ríkisstj órnarinnar „Sparaðu á skólabörnum! Taka 50 miljónir aftannviðgerðum barna og unglinga Ríkisstjórnin ætlar að „spara“ ins sem ætlað er til að stoppa upp í 16 ára lækki úr 75% í 50% og sér 50 mijjónir króna með því að- fjárlagagat ríkisstjórnarinnar er kostnaðarþátttaka ríkisins við draga úr þátttöku sameiginlegra kveðið á um að kostnaðarþátttaka tannréttingar lækki jafn mikið sjóða við greiðslu á tannlækna- ríkisins við tannviðgerðir 6 ára til hlutfallslega hjá áðurnefndum kostnaði fyrir börn og unglinga. 15 ára bama lækki úr 37.5% í 25%, aldursflokkum. í nokkrum greinum frumvarps- hlutdeild ríkisins við tannviðgerðir - óg Alþjóðamótið í New York Jóhann vann Ree Betri tíð í vœndum fyrir þjófa?____ Mínnka yfirvinnu löggunnar - Hugmyndin er sú að ná fram þessum sparnaði með hagræðingu í löggæslu, minnkun yfirvinnu og öðrum sparnaði, sagði Jón Helgason, dóms- og kirkjumálaráðherra um 40 miljónir króna boðað- an aukasparnað í dómsmála- ráðuneytinu sem kveðið er á um í bandormi ríkisstjórnar- innar. - Ég skal ekki segja um hvort okkur tekst að ná öllum þessum sparnaði fram, sagði Jón Helgason að lokum. - !g Jóhann Hjartarson sigraði stór- meistarann Ree frá Hollandi í átt- undu umferð alþjóðamótsins í New York. Að sögn Jóhanns hafði hann hvítt og fór skákin fremur rólega af stað en síðan upphófust miklar flækjur þar sem Jóhann vann skipt- amun og þar með skákina. Helgi Ólafsson gerði jafntefli við Zuck- erman frá Bandaríkjunum. Jóhann hefur nú unnið 3 skákir í röð og hefur 5 vinninga þegar ein umferð er eftir en Helgi hefur hlotið 4'/2 vinning. Staða efstu manna er óljós vegna fjölda biðskáka en eins og stendur eru 3 jafnir með 6 vinninga, þeir Portisch, Gurevich og Dzhinddzi- hashvili. Líklegt er að Adorjan og Federowich nái þeim að loknum biðskákum. Jóhann lét ekki vel af aðstæðum á mótsstað. „Aðstæður á mótsstað eru í algjöru ósamræmi við verð- laun og keppendur". „Auk þess er varla hægt að sofa á hótelinu fyrir sírenuvæli" bætti hann við að lok- um. L.J. Könnun Neytendasamtakanna: Kartöfluútsæði mjög lélegt Neytendasamtökin hafa gert lauslega könnun á íslensku kart- öfluútsæði og lofar sú könnun ekki góðu fyrir kartöflubændur hér á landi. Útsæðið reyndist sveppa- skemmt, skaddað, jarðsprungið og auk þess hreinasta smælki. Samtökin keyptu einn poka af íslensku Bintje-útsæði, en pokinn var 25 kfló að þyngd. Pokinn var keyptur í Grænmetisverslun land- búnaðarins, en í umbúðum fram- leiðandans, Sævars Magnússonar, Syðri-Grund Grýtubakkahreppi. Af útsæðinu í pokanum reyndist 10 prósent kartaflnanna ónýt vegna sveppaskemmda og þriðjunguri þess, sem eftir var, reyndist jarð- sprunginn, skaddaður eða hreint smælki, sem engan veginn sam- rýmdist upplýsingum framleiðand- ans um að stærðin væri 35-45 mm. Auk þess mátti í pokanum finna tegundarugling. Neytendasamtökin taka fram, að hér sé að sjálfsögðu ekki um vísindalega könnun að ræða. En sé stofnútsæði að einhverju marki af þessum toga hér á landi, verði það að teljast hreint tilræði við inn- lenda kartöfluræktun og skýri að hluta þann vanda, sem fram- leiðslan á við að etja. ast Salka Valka á Húsa- vík Leikfélag Húsavíkur hefur nú sýnt Sölku Völku fyrir fullu húsi í 10 skipti. Síðustu sýningar verða í dag föstudag og laugardaginn kl. 20.30. Leikritið fékk góða dóma í Víkurblaðinu um daginn og við- tökur áhorfenda hafa verið mjög góðar, að sögn Maríu Kristjáns- dóttur leikstjóra. Yfir 50 manns unnu að sýning- unni en 30 leikarar koma fram. Salka Valka var frumsýnd um páskana og hafa sýningar verið mjög þétt síðan því einn leikarinn verður að yfirgefa hópinn um helg- ina. Enn er óvíst hvort leikritið verður tekið upp í haust. Hlutverk Sölku og Arnalds eru tvískipt. Guðný Þorgeirsdóttir og Finnur Ingimarsson leika þau sem börn en Björg Árnadóttir og Jón Friðrik Benónýsson túlka þau full- orðin. Hlutverk Sigurlínu, móður Sölku, er í höndum Margrétar Halldórsdóttur. María Kristjáns- dóttir er leikstjóri og sá hún einnig um leikmyndir. Búningar voru fengnir að láni hjá Leikfélagi Reykjavíkur en þá hannaði Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Ulrik Ól- afsson sá um tónlistina. -JP Búvörur hækka á mánudag Mánudaginn 7. maí má vænta hækkana á ýmsum landbúnaðar- vörum í kjölfar efnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar. í greinargerð með frumvarps- bandormi ríkisstjómarinnar sem lagður var fram á alþingi í gær, er boðað að 185 miljón króna lækkun niðurgreiðslna komi til fram- kvæmda á mánudaginn. Niður- skurður þessi mun ekki vera háður því hvort bandormurinn verður samþykktur eður ei á alþingi, þar- sem einungis var um heimildará- kvæði að ræða. Því mun að öllum líkindum koma til verðhækkana á búvörum á mánudaginn. — óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.