Þjóðviljinn - 04.05.1984, Qupperneq 5
Föstudagur 4. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
3000 íbúar mótmæla legu Arnarnesvegar:
Fjallvegur yfir
útivistarsvæðið
3000 íbúar í Seljahverfi hafa
undirritað áskorun til borgar-
yfirvalda þar sem mótmælt er
fyrirhugaðri íegu Arnarnesveg-
ar efst í Seljahverfi.
Þann 15. mars s.l. var auglýs-
ing frá Borgarskipulagi í Lög-
birtingablaðinu um breytingu
skipulags í Garðakaupstað,
Kópavogi og Reykjavík.
Breytingin fjallaði um legu
Arnarnesvegar frá Hafnar-
fjarðarvegi að Suðurlandsbraut
við Rauðavatn og með hliðsjón
af þeim skipulagsuppdráttum
sem legið hafa frammi almenn-
ingi til sýnis, og var veittur
frestur til 10. maí til að koma á
framfæri athugasemdum.
Vegna skipulagsbreytinganna var
fundur boðaöur í Seljaskóla þ. 28. mars
s.l. Var það almennt álit fundarins að
ýmislegt væri við þessa legu vegarins að
athuga og til að koma athugasemdum
sínum fram, voru kosnar tvær nefndir,
önnur til að koma fram málefnalegum
athugasemdum til auglýsenda og hin til
að kanna meðal Reykvíkinga hvort
fleiri myndu taka undir þær athuga-
semdir sem bornar voru fram á fundin-
um.
Þeir sem kosnir voru í þessar nefndir
útbjuggu áskorun til borgarstjórnar,
þar sem farið var fram á að Borgar-
stjórn Reykjavíkur gætti hagsmuna
þeirra og borgarinnar við staðsetningu
Arnarnesbrautar og kæmi því til leiðar
að fyrirhugaðri legu hennar, sem aug-
lýst var í Lögbirtingablaðinu, verði
breytt þannig að allir megi vel við una.
Áskorun þessi var sðan afhent borgar-
stjóra þann 2. maí sl. með 3000 undir-
skriftum, þar sem eindregið er tekið
undir þessi viðhorf fundarins.
Það land sem hér um ræðir hefur þeg-
•ar verið samþykkt í Borgarstjórn
Reykjavíkur sem friðlýst útivistar-
svæði. Það má því teljast furðulegt að
Arnarnesvegi skuli ætlað að kljúfa það
endilangt og eyðileggja það þar með.
f greinargerð sem fylgir áskorun
Samtaka íbúa í Seljahverfi til borgar-
stjóra er minnt á ályktun 4. Náttúru-
verndarþings 1981 um útivistarsvæði í
þéttbýli og ítrekuð var á 5. Náttúru-
verndarþingi 1984,enþarerm.a. varað
eindregið við því „að gengið sé á svæði
sem í skipulagi hefur verið ætlað til úti-
vistar." Ljóst sé að vegurinn yrði mjög
áberandi og til lýta í landslaginu. Nú
þegar hafi verið útbúnar skíðabrekkur
norðarlega í hlíðinni, sem hafi sannað
gildi sitt, einkum fyrir börn. Allt þetta
svæði sé þegar orðið mjög vinsælt og
verðmætt til útivistar og sennilega eitt
það fjölsóttasta á höfuðborgarsvæðinu.
Sem dæmi hafi í vetur farið fram keppni
í skíðagöngu þar þegar ófært var í Blá-
fjöll.
Ljóst er, af teikningum, að vegurinn
kæmi til með að liggja mjög hátt, þar eð
all-bratt er upp úr Fífuhvammslandi og
sömuleiðis niður í Elliðaárdal. Hér er
því verið að búa til einskonar „fjall-
veg“. Má í því sambandi vitna í álit frá
skrifstofu gatnamálastjórans í Reykja-
vík en þar segir m.a. „Gera má ráð fyrir
að þessi vegur yrði mjög erfiður í snjó
og yrði ekki ruddur meðan aðrir þýð-
inaarmeiri vegir væru hálfófærir.“
I viðtali við Þjóðviljann sögðu þau
Sigríður Sigurðardóttir og Magnús
Bjarnason, fulltrúar íbúa í Seljahverfi
að engin vandkvæði væru á að flytja
Hi& umdeilda vegarstæ&i efst í Seljahverfi milli Rjúpnahæðar og efstu húsanna í hverfinu.
veginn, þar sem framkvæmdir hafi enn
ekki hafist. Annaðhvort mætti leggja
hann hærra í landinu eða flytja hann
hinum megin við útvarpshæðina.
Þótt engin fyrirstaða sé fyrir því
framkvæmdalega séð, að flytja veginn,
getur það hinsvegar reynst örðugt þar
sem sú skipulagstillaga sem nú liggur
fyrir, gerir ráð fyrir Arnarnesveginum í
landi Reykjavíkur rétt við landamörk
i Kópavogs. Ef vegurinn verður fluttur
I lendir hann hins vegar innan landsvæðis
! Kópavogskaupstaðar. Það er Vegagerð
ríkisins sem sjá mun um lagningu Arn-
arnesvegar og skipulagsstjóri ríkisins
sem hefur unnið fyrrnefnda skipulags-
tillögu.
-SS.
Stgrí&ur Sigur&ardóttir og Magnús
Bjarnason frá íbúasamtökum Selja-
hverfis. Ljósm. Atli.
■u margar a'|P|°^agn! sem
SSBSKS*'**’
Svar
□ *> gff/WO
§ 3 slf ,.000
Hvenæi
Svaliife
sinn?
*rn°m hollustudrykh
zrnum á markadinn
FIDRIDAPER
FYRIRTVO! auk þess eru 25 aukavinningar,
hver þeirra kassi af Svala 1/4 Itr.fernum
Ertu ekki til í Svalandi Sumarferð til Flórída í tvær vikur?
Vertu með í Svala sumargetrauninni, það veitir þér möguleika á að dveljast á
Flórída í tvær vikur með ...? þú ræður.
Nafn:
Sími:
Heimili
Sendið svörin til: Sól hf. „Svala sumargetraun" Þverholti 19 105 Reykjavík.
Svörin þurfa að berast okkur fyrir kl. 5 e;h. þriðjudaginn 8. maí n.k.
■ » ITf«SÚ
* htHNUNNl kRU
TSMG'AP
—