Þjóðviljinn - 04.05.1984, Síða 9
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN{Föstudagur 4. maí 1984
Fðstudagur 4. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Dæmi um árangursríkt barmmerki!
Boston-búar hófu mikil mótmæli þeg-
ar lowa-flotanum var valin heimahöfn
í Boston - og komu honum af sér.
Dagana 24. til 26. ágúst
verður haldin ráðstefna í
Reykjavík á vegum friðarhreyf-
inga beggja vegna Atlantshafs.
Fulltrúar friðarhreyfinga frá
eftirtöldum löndum munu
sækja okkur heim: Bandaríkj-
unum, Kanada, Grænlandi,
Færeyjum, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Danmörku, Eng-
landi, Skotlandi, Wales, írlandi,
Hollandi, Frakklandi og að lík-
indum einnig frá Þýskalandi og
Belgíu. Tilgangur ráðstefnunn-
ar er að byggja upp samband
friðarhreyfinga við N-Atlants-
haf, en vígbúnaður NATO-
ríkjanna miðast nú í miklum
mæli við pað að gera N-
Atlantshafið að vígvelli næstu
stórstyrjaldar. Framtíðarmar-
kmið þessa sambands mun
verða að vinna að kjarn-
orkulausu N-Atlantshafi.
Friðarhreyfíngar í Evrópu hafa
áður haldið ráðstefnu um kjarn-
orkuvopn og vígbúnað í N-
Atlantshafi, nánar tiltekið í Glas-
gow 1983. Þá ráðstefnu sóttu tveir
fulltrúr frá Samtökum herstöðva-
andstæðinga, þeir Vigfús Geirdal
og Erling Ólafsson. A þeirri ráð-
stefnu var ákveðið að halda sam-
starfi friðarhreyfinga við N-
Atlantshaf áfram og jafnframt að
láta það einnig ná til Bandaríkj-
anna, Kanada, Grænlands og Fær-
eyja. Skipuð var undirbúnings-
nefnd til að vinna að næstu ráð-
stefnu og á Vigfús Geirdal sæti í
þeirri nefnd. Það var ákveðið í
nefndinni, að Reykjavík yrði næsti
ráðstefnustaður. Jafnframt var
ákveðið, að gerð yrði út sérstök
sendinefnd til þess að kynna ráð-
stefnuna í Bandaríkjunum og Kan-
ada.
Sendinefndin hélt vestur um haf
fyrir nokkru til að bjóða friðar-.
hreyfingum í Bandaríkjunum og
Kanada aðild að ráðstefnunni.
Sendinefndina skipuðu Vigfús
Geirdal frá íslandi, Jan Williams
frá Wales, en hún á sæti í fram-
kvæmdanefnd END-hreyfingar-
innar í Bretlandi, og Jon Grepstad,
einn upphafsmanna og helstu leið-
toga hreyfingarinnar „Nej til atom-
vápen“ í Noregi. í Bandaríkjunum
slóst með í förina Izzy Guy, tengil-
iður CND-hreyfingarinnar bresku í
Bandaríkjunum.
Við báðum Vigfús Geirdal að
segja okkur undan og ofan af þess-
ari för og viðtökunum og fer frá-
sögn hans hér á eftir.
ísland eitt fyrsta
skotmarkið
„Það er óhætt að segja að sendi-
nefndin fékk alls staðar frábærar
móttökur“, sagði Vigfús. „Hug-
mynd okkar að ráðstefnunni hér á
landi um að byggja upp samband
friðarhreyfinga við N-Atlantshaf
féll í góðan jarðveg. Nú undanfarið
hafa risið upp mjög öflugar friðar-
hreyfingar beggja megin Atlants-
hafs og eru hreyfingarnar í Amer-
íku ekki síður öflugar en þær í Evr-
ópu. Friðarhreyfingamar í Banda-
ríkjunum em áframhald þeirrar
andstöðu, er hófst í Víetnam-
stríðinu, og byggja mjög á þeirri
reynslu. Það vakti athygli mína
hversu mjög þær berjast gegn íhlut-
un Bandaríkjanna í málefni Mið-
og Suður-Ameríku.
Mönnum er stöðugt að verða
ljósara hversu mikið hættusvæði N-
Atlantshafið er og hversu óhugn-
anleg vígvæðing á sér þar stað. Ég
Ráðstefna*friðarhreyfinga við N-Atlantshaf í Reykjavík:_
„Vinnum að kjarnorku-
lausu N-Atlantshafí4<
New York-búar hafa nú hafið mikla
baráttu gegn lowa-flotanum, en hon-
um var næst valinn staður í New York.
segir Vigfús Geirdal er
sœti á í undirbúningsnefnd
vil benda á, að forsetaframbjóð-
andinn Gary Hart lét svo um mælt
á einum framboðsfunda sinna, að
hann teldi að ef til takmarkaðra
kjarnorkuátaka kæmi milli risa-
veldanna yrðu þau átök á milli flota
þeirra. Einn líídegasti vettvangur-
inn fyrir þau átök er á hafsvæðinu
fyrir norðan ísland - og þá yrði
ísland eitt af fyrstu skotmörku-
num.“
Gífurleg
hervæðingaráform
við N-Atlantshaf
„Nú á sér stað á vegum NATÓ
gífurleg hernaðaruppbygging í N-
Atlantshafi. Fyrir utan stýri-
flaugarnar, sem verið er að koma
upp í Evrópu, á að koma fyrir þús-
undum stýriflauga á svæðum í
kringum ísland, sem skjóta má úr
hafi, og öðrum þúsundum úr lofti.
Það er álit hernaðarsérfræðinga,
að gangi þessar áætlanir eftir muni
grundvellinum verða kippt undan
Freeze-tillögum og jafnvel öllum
möguleikum á viðræðum stórveld-
anna um takmörkun og eftirlit með
kjarnorkuvopnum, því eftirlitið
verður nánast óframícvæmanlegt.
Öll hernaðarstefna Bandaríkj-
anna og NATÓ miðast nú að því að
koma á því sem kallað er „first
strike capability“, þ.e.a.s. að búa
svo um hnútana að Sovétmenn
verði ófærir um að svara fyrir sig
eftir fyrstu átök. Liður í þessum
áætlunum er að færa hugsanlega
víglínu norður að Kolaskaga, í og
með vegna þess að Rússar hafa nú
kafbáta, sem geta skotið flaugum
undan íshellum til Bandaríkjanna.
Markmiðið hjá NATÓ er að
granda þessum bátum í upphafi
átaka.
Annar liður í þessum áætlunum
er að efla svokallaðar framvarðar-
stöðvar NATÓ, þar á meðal stöð-
ina á íslandi. Uppbyggingin hér á
landi - nýjar orrustuþotur, olíu-
stöðin í Helguvík, stjórnstöð og
radsjárstöðvar - allt er þetta liður í
áætlun NATÓ að gera Sovétríkin
ófær um að svara fyrir sig. Radsjár-
stöðvarnar, sem eiga að koma hér,
„sjá“ yfir sjóndeildarhringinn og
eru nauðsynlegur hjálparbúnaður
þegar stýriflaugunum er miðað.
Auðvitað munu Rússar svara
fyrir sig með aukinni vígvæðingu
og þeir hafa þegar hafið tilraunir
með svipaðar stýriflaugar og
Bandaríkjamenn eru að koma upp.
Þannig heldur vitfirringin áfram.“
lowa herskipið og
3. heimurinn
Bandarísk stjórnvöld hafa
ákveðið að taka á ný í notkun 4
afdönkuð orrustuskip úr síðari
heimsstyrjöldinni og er hvert
þeirra tæplega 60.000 lestir. Þess-
um skipum er ætlað að verða
móðurskip í herskipaflotum, sem
eiga að bera stýriflaugar á Kyrra-
hafi og á Atlantshafi. „Eitt dæmið
um fáránleikann er að einu þessara
skipa, Iowa, hefur verið valin
heimahöfn í New York“, sagði
Vigfús. „Auk Iowa verða í höfn-
inni 6 minni bryndrekar - og
flotinn í New York mun í heild geta
borið allt að 500 stýriflaugar.
Því hefur verið lýst yfir opinber-
lega, að þessi floti eigi að „hreinsa
upp“ eftir kjarnorkustyrjöld, vera
einhvers konar varaforði og
tryggja Bandaríkjamönnum betri
samningsstöðu að aflokinni styrj-
öld, svo fáránlega sem það hljóm-
ar. En það er vitað, að flota Banda-
ríkjamanna er ekki síst stefnt gegn
þriðja heiminum, og hann gegnir
miklu hlutverki í íhlutunarstefnu
Bandaríkjanna. Því hafa grun-
semdir vaknað um það, að þessi
skip eigi að nota til að skjóta
flaugum til t.d. Mið- og Suður-
Ameríku, en þau geta skotið úr
mikilli fjarlægð, jafnvel úr Miðj-
arðarhafi yfir í Persaflóa. Það hef-
ur verið tekið fram, að þessum
skipum sé ætlaður vettvangur fyrir
norðan GIUK-hliðið, þ.e. á svæð-
inu milli íslands og Noregs.“
Eins og að upplifa
aftur 1951 á Islandi
Sendinefnd friðarhreyfinga frá
Evrópu kom m.a. við í New York
til þess að kynna ráðstefnuna. Átti
hún þar fundi með fulltrúum
friðarhreyfinga í borginni og tók
þátt í ráðstefnu um herskipið Iowa
og hættuna, sem New-York-búum
stafar af því að fá slíkar vígvélar inn
á gafl til sín.
„Mér fannst ég heyra í máli fólks
á þessari ráðstefnu enduróminn af
því, sem gerðist hér á landi 1951,
þegar Bandaríkjaher sté á land“,
sagði Vigfús. „Ein ræðukvenna,
sem er borgarstjómarfulltrúinn í
New York, rakti hvemig ákvörð-
uninni um að gera New York að
heimahöfn þessara skipa var lætt í
gegnum borgarkerfið meðan flestir
borgarfulltrúar vom í sumarleyfi.
Ræðumenn töluðu beinlínis um
hemám New York-borgar.
Ráðamenn flíka því mjög, að
með þessu verði sköpuð 9.000 ný
störf í borginni við að byggja upp
höfnina og þjónusta skipin, en í
New York er mikið atvinnuleysi.
Þá muni borgin sömuleiðis hafa af
þessu miklar tekjur. Ekkert af
þessu stenst reyndar, en þannig á
að fá almenning til þess að sætta sig
við ákvörðunina.
Allt hljómaði þetta kunnuglega í
mínum eyrum.“
Bannað að segja frá
kjarnorkuvopnum
„Almenningi er neitað um réttar
upplýsingar í sambandi við komu
þessara skipa til New York. Það er
jafnvel neitað að segja, hvort þau
verði búin kjarnorkuvopnum. Það
er bæði fróðlegt og gagnlegt fyrir
okkur íslendinga að vita, að skv.
stefnu Bandaríkjaflota er bannað
að segja frá því hvort kjarnorku-
vopn em um borð í skipum flotans.
Einn ræðumanna á ráðstefnunni
í New York var James Bush, sem
var kafbátaforingi á Polariskafbát í
15 ár, en hefur nú látið af störfum. í
máli hans kom fram, að þegar
ráðamenn flotans segja að skip sé
óvopnað þýðir það einfaldlega að
allir öryggisrofar séu á. Vitað er að
yfir 80 prósent af flota NATÓ og
Bandaríkjanna em búin
kjarnorkuvopnum. Þetta mættum
við hafa í huga, íslendingar, þegar
við erum að taka á móti flotaheim-
sóknum.
Einnig skulum við gera okkur
fulla grein fyrir því, að við munum
aldrei fá skýr svör um það hvort hér
á landi séu kjarnorkuvopn eða
hvort slík vopn séu um borð í
skipum eða flugvélum, sem hér
hafa viðdvöl á vegum Bandaríkj-
anna eða NATÓ. Því það er stefn-
an að segja aldrei af eða á um
slíkt.“
Gífurleg slysa-
og mengunarhætta
„Ef slys verður í New York-höfn
í sambandi við þessi skip, þ.e. ef
plútóníum lekur, myndast feiki-
stórt eiturský, sem gæti þýtt það að
50-100 þúsund New York-búar lát-
ist úr krabbameini. Helmingunar-
tími geislavirkni plútóníums er
hvorki meira né minna en ríflega 24
þúsund ár, en það er sá tími sem
tekur geislavirknina að minnka um
helming. Þannig að New York-
búum stafar þama mikil hætta af,
fyrir utan aðrar hættur, sem em
þær að gera borgina þannig úr
garði, að hún verði „nauðsynlegt
skotmark" frá hernaðarlegu sjón-
It is the firm policy of the U.S. Government to neither confirm nor
deny the presence of nuclear weapons or components on board any ship,
station or aircraft. The only exception is when such a confirmation oi
denial may be essential to public safety as to allay public alarm.|
„Það er skýr stefna ríkisstjórnar Bandaríkjanna að staðfesta hvorki né neita tilvist kjarnorkuvopna eða tækja þeim
tengdum um borð í skipum, flugvélum eða á herstöðvum. Eina undantekningin, sem gerð er frá þessu, er ef
staðfesting eða neitun er nauðsynleg almannaheill til að koma í veg fyrir almenna hræðslu".
f flugvélum af'gerðinnl B-52 hér á landi á að koma fyrir búnaði til þess að þær geti átt við skotmörk á sjó. B-52
vélamar geta hver um sig borið spreng jumagn upp á 27.215 kíló. Flugþolið er 16.000 kílómetrar og hámarkshraðinn
er 1.014 km/klst.
armiði. Þá má einnig benda á, að
tíðni glæpa og hryðjuverka er
óvíða hærri en í New York. Sú
hætta er fyrir hendi, að einhverjir
slíkir finni hjá sér hvöt til þess að
eiga við skipin.
Áður stóð til, að flota þessum
yrði komið fyrir í borginni Boston.
Boston-búar komu flotanum af sér
með mikilli mótmælaöldu. New
York-búar eru að hefja sína bar-
áttu gegn skipunum og ég heyrði
þær raddir, að nær væri að koma
honum fyrir á dreifbýlli stað en
New York er. Sá ótti læddist að
mér, að tilraun verði gerð til þess
að læða þessum flota að íslending-
um. Við gætum kannski vaknað
upp við það, að þessum skipaflota
hafi verið komið fyrir í Hvalfirði,
eða jafnvel að Geir dytti „sjálfum"
í hug að gott væri að efla „varnir“
landsins með því að fá þennan flota
hingað."
Mengunarhættan
í hafinu
„Það er rétt að minna á, að
mannkyninu stafar ekki síður
hætta af kjamorkuslysum en kjarn-
orkusprengingum. Kjarnorkuslys
eru síður en svo fátíð. Staðfest hafa
verið 372 slys í sámbandi við kjarn-
orkuknúin skip og kafbáta eða bú-
in kjarnorkuvopnum.
Kanadískir vísindamenn hafa nú
fundið geislavirkan úrgang frá
kjarnorkuverum í Bretlandi, sem
borist hefur upp á milli íslands og
Noregs og rekur á fjörur í Græn-
landi og heimsskautssvæði Kan-
ada.
Lífsafkoma okkar íslendinga er
undir hafinu komin. Það skiptir
okkur því öllu að fylgjast vel með
málum og taka höndum saman við
aðra um að bægja þessum vágesti
frá.“
Stefnt að kjarnorku-
lausu N-Atlantshafi
Ráðstefnan í Reykjavík mun
bera heitið „North Atlantic Netw-
ork: An Álternative Alliance"
(eða Norður-Atlantshafssamband-
ið: Annar valkostur).
„Þarna verður fjallað um víg-
búnaðarstefnu kjamorkuveldanna
og hvað megi gera á pólitískum
vettvangi til þess að kjarnorkulaust
N-Atlantshaf verði að veruleika",
sagði Vigfús Geirdal. „Einnig
verður fjallað um áframhaldandi
samstarf friðarhreyfinga við N-
Atlantshaf.
Fyrsta daginn verða flutt erindi
en síðan starfað í hópum, sem
greina ástandið eins og það er, leita
leiða í baráttunni og leiða í sam-
starfinu.
Við höfum ekki áætlanir um að
byggja upp miðstýringarkerfi, þar
sem ein hreyfing stjórnar öðram
fremur. Þetta verður laustengt
samband þar sem allir hafa orðið
og hver hreyfing hefur frjálsar
hendur um aðgerðir í sinni heima-
byggð, ef svo mætti segja. Það er
margra ára verkefni að vinna að
kjarnorkulausu N-Atlantshafi og
því ríður á, að sem sterkast og best
samband takist milli friðarsinna á
þessu svæði.
Þá verður haldinn fjöldafundur í
tengslum við ráðstefnuna í Reykja-
vík. Það er góð von til þess, að á
þann fund komi ýmsir af þekktustu
leiðtogum friðarhreyfinganna í
löndunum við N-Atlantshaf.
Samband friðarhreyfinganna
mun væntanlega miðla upplýsing-
um um vígbúnaðinn í N-
Atlantshafi og hættuna, sem okkur
stafar af honum. Þá mun jafnvel
koma til greina að skipuleggja sam-
eiginlegar aðgerðir. Friðarhreyf-
ingarnar munu þarna fá ákjósan-
legan vettvang til þess að miðla af
þekkingu, reynslu og starfi sín í
millum, en á því er mikil þörf. Það
er að renna upp fyrir fólki, að það
sem gerist á einum stað tengist því
sem gerist á öðram stöðum og því
er mikilvægt að geta tengt saman
þær upplýsingar sem berast frá
hverjum stað um sig. Yfirvöld
þegja nefnilega alls staðar sem fast-
ast, og því verða friðarsinnar um
allan heim að vera ólatir að afla
upplýsinga.“
Ötult starf SHA
lífsnauðsynlegt
„Samtök herstöðvaandstæðinga
hafa oft verið sökuð um að einblína
á bandaríska herinn hér á landi og
NATÓ og sjá ekki heiminn í kring.
Þetta er óréttmæt gagnrýni. Raun-
in er sú, að Samtök herstöðvaand-
stæðinga hafa haft meiri alþjóðleg
tengsl við friðarhreyfingar en
nokkur önnur samtök hér á landi.
Þar má minna á tengsl SHA við
Intemational Peace Co-ordinat-
ions Center gegnum árin, en það er
vettvangur óháðra friðarhreyfinga
í Evrópu.
Það hefur alla tíð verið stefna
samtakanna að starfa með alþjóð-
lega yfirsý. Bretar og Bandaríkja-
menn segja gjaman um friðarmál-
in: „Think globally - act locally“
(hugsaðu alþjóðlega - starfaðu á
eigin vettvangi) og þetta segja
firiðarsinnar um allan heim. Þetta
er og hefur verið stefna Samtaka
herstöðvaandstæðinga.
Mér hefur stundum fundist á
fólki að það væri í lagi að velta fyrir
sér vígbúnaði og friðarhugtakinu,
ef það tengdist einhverju, sem er í
hæfilegri fjarlægð. Umræður um
bjálkann í augum okkar hefur nán-
ast verið bönnuð. En friðarsinnar
hér á landi verða að fara að fhuga í
alvöra á hversu miklu hættusvæði
við erum og haga aðgerðum sínum
í samræmi við það.“
ast.
KAUPÞING HF
Gróðrarstöð til sölu
Er í fullum rekstri á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
KAUPÞING HH
Husi Verzlunarmnar. 3. hæd simi 86988
s.86988
Styttan, sem Rússar gáfu Sameinuðu þjóðunum, og valinn var staður framan við aðalbyggingu S.Þ. í New York.
Hún á að minna á þessi orð Jesaja: „Og þær (þ.e. þjóðirnar) munu smíða plógjám úr sverðum sínum og sniðla úr
spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð og ekki skulu þær temja sér hemað framar". (Jesaja,
2,4). Undir styttunni standa Jan Williams, Jon Grepstad og Vigfús Geirdal.
L/ýrasta og metnaðarfyllsta kvikmynd
sem íslendingar hafa gert til þessa.
Mynd sem markar tímamót í íslenskri
kvikmyndagerð.
Mynd sem allir verða að sjá.
Sýnd i Austurbœjarbíói
m