Þjóðviljinn - 04.05.1984, Page 11
Föstudagur 4. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
íþróttir Víðir Sigurðsson
Aö ofan: fslandsmeistarar ÍBK í 2. flokki kvenna í körfuknattleik. Aftari röð frá
vlnstri: Hlín Hólm, Margrét Sturlaugsdóttir, Björg Færseth, Guðrún Einars-
dóttir. Fremri röð: Fjóla Þorkelsdóttir, Björg Hafsteinsdóttir, Kristín Sigurð-
ardóttir, Guðlaug Sveinsdcttir og Gunnhildur Hilmarsdóttir. Þjálfari þeirra er
Jón Kr. Gíslason.
Að neðan: fslandsmeistarar Njarðvíkur í minnibolta: Aftari röð: Haukur
Ragnarsson, Friðrik Rúnarsson, Ævar Jónsson, Kristín Björnsdóttir, Magn-
ús Þórðarson, Daníel Sveinsson, Gísli Einarsson, Sveinbjörn Gíslason, Jó-
hann Halldórsson. Fremri röð: Valdís Þorsteinsdóttir, Vilbert Gústafsson,
Jón J. Árnason, Guðbjörn Sigurjónsson, Stefán Örlygsson, Magnús Ragn-
arsson.
Maree orðinn
bandarískur
Hafþór með
tvö gegn
Þrótturum
Fyrstudeildarlið KA og Þróttar í
knattspyrnu léku tvo æfingaleiki á
Akureyri um síðustu helgi. Fyrri
leiknum lauk með jafntefli, 1:1, en
KA vann seinni leikinn 3:1. Sigl-
firðingurinn Hafþór Kolbeinsson,
sem gekk í raðir KA-manna í vet-
ur, skoraði tvö mörk í síðari
leiknum.
-K&H/Akureyri
Magnús og
Súsanna
sigruðu
Magnús Haraldsson vann yfir-
burðasigur í karlaflokki og Sús-
anna Helgadóttir sigraði örugglega
í kvennaflokki í Víðavangshlaupi
Hafnarfjarðar sem fram fór á
sumardaginn fyrsta við Lækjar-
skólann í Hafnarfirði.
Helgi F. Kristinsson sigraði í
drengjaflokki, Finnbogi Gylfason í
piltaflokki, Helen Ómarsdóttir í
flokki telpna 9-12 ára, Ásthildur
Linnet í flokki 7-8 ára stelpna, Jón
Gunnar Gunnarsson í flokki 7-8
ára stráka, Berglind Jónsdóttir í
flokki stelpna 6 ára og yngri og
Stefán Hjaltalín í flokki stráka 6
ára og yngri,
Uppselt í
Hamborg!
Hamburger SV og Bayern Múnc-
hen, keppninautar Stuttgart um
vestur-þýska meistaratitilinn í
knattspyrnu ásamt Borussia Mönc-
hengladbach, mætast á morgun í
Hamburg í 31. umferð deildarinn-
ar. Uppselt var orðið á leikinn fyrr í
vikunni, 68.500 miðar seldir, en
síðustu daga hafa miðar verið falir
,4 svörtu“ fyrir 200 mörk, eða
2.200 íslenskar krónur. Áhuginn er
gífurlegur, enda getur leikurinn
ráðið úrslitum um hvar meistara-
titillinn hafnar í ár.
Strack ekki með
Gerd Strack, varnarmaðurinn
sterki frá Köln, getur ekki leikið
með vestur-þýska landsliðinu í úr-
slitum Evrópukeppni landsiiða í
knattspyrnu í sumar. Hann
meiddist á nára um síðustu helgi og
þarf að ganga undir uppskurð þeg-
ar keppnistímabilinu lýkur í
Vestur-Þýskalandi.
Sveit Ármenninga bar sigur úr
býtum í Múllersmótinu í svigi sem
haldið var í Kóngsgili við Fram-
skálann í fyrrakvöld. Sveitina
skipuðu þeir Einar Úlfsson, RJk-
harður Sigurðsson, Árni Þór
Árnason og Tryggvi Þorsteinsson
og fengu þeir samanlagðan tíma
257,22 sekúndur.
Framarar urðu í öðru sæti á
304,16 sek. Sveit þeirra skipuðu
Pétur Haraldsson, Eiríkur Har-
Sydney Maree, hinn snjalli
hlaupari frá Suður-Afríku, fékk
bandarískan ríkisborgararétt í
fyrradag. Þar með er Ijóst að hann
getur kcppt fyrir hönd Bandaríkja-
manna á Ólympíuleikunum í Los
Angeles í sumar.
Maree yfirgaf Suður-Afríku fyrir
nokkrum árum af pólitískum
ástæðum, hann er andvígur „apart-
heid“, aðskilnaðarstefnu stjórn-
valda þar í landi. Hann stundar
nám í Bandaríkjunum og er giftur
þarlendra stúlku. Það bjargaði
honum, hann þurfti aðeins að bíða
í þrjú ár eftir ríkisborgararétti en
aldsson, Axel Gunnlaugsson og
Gunnlaugur Gunnlaugsson.
Víkingar urðu þriðju á 339,21
sek. Þar kepptu Gunnar Ólafs-
son, Þórður Hjörleifsson, Sigurð-
ur Sigurðsson og Guðni Frið-
geirsson. Sveitir KR og ÍR Iuku
ekki keppni.
Mótið fór fram í 18. sinn og
mótsstjóri var Leifur Múller,
sonur L.H. MiUlers sem mótið er
kennt við.
ógiftur eða pússaður saman við
konu af öðru þjóðerni hefði hann
þurft að bíða í fimm ár.
Sydney Maree setti á síðasta ári
heimsmet í 1500 m hlaupi karla,
3:31,24 mín. Það met stóð að vísu
aðeins í örfáa daga og honum hefur
ekki tekist að endurheimta það.
Samt er hann óumdeilanlega einn
fremsti 1500 m hlaupari heimsins í
dag og verður án efa í baráttunni
um Ólympíugullið í sumar.
__________________-VS
Naumt á
Kýpur
Slagurinn um hvaða lið komast í
lokakeppni HM í knattspyrnu 1986
hófst á Kýpur í fyrrakvöld.
Austurríkismenn voru þar í heim-
sókn og mörðu nauman sigur, 2:1.
Gisinger kom Austurríkismönnum
yfir, Christoforou jafnaði en Her-
bert Prohaska náði að tryggja gest-
unum sigur 16 mfnútum fyrir leiks-
lok.
Bikarúrslit
Tveir bikarúrslitaleikir í knatt-
spyrnu fóru fram í Evrópu fyrr í
vikunni. í Portúgal vann Porto
auðveldan sigur á Rio Ave, 4:1,
eftir 3:0 í hálfleik og í Búlgaríu
vann Leviski Spartak 1:0 sigur á
liðinu frá rauðvínsborginni frægu,
Trakia.
Armann sigraði
í Mullersmótinu
Liðin frá A.-Evrópu
í sinn hvorn riðil
Austur-Evrópuþjóðirnar fjórar
sem taka þátt í knattspyrnukeppni
Ólympíuleikanna í Los Angeies í
sumar þurfa ekki að mætast í riðl-
akeppninni. Þau lentu í sinn hvern
riðiiinn en þó neituðu talsmenn
undirbúningsnefndarinnar því
alfarið að það hefði verið gert af
ásettu ráði, heldur hefði verið
leitast við að láta ekki þjóðir úr
sama heimshluta leika saman.
Riðlarnir Iíta þannig út:
A-riðill: Tékkóslóvakía, Chile,
Frakkland og Quatar.
B-riðill: Júgóslavía, Kamerún,
Kanada og frak.
C-riðill: A.-Þýskaland, Brasilía,
Marokkó og Saudi-Arabía.
D-riðUI: Sovétríkin, Egypta-
land, Bandaríkin og Costa Rica.
Heldur eru reglurnar um áhuga-
mennsku farnar að slakna en sú
regla gildir fyrir þjóðir Evrópu og
Suður-Ameríku að enginn leik-
maður sem lék í undan- eða loka-
keppni HM 1982 er gjaldgengur á
Ólympíuleikunum. Þar af leiðandi
hafa þjóðirnar getað teflt fram
atvinnumönnum í undankeppninni
fyrir leikana og sumar Evrópu-
þjóðir stilltu nánast upp 21 árs
landsliðum sínum. Samt sem áður
eru Austur-Evrópuþjóðirnar tald-
ar líklegastar til að skipa sér í verð-
launasætin á leikunum og ósenni-
legt að aðrir blandi sér í þá baráttu.
- VS
Feyenoord meistari
Feyenoord varð í gær hollenskur
meistari í knattspyrnu, vann Fort-
una Sittard 1:0 í sínum næstsíðasta
leik í þarlendu 1. deildinni. Rúm-
lega 40 þúsund áhorfendur sáu
gamla knattspyrnukónginn Johan
Cruyff gefa snilldarsendingu á Pet-
er Houtman á 75. mínútu og Hout-
man þakkaði fyrir sig með því að
skora sigurmarkið. Cruyff, sem er
orðinn 37 ára gamall, á stóran þátt í
velgengni Feyrnoord en hann kom
til félagsins frá erkióvinunum,
Ajax, í fyrrasumar.
- VS
Allir jafnt
Staðan í bresku meistarakeppninni í
knattspyrnu eftir sigur Walesbúa á
Englcndingum í fyrrakvöld er þessi:
N.-lrland...............2 1 0 1 2:1 2
Wales...........,.......2 1 0 1 2:2 2
England.................2 10 1 1:1 2
Skotland................2 1 0 1 2:3 2
Englendingar eiga eftir að leika við
Skota og Walesbúar við Norður-íra.
Allar þjóðirnar eiga möguleika á sigri í
keppninni.
Valur-
Þróttur 0:0
Einn leikur fór fram á Reykjavík-
urmótinu í meistaraflokki karla í
knattspyrnu í gærkvöldi. Valur og
Þróttur áttust við á Melavellinum og
lauk leiknum með jafntefli 0:0.
Úr 4. deild í
Wrexham, sem er í þriðja neðsta
sæti 4. deildarinnar í ensku knatt-
spyrnunni, tekur þátt í Evrópu-
keppni næsta vetur!
Félagið, sem fyrir stuttu lék í 2.
deild, er komið í úrslit velska bik-
arsins en í gegnum hann kemst
ávallt eitt lið frá Wales í Evrópu-
keppni bikarhafa. í úrslitaleik
mætir Wrexham 2. deildarliði
Johan Cruyff - maðurinn bak vlð ár-
angur Feyenoord í vetur.
Oxford í
2. deild
Sú meinlega villa slæddist inni blaðið
í gær að Oxford væri fallið f 4. deUd
ensku knattspyrnunnar. Hið rétta er,
eins og áhugamönnum ætti að vera'
kunnugt, að Oxford United tryggði sér
sæti í 2. deUd í fyrrakvöld með 0-0 jafn-
tefli við Wigan. Þegar þrjár umferðir
eru eftir f 3. deild hefur Oxford 88 stig,
Wimbledon 81, Sheff. Utd. 80 og Hull
76 stig. Sheff. Utd. og Wimbledon eiga
eftir að mætast og geta þvf ekki komist
bæði uppfyrir Oxford.
- VS.
Evrópuslag!
Shrewsbury sem er enskt og getur
því ekki talist fulltrúi Wales.
Wrexham gæti því náð í hæsta
máta óvenjulegum árangri á
keppnistímabilinu sem nú er að
ljúka; hlotið Evrópusæti en jafn-
hliða þurft að sækja sérstaklega um
að fá að leika í ensku deildakeppn-
inni 1984-85!
- VS
TBR komið með
3 tennisvelli
Tennis- og Badmintonfélag
Reykjavikur, TBR, er að taka í
notkun þrjá útitennisvelli í
Reykjavík. Þeir eru vestan megin
við TBR-húsið við Gnoðarvog og
eru upphitaðir og malbikaðir.
Þeir verða sfðar flóðlýstir.
Tennis hefur ekki verið stund-
aður í Reykjavík í 35 ár. Hins
vegar hafa tennisáhugamenn á
höfuðborgarsvæðinu leikið tenn-
is í Hafnarfírði og í Kópavogi um
nokkurra ára skeið.
Tennisvellir TBR marka tíma-
mót hjá félaginu. TBR átti tennis-
völl við Melavöllinn en hann var
tekinn úr notkun fyrir mörgum
áratugum. Nú getur félagið aftur
farið að standa undir nafni og
gefa fólki kost á að stunda þessa
hollu og góðu íþrótt sér til heilsu-
bótar og ánægju.
Tennisvellir TBR eru að sjálf-
sögðu löglegir keppnisvellir og
væntanlega verða haldin tcnnis-
mót á vegum félagsins síðar í
sumar.