Þjóðviljinn - 04.05.1984, Page 16
rnmi/m
Föstudagur 4. maí 1984
Aðalsimi ÞJóðvilJans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til töstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Neytendasamtökin hafa sent frá
sér fréttatilkynningu, þar sem
skorað er á almenning að draga úr
eða hætta neyslu kartaflna meðan
boðið er upp á jafn slæma vöru og
nú er reyndin. Ennfremur skora
samtökin á almenning að skila tii
kaupmanna eða Grænmetisversl-
unarinnar öllum ónýtum kartöflum
og krefjast nýrrar og ógallaðrar
vöru í staðinn.
Neytendafélag Reykjavíkur og
nágrennis hefur sent Hollustu-
vemd ríkisins, heilbrigðiseftirliti
og heilbrigðisfulltrúum á höfuð-
borgarsvæðinu bréf, þar sem þess
er farið á leit að fjarlægðar verði úr
Kartöfluverkfall
60% kartaflna hjá Grœnmetis-
versluninni þriðja flokks vara
verslunum skemmdar og rotnandi
kartöflur, enda afleitt að slík vara
sé innan um önnur matvæli.
Tildrög þessara mála beggja em
þau, að þann 11. apríl sl. könnuðu
Neytendasamtökin matarkartöflur
í verslunum á höfuðborgarsvæð-
inu. í ljós kom, að 36,4 prósent
kartaflnanna flokkuðust í 3. flokk
eða neðar.
Af hálfu forráðamanna Græn-
metisverslunar landbúnaðarins
kom fram gagnrýni á könnunina,
vegna þess að ekki voru teknar
kartöflur úr pökkunarsal Græn-
metisverslunarinnar til saman-
burðar. Til þess að bæta úr þessu
fóru fulltrúar Neytendasamtak-
anna í pökkunarsal Grænmetis-
verslunarinnar 24. og 25. apríl og
tóku þar fimm poka til mats. Nið-
urstaðan varð sú, að tveir pokar
fóm í 1. flokk en hinir þrír í 3. flokk
eða neðar. 60 prósent kartaflna í
pökkunarsal sjálfrar Grænmetis-
verslunarinnar er því þriðja flokks
vara. Neytendasamtökin segja að
af þessu sé ljóst, að ekki hafi verið
um tilviljun að ræða, þegar fyrri
könnunin sýndi hörmulegt ástand í
kartöflusölu hér á landi.
ast
Kalt að koma úr
kojunni í sjóinn
sagði Hörður
Jónsson vélstjóri
á Kára VE
„Nei, ég held að við höfum ekki
r'erið í neinni hættu, en ansi er samt
calt að koma fáklæddur beint úr
leitri kojunni í sjóinn. Við vorum
lins vegar ekki nema örskamma
itund í sjónum, komumst strax um
liorð í gúmmbjörgunarbátinn“,
sagði Hörður Jónsson vélstjóri á
Kára VE, sem sökk í gærmorgun
fyrir utan Stokkseyri.
Eyjólfur Konráð:
Útvarpshúsinu
nýja breytt
í smáíbúðir
Eyjólfur Konráð Jónsson hefur
lagt fram tillögu á alþingi um stöðv-
un framkvæmda við útvarpshúsið.
Leggur þingmaðurinn til að athug-
að verði hvort ekki megi nýta húsið
fyrir smáíbúðir, ella verði efnt til
hugmyndasamkeppni um notkun
þess.
í greinargerðinni með frumvarp-
inu segir Eyjólfur að menn hafi nú
fyrir augunum stórframkvæmdir
við byggingu svonefnds útvarps-
húss sem þenst út og suður og upp í
loft án þess að unnt sé að ímynda
sér hvernig þessi ósköp ætti að nota
til útvarpsreksturs, nema e.t.v.
eitthvert horn hússins."
-•g
Fréttamaður Þjóðviljans hitti
Hörð og Henning Fredreksen,
skipstjóra á Hásteini ÁR, sem sigl-
di á Kára VE, á bryggjunni á Stok-
kseyri í gær. í>ar voru menn að
huga að skemmdum á Hásteini sem
virðast all-nokkrar.
Henning sagðist helst ekki vilja
tala um þennan atburð fyrr en sjó-
próf hefðu farið fram, enda hefði
hann sjálfur verið við stýrið. Stað-
reyndin væri þó sú að Hásteinn ÁR
hefði siglt á stjórnborðskinnung
Kára VE og við það hefði komið
allstórt gat á kinnunginn og bátur-
inn sokkið á 2-3 mínútum.
Hörður sagði að höggið hefði
verið all-nokkurt, en þó sagðist
hann hafa haldið að þegar svona
óhapp gerðist væri höggið meira.
Hann sagðist aldrei hafa lent í
svona nokkru fyrr. Þó hefði höggið
verið það mikið að félagi hans sem
svaf í þverkoju, kastaðist fram á
gólf.
„Við hentumst allir uppá dekk
og sáum þá strax hvað verða vildi.
Kári VE var byrjaður að sökkva að
framan og það var nokkuð bratt að
fara aftur eftir dekkinu, ná björg-
unarbátnum og kasta honum í sjó-
inn. Við stóðum svo á skutnum og
hentum okkur fyrir borð og nokk-
urnveginn um Ieið sökk báturinn.
Eina hættan var sú að lenda í skrúf-
unni, sem enn gekk. En þetta fór
allt vel og við komumst strax í
björgunarbátinn, sem hafði blásist
út um leið og hann kom í sjóinn."
Þeir voru hvorki með gálga né
sleppibúnað á gúmmbjörgunar-
bátnum á Kára. -S.dór
Sjá bls. 2
Henníng Fredreksen, skípstjóri á Hásteini RE t.v. og Hörður Jónsson
vélstjóri á Kára VE. Á innfelldu myndinni er verið að huga að skemmdum
á Hásteini í vörinni á Stokkseyri. (Mynd. -S.dór).
Neytendasam-
tökin skora
á landsmenn:
Fréttir úr borgarstjórn
Köttur rifinn - hundar leyfðir
Heimilað niðurrif
Fjalakattarins
í gær var samþykkt með nafn-
akalli í borgarstjórn Reykjavíkur
heimild til niðurrifs Fjalakattar-
ins. Samþykkir voru 11 fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins en sá tólfti,
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Umhverfismálaráðs, greiddi at-
kvæði á móti ásamt 8 fulltrúum
minnihlutans. Sigrún Magnús-
dóttir úr Framsóknarflokki og
Sigurður E. Guðmundsson úr Al-
þýðuflokki sátu hjá. Þorkell
Valdimarsson, eigandi hússins
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gærkvöldi að hánn vildi ekki láta
hafa neitt eftir sér um hvað nú
tæki við, hann þyrfti að sofa á
málinu og átta sig betur á stöð-
unni. Hann var spurður um það
hvort hann væri fús til viðræðna
við samtökin „Níu líf“ og sagðist
hann aldrei hafa neitað við-
ræðum við neinn.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
í borgarstjórn lögðu fram tillögu
sem kveður á um að borgarstjórn
geri það sem í hennar valdi standi
til að greiða fyrir samningum
milli eigenda hússins og samtak-
anna „Níu líf“. Þessi tillaga var
samþykkt með 10 atkvæðum
minni hlutans og Huldu Valtýs-
dóttur en 11 fulltrúar sátu hjá.
Takmarkað
hundahald leyft
í gærkvöldi voru tillögur borg-
arstjóra um takmarkað hunda-
hald samþykktar með 14 sam-
hljóða atkvæðum en fulltrúar
minnihlutaflokkanna annarra en
Framsóknarflokksins sátu hjá.
Samkvæmt tillögunni verður efnt
til almennrar atkvæðagreiðslu
ekki síðar en fjórum árum eftir
staðfestingu reglugerðar um
hundahald. Sigurjón Pétursson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins,
taldi að það gæti skapað erfið-
leika ef fólki væri leyft að halda
hund en síðan samþykkt að
banna hundahald í atkvæða-
greiðslu. Báru fulltrúar Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Kvennaframboðs fram tillögu um
skoðanakönnun um málið á
þessu ári en hún var felld.
- GFr
Átök að
hefjast um
humar-
kvóta
Nú er unnið að því að úthluta
aflakvóta til þeirra báta sem
stunda munu humarveiðar í
sumar. Að sögn Kristjáns
Ragnarssonar formanns LÍÚ,
er búist við að það verði varla
léttara verk né átakaminna en
úthlutun aflakvótans á vertíð-
inni í vetur. Humarvertíðin
hefst fljótlega eftir að vetrar-
vertíð lýkur 11. maí.
-S.dór