Þjóðviljinn - 17.05.1984, Qupperneq 1
DJODVIUÍNn\
1. maí aðgerðir ís-
lendinga í Gauta-
borg. Myndir og
grein.
Sjá 10
mai
fimmtudagur
110. tölublað
49. árgangur
Hamarshúsið:
Breytinga
standast ekkif
Byggingcifélcigib hóf framkvœmd-
ir án leyfis borgarstjórnar
Reykjavíkurborg hugsanlega
skaðabótaskyld
Minnihlutinn varaði við
Núerkomiðíljós að
breytingar á Hamarshús-
inu svonefnda í íbúðir,
sem meirihluti Sjálfstæð-
isflokksins í borgarstjórn
heimilaði Byggingarfé-
laginu Ós að gera, stand-
ast ekki samkvæmt því
aðalskipulagi sem nú er í
gildi fyrir Reykjavík.
Til að svo sé þarf því að
breyta áður samþykktu
aðalskipulagi borgarinn-
ar, - ella verður ekki hægt
að halda áfram breyting-
unum á Hamarshúsinu og
þar með yrði Reykjavíkur-
borg skaðabótaskyld
gagnvart Byggingarfé-
laginu Ósi.
Þettavarupplýstá
borgarráðsfundi í síðustu
viku, samkvæmttvennum
heimildum Þjóðviljans, við
mikla reiði Davíðs Odds-
sonar sem taldi að emb-
ættismenn borgarinnar
hefðu átt að benda meiri-
hlutanum á þennan agn-
Hamarshúslð. Hftlr að leyflð fyrlr
breytlngum á húslnu í íbúðarhús-
næðl hafði verlð keyrt I gegn um
borgarstjórn kom í Ijós að breytlng-
arnar samræmast ekki skipulagi
borgarinnar. (Ljósm. -elk)
úa, áður en flokkurinn
keyrði málið f gegn.
Það sem hafði farið fram hjá Da-
víð borgarstjóra og meirihlutanum
var að samkvæmt fyrirhuguðu að-
alskipulagi á hraðbraut, svokölluð
Geirsgata, að liggja upp að húsinu
miðju og meðfram því. En sam-
kvæmt reglum um íbúðarhúsnæði
verður að vera minnst 30 metrar frá
miðlínu hraðbrautar að íbúðarhús-
næði og svo er ekki samkvæmt gild-
andi skipulagi.
Davíð urðu hins vegar ekki mis-
tökin ljós fyrr en á borgarráðsfund-
inum í síðustu viku, þegar borgar-
verkfræðingur greindi frá því, að
hin fyrirhugaða Geirsgata mun
ekki liggja hafnarmegin við Ham-
arshúsið einsog meirihlutinn mun
hafa talið, heldur sunnanmegin við
húsið. Þarmeð er líka ljóst að hrað-
brautin mun skera Hamarshúsið og
hinar fyrirhuguðu íbúðir þess frá
íbúðabyggingunni fyrir ofan, og
liggja raunar á þeim stað sem gert
var ráð fyrir bílastæðum og barna-
leikvöllurinn fyrir íbúa Hamars-
hússins.
Rétt er að minna á, að á sínum
tíma mótmæltu fulltrúar minni-
hluta í borgarstjóm hinum fyrir-
huguðu breytingum á ýmsum for-
sendum. Jafnframt var ekki laust
við að talsverður spillingarkeimur
væri af málinu, því Byggingarfé-
lagið Ós hóf breytingamar á Ham-
arshúsinu löngu áður en þær vom
samþykktar í borgarstjóm. Og nú
hefur semsagt komið í ljós að í óð-
agotinu við að koma málinu gegn
gætti meirihlutinn þess ekki að
breytingamar sem hann leyfði
Byggingarfélaginu Ósi að gera -
þvert ofaní varnarorð ýmissa úr
minnihlutanum - samrýmast ein-
faldlega ekki því skipulagi sem
búið er að staðfesta fyrir borgina.
-ÖS
Nordal skfli
Undirskrifta-
söfnun
á Húsavík
Andvirði þriggja árslauna verkamanna
verði notað til að fylla uppí fjárlagagatið
í gœr hófst á Húsavík undir-
skriftasafnun um sð skora é 3ó=
hannes Nordal Seðlabankastjóra
að skila málverkunum tveimurfrá
Seðlabankanum og stjóm Lands-
virkjtmar sem kosta rúm þrenn
árslaun verkamanns. Söfnunin
gengur mjög vel, sagði Amar
Bjömsson á Húsavík t viðtali við
Þjóðviljann í gœr.
Textinn sem skrifað er undir
hljóðar svo:
„Á tímum aðhalds og sparnað-
ar gerist sá fáheyrði atburður að
einum embættismanni íslensku
þjóðarinnar, Jóhannesi Norda'l,
eru færðar tvær máiverkagjafir
að upphæð krónur 480 þúsund.
Um leið og við undirritaðir hörm-
um að opinberar stofnanir
(.Seðlabankinn og stjóm Lands-
virkjunar) sjái sér fært að verja
rúmum þrennum árslaunum
verkamanns í gjafir handa einum
einstaklingi, skorum við á iS-
hannes Nordal ■ að skila aftur
þessum gjöfum og að andvirði
málverkanna verði notað til þess
aö tyiia uppí fjáriagagat rfltfs-
stjórnarinnar. Allt tal um sparn-
að og aðhald í ríkisbúskapnum er
marklaust ef embættismenn ' í
þjónustu hins opinbera sjá ekki
sóma sinn í að afneita siíkum
gjöfurn."
Arnar kvað aðstandendur
söfnunarinnar hyggjast senda Jó-
hannesi undirskriftarlistana þeg-
ar söfnun lyki. -óg
Pingflokkur Alþýðubandalagsins
—
A mótí Droop
6:4 í atkvœðagreiðslu í gœr
„Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins samþykkti með 6 at-
kvœðum gegn 4 að halda sig við
formannafrumvarpið svokallaða
um kosningareglur og ég hef til-
kynnt formönnum hinna stjórn-
arflokkanna þessa niðurstöðu“,
sagði Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins að loknum
fundi þingflokksins síðdegis í
gœr.
Þessi niðurstaða þingflokks-
fundar Alþýðubandalagsins í
gœr verður til þess að þcer
breytingar sem aðrir þingflokkar
höfðu komið sér saman um á
formannafrumvarpinu munu
falla niður þar sem formannafr-
umvarpið gerði ráð fyrir því að
meirihluti eins þingflokks gœti
lcomið í vegfyrirfrekari breyting-
ar á því frumvarpi.
Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að stefnt hefði
verið að því aö samstaða ríkti um
afgreiðslu þessa máls milli þing-
flokkanna.
Aðspurður sagði Þorsteinn að
samkomulag þingflokkanna um
samstöðu varðandi formannafrum-
varpið og hugsanlegar breytingar á
því gilti einvörðungu varðandi af-
greiðslu málsins á þessu þingi, á
næsta þingi væru flokkar óbundnir
af fyrra samkomulagi.