Þjóðviljinn - 17.05.1984, Page 2
2 SÍÐA ‘ÁÞJÓÐVILJINN íFimmtudagur 17. maí 1984 -
Þrystiaðgerðir á
skiptum við •/ *—' ^
Miðnesheiði Reaganstj ornina
Verslunarráð og Geir saka Bandaríkjastjórn um að víkja af braut frjálsrar verslunar
Verslunarráðið sendi Brementz
sendiherra Bandaríkjanna bréf 13.
aprfl sl. til að tjá áhyggjur sínar
vegna þess að bandarískt skipafé-
lag taki yfir hluta af flutningum
fyrir herinn hingað til lands. Mikill
titringur er meðal manna og fyrir-
tækja sem hagnast á viðskiptum við
herinn vegna þessa máls og hefur
gengið á með bréfaskriftum og
þrýstiaðgerðum til að koma í veg
fyrir að bandaríska skipafélagið fái
þessa flutninga.
í bréfi framkvæmdastjórnar
Verslunarráðsins þann 13. maí sl.
var grundvallarviðhorf ráðsins um
„frjálsa viðskiptahætti" ítrekað og
því lýst yfir að hugsanlegir flutning-
ar skipafélagsins Rainbow Navig-
ation á vörum hingað til lands væru
í andstöðu við það viðhorf ráðsins.
Þá er sagt í bréfinu að Bandaríkja-
stjórn styðji sömu stefnu og Versl-
unarráðið og ráðið vonast til að
bandaríska ríkisstjórnin verði
áfram bandamaður /erslunarráðs-
ins um frjálsa verslun. í lok bréfs-
ins biður Verslunarráðið Brements
sendiherra um aó koma skilaboð-
um til Reaganstjórnarinnar um al-
varlegar áhyggjur ráðsins vegna
þessa máls.
Hörður Sigurgestsson forstjóri
Eimskips, sem hingað til hefur haft
með þessa flutninga að gera ásamt
Hafskip, er einnig stjórnarmaður í
Verslunarráðinu.
í Verslunarráðinu er einnig
Gunnar Guðjónsson skipamiðlari
og fyrrverandi formaður Verslun-
arráðsins. Hann er umboðsmaður
fyrir bandaríska skipafélagið Rain-
bow Navigation. Magnús Ármann
hjá skipamiðlun Gunnars Guð-
jónssonar kvað samninga hafa ver-
ið undirritaða milli Bandaríkjahers
og Rainbow Navigation og gengu
þeir í gildi 11. maí sl. Hann kvað
samninginn kveða á um sömu gjöld
og íslensku skipafélögin hafa feng-
ið fyrir þessa flutninga. Magnús
Ármann kvað skipafélagið banda-
ríska ekki ætla að fara í neitt verð-
stríð við íslensku skipafélögin og
þess vegna ætluðu þau að flytja á
sama gjaldi og samningar íslensku
skipafélaganna við herinn kvæðu á
um. „Svo á eftir koma í ljós hvort
að íslensku skipafélögin ætla að
fara útí samkeppni og þá á þeim
grundvelli að lækka verðið, það
veit maður ekki hvernig virkar".
Magnús Ármann kvað umboðs-
skrifstofuna á íslandi ekki taka
neinn þátt í hugsanlegri sam-
keppni, þarsem allt í tengslum við
þetta væri gert í Bandaríkjunum.
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra hefur sent Shultz kollega sín-
um í Washington bréf, en viðræður
þeirra um málið hafa verið settar á
laggirnar á Natófundi sem haldinn
verður innan skamms. Þá hefur
Hans Andersen sendiherra í
Bandaríkjunum rætt um málið við
þarlenda stjórn sem og Brement
sendiherra og Geir. Þannig er mál-
ið litið alvarlegum augum, af þeim
sem hagsmuna hafa að gæta í sam-
bandi við bandaríska herinn hér á
landi. - óg
Mezzoforte
er sænsk
hljómsveit
Eins og fjölmiðlar hafa frá
skýrt, þá hefur hljómsveitinni
Mezzoforte gengið bærilega í
útlöndum. Ef menn telja, að
þar með hafi hlutur íslands í
heiminum stækkað að sama
skapi, þá er það misskilningur.
Surprise / Garden Patty /
Gazing Al The Clouds /
Early Automn / Action
Man / Funk Suite No. 1 /
E«y Jack / Fusion Blues /
The Old Neighborhood /
Surprise, Reprise
Eine neue schwedoche
Gruppe, deren eingangige
Popstúcke durch originel-
len Blásersatz und klare
Gitarrenlinien auffallen.
Beat.-Nr. 20117/0
Polydor-Mu^Cassette
DovídBowíe
Lers Dsíkc
Modem Love/ChintÉiirl
Let’s Dancc / WithJt
You / Ricochet /Ctfcinal
Workí/CatPeop/
(Putting Out Fir/
Shake It #
17,90 DM
Til dæmis að taka er auglýsinga-
bæklingur frá Buchergilde,
þýskum bókaklúbbi sem býður
viðskiptavinum sínum upp á
bæði plötur og bækur. Þar er
boðið upp á Mezzoforteplötu,
lögin eru öll kynnt upp á ensku
og útskýringin sem fylgir segir
frá því að hér sé um nýja
SÆNSKA grúppu að ræða sem
blási frumléga og hafi skýra gít-
arhljóma.
Ekki er ástæða til að ætla að
Svíar hafi hér stundað skemmd-
arstarfsemi eins og sumir kynnu
að halda. Miklu heldur er það
hér á seyði, að seljendur vöru-
nnar vita a.m.k. af því að
ABBA seldist á sínum tíma - og
vænlegast til árangurs á mark-
aðnum kynni að vera að segja
Mezzoforte sænska líka. Það
væri of flókið að útskýra að þeir
gaurar séu úr Brekkukoti.
Enda semja þeir á ensku
hvort sem er.
Já, en einhvers staðar verða vondir að vera! Lögreglan gerir góðfúslegar
athugasemdir í sólskininu í Reykjavík í gær. (- eik)
Páll Pétursson setti ofan í við flokksbróður
sinn Ólaf Þ. Þórðarson_________
Haltu þér
á mottunni
Formaður þingflokks Fram-
sóknarmanna Páll Pétursson sá sig
tilneyddan á fundi neðri deildar í
gær að setja ofan í við samflokks-
mann sinn Ólaf Þ. Þórðarson við
umræður um tillögu stjórnarinnar
um bann við boðuðu verkfalli flug-
manna.
Ólafur Þ. Þórðarson lýsti því yfir
við umræðurnar að vel mætti hugsa
sér að taka vinnumálalöggjöfina til
endurskoðunar í framhaldi af
þessu flugmannamáli. Svavar
Gestsson kvaddi sér þá hljóðs og
krafðist svara af forsætisráðherra
hvort stjórnarflokkarnir væru með
slíkar ráðagerðir í huga. Páll Pét-
ursson tók til máls í fjarveru ráð-
herra og sagði engar slíkar um-
ræður hafa átt sér stað innan þing-
flokks Framsóknarmanna og sagð-
ist vona að menn heldu sér á mott-
unni í þessari umræðu.
Svavar sagðist ánægður með
yfirlýsingu Páls og samhljóða yfir-
lýsingu samgönguráðherra og af!
þeim mætti draga þá ályktun að
ummæli Ólafs Þ. Þórðarspnarí um-
ræðunni á undan hefðu verið ó-
magaorð.
Ólafur brást hinn reiðasti við
þessari einkunnargjöf, skamníaði
þingforseta, flokksbróður sinn Ing-
var Gíslason, fyrir að standa sig
ekki í stykkinu. Höfðu þingmenn
dátt gaman af tilburðum hins
vestfirska þingmanns.
-•g-
Af hveriu ekki skóluið líka?
JL
- Á bakvið afstöðu Sjálfstæðis-
flokksins er sú grundvallarhugsun
hinna hreinræktuðu í haldsmanna,
að það sé allt annað ómögulegt en
að menn eigi húsin sln sjálfir, sagði
Guðmundur Einarsson Bandalagi
jafnaðarmanna á þingi á dögunum
þegar húsnæðismálin bar á góma.
„Eg held að þetta sé ein leið til
þess að birta okkur þessa gömlu
eignaauðhyggju, að það geti eng-
inn orðið hamingjusamur í sínum
ranni nema hann eigi hann yst sem
innst. Það er dálítið fróðlegt að
velta þessu fyrir sér vegna þess að
nú er íbúðarhúsið í raun og veru
ýmsu tengt. Að því liggur gata, að
því liggur skólp, vatnsveita og ým-
iss konar lagnir, rafmagn og sími og
allt þjónar þetta húsinu, en engum
dettur í hug að vilja endilega eiga
alla þessa kosti. Þetta er þjónusta
sem þeim er veitt. En síðan þegar
kemur að burðarvirki hússins,
steinsteypunni og járninu þá er
nauðhyggjan sú, að menn þurfi
endilega að eiga þetta og enginn
geti nokkurn tíma orðið hamingju-
samur án þess að svo sé. Þetta er
kannske byrjun á því að menn fari
nú að kaupa sér hlut í skolpveitum
og götum til þess að tryggja ham-
ingju sína og eftirkomenda; að geta
skilið eftir sig svosem einsog 100
metra af malbiki eða einhverjum
veitulögnum“, sagði Guðmundur
Einarsson alþingismaður.
-óg
Atvinnuhorfur
nemenda á Akureyri
69% hafa
örrugga
atvinnu
Atvinnuhorfur fyrir skólafólk á
Akureyri í sumar eru mjög góðar
og mun betri en á sama tima í
fyrra. Kemur þetta fram í könn-
un sem kynnt var á fundi bæjar-
ráðs Akureyrar í gær.
Könnunin var gerð í byrjun
þessa mánaðar á meðal 513 nem-
enda í Menntaskólanum á Akur-
eyri og framhaldsdeildum Gagn-
fræðaskólans. 356 nemendur,
eða 69% kváðust hafa örugga
vinnu í sumar. 105 eða 23%
höfðu von um vinnu en 49 eða
8% höfðu enga vinnu í sumar.
Samkvæmt nýlegri atvinnu-
leysisskráningu á Akureyri eru
allmargir unglingar utan skóla á
atvinnuleysisskrá en fyrmefnd
könnun á meðal akureyrskra
skólakrakka gefur tii kynna heid-
ur bjartara útlit en reiknað hafði
verið með. _ v
11. þing MSI:
Kjara- og
atvmnumál
í brennidepli
11. þing Málm- og skipasmiða-
sambandið hefst í dag kl. 9.00 á
Hótel Esju. Rúmlega 100 fulltrú-
ar frá um 20 sambandsfálögum
mæta á þinginu. Aðalmál þings-
ins eru kjara- og atvinnumál og
einnig verður fjallað um tölvumál
og áhrif tölvuvæðingar á atvinnu-
líf.
..... .........
Rafeinda-
stýrðir
dropa-
teljarar
Nákvæmir dropateijarar sem
eru langþráð tæki á fæðingar-
deildina eru nú kontin þangað
fyrir tilstili Lionsklúbbsins Freys
og Kiwanisklúbbanna i Reykja-
vík.
Dropateljarar eru rafeinda-
stýrðir af gerðinni IVAZ 531.
Slíkir teljarar eru mjög nákvæmir
og auka mjög öryggi við lyfjagjaf-
ir og aðra vökvagjöf sem gefin er
beint í æð.