Þjóðviljinn - 17.05.1984, Side 3
Fimmfudagur i7. maí 1984 JÞJÓÐVILJINN — 'SÍÐA 3 ' ’
Keppendur sem ásamt fararstjóra og þjálfara fara í dag af landi brott tll að taka þátt f alþjóðlegri hjólkeppni i
Budapest 24.-27. maí
Til Ungverj alands!
Hjólreiðakappar fara frá íslandi
í dag til að taka þátt í alþjóðlegri
hjólkeppni í Ungverjalandi.
Kapparnir unnu lokakeppni í
hjólalistum sem haldin var við
Austurbæjarskólann í haust. Sigur-
vegarar í hjólreiðakeppninni eru
tveir 13 ára strákar frá Akureyri,
Sveinbjörn Jóhannesson og
Haukur Hauksson. Guðmundur
Þorsteinsson námsstjóri í umferð-
arfræðslu sagði Þjóðviljanum að
þeir hefðu fengið mjög góðar verk-
legar æfingar af hálfu skóla og lög-
reglu á Akureyri. Sagði Guðmund-
ur að tækjasett fyrir hjólreiða-
þrautir fengist hjá námsgagna-
stofnun og að það væri mjög gott til
þjálfunar.
Sigurvegarar í vélhjólakeppn-
inni, Sigmundur Sæmundsson og
Sævar Unnar Ólafsson frá Reykja-
vík eru báðir 16 ára. Þeir halda
einnig utan til keppninnar í Ung-
verjalandi sem verður í Budapest.
Ásamt þeim fara Guðmundur Þor-
steinsson námsstjóri og Bendt Ped-
ersen lögreglumaður frá Keflavík.
-jP
Fræðslustjóraembættið í Reykjavík
Verða
breytingar?
• Aslaug veit ekkert
• Sólrún vill ekkert segja
„Embætti fræðslustjóra er í föst-
um skorðum samkvæmt Grunn-
skólalögunum. Ég veit ekki hvað
eða hvernig á að framkvæma hlut-
ina, annað en það sem lesa má út úr
fundargerðum. Samkvæmt þeim
virðist sem breytingar standi fyrir
dyrum og þú ættir að hafa samband
við þá sem standa fyrir þeim“,
sagði Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri við Þjóðviljann í gær.
Á fundi borgarstjórnar í dag
verða tvær fundargerðir fræðslu-
ráðs á dagskrá. Þar er m.a. fjallað
um. að leggja niður núverandi
fræðsluskrifstofu og stofnun skóla-
skrifstofu. Þjóðviljanum tókst ekki
að ná í Markús Örn Antonsson for-
mann fræðsluráðs í gær.
Þjóðviljinn leitaði til Sólrúnar
Jensdóttur skrifstofustjóra
menntamálaráðuneytisins. Hún er
jafnframt umsjónarmaður skóla-
mála af ríkisins hálfu og ein þeirra
sem unnið hafa að yfirlýsngu um
breytingar að fræðslustjóraemb-
ættinu. Hún vildi ekkert láta hafa
eftir sér um þetta mál sagðist ekki
kannast við að samningsdrögin frá
því i fyrra væru til umræðu núna og
Aslaug Brynjólfsdóttlr.
að yfirlýsingin um fyrirkomulag
yfirstjómar fræðslumála í Reykja-
vík væri aðeins vinnuplagg sem úr-
elt væri í dag. Væntalega skýrast
málin á fundi borgarstjórnar í dag.
-JP
Lífeyrissjóður verslunarmanna hundsar algerlega
skuldabréf Byggingasjóðs verkamanna
„Höllin í mýrinni4 6
erþeim hugleiknari
Dágóður
afli í
Djúpinu
Dágóður afli hefur verið hjá net-
abátum við ísaijarðardjúp. Loðn-
uganga kom í Djúpið og í kjölfar
hennar þorskganga, sem bátar
veiddu grimmt úr í net. Bátar frá
Bolungarvík mokuðu þá upp afla,
en nú er farið að draga úr veiðinni
aftur.
Togarar á Vestfjörðum hafa
aflað dável af grálúðu og karfa
undanfarið, en öðru hvoru hafa
þeir líka komið inn með ágætan
þorskafla, allt að 100 tonn eftir 6-7
daga útivist. _ s.dór
sagði Helgi Seljan við umræður um húsnœðismálafrumvarpið í gœr
Kaup lífeyrissjóöanna á
skuldabréfum opinberrafjár-
festingarlánasjóða voru 151
miljón króna lægri á síðasta ári
en lánsfjáráætlun hafði reiknað
með. Keypt voru skuldabréf af
Byggingasjóði verkamanna
fyrir rúmar 117 miljónir en af
Lánasjóði Veðdeildar Iðnaðar-
bankans fyrir rúmar 90 miljónir,
en þeir fjármunir fara til al-
mennraútlána.
Þessar upplýsingar koma fram í
, svari fj ármálaráðherra við fyrir-
spurnum frá Helga Seljan um
skuldabréfkaup lífeyrissjóða. Þar
kemur einnig fram að einn stærsti
lífeyrissjóður landsins, lífeyris-
sjóður verslunarmanna keypti ein-
Við teljum „með öllu óskiljan-
lega þá hugmynd að Reykjavíkur-
borg ætli að leggja niður eftirlit
með sérkennslu í borginni án þess
að tryggt sé að það verði á væntan-
legri fræðsluskrifstofu Reykjavík-
urumdæmis“ segir í ályktun frá
trúnaðarráði Kennaraféiags
Reykjavíkur sem lögð var fram í
fræðsluráði í fyrradag.
ungis skuldabréf fyrir 22.5 miljónir
í stað fyrir 116 miljónir sem gert
hafi verið ráð fyrir samkvæmt 40%
reglunni, eða aðeins rúm 19% af
áætluðum kaupum. Sjóðurinn
keypti ekki eitt einasta bréf í Bygg-
ingasjóði verkamanna. Lífeyris-
sjóðir Dagsbrúnar og Framsóícnar
keyptu hins vegar skuldabréf í
Byggingasjóði verkamanna fyrir 26
miljónir.
Helgi Seljan benti á þessi atriði
í framhaldi af þessu réðst for-
maður fræðsluráðs Markús Örn
harkalega að Elínu Ólafsdóttur
kennarafulltrúa þegar hún and-
mælti fullyrðingum meirihluta-
manna um að Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkurumdæmis væri alfarið
á vegum menntamálaráðuneytisins
og kæmi borginni ekki við.
Þjóðviljinn spurði Áslaugu
við umræðu um húsnæðismála-
frumvarp ríkisstjórnarinnar í gær
og sagði að það ætti að láta einskis
ófreistað við að ná inn í húsnæðis-
kerfið því fjármagni sem þangað
ætti að fara, því þar væri þörfin |
mest fyrir það. Greinilegt væri á:
kaupum lífeyrissjóðs verslunar-
manna á skuldabréfum að „Höllin í
mýrinni" væri honum hugleiknari
en byggingarmöguleikar almenn-
ings. - lg.
Brynjólfsdóttur fræðslustjóra
hvort tryggt væri að eftirlit með
sérkennslu verði á nýju fræðslu-
skrifstofunni sem fyrirhuguð er.
„Ég hef engin svör fengið við því
hvað þar á að vera og hef þess
vegna ekki hugmynd um hvort
þetta starf verði þar frekar en
önnur. Miðað við aðrar fræðslu-
skrifstofur væri það eðlilegt." _jp
Lífefna-
iðnaður
fyrir
norðan
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
einróma tekið undir bókun í at-
vinnumálanefnd bæjarins frá því í
byrjun maí þar sem lýst var yfir
stuðningi við frumvarp Steingríms
J. Sigfússonar á Alþingi um að á
Akureyri verði stofnsett rannsókn-
arstofá lífefnaiðnaðarins.
f bókun atvinnumálanefndar
segir: Atvinnumálanefnd ítrekar
stuðning sinn við framkomið frum-
varp á alþingi um að stofnsett verði
á Akureyri rannsóknarstofa lífefn-
aiðnaðarins og telur nauðsynlegt
að afgreiða það á þessu ári. At-
vinnumálanefnd samþykkir að
stofna 3-5 manna samstarfshóp til
að gera frumkönnun á mögu-
leikum í lífefnaiðnaði á Akureyri.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
ráðsmaður Alþýðubandalagsins á
Akureyri sagði að á Akureyri væri
mikill áhugi fyrir framgangi máls-
ins á þingi. Hefði málið komið til
umræðu í bæjarstjórn Akureyrar
og allir fulltrúar þar lýst sig fýsandi
þess að frumvarpið yrði samþykkt
sem fyrst á Alþingi. Sagði Sigríður
að grannt yrði fylgst með fram-
vindu málsins því Akureyringar
bindu miklar vonir við staðsetn-
ingu rannsóknastofa lífefnaiðnað-
arins í bænum. _v
Breytingar á rekstri sálfrœðiþjónustu skóla:
ÓSKILJANLEG
HUGMYND
segir Kennarafélag Reykjavíkur • Markús Örn réðst
harkalega að Elínu Ólafsdóttur kennarafulltrúa