Þjóðviljinn - 17.05.1984, Side 7
Fimmtudagur 17. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Minning
Margrét
Ottósdóttir
Kveðja frá Kvenfélagi sósíalista
Allt frá stofnun íslenskrar sósí-
alískrar kvennahreyfingar 1939,
var Margrét mjög virkur félagi: í
stjóm Kvenfélags sósíalista sem
formaöur og meðstjórnandi og nú
síðustu árin sem varaformaður.
Hún var æfinlega mjög góður
starfskraftur, má þar m.a. nefna
það árlega átak að standa fyrir 1.
maí kaffisölu og kvöldvöku í Tjam-
argötu 20 meðan Kvenfélagið átti
þar húsaskjól. í því starfi átti
Magga drýgsta þáttinn.
Hún átti langa sögu að baki í
hreyfingu sósíalista ásamt fjöl-
skyldu sinni og eiginmanni Ársæli
Sigurðssyni. Það gleymist ekki
okkur sem heyrðum, þegar Magga
sagði frá ámnum sem þau dvöldu í
Danmörku á uppgangstímum
þýska nasismans. Bæði voru þau
starfandi í danska Kommúnista-
flokknum, og hafði Ársæll ábyrgð-
armiklum og áhættusömum erind-
um að gegna fyrir danska flokkinn í
sambandi við aðstoð hans við þá,
sem í mestri hættu vom og ötul-
legast unnu gegn þýska nasisman-
um. Þessi störf Ársæls hefðu aldrei
verið unnin án eldmóðs og sam-
heldni þeirra hjóna.
Auk þess sem áður er getið var
Frá Kennaraháskóla
íslands
Framhaldsdeild í sérkennslufræðum er fyrir-
huguð skólaárið 1984-85 fyrir kennara með
B.Ed.-próf eða almennt kennarapróf. Krafist
er a.m.k. tveggja ára starfsreynslu við
kennslu. Námið er fyrsti áfangi í sérkennara-
námi fyrir kennara sem kenna börnum og
unglingum með sérþarfir við grunnskóla og
sérskóla og samsvarar fyrstu deild í Statens
Spesial Lærerhögskole í Oslo. Umsóknar-
frestur er til 31. maí. Umsóknum fylgi afrit af
prófskírteini, staðfesting á kennslureynslu og
passamynd.
Rektor.
Laugavegi17 S: 12040
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Sprungu-
iLíf Upptýsingar i simu.n
(91) 66709 & 24579
Tókum að okkur að
þétta sprungur
í steinvegjum,
lögum alkalískemmdir,
þéttum og ryðverjum
gömul bárujárnsþök.
Höfum háþróuð
amerisk þéttiefni frá RPM
11 ára reynsla á efnunum
hér á landi.
Gerum föst verðtilboð
yður að kostnaðarlausu
án skuldbindinga af
yðar hálfu.
Pípulagningar
Tek að mér alla almenna pípulagningavinnu.
Einnig gripahúsainnréttingar úr járni. Magn-
ús Hjaltested, pípulagningameistari, sími
81793.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Margrétar Ottósdóttur Hringbraut 97.
Már Ársælsson Lilja Kristjánsdóttir
Hrafnkell Ársælsson Svava Ágústsdóttir
Snorri Ársælsson og barnabörn. Hjördís Hjörleifsdóttir
Bandalag Jafnaðarmanna vill að
hætt verði að taka skyldusparnað af
ungu fólki
Ekki sjálfgefið að það
sé skynsamlegt að spara
segir Guðmundur Einarsson alþm.
sem telur skyldusparnaðinn órétt-
látan
Magga um árabil fulltrúi félagsins á
Kvennaráðstefnu Eystrasaltsvik-
unnar. Hún var eindregið andvíg
því að leggja niður starfsemi
Kvenfélags sósíalista þegar það var
til umræðu á sínum tíma. Magga
var eins og við fleiri þá, þeirrar
skoðunar, að sósíalísk kvenna-
hreyfing ætti fullan rétt á sér.
í öllu samstarfi var Magga örv-
andi og samvinnuþýð, með sínu
góða skaplyndi, enda munum við
allar sem með henni störfuðum,
sakna hennar af heilum hug.
Elín Guðmundsdóttir
Við afgreiðslu húsnæðisfrum-
varpsins í neðri deild báru þing-
menn Bandalags jafnaðarmanna
fram þá tillögu að hætt yrði að taka
skyldusparnað af ungu fólki og þær
900 miyónir sem nú eru inni í sjóð-
um húsnæðiskerfisins yrðu
greiddar út á næstu 3 árum. Margir
þingmenn lýstu furðu sinni á þess-
um tillöguflutningi um stór-
minnkun á tekjumöguleikum hús-
næðiskerfisins á sama tíma og allir
sjóðir þess væru meira og minna
tómir.
„Við lítum á þessi skylduspam-
aðarlög sem brot á grundvallar-
rétti, þ.e. rétti hvers sjálfráða
manns til að stýra sparnaði sínum
og eyðslu. Það er ekkert sjálfgefið
að það sé skynsamlegt að spara.
Það verður hver og einn að taka
ákvörðun um eftir efnahag sínum
og lífsskoðun," sagði Guðmundur
Einarsson þingmaður BJ og einn
tlutningsmanna tillögunnar í sam-
tali við Þjóðviljann.
Guðmundur sagði að í lögunum
um skyldusparnað væri gert ráð
fyrir því að fólk noti fé það sem
sparað er til að byggja eða kaupa
eigið húsnæði og ekki til annars.
„Það er ekki nóg með að yfirvöld
frysti fé unga fólksins, heldur veita
þau líka fyrirmæli um ráðstöfun
þess.“
Aðspurður um hvernig tryggja
ætti fjármagn í húsnæðiskefið ef
skyldusparnaðurinn yrði lagður
niður sagði Guðmundur að vel
kæmi til greina að athuga með
frjálst sparnaðarform fyrir ungt
fólk sem gæfi rétt til langtímalána,
jafnvel bundið við húsnæðiskerfið,
en eins og framkvæmdin væri í dag
þá væri þetta óréttlátt kerfi sem
jafnvel bryti á bága við lög um
sjálfræði og fjárræði.
Það þarf ekki að taka fram að
þessar tillögur BJ voru felldar við
atkvæðagreiðslu í neðri deild. -|g.
Viö kynnum aukna þjónustu
Nú ertu velkominn
til kl.6 á föstudögum
Hversu oft hefurðu ekki óskað þér að bankarnir
væru opnir aðeins lengur þegar þú ert á hlaupum
síðdegis á föstudögum?
Nú ríður Sparisjóður vélstjóra á vaðið og opnar af-
greiðslu sína fyrir öll almenn bankaviðskipti til
klukkan sex á föstudögum, í stað hins venjulega
fimmtudagstíma bankanna. Með hinum nýja sam-
fellda opnunartíma, kl. 9.15-18.00 alla föstudaga,
veitist þér langþráð tækifæri til að gera klárt fyrir
helgina og njóta frídaganna áhyggjulaust.
Þessi nýjung er okkar leið til að sinna því grundvall-
armarkmiði að veita viðskiptavinum okkar eins
góða bankaþjónustu og frekast er unnt. Vertu
velkominn í Sparisjóð vélstjóra - nú bíðum við þín
til klukkan sex á hverjum föstudegi.
SPARISJÓÐUR
VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18 Sími
28!