Þjóðviljinn - 17.05.1984, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. maí 1984
dftJ
Garðeigendur Kópavogi
Leiga á garðlöndum er hafin
Úthlutun garða fer fram í gróðrarstöðinni
Birkihlíð, Birkigrund 1 þriðjudag til fimmtu-
dags kl. 9.30 til 11.30 fram til 25. maí,
greiðsla garðanna er sem hér segir:
300 m2 kr. 635.-
200 m2 kr. 554,-
150 m2 kr. 445.-
100 m2 kr. 354,-
Greiðsla fer fram við úthlutun garða.
Garðyrkjuráðunautur Kópavogs.
Sími 46612.
ft
Lóðir við Stigahlíð
Reykjavíkurborg auglýsir eftir tilboðum í 21
einbýlishúsaióð við Stigahlíð.
Um lóðirnar gilda skipulags- og byggingar-
skilmálar, sem þegar hafa verið samþykktir í
borgarráði.
Tilboðsgjafar skulu senda skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, tilboð sín í
lokuðu umslagi merkt „Stigahlíð" og skulu
þau hafa borist skrifstofu hans fyrir kl.
16.15, miðvikudaginn 30. maí n.k.
Uppdrættir svo og tilboðsskilmálar þar sem
m.a. er kveðið á um opnun tilboða, greiðslu-
kjör og tilhögun samninga um lóðarsölu
liggja frammi á skrifstofu borgarverkfræð-
ings, Skúlatúni 2, 3. hæð, alla virka daga kl.
8.20-16.15. Nauðsynlegt er að tilboðsgjafar
kynni sér skilmálana.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
1X2 1X2 1X2
35. leikvika - leikir 12. maí 1984
Vinningsröð:
X 1 1-12X-X1 1-21 2
1. vinningur: 12 réttir - kr. 215.000.-
57225(4/11) 85645(6/11) +
2.vinningur: 11 réttir - kr. 8.000.-
863 19720+ 51374 87897+ 162720+
19632+ 37198+ 52451+ 90374
19703+ 39720+ 86579 94251 +
Kærufrestur er til 4. júní kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á
skrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimil-
isfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
Fjölbrautaskólanum
við Ármúla
Skólaslit og brautskráning stúdenta fer fram í
Fríkirkjunni, laugardaginn 19. maí kl. 15.
Afhending einkunna og val fyrir næstu önn
verður föstudaginn 18. maí kl. 11-13.
Skólameistari
(slensku námsmennlrnlr í Gautaborg drelfðu 3000 eintökum af dreiflritl sínu, þar sem hemáml íslands var
mótmælt og gerð grein fyrir sögu hernámsins.
íslenskir námsmenn í Gautaborg:
ísland úr NATO
herinn
burt!
Félag íslenskra námsmanna í
Gautaborg efndi til mótmæla-
aðgerða gegn aðild íslands að
NATO og dvöl bandarísks her-
liðs á íslandi daganna 4.-5.
maí. Fóru aðgerðir þannig fram
að námsmenn komu upp borða
með áletruninni „Island ur
NATO, USA-basen bort“ og
dreifðu þaðan dreifimiðum með
upplýsingum um hersetuna,
sem lesnar voru upp meðjöfnu
milfibili ígjallarhorn. Þásöfnu-
ðust námsmenn einnig saman
undir borðanum og sungu bar-
áttusöngva. I „Folkets hus“ í
Gautaborg var síðan haldin
samkoma sem stóð í 4 klukk-
ustundir. Var fundurinn vel sótt-
ur, en til hans hafði verið boðið
tveim gestum, þeim Brynjólfi
Bjarnasyni og Böðvari Guðm-
undssyni. Voru þarflutt erindi
sem röktu sögu hernámsinsfrá
íslenskum og alþjóðlegum
sjónarhóli. Ræða Brynjólfs
Bjarnasonarfjallaði um mar-
kmið og leiðir í friðarbaráttunni,
en Böðvar Guðmundsson söng
nokkrar af hinum kunnu vísum
sínum um hernámið og herm-
angið. Þá söng kór íslenskra
námsmanna I Gautaborg ein-
nig baráttu söngva.
I ályktun fundarins, sem stíl-
uð var á ríkisstjórnina og afhent
ræðismanni íslands í Gauta-
borg, var þeirri áskorun beinttil
stjórnvalda að þau stöðvi þegar
í stað alla aukningu á umsvifum
Bandaríkjahers á íslandi en
vinni þess í stað að brottför
hans. Segir í ályktuninni að ís-
lendingar ættu að segja sig úr
NATO og er þess farið á leit að
haldin verði þjóðaratkvæða-
greiðsla um málið. Aðgerðum
þessum lauk með dansleik.
Á samkomu námsmanna í Folkets hus flutti Brynjólfur Bjarnason erindi um
stríðshættuna og mikilvægi friðarbaráttunnar
.... og Böðvar Guðmundsson söng vísur sínar sem tengjast hernáminu.