Þjóðviljinn - 17.05.1984, Blaðsíða 11
Mark Hateley er kominn skrefl fram-
úr hlnum marksækna föður sínum,
Tony Hateley, sem aldrei náði að
komast f landsllð.
Hunt og
Hazard
í hópinn
Hateley líka
Steve Hunt frá WBA og Mike
Hazard frá Tottenham hafa veriö
valdir í landsliðshóp Englands í
fyrsta skipti; fyrir leikinn gegn
Skotum í bresku meistarakeppn-
inni þann 26. maí. Þar með virðist
langtímamarkmið Hunts vera í
þann veginn að rætast; hann yfirgaf
New York Cosmos fyrir tveimur
árum þrátt fyrir ótrúleg gylliboð,
því hann vildi leika í Englandi og
komast í landsliðið.
Þá hefur hinn marksækni Mark
Hateley frá Portsmouth verið út-
nefndur í hópinn sem fer til Suður-
Ameríku í júní en þar leikur Eng-
land landsleiki gegn Brasilíu-
mönnum, Uruguay og Chile 10,- |
17. júní. - VS j
Boccia-
sveitin
skammt
frá sigri
ísland var skammt frá sigri í
sveitakeppni á Norðurlandamót-
inu í boccia, fyrir fatlaða, sem hald-
ið var í Noregi um sl. helgi. ís-
lenska sveitin átti alla möguleika á
sigri í sínum riðli, vann A-sveit
Dana, A-sveit Svía og A-sveit
Norðmanna en tapaði 1-8 í loka-
leiknum fyrir B-sveit Finna. Þar
hefði fimm stiga tap dugað til að
komast í úrslit en þar hefði sveitin
átt sigur vísan. í staðinn þurfti hún
að leika um 4.-6. sæti og náði því
fjórða. A-sveit Dana fór í úrslitin
og varð Norðurlandameistari.
Sveitina skipuðu Sigurður
Björnsson, Tryggvi Haraldsson og
Björn Magnússon og tóku þeir
einnig þátt í einstaklingskeppni.
Aðeins Tryggva tókst að komast í
úrslit og hafnaði hann í níunda sæt-
inu.
- VS
Rapid sigraSi
Rapid Wien varð í fyrrakvöld
austurrískur bikarmeistari í knatt-
spyrnu, vann Austria Wien 2:0.
Austria vann fyrri leikinn 3:1 en
Rapid varð bikarmeistari á úti-
markinu.
Fimmtudagur 17. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
íslandsmótið í knattspyrnu hefst í kvöld:
KR eða Víkingur
fyrst með 3 stig?
í kvöld kl. 20 verður flautað til
leiks á íslandsmótinu í knattspyrnu
1984. Þá hefst á Valbjarnarvelli í
Laugardal leikur Reykjavíkurlið-
anna Víkings og KR í 1. deild og um
kl. 21.45 verður Ijúst hvort annað
liðið verður fyrst allra til að hljóta
3 stig í leik á íslandsmóti. I sumar
eru í fyrsta skipti gefin 3 stig fyrir
sigur en áfram eitt fyrir jafntefli.
Félögin sjálf, Víking og KR, þarf
ekki að kynna í löngu máli, þau eru
gömul og rótgróin og hafa löngum
sett svip sinn á íslandsmótið; KR
meira á árum áður, Víkingar meira
undanfarin ár. KR hefur 20 sinnum
orðið íslandsmeistari, síðast 1968,
en Víkingur fjórum sinnum, síðast
1981 og 1982.
KR-ingar eru sigurstranglegri í
kvöld. Þeir eiga á að skipa vaxandi
liði sem lítið hefur breyst frá því í
fyrra er það náði öðru sæti í 1.
deild, besta árangri félagsins í 15
ár. Víkingar eru aftur á móti komn-
ir á breytingaskeið; meistaraliðið
frá 1981-82 hefur verið að liðast í
sundur og nýir menn, ungir og að-
komnir eru að taka við. KR er al-
mennt spáð velgengni í sumar,
Víkingum basli og jafnvel erfiðri
fallbaráttu.
En allt er í heiminum hverfult.
Slíkir spádómar geta snúist við á
einni nóttu, enn skemmri tíma ef
svo ber undir. Talsvert var skorað
af mörkum í leikjum þessara liða á
Reykjavíkurmótinu, KR skoraði
i' gærkvöldi benti allt til þess að liðin yrðu þannig skipuð:
Víkingur
KR
Ögmundur Kristinsson
Ragnar Gíslason
Unnsteinn Kárason
Magnús Jónsson
Ólafur Ólafsson
Ómar Torfason
Andri Marteinsson
Kristinn Guðmundsson
Sigurður Aðalsteinsson
Ámundi Sigmundson
Heimir Karlsson.
Varamenn: Axel Axelsson, Einar Ein-
arsson, Þórður Ragnarsson og Gylfi
Rútsson en óvist með 16. mann.
Stefán Jóhannsson
Haraldur Haraldsson
Stefán Pétursson
Ottó Guðmundsson
Jósteinn Einarsson
Willum Þórsson
Ágúst Már Jónsson
Óskar Ingimundarson
Gunnar Gíslason
Sæbjörn Guðmundsson
Sverrir Herbertsson
Varamenn: Halldór Pálsson, Hannes
Jóhannsson, Jakob Pétursson, Ómar
Ingvarsson og Elías Guðmundsson.
|þá t.d. nær jafnmörg mörk og í allri að auki eru gefin þrjú stig fyrir
1. deildarkeppninni í fyrra. Þegar sigur, getur allt gerst. - VS
Stórkostleg út-
færsla ítalanna
Það var hrein unun að horfa á
stórkostlega útfærðan varnarleik
ítölsku meistaranna nýkrýndu, Ju-
ventus, í síðari hálfleiknum í úrslit-
um Evrópukeppni bikarhafa í
knattspyrnu I gærkvöldi. Leikur-
inn var sýndur beint í íslenska sjón-
varpinu og eftir að hafa náð 2:1
forystu í opnum fyrri hálfleiks,
sýndi ítalska liðið þá knattspyrnu
sem færði landsliði ítala
heimsmeistaratitilinn fyrir tveimur
árum.
Hinir portúgölsku andstæðing-
ar, Juventus, Porto, sóttu allan
seinni hálfleikinn, þ.e.a.s. voru
með boltann lengst af en þrátt fyrir
nett og skemmtilegt spil utan víta-
teigs Juventus tókst þeim nánast
aldrei að ógna Tacconi markverði
verulega. Skyndisóknir Juventus
voru hins vegar stórhættulegar og
ítalirnir voru klaufar að nýta þær
ekki til stærri sigurs. Sérílagi Paolo
Rossi, sá heimsfrægi garpur, sem
lét hinn óútreiknanlega Beto í
marki Porto frá sér undir lokin eftir
að hafa komist einn í gegn.
Mörkin í leiknum í Basel í Sviss
voru góð, einkum tvö þau fyrstu.
Einstaklingsframtak Vignola kom
Juventus yfir á 12. mínútu, ná-
kvæmlega eins mark og Magath
gerði fyrir Hamburger gegn Ju-
ventus í fyrra nema skotið mun
neðar í markhornið. Sausa jafnaði
eftir laglegan undirbúning tveggja
félaga sinna á 28. mínútu en Vig-
nola lagði upp markið á 41. mínútu
fyrir Boniek og það reyndist ráða
úrslitum. Stórgóð liðsheild Juvent-
us og útfærsla síðari hálfleiks færði
liðinu sigur. Porto er með stórgóða
og lipra leikmenn, Frasco (7) hætt-
ulegastur og Pereira (4) steig aldrei
feilspor í vörninni. - VS
Boniek - sigurmarkið
Ungverjar
hættir við
Ungverjar urðu í gær níunda ;
þjóðin til að draga sig útúr Ól-
ympíuleikunum í Los Angeles í
sumar. Hins vegar staðfestu
íþróttasamtök Afríkuríkja að þjóð-
ir sinnar heimsálfu myndu mæta til
leiks. Samaranch, forseti Alþjóða
Ólympíunefndarinnar, sagði í gær
að hann reiknaði með að um 40
þjóðir í allt myndu hætta við þátt-
töku í leikunum.
-VS
Zola með
á Bislet
Zola Budd, suður-afríska hlaupa-
stúlkan sem fékk breskan ríkis-
borgararétt á mettíma fyrr í vor,
fékk í gær leyfl hjá Norðmönnum
til að taka þátt í Bislet-ieikunum í
Osló í næsta mánuði. Til þess þurfti
hún að ógilda suður-afríska vega-
bréflð sem hún hélt enn, Norðmenn
tóku ekki í mál að íþróttamaður
með tvöfalt vegabréf fengi að taka
þátt í leikunum. Þar með hefur hún
endanlega roflð tengslin við heima-
landið, er alfarið orðin Breti.
-VS
Knattspyrnuskól-
arnir að byrja
Knattspyrnuskólar a.m.k.
tveggja Reykjavíkurfélaga eru í
startholunum. KR-skóIinn byrjar
28. maí og fyrsta námskeið í
Fram-skólanum hefst þann 4.
júní.
KR-skólinn er fyrir drengi og
stúlkur 6-12 ára. Krakkar 10-12
ára verða í honum alla virka daga
kl. 9.30 til 11, krakkar 8-9 ára kl.
11.15-12.45 og 6-7 ára börn kl.
13.30 - 15. Aðalkennari verður
Ágúst Már Jónsson. Skólanum er
skipt niður í námskeið og það
fyrsta stendur frá 28. maí til 14.
júní en það síðasta 14. ágúst - 29.
ágúst. Innritun stendur yfir í KR-
heimilinu, síma 27181.
Fram-skólinn skiptist niður í
fjögur námskeið, það fyrsta 4.
júní til 15. júní en að síðasta 16.
júlí-27. júlí. Bömfædd 1972-74
verða á morgnana frá kl. 9-12 en
börnfædd 1975-78milli kl. 13 og
16. Aðalkennari verður Sigur-
bergur Sigsteinsson. Innritun fer
fram í Framheimilinu milli kl. 13
-14 og eftir kl.17 alla virka daga.
Sími þar er 34792.
Mara-
dona í
bann!
Diego Maradona, sá
frægi argentínski knatt-
spyrnumaður, var í gær
dæmdur i þriggja mánaða
keppnisbann ásamt fimm
spænskum leikmönnum
Atletico Bilbao og Barce-
íona. Þeir sex tóku drjúgan
þátt í slagsmálum sem urðu
eftir leik liðanna í úrslitum
spænsku bikarkeppninnar
fyrir skömmu. Einn hinna er
„slátrarinn“ frá Bilbao, Go-
icoechtea, sem „slátraði"
Maradona eins og frægt
varð sl. haust! -VS
Man.Utd.
í 4. sæti?!
Manchester United lendir að
öllum líkindum í fjórða sæti 1.
deildar ensku knattspyrnunnar! í
gærkvöldi tapaði félagið 2-0 fyrir
Nottm.Forest í Nottingham; Forest
komst þar með uppfyrir Man.Utd
og Southampton á markatölu í ann-
að sætið, öll eru með 74 stig, en
Southampton getur farið upp fyrir
bæði og hafnað í öðru sæti með því
að gera jafntefli við Notts County í
lokaleik deildarinnar.
______________-VS
„Allt í
pakkau
„Við ræddum almennt um málin
en tókum engar endanlegar á-
kvarðanir. Ég á von á að við til-
kynnum um þá fjóra Ólympíufara
sem eftir er að velja strax eftir
næstu helgi. Nú um helgina fara
fram frjálsíþróttamót í Bandaríkj-
unum og þar munum við fylgjast
með hvernig Óskari Jakobssyni og
reyndar fleirum gengur. Varðandi
keppendur úr öðrum íþróttagrein-
um, munum við tilkynna þá um leið
og hina, þetta verður allt í einum
pakka,“ sagði Gísli Halldórsson
forseti íslensku Ólympíunefndar-
innar í samtali við Þjóðviljann í
gær.
-VS
Sheff. Utd
í 2. deild
Hið gamalfræga félag Sheffield
United komst í 2. deild ensku knatt-
spyrnunnar í fyrrakvöld eftir fimm
ára dvöl í 3. og 4. deild. Naumt var
það þó; Hull vann 2:0 útisigur í
Burniey og hefði komist upp á einu
marki í viðbót. Markatala og stig-
atala Sheff. Utd. og HuII varð jöfn
með úrslitunum í fyrrakvöld, en
Sheff. Utd er uppi á fleiri mörkum
skoruðum.
Liveipool og Norwich gerðu 1:1
jafntefli í 1. deild. Ian Rush
skoraði fyrir Liverpool, sitt 32.
mark í deildinni og 47. fyrir Liverp-
ool í vetur, en John Deehan svar-
aði fyrir Norwich. Scunthorpe féll
endanlega í 4. deild, tapaði 3:0 í
Rotherham. í 4. deild á Wrexham
enn möguleika á að sleppa úr hópi
fjögurra neðstu eftir 1:1 jafntefli í
Crewe. Þarf að vinna Tranmere í
lokaleiknum til að komast uppfyrir
Halifax og sleppa.
- VS