Þjóðviljinn - 17.05.1984, Síða 15
Fimmtudagur Í7.' mal 1584 ÞJOÐVILJINN - SÍÐÁ 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bœn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Magnús Guðjónsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Jakob",
smásaga eftir Þröst Karlsson; fyrri hluti
Höfundur les.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.) Tónleikar.
11.00 „Ég man þé tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hemnann Ragnar Stefánsson.
11.30 Kristófer Kolumbus Jón R. Hjálmars-
son flytur annað erindi sitt af þremur. Tón-
leikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egils-
sonar; seinni hiuti Þorsteinn Hannesson
les (26).
14.30 Á frfvaktinni. Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Arve Tellefsen, Leif
Jörgensen, Trond Oyen, Peter Hindar,
Svend Nyhus, Johannes Hindar, Hans
Christian Hauge og Levi Hindar leika
Strengjaoktett op. 3 eftir Johan Svendsen /
Liv Glaser leikur píanólög eftir Agathe
Backer-Gröndahl.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Sfðdegisvakan.
18.00 Af stað með Ragnheiði Daviðsdóttur.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfráttir. Tilkynningar. Daglegt mál.
Mörður Ámason talar.
19.50 Víð stokkinn. Stjómendur: Margrét Ól-
afsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir.
20.00 Sagan: Flambardssetrið II. hluti,
„Flugið heiflar" eftir K.M. Peyton Silja Að-
alsteinsdóttir les þýðingu sína (3).
20.30 Frá lokatónleikum Sinfóníuhljóm-
svoitar íslands i Háskólabiói; fyrri hluti
Stjómandi: Jean-Pierre Jacquillat. Ein-
leikari: Jörg Demus. a) Sinfónía eftir Skúla
Halldórsson (frumflutningur). b) Píanókons-
erl nr. 26 í D-dúr K. 537 „Krýningarkonsert-
inn“ eftir Wolfgang Amadeus Mozart. -
Kynnir: Jón Múli Ámason.
21.35 Frá leiklist og öðrum listum f Kína.
Sveinn Einarsson flytur erindi.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Lýriskir dagar. Fyrstu Ijóðabœkur ungra
skálda 1918-25.1. þáttur: „Sðngvar fðru-
mann*ins“ oftir Stefán frá Hvítadal.
Gunnar Stefánsson tók saman. Lesari með
honum: Kristin Anna Þórarinsdóttir.
23.00 Sfðkvöld með Gylfa Baldurssyni.
23.45 Fréttir. Dagskráriok.
RUV 2
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjómendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Eftir tvö Stjómendur: Jón Axel
Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson.
16.00-17.00 Jóreykur að vestan Stjómandi:
Einar Gunnar Einarsson.
17.00-18.00 Einu sinni áður var. Stjómandi:
Bertram Möller.
RUV
Föstudagur
18. maí
19.35 Umhverfis jörðina á 80 dögum. 2. þátt-
ur. Þýskur brúðumyndaflokkur. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna
Gunnlaugsdóttir.
19.45 Fráttaágrip á táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Böm í bíl. Fræðslumynd frá Umferðar-
ráði um notkun bilbelta og öryggisstóla.
20.50 Á dðfinni. Umsjónarmaður Kari Sig-
tryggsson. Kynnir Bima HróKsdóttir.
21.05 íkjðlfar Sindbaðs. Fyrsti hluti. Bresk
kvikmynd í þremur hlutum um óvenjulega
sjóferð frá Óman við Arabiuflóa til Indía-
landa og Kína. Farkosturinn var arabiskt
seglskip og tilgangur leiðangursins að
kanna sagnimar um ferðir Sindbaðs sæfara
sem segir frá í Þúsund og éinni nótt.
Leiðangursstjón var Tim Severin. Þýðandi
Gytfi Pálsson.
22.00 Viskíflóð. (Whisky Galore). Bresk gam-
anmynd frá 1948 gerð eftir sögu eftir Comt-
on Mackenzie. Leikstjóri Alexander Mac-
Kendrick. Aðalhlutverk: Basil Radford, Joan
Greenwood, Jean Cadell, Gordon Jackson
'og James Robertson Justice. Þegar
heimsstyrjöldin siðari skellur á sjá eyjar-
skeggjar á einni Suðureyja vestur af Skot-
landi fram á að verða að sitja uppi þurr-
brjósta. Það léttist því á þeim brúnin þegar
skip strandar með viskífarm. Þýðandi Jón 0.
Edwald.
23.15 Fráttir i dagskrárlok.
Halldóra og Svala Helga segjast óhressar með skrlf JVS um plönturnar „Ný spor“ og „Egó“, en maðurlnn á
myndlnni kemur mjög við sögu á þeim plötum.
Ný spor og Egó
eru góðar plötur
Halldóra Jónsdóttír og Svala
Helga Sigurðardóttir skrifa:
Við undirritaðar höfum nýlok-
ið við að lesa gagnrýni um plöt-
urnar Ný spor og Egó. Gagnrýni
þessi var birt í helgarblaði Þjóð-
viljans helgina 5.-6. maí.
Við urðum mjög hissa við
þennan lestur og datt okkur helst
í hug að JVS (greinarhöfundur)
hefði bara hlustað á plöturnar
með öðru eyranu. En hver hefur
sinn smekk. Að okkar dómi er
platan Ný spor tvímælalaust ein
besta plata, sem Bubbi hefur sent
frá sér. Á plötunni er ekkert eitt
lag, sem sker sig úr að gæðum, og
heldur ekkert sem er lélegast. Þar
af ieiðandi erum við aigjörlega
ósammála því að lögin Utan-
garðsmenn og Pönksvíta no. 7
séu algjör flatneskja..
Á plötunni eru 5 lög, sem ekki
er hægt að gera upp á milli: Strák-
arnir á Borginni, Utangarðs-
menn, Syndandi í hafi móðurlífs-
ins og Ég hata þetta bít. Hin lögin
eru 1 stigi á eftir. Textarnir eru
frábærir, ef fólk á annað borð
skilur þá.
Við erum sammála JVS í því að
platan ber þess merki að vinnan
við hana sé í lágmarki og við vilj-
um geta þess, að eitt lag vantar á
textablaðið auk þess sem nokkuð
er um villur og ekki er hægt að
segja að Bubbi tali gott íslenskt
mál.
Við mælum með þessari plötu
fyrir þá sem vilja vita hvernig
komið er fyrir okkur sem byggj-
um þennan heim og auðvitað þá,
sem þegar vita það líka. Ekki
leggja plötuna frá ykkur þó ykkur
líki hún ekki í fyrsta skipti heldur
hlustið á hana nokkrum sinnum.
Það getur enginn dæmt plötu
nema hlusta á hana oftar en einu
sinni.
Egó er ekki lélegasta platan,
sem komið hefur frá hljóm-
sveitinni, en hún er ekki sú besta
heldur. Á henni heyrum við eina
þá bestu hljóðfæraleikara hér á
landi spila saman. Lögin eru flest
ágæt og sum góð en karlrembu-
bragurinn er algjör flatneskja,
svo við notum orðalag JBS. Tvö
lög: Albert og Lúcý og III.
heimurinn sitja föst í manni og þá
sérstaklega textinn í III. heimur-
inn. Egómeðlimir eiga þakkir
skildar fyrir lagið Blýhöfuð. Egó
er góð plata og mjög vel þess virði
að hlusta oft á hana og hugsa um
hana.
Pælið í textunum á báðum
plötunum.
Það erframtíðin sem skiptir máli,
fyrir litla stelpu og lítinn strák.
Vörum þau við þessu báli,
vinirnir falla, við þegjum í hel
þessi dráp.
Rás 1 fimmtudag kl. 17.00:
Fréttatímar á ensku
„Þegar ég kom fyrst til landsins
vildi það brenna við, að ég stæði
uppi matarlaus, sérstaklega um
helgar og um stórhátíðir, því ég
vissi ekkert um opnunartíma
verslana eða hvar var hægt að
kaupa mat þegar flestar verslanir
voru lokaðar“, sagði Keneva
Kunz a samtali við blaðið, en hún
mun ásamt Geoffrey Cosser lesa
fréttir á ensku á Rás 1 kl. 17.oo
alla virka daga vikunnar.
Það er Ferðamálaráð, sem
stendur fyrir þessum fréttaþátt-
um og eru þeir fyrst og fremst
hugsaðir fyrir erlenda ferðamenn
á Islandi. Að sögn Kenevu verð-
ur fréttaþátturinn ca. 5 mínútna
langur og mest verður um er-
lendar fréttir. Þá verða einnig
fréttír um innienu mái, sem er-
lendum ferðamönnum kemur vel
að vita, svo sem stórhátíðir, opn-
unartíma verslana, sbr. ofan-
greinda frásögn Kenevu, listavið-
burði og ástand vega.
Keneva Kunz hefur búið hér-
lendis frá árinu 1978 og er kenn-
ari við Flensborgarskóla í Hafn-
arfirði. Geoffrey Cosser hefur
búið hér ámóta langan tíma og
hann vinnur á Landsbókasafn-
„Það vildl brenna við að ég stæði uppi matariaus þegar ég kom fyrst til
landsins", seglr Keneva Kunz og vísar þá tii þess, að hún vissi ekki þá um
opnunartíma búða eða söluturna. Landinn á myndinni veit allt um það
mál, en meðal þess sem Keneva og Geoffrey munu upplýsa í enska
fréttatímanum á Rás 1 er einmitt mál af því tagi.
inu. Þau tvö hafa verið ráðin til
að lesa fréttirnar til að byrja með
a.m.k. en ef til vill bætist þeim
liðsauki síðar í sumar.
Skrifið
eða
hringið
Lesendaþjónusta Þjóðvilj-
ans stendur öllum landsins
konum og mönnum til boða,
er vilja tjá sig í stuttu máli um
hvaðeina sem liggur á hjarta.
Nöfri þurfa að fylgja bréfí, en
nafnleyndar er gætt sé þess
óskað. Utanáskriftin er: Les-
endaþjónusta Þjóðviljans,
Síðumúla 6, 105 Reykjavík.
Þá geta lesendur einnig
: hringt í síma 81333 alla virka
daga milli klukkan 10 og 6.
bridge
Það er ekki slæmt að enda í 25.
sæti í harðri keppni 96 para, en
heldur er hlutskiptið dapurlegt, þeg-
ar um það er að ræða, að 24 efstu
pörin komast áfram í úrslit.
f ár eru það Hjálmtýr Baldursson
og Ragnar Hermannsson sem
verma sæti 1. varapars og ekki er
ósennilegt að þeir komist áfram.
Skoðuð spil sem næstum hafði
fleytt þeim inn:
Norður
S KG105
H A74
T AK843
L 9
Suður
S 98762
H 10
T 5
L AK8762
Sagnir voru ekki margslungnar:
Norður Suður
1 tígull 1 spaði
3 spaðar 5 spaðar
6 spaðar
Sagnhafi fór síðan rétt í trompið,
svínaði fyrir drottningu í vestur, og
þessi grimma slemma var í húsi
þegar trompið lá 2-2 (laufið má þá
liggja 4-2). Ekkert annað par í riðlin-
um vogaði sér upp úr úttektinni.
Hvaða sögnum viðvíkur lofar
stökkið í 3-spaða hámarki og 5-lit í
laufi eða tígli til hliðar. 5-spaðar
segja einfaldlega: - Segðu slem-
muna ef þú átt góðan spaða, og
eins og við sjáum, þá rétt skríður
það að norður eigi fyrir hækkuninni.
Ragnar og Hjálmtýr skoruðu 678'
stig. Par emð 679 komst áfram.
Tikkanen
Styttrí vinnutími venur okkur
við atvinnuleysi.