Þjóðviljinn - 17.05.1984, Qupperneq 16
DJOÐVIUINN
Fimmtudagur 17. maí 1984
Aðalsími Þjóðvlljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þesstímaer
hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaöslns i þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kJ. 9 - 12 er
hægt að ná í afgreiöslu blaðslns í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81333 81348 81663
Minni niðurgreiðslur orsaka samdrátt í sölu búvara
Tekjutap bænda nemur
um 50 miljónum á ári
Ef niðurgreiðslur yrðu alveg felldar niður yrði
tekjutap bœnda 187 miljónir kr. á ári!
Lækkun niðurgreiðslna á ýms-
um landbúnaðarvörum, sem á-
kveðin var í tengsium við efna-
hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
hefur þau áhrif að verðmætatap
bænda vegna minnkandi sölu
nemur um 50 mi|jónum króna á
ári. Niðurgreiðslur voru aiveg
felldar niður af rjóma, osti,
nautgripakjöti og kartöflum en
lækkaðar stórlega á öðrum
vörum svo sem nýmjólk og kind-
akjöti.
Búnaðarhagfræðingur Stétta-
sambands bænda, Guðmundur
Stefánsson sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að lækkun
niðurgreiðslnanna hefði það í för
með sér að sala mjólkurvara
myndi minnka um um það bil 1.3
miljónir lítra á ári og væri það
1.3% samdráttur. Kindakjötssal-
an myndi minnka um 260 tonn
eða 2.4% og nautakjötssalan um
84 tonn eða 4%. Þetta hefði í för
með sér 50 miljóna króna tekju-
tap hjá bændastéttinni eða um
12.500 krónur á hvem bónda. Ef
niðurgreiðslur yrðu alveg afn-
umdar yrði það mikill samdráttur
í sölu landbúnaðarvara að verð-
mætatap bænda yrði um 187 milj-
ónir króna eða 46.700 krónur á
hvem bónda.
Stéttasamband bænda hefur
bent á að ef drægi úr sölu búvara
vegna minnkandi niðurgreiðslna
myndi sá samdráttur lenda af full-
um þunga á bændur sem kjara-
rýmun. Guðmundur sagði sína út-
reikninga sýna, svo ekki yrði um
villst, að þegar stjómmálamenn
leystu vanda ríkissjóðs með því
að minnka niðurgreiðslur, gerð-
ist það eitt að honum væri velt
yfir á launamenn, í þessu tilfelli
bændur. Staða bænda gæfi ekki
tilefni til að rýra stórlega þeirra
tekjur.
-v.
Verða
.(í
svorin
„seink-
anir'
og „veik-
indi“?
Flugmenn voru mjög reiðir í
gær vegna ákvæða í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar sem bannar
juði. Meðal flugmanna komu
fram hugmyndir um að flugmenn
yrðu „veikir“, fengju alvarlegan
,Jhöfuðverk“, myndu fylgja al-
þjóðlegum reglum um áhafna-
skipti út T ystu æsar, verá „seinir
vegna óviðráðanlegra ástæðna“.
Slíkar aðgerðir myndu hafa mikil
áhrif á rekstur Flugleiða og allt
áætlanaflug. Töldu heimilda-
menn Þjóðviljans í gær að þær
gætu reynst Flugleiðum dýrari en
samningar við flugmenn.
„Ríkissáttasemjari hefur sagt
niér að svo mikið beri á milli, að
voniaust sé að ná samkomulagi
og því er ekki um annað að ræða
en að setja þessi lög“, sagði Matt-
hías Bjamason i samtali við Þjóð-
viljanfi í gær.
Hann var spurður hvort hann
óttaðist ekki áð flugmenn muni
svara þessum lögum með hæga-
gangi og öðru því sem gæti truflað
flugsamgöngur mjög í sumar?
„Ég vil ætla flugmönnum það
að þeir hugsi um það fýrirtæki
semþéir vinna hjá og um leið þá
sjálfa. Samkeppnin í Atlapts-
hafsfluginu er slík að ef fólk getur
ekki treyst á neitt flug hjá Flug-
leiðum, þá er félagið farið yfir-
um“, sagöi Maííhías.
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins sagði i umræð-
um um málið í gær að Alþýðu-
bandalagið myndi ekki leggjast
gegn þessari lagasetningu, en
hann átaldi samgönguráðherra
harðlega fyrir þau orð ?r hann lét
falla í umræðunni að svipta flug-
menn verkfallsrétti í citt skipti
fyrir öll. Guðmundur Einarsson
lýsti því yfir að BJ myndi leggjast
gegn lögunum.
S.dór
Mllll 40 og 50 brúður koma fram hjó Brúðubílnum sem hefur sýningar á gæsluvöllum borgarinnar á mánudaglnn. Sýndir verða tvelr þættir „Uglan í
trénu“ og „Gestir frá Afríku". A myndinni sem tekin var í gær má sjá Helgu Stefensen ásamt nokkrum brú&um. (Ljómynd -eik).
Þórir Oddsson vararannsóknarlögreglustjóri
Engir milligöngumenn
„Ég mótmæii því a'íarió ao viu
séum einhverjir milligönguaðilar í
málum af þessu tagi, en hins vegar
hvflir lagaleg skylda á okkur í þess-
um máium sem öðrum að kynna
árásarþola rétt til að koma með
kröfu um bætur, sem stundum
leiða til samninga þeirra í milli eða
milli umboðsmanna þeirra. Það á
hins vegar ekki að koma í veg fyrir
að máiið fari áfram í gegnum dóms-
kerfið og til Ríkissaksóknara“,
sagðj Þórir Oddsson, vararann-
sóknarlögreglustjóri þegar hann
yar spurður um þá fullyrðicgu, að
rannsóknarlögrcglan hefði milli-
göngu um „sættir“ í formi bóta-
greiðslna frá árásarmönnum til
kvenna í nauðgunarmálum.
Hvort líklegt sé að slíkar bóta-
greiðslur séu algengari í nauðgun-
armálum en öðrum vegna sérstöðu
þeirra, kveðst hann ekki geta sagt
neitt um, en sagði að rannsóknar-
lögreglan óskaði jafnan eftir skýr-
ingu þegar kona félli frá kæru. Það
væri ríkissaksóknara að taka síðan
ákvörðun um meðferð málsins.
Við spurðum Þóri að lokum
hvort ekki væri hætt við að slík mál
döguðu uppi, þegar konan hefði
þegið bætur og enginn til að reka á
eftir þeim, svaraði hann því til að
það ætti ekki að hafa nein áhrif. Sú
vinnuregla væri viðhöfð hjá rann-
sóknarlögreglunni að 3-4 sinnum á
Málin fara til
Ríkissaksóknara
þótt bætur séu
greiddar
ári væri gerdur eftirstöðvalisti um
mál sem óafgreidd væru og væri
öllum ætlað að skila skriflegri
greinargerð um stöðu mála sem
þeir hafa á sínum borðum. Veitti
þessi skipun mála öllum allmikið
aðhald.
þs
Sjá einnig fréttaskýringu á bls. 5 og
rœðu Helga Seljan í opnu