Þjóðviljinn - 07.06.1984, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐyiLJINN Fimmtudagur 7. júni 1984
MÚBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir.Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, ólafur Gíslason, Oskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
Íþróttafréttaritarí: Víðir Sigurðsson.
^Utlit og hönnun: Haukur Már Haraldsson, Þröstur Haraldsson.
Ljóamyndír: Atli Arason, Einar Karlsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýslngar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Símavarsia: Sigríður Kristjánsdóttir og Aðalbjörg Oskarsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtum.: Brynjólfur Vilhjálmsson
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðanrent hf
i lausasölu kostar blaðið kr. 22 virka daga og kr. 25 um helgar.
Áskriftarverð er kr. 275 á mánuði.
Afstaða
Kristjáns og LÍÚ
Þegar rekstrarvandi útgerðar og fiskvinnslu var á
dagskrá á undanförnum árum var það ófrávíkjanleg
regla að Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ lét mjög
að sér kveða í fjölmiðlum. Hann barðist þá með mikl-i
um krafti fyrir betri rekstrargrundvelli og var stóryrtur íj
garð ráðherra og ríkisstjórna. Ef stöðvun blasti við
glumdu viðvaranir og kröfur Kristjáns Ragnarssonarj
um allt fjölmiðlakerfið. Hann lék þá hlutverk sterka
mannsins sem sagði stjórnvöldum til syndanna.
Þegar flokkseigendafélagið í Sjálfstæðisflokknum
myndaði ríkisstjórn með Framsóknarflokknum og
fóstbróðir Kristjáns úr Vinnuveitendasambandinu
varð formaður Sjálfstæðisflokksins breytti forystumað-i
ur útgerðarinnar algerlega um stíl. Nú varð Kristján
Ragnarsson hinn hljóði og hógværi maður sem sjaldan
eða aldrei hallaði orði í garð stjórnvalda. Flokksholl-
ustan við Sjálfstæðisflokkinn og vinsemdin í garð þess-
arar óskastjórnar Vinnuveitendasambandsins réðu nú
orðum og gerðum formanns LÍÚ.
Þessi flokkspólitíska afstaða hefur komið greinilega
fram síðustu daga þegar erfiðleikar og rekstrarvandi
útgerðarinnar í heilum landshluta eru orðin svo hrika-
leg að samtök útgerðarmanna heima í héraði neyðast til
að taka málin í sínar hendur og lýsa yfir algerri stöðvun
24. júní.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ hefur ekki lagt
Austfirðingum lið í baráttu þeirra við stjórnvöld. Þvert
á móti lýsir hann því yfir í blaðaviðtali í gær að „hann
hefði ekkert sérstakt um þetta mál að segja“ og útgerð-
armönnum væri heimilt að hætta taprekstri fyrirtækj-
anna. Formaðurinn skaut sér svo á bak við þá afsökun
að útgerðarmenn á Austurlandi hefðu ekki sent LÍÚ
nein gögn um málið. Ber þá greinilega nýrra við að LÍÚ
kontórinn sé svo illa að sér um hrikalegan rekstrar-
vanda, sem orsakar stöðvun flotans í heilum lands-
hluta, að vegna þess að engin gögn hafi borist í pósti
missi sjálfur formaðurinn málið.
Forystumenn í atvinnumálum Austfirðinga hafa lýst
því greinilega hvernig hátt á annað þúsund launamenn í
þessum landshluta munu missa atvinnuna vegna að-
gerðarleysis og afstöðu stjórnvalda, bankakerfis og
annarra ábyrgra aðila. Það er hins vegar einnig ljóst að
þögn og afskiptaleysi Kristjáns Ragnarssonar formanns
LÍÚ hefur auðveldað stjórnvöldum að hundsa þennan
mikla vanda sem lengi hefur verið yfirvofandi í málefn-
um útgerðarinnar. Þegar hinn fyrrum skeleggi talsmað-
ur útgerðarinnar þegir, er ekki að undra þótt ráðherrar
séu rólegir.
Það verður fylgst vandlega með því á næstu vikum
hvort Kristján Ragnarsson metur meira hollustu við
flokkseigendaklíkuna í Sjálfstæðisflokknum og vin-
semd í garð ríkisstjórnarinnar en einarða baráttu fyrir
hagsmunum atvinnulífsins um allt land.
Um 40% vilja nú
hörku í haust
í skoðanakönnun DV var borin fram spurning um
afstöðu fólks til kjarabaráttunnar. Höfundar könnun-
arinnar duttu í þá gryfju sem ætíð ber að varast í slíkum
könnunum að hafa orðalag spurningarinnar villandi.
Spurt var hvort „verkalýðshreyfingin ætti að fara í hart í
september“ í stað þess að kanna hvort fólk væri fylgj-
andi tilteknum aðgerðum, t.d. verkföllum, ef ekki næð-
ust kjarabætur með öðrum hætti.
Það er hinsvegar merkilegt að um 40% svara því nú
þegar játandi að fara eigi í hart í haust. Það er mun
hærra hlutfall en flestir hefðu vænst á þessu stigi.
Baráttuvilji launafólks er greinilega orðinn mikill.
klippt
Spegill
Breskir fata-
hönnuðir
hafa
áhyggjur:
Eru
drottningar
ekki al-breskir?
Mýkt og kraftur
Dagblaðið nýja, NT, hefur
tekið upp þá stefnu að flytja les-
endum sínum ýmsar merkar og
nytsamar upplýsingar úr þeim
stóra heimi þar sem fötin verða til
og filmurnar og kóngarnir búa.
Lesendum Þjóðviljans til gamans
skal hér gripið ofan í síður þessar
í NT, sem eru að jafnaði vegleg-
asta efni blaðsins að myndakosti
og einbeittri útlitshönnun.
I gær fáum við góðar fréttir af
konu einni sem er bæði „mjúk-
lega vaxin - en með krafta í
kögglum". Af henni er þetta að
segja:
tyAshley Ferrare heitir þessi
lögulega leikkona, sem fer með
aðalhlutverk í nýjum mynda-
flokki í sjónvarpi í Bandaríkjun-
um, sem hófgöngu sína í maí sl.
Það er ekki aðeins að Ashley
Ferrare sé fallega vaxin, heldur
hefur hún ýmislegt annað sér til
ágœtis, sem kemurfram í mynd-
inni. Hún er nefnilega sérlegur
meistari í ýmsum átaka-
íþróttum, og hún sýnir leikni
sína, þegar hún - í myndinni -
tekur „vondu mennina" í gegn,
en þeir eru mannrœningjar og
hafa rænt henni. Sjálf leikur As-
hley einkadóttur milljónamœr-
ings og glœponarnir œtla að fá
stórfé fyrir hana. “
Samdægurs er önnur frægðar-
kona mætt til leiks og hefur sem
betur fer fengið hlutverk í kvik-
mynd líka og er sú áreiðanlega
ekki síður tímabær en sú sem fyrr
var nefnd: hún segir frá ástarsam-
bandi sem byrjar í heimilistölv-
unni. NT segir:
„Hin margumtalaða Koo Stark
hefur nú fengið ;,alvöru“-
hlutverk í kvikmynd. Aður hafði
hún verið helst þekkt fyrir að
hafa komið fram í „bláum
myndum“ og sem fyrirsœta. En
frœgust varð hún þó sem ástmœr
Andrew’s Bretaprins. “
Jæja. í fyrradag er næstum því
heil opna um tísku þá í fatnaði
sem kennd er við frænda Andrés-
ar Andar. Og þar eru líka „þrjár
myndir affrœgufólki, sem puntar
sig - hvert á sinn hátt“. í þessari
syrpu mætist heilög þrenning:
poppsöngvarinn (Grace Jones),
Dallas (J.R.) og ekta prinsessa.
Eða eins og þar segir með barns-
legri andakt:
„En fína konan með andlits-
skrautið, sem herrarnir standa
upp fyrir og snúast í kringum,
þekkið þið hana? Þetta er Mar-
grét prinsessa í Bretlandi sem
kemur svona skreytt í sam-
kvœmi“.
Hattaraunir
Þetta eru þó allt smámunir í
samanburði við það stórmál sem
NT matreiðir fyrir fróðleiksfúsa
lesendur sína á mánudaginn.
Enda eru þar saman komnir í
einn hnút margir þeir þættir sem
sannfróðlegastir eru nú um
stundir: tíska, hegðun ekta
drottningar og þjóðernisbar-
átta. í þessu dæmi eru breskir
hattasaumarar í þjóðernislegum
hugsjónaslag fyrir því, að
drottning þeirra elskuleg haidi
ekki fram hjá þeim með frönsk-
um eða jafnvel ítölskum kol-
legum. NT segir:
„Fatahönnuðir í Bretlandi hafa
nú stórar áhyggjur af því að
hattar Elísabetar drottningar
eru sagðir vera ekki að fullu
breskir. Samband breskra
klœðskera og fataframleiðenda
tilkynnti, að það hefði skrifað
drottningu bréf eftir að komið
hefði fram á blaðamannafundi
að hinn konunglegi tískuvöru-
sali (aðall. hatta) Frederick
Fox, léti framleiða hatta eftir
sínum fyrirmœlum og teikning-
um erlendis í Frakklandi eða
Ítalíu".
NT leggur svotil alla miðopnu
sína undir þetta ágæta hattamál
og er gleðilegt til þess að hugsa,
að í raun og veru getur ein drottn-
ing fleytt dagblaði óralengi yfir
leiðindatímabil efnahagskreppu
og annars aumingjadóms í
mannfólkinu. Skósaga hennar er
til dæmis prýðilegt viðfangsefni
(og má þá skjóta því vinsamlega
að kollegum, að til er fræg mynd
af fótum drottningar, þar sem
hún hefur smokrað sér úr of
þröngum skóm: skyldi sá skór
vera albreskur?). Og svo mætti
lengi telja. Það er líka gott til þess
að vita, að NT stundar sagnfræði
líka og í hinum sama stílfasta
anda: Um daginn var blaðið að
rannsaka hvort George Washing-
ton fyrsti forseti Bandaríkjanna
hefði haldið framhjá Mörtu sinni,
og var löngu mál til þess komið að
botn fengist í það mál.
-áb.
Fúllyndi í garð
kennara
Morgunblaðið skrifar í gær
leiðara um „kennara og skólann"
og er tilefnið nýafstaðið þing
Kennarasambands íslands.
Leiðarinn viðurkenhir með mikl-
um semingi, að þörf sé á því að
bæta kjör kennara - en hugmynd-
in um aðferðina er heldur betur í
skötulíki og full ástæða til að
draga hana fram:
„Leita verður allra leiða, ekki
síst í skólakerfinu sjálfu og innan
þeirra fjárveitinga sem til þess
renna, til að bœta hlut kennara á
kostnað kerfisins
Með öðrum orðum: það á, að
því er best verður séð, að bæta
kaup og kjör kennara með því að
spara í skólakerfinu. Með því að
laun kennara eru langsamlega
stærsti hlutinn af útgjöldum í því
góða kerfi nú þegar, væri gaman
að vita hvar á að taka úr því pen-
inga til að „bæta hlut kennara".
Á kannski að hætta að skúra gólf í
skólum eða loka fyrir rafmagnið?
Spyr sá sem ekki veit.
Morgunblaðið veit það ekki
heldur. Leiðarinn er reyndar full-
ur af fúllyndi í garð kennara -
þeir eru sagðir „furðu íhalds-
samir“ um framkvæmd skóla-
mála og nú trufla þeir leiðsögn
barna með því að „allt logar í
ófriði vegna kjaramála í
skólum".
Gjafir eru yður gefnar, stendur
þar.
AB