Þjóðviljinn - 07.06.1984, Síða 7
Fimmtudagur 7. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Brautskráðir iðnnemar ásamt skólameistaranum Jóni Böðvarssyni.
Fjölbrautaskóla
Suðurnesja slitið
í áttunda sinn
Brautskráðir
stúdentar og
iðnnemar
Áttunda starfsári og sextándu
önn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
lauk með skólaslitaathöfn í
Grindavíkurkirkju laugardaginn
19. maí. 57 nemendur luku námi
á önninni: 2 flugliðar, 2 tækni-
teiknarar, 13 nemar af tveggja
ára námsbrautum, 17 iðnnemar
og 23 stúdentar. 32 luku námi í
desembermánuði og hafa því alls
brautskráðst 89 skólaárið 1983-
84. Alls hafa 609 loka-
prófsskírteini verið gefin út, þar
af 200 til iðnnema og 210 stúd-
entsprófskírteini.
Athöfnin hófst með því að
Svavar Árnason Iék á kirkjuorg-
elið, en síðan flutti Ingólfur Hall-
dórsson aðstoðarskólameistari
yfirlit um starfsemi í skólanum á
önninni. Þar kom m.a. fram að
nemendur í dagskóla voru 524,
en nemendur í bóklegu námi í
öldungadeild 125. A önninni
voru haldin allmörg og fjölþætt
námskeið á vegum skólans, og
Gunnar Valdimarsson fékk verðlaun Iðnaðarmannafélags Suðurnesja fyrir
bestan árangur í faggreinum iðnnámsins.
stefnt er að því að auka þá starf-
semi verulega.
Jón Böðvarsson, skóla-
meistari, afhenti prófskírteini, en
Helgi Eiríksson kennari afhenti
verðlaun sem að þessu sinni voru
óvenju mörg. Þorvaldur Árnason
af eðlisfræðabraut hlaut verðlaun
fyrir frábæran árangur á stú-
dentsprófi, Gunnar Valdimars-
son hlaut verðlaun Iðnaðar-
mannafélags Suðurnesja fyrir
bestan árangur í faggreinum í
iðnnámi og afhenti Eyþór Þórð-
arson þau.
Edda Rós Karlsdóttir og Una
Steinsdóttir, formaður og ritari
nýkjörinnar stjórnar nemendaf-
élagsins, léku á hnéfiðlu og slag-
hörpu Ave María eftir Bach-
Gounod. Sigrún Oddsdóttir flutti
ávarp af hálfu kennara, en Ágúst
Ásgeirsson af hálfu brautskrán-
ingarhópsins. Baldur Sigurðsson
skýrði frá stofnun tækjasjóðs sem
kennarar hafa stofnsett og af-
henti Halldóri Guðmundssyni,
varaformanni skólanefndar,
sjóðinn og stofnskrá hans.
Loks ávarpaði skólameistari
brautskráða nemendur og kvaddi
þá í nafni skólans.
Ráðstefna á fimmtudag:
Tölvufræðsla
Næstkomandi flmmtudag, 7. júní
gengst Skýrslutæknifélag íslands fyrir
ráðstefnu um Tölvufræðslu í skólum.
Ráðstefnan hefst kl. 13.30 á Hótei Loft-
leiðum, Kristalssal og henni lýkur kl.
17.
Ráðstefnunni er ætlað að bregða ljósi
á þróun tölvufræðslu á hinum ýmsu
skólastigum og spá inn í framtíðina í
þeim efnum.
Á dagskrá eru m.a. eftirtalin erindi:
Dr. Oddur Benediktsson: „Kennsla í
tölvunarfræði í Verkfræði- og raunvís-
indadeild HÍ“. Dr. Jón Þór Þórhalls-
son: „Rafeindareiknisvið, - nýtt kjör-
svið í Viðskiptadeild HÍ“., Anna Krist-
jánsdóttir, lektor: „Þáttur tölvufræðslu
í menntun grunnskólakennara“. Hall-
dór Arnórsson fulltrúi: „Tölvu-
menntun starfsmenntakennara og
tölvufræðsla í framhaldsskólum“. Bald-
ur Sveinsson, kennari: „Tölvufræðsla í
Verslunarskóla Islands“.Yngvi Péturs-
son, kennari: „Tölvufræði í Mennta-
skóianum í Reykjavík". Ráð-
stefnustjóri er dr. Jóhann P. Malmqvist
tölvufræðingur. Þátttakendur eru
beðnir að tilkynna sig á skrifstofu
Skýrslutæknifélagsins í síma 82500.
l
Þjórsárdalur-Dalalíf ’84.
Ferðir um Hvítasunnuhelgina í Þjórárdal.
Föstudag 8. júní.
Frá Reykjavík (BSÍ) kl. 16.00.
Frá Selfossi kl. 17.00.
Frá Reykjavík kl. 18.30.
Frá Selfossi kl. 19.30.
Frá Reykjavík kl. 20.30.
Frá Selfossi kl. 21.30.
Laugardag 9. júnj.
Frá Reykjavík (BSÍ) kl. 10.30.
Frá Selfossi kl. 11.30.
Frá Reykjavík kl. 14.00.
Frá Selfossi kl. 15.00.
Frá Reykjavík kl. 21.00.
Frá Selfossi kl. 22.00.
Sunnudag 10. júní.
Ferö úr Þjórsárdal kl. 03.15 aö loknum dansleik.
Ferð úr Þjórsárdal kl. 17.00.
Frá Reykjavík kl. 21.00.
Frá Selfossi kl. 22.00.
Mánudag 11. júní.
Ferö úr Þjórsárdal kl. 03.15 aö loknum dansleik.
Ferðir úr Þjórsárdal kl. 10.30.
Síðasta ferð kl. 17.00.
Frá Reykjavík kl. 21.00.
Frá Selfossi kl. 22.00.
Upplýsingar gefur BSÍ sími 22300.
Að reka mann - og annan?
Mannréttindi eru hér á landi
tryggari en í flestum löndum
heims. Þar með er ekki sagt, að
allt sé í himnalagi hjá okkur - t.d.
á launafólk vafalítið oft undir
högg að sækja á vinnustöðum án
þess að slíkt komist í hámæli.
Skammt er síðan samningsréttur
verkalýðsfélaga var afnuminn
með lögum og laun stórlega
skert. Fólk virðist almennt sætta
sig við þessar aðgerðir, ekki sfst
vegna þeirrar trúar að ella sé at-
vinnuöryggið í hættu.
Rétti launafólks til vinnu
stendur ekki einungis ógn af vofu
atvinnuleysis. Brottrekstur úr
starfi er engu síður ömurlegt hlut-
skipti en atvinnuleysi, einkum ef
einn er rekinn en annar kemur í
staðinn. Slíkir atburðir hljóta
ætíð að vera mikið áfall fyrir
vinnandi fólk í okkar samfélagi,
þar sem vinnusemi og dugnaður
eru talin til hinna æðstu dyggða.
Brottrekstur
vagnstjóra
Fyrir nokkru sagði forstjóri
SVR vagnstjóra upp störfum, en
sá hafði 8 ára starfsaldur hjá fyrir-
tækinu að baki. Stjórn SVR hefur
lýst yfir stuðningi sínum - ekki
við vagnstjórann, heldur
forstjórann. Vagnstjórar hafa
hins vegar mótmælt uppsögninni
og krafist endurráðningar
mannsins.
Fyrir kjósendur í borginni er
sérstök ástæða til að gefa þessu
máli gaum. Strætisvagnar
Reykjavíkureru borgarfyrirtæki,
það er rekið og því stjórnað í um-
boði okkar, borgara Reykjavík-
ur.
Við getum varla gert þá kröfu á
hendur borgaryfirvlda eða ann-
arra atvinnurekenda, að aldrei sé
hægt að reka fólk úr vinnu.
Starfsmaður getur reynst vanhæf-
ur eða jafnvel gert sig sekan um
vítavert gáleysi í starfi, sem rétt-
læti uppsögn. Opinberir starfs-
menn eiga ekki að njóta neinna
forréttinda í þessu efni.
Margt er á huldu um brott-
rekstur þessa tiltekna vagnstjóra,
en engu að síður er óhætt að full-
yrða að á honum var brotið:
Hann fékk enga viðvörun, þar
sem bent var á vanrækslu og að
uppsögn væri yfirvofandi nema
úr yrði bætt. Einnig virðist ljóst,
að starfsmönnum SVR hafa ekki
verið settar starfsreglur, þannig
að vitað sé hvaða brot leiði til
“Vagnstjórinn er
rekinn. Síðan á
að athuga hvort
ástœður brott-
reksturs.geti ekki
átt við umfleiri.
Efsvo reynist
vera á, að mati
borgarfulltrúa
Alþýðubanda-
lagsins, að taka
mál hins brott-
rekna upp að
nyjui
Svanur
Kristjánsson
skrifar
uppsagnar og að allir sitji þar við
sama borð.
Brottvikning vagnstjórans er
því tvímælalaust óréttmæt; hún
gengur þvert á almennar reglur
um sanngirni og siðlega hegðun.
Ákvörðunin virðist einnig hafa
verið tekin í fljótræði. Þannig
hefur stjóm SVR engar upplýs-
ingar um meðferð annarra mála
af svipuðu tagi né hafa verið sett-
ar um þau almennar reglur. Engu
að síður lýsir stjórn SVR yfir
stuðningi við forstjórann og full-
trúi Alþýðubandalagsins í stjórn-
inni segir skýringar hans í málinu
vera „fullnægjandi" (sbr. NT 25.
maí).
Mottóið virðist vera: „Fyrst að
reka - síðan að hugsa“. Vagn-
stjórinn er rekinn. Síðan á að at-
huga- hvort ástæður brottreksturs
geti ekki átt við um fleiri. Ef svo
reynist vera á, að mati fulltrúa
Alþýðubandalagsins, að taka mál
hins brottrekna upp að nýju!
(Sbr. Þjóðviljann 31. maí).
Trúnaður við hvern?
Ég aðhyllist ekki þá reglu, að
kjömum fulltrúum beri skylda til
að skýra frá öllum upplýsingum,
sem þeim berast vegna starfa
þeirra. Mörg mál eru viðkvæm og
fólk á rétt á að trúnaður ríki um
einkamál.
Slíkur trúnaður gildir ekki í
þessu máli. Vagnstjórinn telur sig
rangindum beittan og vill að allar
upplýsingar séu lagðar fram.
Þögnin er því ekki til verndar
honum. (Raunar hafa stjórnar-
menn í SVR ótvírætt gefið í skyn
opinberlega meintar ávirðingar
vagnstjórans, sbr. Þjóðviljann
31. maí).
Ég skal að lokum játa, að
stundum finnst mér sem borgar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins
meti meir hollustu við borgaryfir-
völd heldur en stöðuga og kraft-
mikla upplýsingamiðlun um mál,
sem snerta okkur öll. Ég tel t.d.
að slík afstaða hafi einkennt með-
ferð ísfilm-málsins. Hið sama er
uppi á teningnum í því máli, sem
hér hefur verið rakið að nokkru.
Samstarfsmenn vagnstjórans og
fulltrúar Kvennaframboðsins
hafa ein staðið vörð um grund-
vallaratriði. Ef hægt er að reka
einn manna á þennan hátt, af
hverju þá ekki annan - og annan?
Svanur Kristjánsson er settur prófess-
or við félagsvísindadeild Háskóla Is-
lands og skipar þar sæti deildarfor-
seta.