Þjóðviljinn - 07.06.1984, Qupperneq 10
10 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN, Fimmtudagur 7. júní 1984
Safarí í kvöld:
Imperiet og
hæfileikakeppni
Sænska hljómsveitin Imperiet
skemmtir í Safarí í kvöld að undangeng-
inni hæfileikakeppni sem hefst stundvís-
lega klukkan 22.00.
f hæfileikakeppninni taka þátt 10
manns og flytur hver um sig eitt frum-
samið lag með texta við undirleik gítar-
leikaranna Björgvins Gíslasonar og
Sigurgeirs Sigmundssonar og bassaleik-
ara og trommara hljómsveitarinnar
Kikk. 10 manna dómnefnd sker úr um
afurðir keppenda. Að keppni lokinni
mun Imperiet bregða á leik og ætti eng-
inn að sofna af völdum þessara fjörugu
sveina, ef dæma má af nýafstöðnu Nor-
rokki. Meðfylgjandi mynd af gítarleik-
ara og söngvara Imperiet var einmitt
tekin í þeim fagnaði. LjósmyndARI
NT.
A.
IÐNSKÓLINN
ÍSAFIRÐI
Áætluð starfsemi
veturinn 1984 - 1985
1. Nám fyrir samninasbundna iðnnema.
a) 1. áfangi á naustönn.
b) 3. áfangi á haustönn.
c) 2. áfangi á vorönn.
2. Nám í grunndeild rafiðna.
a) 1. áfangi á vorönn.
b) 2. áfangi á haustönn.
3. Nám í tækniteiknun á haustönn.
4. Vélskóli.
a) 1. áfangi 1. stig á haustönn.
b) 1. áfangi 2. stig á vorönn.
c) lokaáfangi 1. stig á haustönn.
5. Stýrimannaskóli.
a) 1. áfangi 1. stig á haustönn.
b) 2. áfangi 1. stig á vorönn.
6. Meistaraskóli fyrir byggingarmenn á vorönn.
7. Nám í frumgreinadeild Tækniskóla islands, á haustönn.
8. Fornám fyrir nemendur, sem ekki hafa framhaldseinkunn frá
grunnskóla, á vorönn.
Innritun fer fram virka daga milli kl. 10:00 og 12:00.
Upplýsingar eru veittar í síma 94-4215 á sama tíma. Umsóknir skulu
hafa borist fyrir 10. júní 1984.
Skólastjóri
A
FRA
SKÓLASKRIF-
' STOFU
KÓPAVOGS
Foreldrar
Innritun skólabarna í grunnskóla Kópavogs
fyrir næsta skólaár hefur fariö fram. Nem-
endur sem ekki hafa verið skráöir fyrir 1. júlí
nk. geta átt þaö á hættu aö fá ekki skólavist í
sínum hverfisskóla næsta vetur.
Skólafulltrúi.
Útboö
Tilboð óskast í gatnagerð, holræsa og vatnslagna í nýtt íbúðahverfi norðan
Gratarvogs, 3. áfangi, ásamt lögn dreifikerfis hitaveitu 4. áfanga.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 5000
kr. skilatryggingu.
Tilboðin veroa opnuö á sama stað miövikudaginn 20. júní n.k. kl. 11 f.h.
Hulda Björnsdóttir, Guðlaug Þórhallsdóttir og Þóra Guðmundsdóttir taka hér við verðlaunum fyrir vel unnin
félagsstörf. Ingólfur A. Þorkelsson skólameistarí Menntaskólans í Kópavogi afhenti bókagjöf í tllefni af því að í
fyrra séu þær um forystu nemendafélags MK með glæsibrag.
Útskrift stúdenta í Menntaskólanum í Kópavogi
Ljúfar í samvinnu
en fastar fyrir
Þrjár ungar konur unnu til verðlauna í Menntaskólanum í Kópavogi fyrir vel unnin forystustörf í
félagsmálum. Afhendingin fór fram við útskrift skólans á föstudaginn. 65 stúdentar brautskráðust, 29
stúlkur og 36 piltar.
Við verðlaunaafhendinguna fyrir forystu í nemendafélaginu sagði Ingólfur A. Þorkelsson skólameistari
að mjög gott hafi verið að vinna með hinum ungu konum. „Þær voru ljúfar í samvinnu en fastar fyrir. Ekki
var laust við að skólameistari hafi stundum Iátið undan og hver láir honum það gegn þremur slíkum
þokkafullum valkyrjum?"
Fjölbrautaskólinn Akranesi
26 STUDENTAR
600 manns í framhaldsnámi
Stúdentar é Skaganum með melstara sínum.
26 nemendur af 7 námsbrautum luku
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum á
Akranesi, en skólanum var slitið 20.
mai.
Alls stunduðu um 500 ncmendur
framhaidsnóm við skólann sl. vetur og
100 nemendur að auki í öldungadeild og
meistaradeild byggingamanna. Þá voru
88 nemendur í grunnskóladeild 9.
bekkjar.
Engin samræmd próf
Sú tilraun var gerð í ntunda bekk í
vetur að í stað samræmdra prófa í febr-
úar tóku nemendur próf í desember í
dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði.
Hlutu að jafnaði 30 nemendur í hverri
grein rétt til þess að hefja þar nám á
framhaldsskólastigi eftir áramót.
Slæm fjárhagsstaða
Fjárhagsstaða skólans er mjög slæm
og blasir við stórfelldur niðurskurður á
starfsemi hans verði fjárveitingar ekki
leiðréttar til samræmis við þá starfsemi
sem honum er ætlað að halda uppi, seg-
ir í frétt frá skólanum.
55 nemendur brautskráðust frá skól-
anum, þaraf 8 sem luku meistaranámi í
byggingagreinum. Bestum árangri á
stúdentsprófi náði Áslaug Ragnars-
dóttir af félagsfræðibraut.
- úg