Þjóðviljinn - 07.06.1984, Síða 11
Fimmtudagur 7. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Þróttur-Víkingur
Sanngjarnt
hjá Þrótti
Þróttur sigraði Víking 1-0 í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikurinn var háður í
blíðskaparveðri á aðalleikvang-
inum í Laugardal. Pétur Arn-
þórsson tryggði Þróttti sann-
gjarnan sigur er 16 mínútur voru
liðnar af seinni hálfleiknum.
Fyrri hálfleikur fór rólega af
stað, Þróttarar voru mun meira
með boltann en sköpuðu sér fá
umtalsverð færi. Víkingar voru
hinsvegar oft stórhættulegir í
sóknum sínum en markheppnir
voru framherjar þeirra ekki.
Heimir Karlsson fékk t.a.m. þrjú
dauðafæri en allt kom fyrir ekki.
Á síðustu sekúndum fyrri hálf-
leiks fengu Þróttarar sitt fysta
hættulega færi í leiknum en Ög-
mundur Kristinsson varði skot
Páls Ólafssonar.
Á 16. mínútu seinni hálfleiks
skorar Pétur Arnþórsson fyrir
Þrótt. Hann fékk þá boltann við
markteig Víkingsmarksins eftir
sendingu frá Júlíusi Júlíussyni, og
afgreiddi hann í vinstra mark-
hornið, stöngin inn. Eftir markið
opnaðist leikurinn nokkuð og lið-
in fengu bæði aragrúa marktæki-
færa. Á 24. mín. á Páll Ólafsson
skot rétt framhjá úr aukaspyrnu,
tveimur mínútum seinna bjargar
Kristinn Helgason skoti Péturs
Arnþórssonar á línu, boltinn
barst af Kristni til Daða Harðar-
sonar sem skaut rétt framhjá.
Síðan komst Páll í opið skallafæri
á 28. mínútu en skalli hans fór
rétt framhjá. Víkingar fengu að-
eins eitt umtalsvert færi í seinni
háfleiknum. Heimir Karlsson átti
þá skot í hliðarnetið úr þröngri
stöðu. Undir lok leiksins fékk
Páll Ólafsson „þrefalt“ tækifæri
til að skora en Ögmundur sá til
þess að þau færi nýttust ekki.
Pétur Arnþórsson og Páll Ól-
afsson voru bestu menn Þróttar
en einnig áttu þeir Kristján Jóns-
son og Ársæll Kristjánsson ágæt-
an leik.
Hjá Víking var Ámundi Sig-
mundsson bestur þann tíma er
hann var inná en honum var skipt
útaf fljótlega í seinni hálfleik. Þá
stóðu þeir Magnús Jónsson og
Kristinn Helgason fyrir sínu.
Víkingsliðið var nær óþekkjan-
legt frá því í leiknum við Akranes
um helgina, miðjan í þessum leik
var alls ekki nógu sterk og Hæð-
argarðsliðið átti af þeim sökum í
vök að verjast.
Friðjón Edvarðsson dæmdi
þokkalega. -Frosti
Staðan
í 1. deildinni i knattspyrnu eftir
leikina í gærkvöldi:
ÍA..................5 3 1 1 8-4 10
Þróttur.............5 2 2 1 6-3 8
(BK.................4 2 2 0 4-2 8
KR..................4 1 3 0 5-4 6
Vikingur............5 13 17-7 6
KA..................4 12 17-7 5
Breiðablik..........4 12 12-2 5
Fram................4 112 5-6 4
Pór A...............4 1 0 3 2-8 3
Valur.............„.5 0 2 3 1-4 2
Markahæstir:
Páll Ólafsson, Þrótti...........4
Hörftur Jóhannesson, ÍA..........3
Hörður Jóhannesson skallar knött-
inn í mark Valsmanna í leiknum á
Akranesi í gærkvöldi og tryggir ÍA
stigin þrjú. Mynd: Loftur.
Sigri stolið
ÍA-Valur 1-0
„Við áttum að vinna“, sagði
vonsvikinn Valsþjálfari, Ian
Ross, eftir 1-0 ósigur hans manna
gegn íslands- og bikarmeisturum
IA í knattspyrnu á Akranesi í
gærkvöldi. Orð að sönnu, Vals-
menn voru mun betri aðilinn en
fjórum mínútum fyrir leikslok
náði heimaliðið að skora eina
mark leiksins, fímm mínútum
eftir að Valur Valsson, besti mað-
ur vallarins, hafði þrumað í stöng
Skagamarksins eftir að hafa feng-
ið góða sendingu frá mótherja!
f Sigurmarkið gerði Hörður Jó-
hannesson og minnti það á mark
hans gegn ÍBV í úrslitum bikar-
keppninnar í fyrra. Árni Sveins-
son tók hornspyrnu, þrumaði í
höfuðhæð alveg innað marki,
Stefán Arnarson markvörur Vals
náði ekki til knattarins og við
fjærstöngina var Hörður mættur
og skallaði í netið.
Valsmenn áttu gersamlega
Jafntefli
í Arbænum
Haukastúlkunum í Hafnarfirði
tókst ekki að skora mark í 2.
deildarkeppni kvenna í knatt-
spyrnu í fyrrasumar, en í ár er
breyting orðin á. Þær náðu óvænt
1-1 jafntefli gegn Fylki í Árbænum
þegar fyrsta umferð deildarinnar
fór fram si. fimmtudagskvöld. He-
lena Önnudóttir, sem áður lék með
Val, skoraði mark Hauka en Ág-
ústa Þorkelsdóttir svaraði fyrir
Fylki.
Úrslit 1. umferðar urðu þessi:
A-riðill:
Fylkir-Haukar...............1-1
Fram-Víftir.................0-1
Grindavík-FH................1-1
B-riðill:
Hveragerði-fR...............3-1
Selfoss-Keflavik............1-2
Stjarnan-Aftureldlng........0-2
Önnur umferð verður leikin í
kvöld og þá mætast: Víðir-Fylkir,
Grindavík-Fram, FH-Haukar,
Hveragerði-Selfoss, ÍR-Aftureld-
ing og Keflavík-Stjarnan.
________________________ -BV/VS
Þrír í 1.
deild kvenna
Önnur umferðin í A-riðli 1.
dcildar kvenna fer fram í kvöld.
Breiðablik fær ÍA í heimsókn í
Kópavoginn, Valur tekur á móti
nýliðum ísafjarðar á Valsvellinum
og Víkingur mætir KR á Víkings-
velli. Allir leikirnir hefjast kl. 20.
fýrsta hálftímann og megnið af
leiknum í heild. Helstu færin
voru óvænt skot Hilmars Harðar-
sonar á 17. mínútu sem Bjami
Sigurðsson varði vel, rétt á undan
hafði varnarmaður ÍA reyndar
bjargað á línu. Örn Guðmunds-
son og Hilmar Harðar komust í
dauðafæri með hálfrar mínútu
millibili undir lok fyrri hálfleiks
en skutu/skölluðu framhjá, og í
seinni hálfleik varði Bjarni
bombuskot frá Guðmundi Þor-
bjarnarsyni og Val.
Færi ÍÁ voru fá hættuleg. Helst
himinhá fyrirgjöf Jóns Ákels-
sonar á 40. mínútu sem vindurinn
hreif hættulega nærri en Stefán
markvörður náði að slá boltann
frá og mikil rispa Karls Þórðar-
sonar á 77. mínútu, hann lék á
þrjá varnarmenn og gaf frábæra
firnafasta sendingu inná mark-
teig Vals en þar sigldi boltinn
framhjá þremur dauðafríum
Skagamönnum.
Bjarni var bestur Skagamanna, átti
góðar senur í markinu. Karl Þórðar-
son, sem þarna lék sinn fyrsta leik
með ÍA eftir fimm ár í atvinnu-
mennsku, frískaði nokkuð uppá liðið.
Hann átti ágæta spretti en varnar-
menn Vals höfðu á honum góðar gæt-
ur og gáfu honum aldrei frið. Sigurð-
ur Lárusson, Sigurður Halldórsson
og Guðbjörn Tryggvason léku allir
ágætlega. I heild voru Skagamenn
daufir og heppnir. Miðjan var léleg,
þar sakna menn Sigga Jóns og enginn
afgerandi stjórnandi er til staðar.
Miðjan styður illa við sóknina og
sambandið dýrmæta þar á milli rofnar
mjög. En samt er ÍA í efsta sæti 1.
deildar.
Valur Valsson var langbesti maður
vallarins og lék sér svo óheyrilega að
bakvörðum fA að þeir stóðu nánast
berfættir á eftir! Antony Karl Greg-
ory, sem þarna lék sinn fyrsta 1.
deildarleik, Jóhann Þorvarðarson og
Þorgrímur Þráinsson komust allir vel
frá leiknum. Mikil barátta og grimmd
ríkti í uppstokkuðu Valsliðinu. En
samt er Valur á botninum.
Magnús Theodórsson sýndi ágætis
dómgæslu. Áhorfendur voru 1356,
500 fleiri en vanalega og endurkoma
Kalla Þórðar ásamt rjómaveðri átti
stærstan þátt í því.
-MING/Akranesi
Austri vann
Austri, sem leikur í 3. deild, vann
sannfærandi sigur á 2. deildarliði
Einherja frá VopnaTirði, 2-1, á
Eskifirði í gærkvöldi. Leikurinn var
í 2. umferð bikarkeppni KSÍ og í 3.
umferð sækjaAustramenn erkióvin-
ina í Þrótti Neskaupstað heim. Guð-
mundur Árnason og Sófus Há-
konarson komu Austra í 2-0 en Gísli
Davíðsson náði að laga stöðuna
fyrir Einherja. - VS.
Hafþór
með
Frömurum
gegn Þór
Hafþór Sveinjónsson, bakvörð-
urinn eitilharði úr 21 árs landslið-
inu, leikur með Framliðinu í fyrsta
sinn á þessu ári er það mætir Þórs-
urum í 1. deildinni í knattspyrnu í
kvöld. Leikurinn fer fram á
Laugardalsvelli og hefst kl. 20.
Hafþór lék í vetur með vestur-
þýska áhugamannaliðinu Pader-
born og er rétt orðinn löglegur með
Fram að nýju.
Leikurinn í kvöld skiptir bæði lið
afar miklu máli, það lið sem tapar
honum situr eftir í fallsæti í
deildinni. Framarar hafa fjögur
stig úr fjórum fyrstu umferðunum
og eru í 8. sæti en Þórsarar eru
næstir fyrir neðan með 3 stig og
hafa þeir ekki skorað mark síðan í
fyrsta leik, eða í samtals um 330
mínútur.
-VS
Tryggvi
með 4!
Tryggvi Gunnarsson skoraði 4
mörk þegar ÍR sigraði Gróttu 6-2 á
Seltjarnarnesi í 4. deildinni í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Hann hefur þá
skorað 9 mark í fyrstu þremur
leikjunum f sumar og markatala ÍR í
þeim er 18-3. Birgir Biomsterberg
og Gústaf Björnsson skoruðu hin
mörk ÍR, en Hjálmar Sigurðsson og
Sigurður Benediktsson skoruðu
fyrir Gróttuna.
Vestur-Þjóð verjar
koma í sumar!
íslandsmet
Sigurðar T.
Sigurður T. Sigurðsson setti
glæsilegt íslandsmet í stangar-
stökki á frjálsíþróttamóti í V-
Þýskalandi í síðustu viku. Hann
stökk 5,31 m og bætti eigið met um
6 sentimetra. Sigurð vantar fjóra
sm til að ná lágmarki Alþjóða Ól-
ympíunefndarinnar fyrir leikana í
Los Angeles og 14 sm til að ná við-
miðunartölu íslensku nefndarinn-
ar.
Vestur-þýska landsliðið í hand-
knattleik kemur hingað til lands i
tvo landsleiki í sumar, 9. og 10. júlí.
Þetta verða einu leikirnir sem ís-
lenska landsliðið fær hér heima en
hins vegar eru miklar líkur á að það
fari í „turneringu“ í V.Þýskalandi
og í æfingabúðir til Hollands og
Spánar. Þá hafa Bandaríkjamenn
boðið landsliðinu til æfingaleikja
áður en Ólympíuleikarnir hefjast í
Los Angeles í ágústbyrjun.
Á leiknum sjálfum þarf íslenska
liðiö fyrst að leika gegn Rúmenum
og síðan gegn Júgóslövum. Þá gegn
Japan, síðan Alsír ogloks við Sviss-
lendinga. Að lokum fer eftir loka-
stöðu liðsins í þessum riðli um
hvaða endanlegt sæti það leikur og
við hverja.
-VS
Tíu mörk á
Fellavelli
Víkingur frá Ólafsvík vann
Leikni Reykjavík 9-1 á Fellavellin-
um í Breiðholti í fyrrakvöld er fé-
lögin léku Jþar í 2. umferð bikar-
keppni KSI. Þessum úrslitum náð-
um við ekki í blaðið f gær. Pétur
Finnsson 3, Viðar Gylfason 2, Guð-
mundur Krisjánsson, Jónas Kri-
stófersson og Gunnar Orn Gunnars-
son skoruðu mörk Víkinga auk
varnarmanns Leiknis. Þorvaldur
Guðmundsson gerði þó glæsilegasta
mark leiksins er hann jafnaði fyrír
Leikni, 1-1. Víkingar fá FH í heim-
sókn í 3. umferð og þá verður mikið
um dýrðir því nokkrir leikmanna
FH hafa leikið með Víkingi og
nokkrir Víkingarnir hafa veríð um
lengrí eða skemmrí tíma með FH.
-VS