Þjóðviljinn - 13.07.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Húsnæðiskreppa unga fólksins
í viðtali við Þjóðviljann í gær greinir Stefán
Ingólfsson hjá Fasteignamati ríkisins frá þeirri
hrikalegu húsnæðiskreppu sem blasir við
ungu fólki á íslandi. Þegar stærstu árgangar
íslandssögunnar eru að koma inn á húsnæð-
ismarkaðinn eru lánakjör og kaupskilmálar
orðin svo óhagstæð að hæpið er að nokkur
venjulegur launamaður geti ráðið við dæmið.
Á sama tíma er þrengt gífurlega að þróunar-
möguleikum hins félagslega húsnæðiskerfis
og stjórnvöld svíkja fyrirheit sem gefin voru
byggingarsamvinnufélögum ungs fólks.
Stefán Ingólfsson lýsir því að þrátt fyrir
minnkandi verðbólgu eru húsnæðiskjörin verri
en nokkru sinni fyrr. Þegar verðbólgan var
síðast á sama stigi og hún er nú var útborgun-
arhlutfallið 50% og eftirstöðvar voru lánaðar til
10 ára með 8% vöxtum. Á þessu ári er ástand-
ið hins vegar þannig að útborgunarhlutfallið er
75% og eftirstöðvar eru einungis lánaðar til 4
ára og vextir rúmlega tvöfalt hærri en áður.
Hin hrikalega háa útborgun á íslandi er eins-
dæmi sé litið til þess sem gerist í nágranna-
löndum okkar. í Danmörku myndi sama út-
borgun og hér er krafist vegna tveggja her-
bergja íbúðar duga fyrir útborgun í þrjú einbýl-
ishús. Ungt fólk sem lýkur námi á Norður-
löndum getur þar keypt íbúð í góðu meðallagi.
Hér á landi á hátekjufólk erfitt með að kaupa
íbúð af minnstu gerð ef það hefur ekki átt
húsnæði áður.
Auk þessara nánast óyfirstíganlegu útborg-
unarskilmála verður unga fólkið á Islandi að
greiða hæstu raunverulegu vexti sem verið
hafa í landinu í hálfa öld eða meir. Hin aukna
vaxtabyrði er ekki létt með lengingu lánstíma.
öll loforð stjórnarflokkanna beggja í síðustu
kosningum um stórfellda lengingu lánstíma og
aukningu á lánshlutfalli hafa verið svikin.
í viðtalinu við Stefán Ingólfsson kemur einn-
ig fram að veðhæfni eigna er orðin mikið
vandamál og gamlar og úreltar reglur koma
mjög illa við unga fólkið. Einnig skortir mikið á
að stjórnvöld móti raunhæfa stefnu varðandi
stærðarþróun íbúðarhúsnæðis og nýtingu á
eldra húsnæði.
Þessar upplýsingar sýna að húsnæðisvandi
ungu kynslóðarinnar á íslandi hefur á undan-
förnum misserum orðið verri en npkkru sinni
fyrr. Þróunin stefnir öll aftur á bak. í stað þess
að halda áfram á braut raunhæfra lausna hef-
ur núverandi félagsmálaráðherra látið lof-
orðaflauminn duga. Unga fólkið fær hins vegar
ekki húsnæði út á svikin loforð. Það þarf fjár-
magn, samræmda stefnu og framsýnar
ákvarðanir.
Það er svo eftir öðru í stjórn landsins að
fasteignasalarnir skuli nú á einu ári taka til sín
um 100 miljónir króna í þóknun fyrir að sinna
pappírsvinnu vegna húsnæðiskaupa almenn-
ings. Og svo komi Morgunblaðið og hirði 30
miljónir af þessari upphæð fyrir fasteigna-
auglýsingar. Slíkar tölur sýna að húsnæðis-
vandi unga fólksins er mikil gróðauppspretta
fyrir ákveðna aðila í þessu þjóðfélagi. Á einum
áratug gætu 200 fjölskyldur eignast húsnæði
fyrir þann gróða sem Morgunblaðið fær fyrir
fasteignaauglýsingar. Þúsundir gætu leyst
húsnæðisvanda sinn ef öllum milliliðakostnaði
fasteignasalakerfisins væri varið til að fjár-
magna stór skref í húsnæðismálum.
Markaðskreddumennirnir standa hins veg-
ar vörð um þetta sölukerfi og gróðalind Morg-
unblaðsins. Á meðan bíður unga fólkið eftir
húsnæði.
KLIPPT 0G SK0RIÐ
Kjartan vonar
„Að því er varðar viðhorf til
svonefndrar gjaldtöku fyrir dvöl
varnarliðsins hér, þá er stuðning-
urinn við það sjónarmið meiri en
ég hafði vænst“, sagði Kjartan
Jóhannsson formaður Alþýðu-i
flokksins í viðtali við blaðið sitt í
vikunni. Engu er líkara en hann
hafi beðið hæstvirta kjósendur
heitt og innilega um að fylgja sér
að málum í gjaldtökumálinu.
Fyrirsögn viðtalsins um skoðan-
akönnunina er „I samræmi við
skoðanir Alþýðuflokksins“. Ekki
er þó ljóst hvort um stefnu-
breytingu er að ræða hjá Alþýð-
uflokknum eða einfaldlega
klaufaskap.
/ víking vestur
Alþýðublaðið lét mikinn með
ferðalag Karvels Pálmasonar
vestur á firði á dögunum. Karveh
fór með formann flokksins,
Kjartan Jóhannsson til að sýnal
Vestfirðingum. Fundir voru aug-
lýstir eins og um meiriháttar tí-
volí væri að ræða. til að mynda á
Patreksfirði og Isafirði. Heyrst
hefur að Patreksfjarðarkratar
hafi gert út fimm manna sendi-
nefnd til að hitta þá Karvei og
Kjartan á fundinum á Patró, en
ísafjarðarfundurinn mun hafa
fallið niður. Kjartan bar sig þó
mannalega í viðtali við Alþýðu-
blaðið eftir víkinginn vestur - og
kvaðst hafa farið á marga vinn-
ustaðafundi; hitt þrjú hundruð
manns að máli.
/ víking austur
Nýjustu tíðindi úr herbúðum
Alþýðuflokksins herma, að nú
ætli þeir Karl Steinar Guðnason
og Kjartan Jóhannsson að leggja
Austfirði undir sig - og Alþýðu-
blaðið auglýsir af kappi fundi
þeirra þingmanna Reykjanes-
kjördæmis eystra. Gárungarnir í
Alþýðuflokknum telja að þessi
ferð Reykjanesþingmannanna sé
meiri háttar pólitískur viðburður.
Með ferðalaginu sé verið að gefa
til kynna eftirfarandi: 1) Að rit-
stjóri Alþýðublaðsins Guðmund-
ur Árni Stefánsson verði ekki aft-
ur í framboði á Austfjörðum. 2)
Að Karl Steinar eða Kjartan
verði í framboði eystra við næstu
alþingiskosningar. 3) Að efnt
verði til skoðanakönnunar á
Austfjörðum um það hvor eigi að
fara þangað í framboð. 4) Að
Guðmundur Árni fái sæti þess
sem fer austur á framboðslista
krata á Reykjanesi.
Engin átök í haust?
Karvel Pálmason ritar grein í
DV í gær: „Bjarga verkföll ríkis-
stjórninni frá eigin snöru?“ Kar-
vel segir að stjómarstefnan sé að
dæma ríkisstjórnina sjálfa til
dauða ,4n þess að aðrir þurfl að
koma þar við sögu“.
Síðan segir Karvel: „Spurning-
in er þvi sú, t.d. fyrir verkalýðs-
hreyfinguna, hvort hún telur
æskilegt og eðlilegt að halda
þannig á málum nú í haust, með
átökum á vinnumarkaðinum, að
verða við óskum ríkisstjórnar-
innar og létta stjórnarstefnunni
dauðastríðið og losa hana úr eigin
snöru?“ Karvel Pálmason er
þingmaður fyrir Alþýðuflokkinn,
formaður verkalýðsfélagsins í
Bolungarvík og miðstjórnarmað-
ur í ASÍ.
í þeirri frægu Varðarræðu Þor-
steins Pálssonar sem mjög hetur
verið til umfjöllunar í fjölmiðlum
vakti ýmislegt athygli, sem for-
maðurinn sagði ekki. Þannig var
ekki orð að finna um breytingar á
ríkisstjórninni, þó svo bæði hann
og Friðrik varaformaður Sophus-
son hefðu áður gefið til kynna að
með endurskoðun stjórnarsátt-
málans ætti að verða einhver end-
urnýjun á stjórninni. Væntanlega
er þögn Þorsteins um þetta atriði
vísbending um status quo innan
ríkisstjómarinnar í haust. Þeir
Þorsteinn og Friðrik fá því að
dúsa á þingbekkjum með hinum
„almenna þingmanni" einsog þar
stendur, meðan Geir og minister
Mathiesen ráða ráðum sínum við
erlenda tignarmenn og baldna
Framsóknarmenn.
Fallandi gengi
í flokknum
Varðarræða Þorsteins Páls-
sonar hefur mælst misjafnlega
fyrir í Sjálfstæðisflokknum.
Þannig skammaði Björn Þór-
hallsson varaforseti ASÍ Þorstein
eins og smástrák í fjölmiðlum
vegna áformanna um vísitölu-
bannið. Og í gær tekur Kristján
Ragnarsson framkvæmdastjóri
LÍU við og gerir hálfgildings grín
, að Þorsteini vegna ummæla hans
í ræðunni um stöðugt gengi.
Kristján segir: „Menn geta svo
sem sett sér svona háleit markmið
en þeim verða þá að fylgja að-
gerðir á öðrum sviðum. Það er
ekki hægt, eins og nú er að gerast,
að verslun og þjónusta séu alger-
lega að skera sig út úr atvinnulíf-
inu og hækka sína þætti að því að
manni virðist alveg hóflaust.“
Ummæli Kristjáns sýnatvennt:
fallandi gengi Þorsteins meðal
talsmanna flokksins, - og skömm
og fyrirlitningu ýmissa flokks-
manna Sjálfstæðisflokksins á
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinn-
ar.
Óttast ekki fallöxi
Einn áhrifamesti maður í ís-
lenskum stjórnmálum, Brement
sendiherra Bandaríkjanna, er til
viðtals í HP í gær. Hann er spurð-
ur: „Fer ekki hrollur um banda-
rískan sendiherra þegar Alþýðu-
bandalagið kemst í ríkisstjórn?"
Brement: „... mig hefur ekki
dreymt um hestakerrur og fallöxi
þótt Alþýðubandalagið hafi verið
í ríkisstjórn. Persónulega myndi
ég ekki velja Svavar eða Ólaf
Ragnar sem forsætisráðherra, en
Bandaríkin eru reiðubúin að eiga
vinsamleg samskipti við hvaða
lýðræðislega kjörna ríkisstjórn
sem er á Islandi“. -óg
DJÚÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson. Valþór Hlöðversson.
Bla&amenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Halldóra Sigurdórs*
dóttir, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Amason, Súsanna Svavarsdóttir, össur Skarphéðinsson, Víðir Siaurðs-
son (íþróttir). M
Llósmvndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Svava Sigursveinsdóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalostur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofuatjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna
Guðjónsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Asdís Kristinsdóttir. Sigriður Kristjánsdóttir
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bíistjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setnlng: Prentsmlðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. júlí 1984