Þjóðviljinn - 13.07.1984, Qupperneq 12
LANDÐ
Pandalus borealis
Soðið, pillað
fryst og pakkað...
Rœkjuvinnslan œ viðameiriþáttur í vestfirskrifiskvinnslu,
— en vitum við nóg?
Þetta er rauði baerinn núna,
segir farandsjómaður á ísa-
firði og er ekki að tala um pó-
litík. Iðnaðarmaður í Bolung-
arvík: Ætli þeir klári hana ekki
eins og hinar tegundirnar,
mér sýnist það á djöfulgang-
inum í þeim. Rækjan er vin-
sælt samræðuefni á Vest-
fjörðum um þessar mundir og
engin furða. í síðasta mánuði
var rækjuaflinn þar meiri en
þorskaflinn, og á þessu ári
hafa vestfirðingar veitt tæpan
helming af landsafla. 5.278
tonn samkvæmt Fiskifé-
laginu, 1.600 tonnum meira
en í fyrra.
Rækjustöðin hf. á ísafirði er
ein af fimm rækjuvinnslum í bæn-
um. í nágrenninu eru svo þrjár til
viðbótar, á Bolungarvík, Súðavík
og Hnífsdal. Rækjustöðin er
nokkurn veginn af meðalstærð,
var okkur sagt, starfsmenn á
þriðja tug, en margar kvennanna
vinna hálfan daginn. Þarna eru
nú unnin milli fimm og sex tonn á
dag, en ein þriggja pillunarvéla er
í viðgerð.
Þeir sem hafa kynnst rækjunni
best í majónesi milli brauðsneiða
viti þetta: Aflanum er landað ís-
uðum í kössum beint í kæli rækju-
vinnslustöðvarinnar. Ekki má
geyma hana meira en fimm daga í
ís. Vinnslan er hafin með þvotti
til að ná af henni óhreinindum,
síðan er rækjunni dælt uppí potta
og soðin þar. Þaðan fer hún í pill-
unarvél og rennur þar milli sí-
valninga sem snúast í sífellu og
núa burt skelinni. Þaðan á rækjan
að koma alpilluð, en alltaf verður
Sigurður Ólafsson við eina af pill-
unarvélunum.
eitthvað eftir, og næst fer hún á
færiband þar sem mannshöndin
(les: kvenhöndin) fullkomnar
verkið. Af færibandinu rennur
rækjan í saltpækil og liggur þar í
fimm til tíu mínútur, - það er til
bragðbætis. Loks er rækjan fryst
við þrjátíu gráður, og svo pakk-
að í poka sem eru settir í kassa og
fluttir út til Bretlands, Þýska-
lands og Danmerkur.
Sigurður Ólafsson verkstjóri
sýnir Þjóðviljamönnum þennan
gang og segir afla undanfarið
frekar tregan. Hafísinn hefur háð
veiðum, lokað til dæmis Hólfinu
svonefnda, og framanaf var mikil
grálúða á miðunum. „Sem étur
rækjuna?" er spurt, og svarið er
að þekking á rækjunni og rækju-
stofnum sé alltof lítil, það vanti
rannsóknir, - fiskifræðingarnir
fylgja þessu varla nógu vel eftir.
- Matið er mjög strangt, segir
Sigurður, en kröfur á markaði
eru miklar og matsmenn ekki of
harðir að mínu mati.
Við hrúgur af rækjuskel vakna
spurningar um nýtingu. Það er
talið gott að unnin vara sé um
fjórðungur af hráefnisþyngd.
Urgangurinn nýtist ekkert að
ráði. Menn hafa velt því nokkuð
fyrir sér en engin góð lausn er enn
fundin. Bændur hafa notað úr-
ganginn sem áburð, og hann er
talinn geta komi að góðu gagni
við laxeldi. Og Mjölvinnslan í
Hnífsdal mun nú vera að athuga
hvernig gefst að vinna þetta í
mjöl.
Á ísafirði er nú fjöldi aðkomu-
báta á rækju, en Rækjustöðin og
tvær aðrar vinnslur hafa verið
með togara á veiðum, fyrst Haf-
þór og nú Snorra Sturluson að
sunnan meðan sett eru frystitæki í
Hafþór.
Kynnisferð um Rækjustöðina
lýkur með kaupum á einum af
tveggjakílóapokunum sem þar er
verið að pakka; prýðileg út-
hafsrækja, og pandalus borealis
veiðist vonandi ekki upp á næst-
unni.
Landað úr Vonlnni.
Handpillað þar sem vélunum slepplr.
Flugfélagið
ERNIR
ísafirði
Áætlun frá
ísafirði til:
Suöureyrar
Flateyrar
Ingjaldssands
Þingeyrar
Bíldudals
Patreksfjaröar
Bílaleiga í
Reykjavík og
á ísafirði
Útvegum einnig bíla á
alla staöi sem flugfé-
lagið hefur flugáætlun
til, meö dags fyrirvara.
Leigu- fragt og sjúkra-
flug.
Sími 94-4200
EFTIR
SNORRA
Hornstrandir hafa iongum vakið
forvitni manna og í Hornstrend-
ingabók Þórleifs Bjarnasonar er
sagt frá fólkinu sem bvggði þaer.
Bvggð lagðist þar alveg af uppúr
1960, én árið 1975 var hluti
svæðisins lýstur friðland. Nokkru
fyrr tók ferðafólk að sækja þangað
til útivistar og gönguferða. Hér er
sagt frá helstu almennum
gönguleiðum um Hornstrandir og
Jökulfjörðu, tíndir saman
fróðleiksmolar úr ýmsum áttum og
þetta tengt frásögnum Þórleifs.
Það er gert með því að birta
viðkomandi blaðsíðunúrner í
Hornstrendingabók ó spássíðurn
þessarar.
fasniíöaa
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN