Þjóðviljinn - 13.07.1984, Qupperneq 13
__________________LANDIÐ______________________
Bolungarvík, „bœjarfélag einstaklingsframtaksins“
Hér vantar alla samkeppni
Rœtt við Kristin H. Gunnarsson bœjarfulltrúa
Minnihluti í bæjarstjórn Bol-
ungarvíkur er einn maður, frá
Alþýðubandalagi, Kristinn H.
Gunnarsson skrifstofustjóri
hjá JFE-byggingaþjónust-
unni. Framsókn og kratar í
stjórn með Sjálfstæðisflokki
sem er auðvitað stærstur í
þeim kaupstað sem að utan-
verðu virðist einkaeign Einars
Guðfinnssonar og fjölskyldu
hans.
Kristinn gekk með okkur
niðrá Malir þar sem hann hef-
ur komið sér upp skrifborði og
blaðamanni leikur hugur á að
vita meira um hagi vinstri-
manna í paradís einstaklings-
framtaksins.
- Við vorum ekki til sem
skipulagður hópur fyrren Al-
þýðubandalagsfélagið var stofn-
að 1979. Við náðum svo inn
bæjarstjórnarfulltrúa í síðustu
kosningum og það má segja að
menn hafi þurft tíma til að átta sig
á að við erum til. Það er ein aðal-
ástæðan fyrir því að við erum
skildir eftir að loknum þeim
kosningum, - þeir vildu einangra
okkur. Áttu erfitt með að sætta
sig við að hafa okkur í bæjar-
stjórninni. Strax eftir kosning-
arnar vorum við útilokuð frá
öllum nefndum og ráðum, - eini
vettvangurinn eru bæjarstjórn-
arfundirnir á þriggja vikna fresti.
En það er eins og þeir séu
eitthvað að átta sig núna, við
fáum til dæmis áheyrnarfulltrúa í
bæjarráði nú þegar bæjar-
stjórnin fer í sumarfrí. Við höfum
ekki haft aðgang að bæjarráðs-
fundum áður, - þetta er viss vís-
bending.
- Það er fyrst og fremst tvennt
sem ber hæst hér í bæjarstjórn-
inni að mínu mati.
Annarsvegar að það er búið að
samþykkja að fækka mönnum í
bæjarstjórninni. Þeim var fjölgað
í níu fyrir tveimur árum, gegn at-
kvæðum Sjálfstæðismanna, en nú
hafa framsóknarmenn og H-
listamenn, „jafnaðarmenn og
óháðir", snúið við blaðinu og
vilja fækka aftur í sjö. Þessu er
auðvitað beint gegn okkur, þeir
vilja losna við Alþýðubandalag-
ið, - en ég held að þeir séu að losa
sig við gagnrýnisraddir úr eigin
röðum. Oddvitar flokkanna sitja
í bæjarráði og vilja geta ráðið sín-
um ráðum þar í friði. Þar hefur
komið fram gagnrýni, bæði í
Framsókn og hjá H-lista. Við at-
kvæðagreislu um þetta fækkun-
armál klofnaði meirihlutinn.
Annar framsóknarmannanna og
annar H-listamaðurinn voru á
móti.
Þetta er í fyrsta sinn sem sam-
þykkt er að fækka í bæjarstjórn á
Islandi og það er ekki ótvírætt í
iögum að þetta megi, - er nú í
afgreiðslu hjá ráðuneytinu.
Útsvar lækkar - á
kostnað hinna tekjulægri
- Hins vegar vil ég nefna að
útsvar hefur verið lækkað úr 12,1
í 11 prósent. Þetta er ákvörðun
sem tekin var í ráðuneytinu og
hefur í för með sér að tekjuhæstu
mennirnir fá mesta lækkun. Til
að vega á móti tekjumissinum
hækkar bærinn afnotagjöld af op-
inberri þjónustu; bókasafn,
sundlaug, leikskóli. Það er inn-
heimt hjá þeim sem síst á. að taka
af, ungu fólki, lágtekjufólki og
eldri borgurum. Þetta er mesta
stefnubreytingin á þessum tíma.
Þessi litlu sveitarfélög eins og
okkar hafa varla bolmagn til að
standa undir þessari sjálfsögðu
þjónustu. Eru illa sett og vantar
tekjustofna.
- Baráttumál Alþýðubanda-
lags í bæjarstjórn, - þar er af
ýmsu að taka. Það þarf til dæmis
að gera verulegt átak í málefnum
aldraðra. Hér er ekkert nema
sjúkraskýli fyrir utan söluíbúðir
sem nú hafa verið í byggingu í sjö
ár. Þær eru alltof fáar og margt
gamalt fólk hefur ekki efni á að
kaupa þær.
Hér er líka verk að vinna í
skólamálum. í Bolungarvík er
bara grunnskóli, og það er afleitt
að missa krakkana héðan
fimmtán ára. Staðan í þessum
skólamálum verður líka til þess
að við missum fjölskyldur úr
bænum, fólk fylgir börnunum
suður í skóla. Hér þyrfti að koma
upp vísi að framhaldsskóla.
- Eitt af helstu verkef num er að
tryggja lýðræði í stjórn bæjarins.
Fulltrúar þar þurfa að vera að
minnsta kosti níu, og það þarf að
gera bæjarstjórnina að raunveru-
legri valdastofnun í stað þess að
völdin liggja nú hjá bæjarráðinu
og bæjarstjórnin er aðeins af-
greiðslustofnun. Minnihlutinn
verður að hafa sinn rétt, hvernig
sem hann er svo skipaður í hvert
skipti.
Örfáir ráða
- En það einkennir Bolungar-
vík öðru fremur að örfáir menn
ráða hér nánast öllu í atvinnulífi,
h'ka peningastofnuninni, Spari-
sjóðnum,- þettaer ákaflegamið-
stýrt vald og fámennt. Þetta er
orðið þannig að hér er komin á-
kveðinstöðnun.Þaðþarf að fá inn
ný fyrirtæki og óháða aðila, - það
er forsenda uppgangs. Bærinn
gegnir engu hlutverki í atvinnu-
málum í Bolungarvík, en gæti vel
beitt sér beint og óbeint.
- Maður verður var við að í
þessu bæjarfélagi einstaklings-
framtaksins vantar nánast alla
samkeppni! Það er til dæmis ekk-
ert kaupfélag. Samvinnuhreyf-
ingin er ekki til í Bolungarvík.
Menn eru að vísu að hugsa málin,
en ekkert hefur verið fram-
kvæmt.
Leikskóli - loksins
- Eitt af fáum málum þar sem
við í Alþýðubandalaginu höfum
haft áhrif er bygging leikskóla.
Það var mikið lagt uppúr því að
ná samstöðu um fjárhagsáætlun í
fyrra, og ég setti það skilyrði fyrir
samkomulagi að fjárveiting til
leikskóla yrði hækkuð svo mikið
að það dygði til að ljúka honum.
Hann er núna búinn. Fullnægir
ekki alveg eftirspurn. Leik-
skólinn er raunar framtak fé-
lagasamtaka að miklu leyti, það
komst engin hreyfing á þetta mál
fyrren áhugamenn buðu fram að-
stöðu og vinnu, - og þá tók bæj ar-
stjórnin loksins við sér.
Raunhæfa lands-
byggðarstefnu!
- Ég hef trú á því að okkur
takist að bæta við okkur fylgi hér í
Bolungarvík. Við fengum 85 at-
kvæði í kosningunum síðast, og
menn hafa tekið eftir okkar mál-
flutningi. Við eigum hljómgrunn.
Ég vil hinsvegar koma því að í
Þjóðviljanum sem flokksmaður
að Alþýðubandalagið þarf að
fara að hugsa alvarlega um að
Pessi með skottið!
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SIMI 35200
Föstudagur 13. júlí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13