Þjóðviljinn - 13.07.1984, Blaðsíða 19
SKAK
2. umferð
mánudagur 25. júní
1. Karpov - Anderson V2-V2
2. Kasparov - Timman V2-V2
3. Polugajevsky - Kortsnoj 0-1
4. Tukmakov - Ljubojevic 1-0
5. Waganjan - Ribli V2-V2
6. Beljavsky - Serawan 1-0
7. Romanischin - Nunn V2-V2
8. Razuw iyev - Hubner V2-V2
9. Jusupov - Miles V2-V2
10. Sokolow - Torre 1-0
Eins og sjá má af úrslitum þess-
arar umferðar voru Sovétmenn í
miklum ham og tókst að knýja
fram tveggja vinninga forskot
með 6-4 sigri sínum. Heimsliðið
mætti óbreytt en tvær skiptingar
voru gerðar í herbúðum Sovét-
manna, á fjórða borð kom Tuk-
makov í stað Smyslov og á sjö-
unda Romanischin í stað Tal.
Mikil barátta var í mönnum og
aðeins þrjár af skákunum enduðu
fljótt með jafntefli. f>að verður
að teljast nokkuð gott þegar svo
sterkir skákmenn eru samank-
omnir.
Heimsmeistarinn Karpov tók
sér „frí“ enda ánægður með úrslit
1. umferðar. Anderson hafði
ekkert á móti slíkum tilburðum
og uppskeran varð 17 leikja teor-
ískt jafntefli í drottningarindver-
skrivöm þar sem Karpov varði
svörtu stöðuna. Sama friðsemin
varð uppi á teningnum hjá Kasp-
arov og Timman þó skákin entist
aðeins lengur. Timman brá sér í
gervi heimsmeistarans og beitti
Tartakoverafbrigði drottningar-
bragðs en það notar Karpov mjög
Sovétríkin-Heimurinn
2. hluti
gjaman. Skiljanlega vildi Kasp-
arov ekki ljóstra upp neinum
leyndarmálum fyrir einvígið í
haust og tók því mjög veiklulega
á móti. Vegna þess mikla áhuga
sem skákir þessara kappa vöktu
mun ég láta skákina fara hér á
eftir án skýringa.
Dxb4 21. Rd4 Da4 22. Rxc6 Dxc6
23. Hcl Re5. 24. De7 jafntefli.
Gamla kempan Kortsnoj hélt
uppi heiðri heimsiiðsins með því
að yfirspila Polugajevsky á öllum
sviðum. Það var ljóst þegar í upp-
hafi skákarinnar að Kortsnoj var
í vígahug, hann setti Polu í mik-
Tukmakov (hvítur) sá sér leik á
borði: 29. Rxc6! vinnur peð og
þar með skákina, riddarinn er
friðhelgur t.d. 29.-Bxc6 30. He6
Hac8 31. axb5 og hvítur vinnur.
Ljubo tókst að koma skákinni í
bið en ákvað að gefast upp án
frekari taflmennsku.
1P w w n XKJLSX * Xfllil Wm
m ■ ■ mx mm í aí i i Á Pá*
mm m m n \Wf km
mmmm mbi^m ■ P g.
A m ÍlÉ H P B B B . fé
■ flij&JÉ láÉ UH !U mf H!l A imm
<] ö' aoti mám tma as
p ö p Á & : S 2 1É MÉM *
r wéii-
Stöðumynd númer 1
Hvítt: Kasparov
Svart: Timman
Drottningarbragð, a la Tarta-
kover.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4.
Rc3 Be7 5. Bg5 0-0 6. e3 h6 7. Bh4
b6 8. Hcl Bb7 9. cxd5 10. Rxd5
Bxd5 11. Bxe7 Dxe7 12. Be2. Hc8
13. 0-0 c5 14. dxc5 Hxc5 15. Hxc5
Dxc5 16. Da4 Bc6 17. Df4 Rd7 18.
b4 Df8 19. Dc7 Hc8 20. Dxa7
Stöðumynd 2
inn vanda með frumlegri tafl-
mennsku. Polu sem þekktur er
fyrir þekkingu sína á hefðbundn-
um leiðum vissi ekki sitt rjúkandi
ráð og féll á tíma í 40. leik með
gjörtapað tafl.
Ljubojevic tefldi full glæfra-
lega gegn Tukmakov og eftir 28
leiki kom þessi staða upp.
Sjá stöðumynd 1
LESENDUR
Um fjölskylduharmleiki
á síðum blaðanna
1720-0022 hringdi:
Ég vil þakka Pjóðviljanum
fyrir að velta sér ekki upp úr stór-
slysum og fjölskylduharm-
leikjum. Umfjöllun blaðsins í
gær, þriðjudag, um hvort síðdeg-
isblaðamennskan hér eigi rétt á
sér finnst mér tímabær og vil taka
undir hana. Ein af ástæðum þess
að ég les Þjóðviljann er einmitt sú
að þar þarf ég ekki að flýta mér að
fletta yfir slysamyndir og flenni-
stórar fyrirsagnir af harm-
leikjum. Mér líður verulega illa
þegar ég sé slíkt í blöðunum og
reyni að fletta hratt fram hjá.
Ég hef sjálf orðið fyrir því að
lenda í erfiðieikum sem þóttu
blaðamatur fyrir nokkrum árum
síðan. Ég fékk ekki taugaáfall
fyrr en nokkrum dögum eftir at-
burðinn þegar ég sá hvernig fjall-
að var um málið í blöðum. I einu
þeirra var því sem hefði getað
gerst slegið upp í 5 dálka fyrir-
sögn. Það er hrikalegt að blöðin
leyfi sér að gera fólki slíkt. Ennþá
kemur fyrir að mig dreymir þessa
fyrirsögn.
Með þökk fyrir birtinguna og
von um frekari umræðu á síðum
blaðanna um blaðamennsku og
fréttamat.
MINNING
Þorlákur V. Guðgeirsson
/. 23. janúar 1921
d. 7. júíí 1984
Látinn er föðurbróðir okkar,
Þorlákur Guðgeirsson bóistrari,
Ásgarði 59, Reykjavík. Hann lést
í Landspítalanum 7. júlí s.l. eftir
ellefu vikna sjúkrahúsvist.
Lalli frændi, eins og við köll-
uðum hann iðulega, var í þennan
heim borinn 23. janúar 1921,
sonur hjónanna Guðrúnar Sig-
urðardóttur og Guðgeirs Jóns-
sonar bókbindara, sem lifa son
sinn.
Lalli giftist Kristínu Jóhannes-
dóttur árið 1945 og eignuðust þau
fimm börn, Valgeir f. 1945, Guð-
geir f. 1947, Ásgeir f. 1948, Sig-
valdi Geir f. 1953 og Kolbrún f.
1956.
Lalli og Stína hófu fyrst búskap
hjá afa og ömmu á Hofsvalla-
götunni, en fluttu síðar inn að
Bústaðavegi og 1957 í Ásgarðinn,
þar sem Lalli bjó alla tíð síðan.
En Kristín lést síðla árs 1966.
Lalli hóf nám og störf sextán
ára að aldri hjá móðurbróður sín-
um Helga Sigurðssyni húsgagna-
bólstrara. Síðar starfaði hann hjá
Herði Péturssyni húsgagnabólstr-
ara og síðast starfaði hann hjá
Gunnari Helgasyni, en við verk-
stæði hans var Lalli allt fram að
veikindum sínum.
Árið 1969 byrjaði Lalli öku-
kennslu samhliða störfum sínum
hjá Gunnari. Við yngri bræðumir
nutum þeirra ánægju að hafa
hann sem læriföður við ökunám
okkar. Við kennsluna komu vel
fram helstu persónueinkenni
hans, kímni og yfirvegun. Mistök
lærlingsins voru leiðrétt þannig,
að yfirsjónin var gerð honum
ljós, rólega en ákveðið, og
gjaman klykkt út með gaman-
yrði. Og eftir sat nemandinn
nokkuð ánægður með sinn hlut,
enda sama vitleysan sjaldnast
gerð tvisvar. Þannig er háttur
góðra fræðara.
Heimsóknir Lalla í Háagerðið
em stór hluti æskuminninga okk-
ar. Enda var kímnigáfa föður
okkar og Lalla sem ein, og oft-
lega ógleymanlegar þær uppá-
komur þegar þeir lögðu saman.
Með þessum fáu orðum viljum
við þakka Lalla hans góðu fylgd,
er við munum ætíð minnast með
þakklæti.
Við sendum afa og ömmu, sem
nú hafa misst tvo syni á einu ári,
dýpstu samúðarkveðjur.
Börnum Lalla, tengdabömum,
barnabörnum, systkinum og öðr-
um ættingjum sendum við hug-
heilar samúðarkveðjur.
Megi minning um góðan dreng
verða okkur öllum nokkur hugg-
un.
Einar Már, Rúnar Gcir
og Sigurður Örn.
Stöðumynd 3
Hin mikli baráttuskákmaður
Waganjan lét sér fátt um finnast
og samdi átakaiaust jafntefli við
Ribli í 19 leikjum. Aðra sögu er
að segja af landa hans Beljavsky.
Þó að hann hafi fari illa með
Seirawan í fyrstu umferð voru
hörmungar Bandaríkjamannsins
ekki á enda:
Hvítt: Beljavsky
Svart: Seirawan
Móttekið drottningarbragð
1. d4 d5 2. c4 dxc4 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 c5 5. d5 e6 6. e4! exd5 7. e5!
Rfd7 (7.-d4 8. exf6 dxc3 9.
Dxd8+ Kxd8 10. Bxc4 lýtur ekki
vel út fyrir svartan. 7.-Re4 er
heldur ekki nein endurbót 8.
Dxd5 Rxc3 9. Dxd8+ Kxd8 10.
bxc3 Bec3 Be6 11. Rg5 Rd7 12.
Rxe6 fxeó 13. f4! og hvítur stóð
betur í skákinni Gligoric-P. Nic-
olic Niksic 1983.) 8. Bg5! Be7 9.
Bxe7 Dxe7 10. Rxd5 Dd8 11. Bxc4
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
(Allt er þetta samkvæmt með-
mæltum Petrosjans sem er mikill
sérfræðingur í þessari byrjun.)
ll.-O-O 12. Dc2 He8 13. 0-0-0
Rxe5 14. Hhel Rbc6 15. Rxe5
Rxe5 16. Bb5! ,
! Sjá stöðununynd 2
(Þegar ég leit á þessa skák fyrst
fannst mér eins og ég kannaðist
eitthvað við þessa stöðu. Ég fór
að gramsa í hirslum mínum og viti
menn! hún kom upp í skáirinni
Salow - Radulov á Minningar-
móti Kotov fyrr á þessu ári.
Eitthvað hefur Seirawan verið
latur við að lesa því staðan er
vitavonlaus á svartan.) 16.-He6
(Radulov reyndi 16.-Bg4 en tap-
aði fljótt eftir 17. Bxe8 Bxdl 18.
Hxdl c4 19. Df5! Dxe8 20. Rc7 g6
21. Df6 Rd3+ 22. Hxd3 Dc8 23.
He! 1-0 23.-Dxc7 24. He7.) 17.
Rf4! Df6 18. Dd2 g6 19. Dd8+
Kg7 20. Rxe6+ Bxe6 21. Dxa8 og
með slíka liðsyfirburði varð Belj-
avsky ekki skotaskuld úr að inn-
byrða vinninginn, ódýr punktur.
Skákirnar á 7. og 8. borði að
vísu spennandi en hvorugum
tókst að þvinga neitt sér í hag og
skipting vinningsins óumflýjan-
leg.
Sjá stöðumynd 3
Eftir 18. leik Miles gegn Jusup-
ov sá Sovétmaðurinn athygli-
sverðan möguleika í stöðunni.
18.-Bxe3? 19. fxe3 Bb5+ 20. Kgl
Dxe3+ 21. Kh2 (21. Df2??
Dxcl+) Hc5 (Því miður strandar
21.-Rg4+ 22. Kh3 Rf2+ 23. Kh2
Rxhl á 24. Dh7+ Kf8 25. Dh8+
26. Rd5!!+ exd5 27. Hxc8 Hxc8
28. Dxc8 og svarti riddarinn á hl
fellur!) 22. Rh4! Rg4+ 23. Kh3
Rf2+ 24. Kh2 Bd3 25. Da4! Hc4
26. Hhel! og Jusupov tók þann
kost vænstan að þráskáka, hárná-
kvæm vörn hjá Miles.
Sokolow, hinn ungi, fékk upp-
reisn æru eftir tapið í fyrstu um-
ferð, tefldi eins og Sovétmeistara
sæmir og Torre sá ekki til sólar er
hann varðist gegn Spánska
leiknum eins og svo oft áður.
Sem sagt staðan eftir tvær um-
ferðir Sovétríkin 11-Heimsliðið
9.
.seW^
.sWP1
Dúlíci
Snorrabraut 22
Svo skal böl boeta
MEGAS
TOLU
BEGGI
KOMMI
BRAGI
gramm
Lauð^vegur17 Simi 12040
n?)
Allt á sínum staö
meö
ihRHHOH
skjalaskáp
Föstudagur 13. júli 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 19
Ef einhver sérstök vörzluvandamál þarf aö leysa biöjum viö
viökomandi góöfúslega aö hafa samband viö oKKur sem
allra fyrst og munum viö fúslega sýna fram á hvernig
IhHHHOH sKjalasKápur hefur ,,allt á sínum staö".
Otsölustaðir:
ÍSAFJÖRÐUR, Bókaverslun Jónasar Tómassonar. BORGARNES, Kaupfélag Borgfírðlnga.
SAUÐÁRKRÓKUR, Bókaverslun Kr. Blöndal, SIGLUFJÖRÐUR, Aðalbúðin, bókaverslun
Hannesar Jónassonar. AKUREYRI, Bókval, bóka- og ritfangaverslun. HÚSAVÍK, Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar. ESKIFJÖRÐUR, Elís Guðnason, verslun. HÖFN HORNAFIRÐI,
Kaupfélag A-Skaftfellinga. VESTMANNAEYJAR, Bókabúðín. EGILSSTAÐIR, Bókabúðin
Hlöðum. REYKJAVÍK, Penninn Hallarmúla. KEFLAVÍK, Bókabuð Keflavikur.
OlAfUR GlSlASOM & CO. ilf.
SUNDABORG 22 104 REYKJAVÍK SÍMI 84800 JJ