Þjóðviljinn - 13.07.1984, Side 21
U-SIÐAN
Aðalkrafan
var
launahækkun
Unglingar í Vinnuskólanum
í Kópavogi stóðu sjálfir
fyrir því að fá kjör sín bœtt.
Víða á landinu eru starfræktir
vinnuskólar fyrir unglinga, en
ekki eru störf unglinganna alls
staðar metin að sömu verð-
leikum. Það er æði misjafnt
hversu há launin eru fyrir þá
vinnu sem krakkar undir 16 ára
aldri skila. T.d. reiknast okkur
hér á U-síðunni til að í Reykjavík
sé tímakaupið hjá þeim sem voru
s.l. vetur í 8. bekk 40.98 kr. og hjá
þeim sem voru í 7. bekk 36.42 kr.
Til samanburðar leituðum við í
næsta bæjarfélag við Reykjavík
og heimsóttum Vinnuskólann í
Kópavogi. Þar hafa fjórir ár-
gangar möguleika á vinnu og
kaupgreiðsla fer eftir fæðingarári
en ekki eftir því í hvaða bekk
krakkarnir hafa verið. Og
kaupið? Það er dálítið mikið
hærra. Þau sem fædd eru 1968 fá
56.98 kr. á tímann, 1969 (voru í 8.
bekk) fá 50.29 kr. fædd 1970
(voru í 7. bekk) fá 44.70 kr. og
1971 fá 33.53 krónur.
í bækistöð Vinnuskólans í
Kópavogi hittum við þá Martein
Sigurgeirsson og Þórð Gunnars-
son, yfirverkstjóra og Sigurð Þor-
steinsson forstöðumann og
spurðum þá hvernig stæði á því
að munurinn á tímakaupi hjá
þessum árgöngum væri svona
mikill:
„í fyrra tókum við upp nýja
stefnu, þ.e. að reyna að láta
krakkana skilja að þau eru í
fyrsta sinn að selja sína vinnu.
Það þýðir að farið er að gera kröf-
ur til þeirra á vissum sviðum og
þau öðlast viss réttindi. Mark-
miðið var að gera þau ábyrg
gagnvart vinnufélögunum og því
voru skipaðir trúnaðarmenn í
hverjum hóp, sem voru tengiliðir
milli vinnuhópsins og skólans.
Þessir trúnaðarmenn fengu hjá
okkur bæklinga um kaup og kjör,
réttindi og skyldur og áttu síðan
Oháði
vinsælda-
listinn
LP-plötur
1. ÍKARUS: Rás 5-20/
2. SIOUXIE &THE BANSHEES:Hy-
ane/
3. BRUCE SPRINGSTEEN: Born
in U.S.A./
4. BOB MARLEY: Legend/
5. THE SMITHS: The Smiths/
6. CURE: The Top/
7. STEVE RAY VANGHAN:
Couldn't Stand the Rain/
8. ÝMSIR: Breakin’/
9. ÞORLÁKUR KRISTINSSON:
The Boys From Chicago/
10. SIOUXSIE & THE BANSHEES:
Nocturne/
45 snúninga
1. NOIA: Do you wanna Dance?
2. FORCE M.D's: Let me iove you/
3. NEW ORDER: Thieves iike us/
4. FRANKIE GOES TO HOLLY-
WOOD: Reflections/
5. NEW ORDER: Blue Monday/
6. THE FALL: Oh Brother/
7. SIOUXSIE & THE BANSHEES:
Dazzle/
8. MALCOLM X: No Sell Out/
9. THE SMITHS: What difference
does it make?/
10. SOFT CELL: Down in the
Annað er að við útvegum þeim
alvöruvinnu. Ekki eins og víðast
hvar annars staðar við endalausa
hreinsun. Hér er verkstæði á
staðnum og þar vinnur 5 manna
hópur við að halda verkfærunum
við, síðan eru þau í öliu mögu-
legu, sjá um garðrækt og þá er
ekki verið að tala um lóða-
hreinsun, heldur taka þau heilu
garðana í gegn. Við erum t.d.
með einn hóp sem við köllum
Monthóp skólans því þau eru svo
dugleg að vinna og svo vel að það
líður varla sá dagur að ekki hringi
einhver til að láta í ljós ánægju
sína.
Síðan erum við alltaf að prófa
eitthvað nýtt. Núna er verið að
gera tilraun með skemmtigarð-
inn. Við látum krakkana sjá um
hann sjálf. Síðan höfum við opið
þegar gott er veður. Þá setjum
við upp götuskilti um allan bæ og
auglýsum í útvarpi. Við vorum
líka síðast með eina sjónvarps-
auglýsingu, hún var máluð á
skerm...
að sjá um að dreifa þeim upplýs-
ingum til sinna hópa.
Nú, næsta skrefið var það að
við fengum tvo fulltrúa frá MFA
á fund og fluttu þeir fvrirlestur,
og krakkarnir áttu að skila því
sem fram fór á fundinum út í hóp-
ana. Við höfum líka verið með
vinnuskólasjónvarp og fundurinn
var tekinn upp, svo þau gátu sjálf
séð það sem fram fór á honum.
Eftir fundinn vöknuðu svo upp
margar spurningar hjá þeim og
ekki var hægt að svara þeim
öllum jafnóðum. Þeim var bent á
að taka saman einskonar bæna-
skrá sem trúnaðarráð úr þessum
hóp kom svo til okkar. Við send-
um þessa bænaskrá síðan áfram
með ársskýrslunni til þeirra sem
stjórna bænum.
Það er gaman að geta sagt frá
því að aðalkrafan sem þau gerðu
var hærra kaup. Sú krafa náði
fram að ganga nú í vor og við
erum með hæstu vinnuskólalaun
á landinu.
En fundurinn var ekki bara
haldinn til þess að athuga hvað
þau vildu, heldur einnig til að
upplýsa þau um hvað það var sem
við vildum fá frá þeim. Það er
mjög áríðandi að láta krakkana
skilja það strax þegar þau eru að
koma út á vinnumarkaðinn að
þau eru ábyrg gagnvart fleirum
en sjálfum sér. Þetta er aldrei
nógsamlega brýnt fyrir þeim.
Hjá okkur starfa 320 krakkar
og er þeim skipt í 23 í hópa og
hver hópur hefur sinn trúnaðar-
mann. Við fylgjum öllum reglum
mjög strangt eftir, reynum að láta
þau skilja að korter er korter og
hálftími er hálftími, og þegar þau
hafa samið um vissan vinnutíma
verða þau að passa upp á að láta
ekki kaffi- og matartíma dragast
álanginn. T.d. hafaþau ekki leyfi
til að fara út í sjoppu í matar- og
Marteinn og Þórður, yfirverkstjórar ásamt Sigurði forstöðumanni Vinnuskólans í Kópavogi. Ljósm. Loftur.
Síðan vinnuskólinn var endur-
skipulagður árið 1977, hefur orð-
ið alger bylting á vali verkefna og
öllum reglum hefur verið strangt
fylgt eftir og árangurinn lætur
ekki á sér standa.“
ss.
„Það líður varla sá dagur að ekki hringi einhver til að lýsa ánægju sinni." Jóhanna Kristjana, Þórir, Arnar, Sighvatur,
Guðrún Björk Árnadóttir, hópstjóri, meðlimir „Monthóps" Vinnuskólans. Ljósm. Loftur.
kaffitímum. Með því að halda vinnusemviðkaupumafþeimog
fast í stundvísi fáum við nokk þá höfum því efni á að borga þeim.
Þetta höfum við verið að útskýra
fyrir þeim.
Subway/
Föstudagur 13. júli 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21