Þjóðviljinn - 13.07.1984, Qupperneq 23
ÍÞRÓiriR
Atli Hilmarsson í baráttu við vestur-þýska varnarmenn. Atli lék
síðari hálfleikinn í gær og skoraði fjögur falleg mörk. Mynd:—eik.
2. deild kvenna
Handknattleikur
Kristján
Geir og
Páll
Bogdan Kowalczyck landsliðs-
þjálfari íslands í handknattleik
tilkynnti í gærkvöldi hvaða 15
leikmenn færu til Los Angeles síð-
ar í þessum mánuði til keppni á
Ólymípuleikunum. Þeir eru eftir-
taldir:
Markverðir: Einar Þorvarðar-
son, Jens Einarsson og Brynjar
Kvaran.
Aðrir leikmenn: Þorbergur
Aðalsteinsson, Bjami Guð-
mundsson, Alfreð Gíslason,
Guðmundur Guðmundsson, Sig-
urður Sveinsson, Þorbjörn Jens-
son, Steinar Birgisson, Sigurður
Gunnarsson, Atli Hilmarsson,
Þorgils Óttar Mathiesen, Jakob
Sigurðsson og Kristján Arason.
Þrír úr 18 manna hópnum sitja
því heima, Kristján Sigmundsson
markvörður og þeir Páll Ólafsson
og Geir Sveinsson. Landsliðið
heldur í dag til Spánar í lokaund-
irbúninginn fyrir leikana.
- VS
Landsleikurinn
Dauðafæri forgörðum
Frábœr leikkafli um miðjan síðari hálfleik var ekki nóg -
ísland tapaði 17:21 fyrir V.Pjóðverjum í Laugardalshöllinni
„Ekkert lið sem nýtir ekki 6-7
dauðafæri í leik, maður gegn
manni, getur ætlast til þess að
vinna sigur“, sagði Bogdan Kow-
alczyck landsliðsþjálfari íslands í
handknattleik eftir ósigur, 17:21,
gegn sterku liði Vestur-Þjóðverja
í Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Já, alltof mörg dauðafæri fóru
forgörðum hjá íslenska liðinu í
gærkvöldi, einkum í fyrri hálf-
leik, og hefði einhver hluti þeirra
verið nýttur er ekki gott að segja
hvernig hefði farið.
ísland var tvívegis yfir í byrj un,
1:0 og 3:2, en V.Þjóðverjar kom-
ust í 3:6, 5:9, og loks 6:11 undir
lok fyrri hálfleiks. Munurinn var
orðinn sex mörk, 9:15, eftir 10
mínútur í síðari hálfleik en þá
kom besti kafli íslenska liðsins.
Atli Hilmarsson fór í gang og lið-
ið með honum, á 10 mínútum
breyttist staðan í 15:16. Þá var
4. deild
Örugg staða Reynis
Reynir Árskógsströnd er kominn Svartdælir.....5 2 1 2 12-15 7
með yfirburðastöðu í D-riðli 4. Skyttumar..5 2 0 3 14-13 6
deildarinnar í knattspyrnu eftir 3-1 Gelslinn...3 10 2 3- 5 3
sigur á Skyttunum í fyrrakvöld. Örn Hvöt.......5 104 3
Viðar Arnarson 2 og Björn Friðþjófs-
son skoruðu fyrir Reyni en Sigur- f C-riðli vann Grótta 2-0 sigur á
björn Bogason svaraði fyrir Siglu- Leikni Reykjavík í fyrrakvöld. Bæði
fjarðarliðið. Aðeins Geislinn getur mörkin kómu í fyrri hálfleik, Gunnar
nú komist uppfyrir Reyni með því að Gunnarsson skoraði fyrst með óverj-
vinna alla sína fimm leiki. Staðan í andi skoti eftir aukaspyrnu og Sverrir
D-riðli er þessi: Sverrisson sá um síðara markið.
ReynlrÁ........6 5 1 0 21- 4 16 ~vs
Þorbergi Aðalsteinssyni vísað af
velli og íslenska liðið missti takt-
inn. Þrjú mörk V.Þjóðverja í röð
og sigur þeirra var ekki í hættu
eftir það.
íslenska liðið á hrós skilið fyrir
að halda haus þrátt fyrir brösugt
gengi framan af og það barðist af
krafti allan tímann. Kristján Ara-
son lék ekki með vegna meiðsla,
sem þó eru ekki alvarleg, og það
veikti varnarieikinn talsvert.
Vörnin opnaðist nokkrum sinn-
um illa á miðjunni. í kjölfarið var
markvarsla Einars Þorvarðar-
sonar og Kristjáns Sigmunds-
sonar heldur slök og að auki
misstu þeir inn skot sem þeir
hefðu átt að verja. „íslenska liðið
lék eins vel og í fyrri leiknum en
vörn okkar var grimmari að
þessu sinni og kom vel út á móti
íslensku skyttunum“, sagði
Simon Schoebel þjálfari V.Þjóð-
verja. „Eg var að prófa leikmenn
í kvöld og var sérstaklega ánægð-
ur með Guðmund Guðmunds-
son,“ sagði Bogdan. Guðmundur
átti góðan leik, sem og Atli sem
lék aðeins síðari hálfleikinn. Þor-
bjöm Jensson var sterkur í vörn-
inni en aðrir hafa leikið betur.
Sigurður Sveinsson skoraði 7
mörk, 6 úr vítaköstum. Atli gerði
4, Bjarni Guðmundsson 2, Guð-
mundur 2, Alfreð Gíslason og
Þorgils Óttar Mathiesen eitt
hvor.
Erhard Wunderlich, Schwalb
og Neitzel voru atkvæðamestir í
jöfnu, sterku og baráttuglöðu liði
V.-Þjóðverja. „Við komum hing-
að til að leika við sterkt íslenskt
landslið og mæta erfiðum íslensk-
um áhorfendum og mínir menn
léku í 45 mínútur eins og ég vil að
þeir geri í Los Angeles“, sagði
Schoebel. Wunderlich, sem þó
klúðraði iHa nokkmm sóknum,
gerði 5 mörk, Schwalb 4, Neitzel
3, Paul, Springel og Fraatz 2
hver, Meffle, M. Roth og Rauin
eitt hver.
Hollensku dómararnir voru
afar slakir.
- VS
1. deild kvenna
Knattspyrna
Þrír leikir í 1.
Það er allt með róiegra móti á
íslandsmótinu í knattspyrnu um
helgina vegna Landsmótsins -
þrír leikir í 1. deild karla en eng-
inn í 2. deild.
í 1. deild verða tveir leikir á
morgun, laugardag. Valur og
Víkingur mætast á Valsvellinum
kl 14. og kl. 14.30 hefst leikur ÍA
og Þórs á Akranesi. Síðasta
viðureign 11. umferðar fer síðan
fram á Laugardalsvellinum kl.
20. á sunnudagskvöld en þar
eigast við Þróttur og Fram.
í 3. deild leika Grindavík og
Selfoss í kvöld og á morgun mæt-
ast Fylkir-Snæfell, Víkingur Ó.-
ÍK, Stjarnan-Reynir S. og HSÞ.
b-Austri. Leikið er í öllum riðlum
4. deildar og þar gæti mesta fjörið
orðið í Þorlákshöfn þar sem Þórs-
arar fá Hildibrandana lands-
þekktu úr Eyjum í heimsókn en
það er mikilvægur leikur f topp-
deild
baráttu B-riðils.
Staðan í 1. deild karla eftir
markaleikina í fyrrakvöld er
þessi:
ÍA..................10 8 1 1 17-7 25
ÍBK.................11 6 3 2 13-9 21
Víkingur............10 3 4 3 15-15 13
KA.................11 3 4 4 16-17 13
Þróttur...........10 2 6 2 9-8 12
Fram...............10 3 2 5 11-12 11
Breiöabllk.........11 2 5 4 10-12 11
Þór A..............10 3 2 5 12-15 11
KR.................11 2 5 4 11-19 11
Valur..............10 2 4 4 8-10 10
Ellefu
í gærkvöldi unnu Valsstúlkur
Víkingsstúlkur auðveldlega á
Valsvellinum og endaði leikurinn
11-0. Það er skemmst frá því að
segja að Valsstelpurnar yfirspil-
uðu algerlega og hefðu mörkin
þessvegna getað orðið fleiri.
Ema Lúðvíksdóttir og Ragnhild-
ur Sigurðardóttir skoruðu sín 3
mörkin hvor, Bryndís Valsdóttir
og Eva Þórðardóttir tvö hvor og
Guðrún Sæmundsdóttir skoraði
eitt mark í þessum vel spilaða leik
á góðum grasvelli Vals. Leik ÍBÍ
og í A sem einnig átti að fara fram
í gærkvöldi var frestað vegna
mörk!
þoku og leik UBK og KR var
frestað þar til í kvöld og fer hann
fram á Kópavogsvellinum, kl. 19.
Sjötta tilraun!
Leik ÍBV og ÍA í 16-liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ var frestað í fimmta
sinn í gærkvöldi. Enn hefur ekki verið
flugfært til Eyja og nú hefur leikurinn
verið settur á í sjötta sinn, á mánu-
dagskvöldið ki. 20.
Þá var frestað vðureign Einherja
og KS í 2. deild annað kvöldið í röð.
Sá leikur mun fara fram á Vopnafirði
kl. 14 á morgun, laugardag - ef veður
leyfir. - VS
ÍBKá
toppinn
Keflavíkurstúlkurnar tóku for-
ystuna í B-riðli 2. deildar kvenna
í síðustu viku er þær fengu Hvera-
gerði í heimsókn og sigruðu 2-1.
Elín Wiium kom gestunum yfir
en heimaliðið náði að svara tví-
vegis.
IR vann sinn fyrsta sigur, lagði
Stjörnuna að velli 2-1 og skomðu
þær Ása Geirdal og Ellen Erl-
ingsdóttir mörkin fyrir ÍR.
Úrslit í síðustu viku:
A-riðill:
Fylkir-FH........................5-1
Víðir-Grindavlk..................0-0
Haukar-Fram......................1-0
Fram-FH..........................2-1
fylldr...............5 4 1 0 17-2 13
Haukar..............5 2 2 1 4-2 8
Vfðir................5 2 2 1 3-2 8
Fram...............5 2 0 3 4-11 6
FH...................5 0 3 2 4-9 3
Grindavík............5 0 2 3 2-8 2
Helena Önnudóttir skoraði
sigurmark Haukastúlknanna.
B-riðill:
ÍBK-Hveragerði..................2-1
Afturelding-Selfo8s.............6-1
Stiarnan-ÍR......................1-2
(BK..................5 4 1 0 12-5 13
Hveragerði...........5 4 0 1 15-5 12
Afturelding..........5 3 11 18-9 10
ÍR...................5 1 1 3 7-16 4
Selfoss..............5 0 2 3 5-14 2
Stjarnan.............5 0 1 4 3-11 1
Liðin sem sigra í riðlinum mæt-
ast í úrslitaleik um 1 deildarsæti.
-VS
Föstudagur 13. júlí 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 23