Þjóðviljinn - 20.07.1984, Qupperneq 3
Verslunarmenn eru mínir menn.
Seljum öll fiskiskipin úr landi og
vatnsorkuna líka!
Angórakanínur
FRETTIR
Ríkisskip
Ovissa um eignarform
Fjárveiting náði aðeins út júnímánuð.
Ákveðið að greiða laun starfsmanna út júlí og ágúst meðan þrefað
er um framtíðarskipulag strandflutninga.
Allt er í óvissu um framhald á
rekstri Skipaútgerðar ríkisins.
Á fjárlögum þessa árs var 40 milj-
ónum veitt til fyrirtækisins sem
átti að duga uppí rekstrarkostnað
fram á mitt þetta ár. Þá átti að
liggja fyrir niðurstaða um nýtt
rekstrarform og breytta eigna-
raðild að fyrirtækinu en ekkert
nýtt hefur gerst í þeim málum.
„Þetta er allt í athugun og ég
veit að reksturinn hjá okkur
verður ekki stöðvaður meðan
þessi mál eru skoðuð nánar“,
sagði Guðmundur Einarsson
framkvæmdastjóri Ríkisskipa í
gær.
Fyrir tæpu ári síðan skilaði
starfsnefnd á vegum Samgöngu-
ráðuneytisins af sér áliti þar sem
m.a. var lagt til að Eimskip og
Hafskip tækju höndum saman
við Ríkisskip um strandflutninga
en ýmislegt var þá og er enn
óljóst um hvernig slíku samstarfi
yrði háttað.
Halldór S. Kristjánsson skrif-
stofustjóri samgönguráðuneytis-
ins sagði í gær að nær ekkert væri
að frétta af þessum málum.
„Menn eru að ræðast við en þetta
eru meira þreyfingar“.
Um fjárhagsstöðu Ríkisskipa
sagði Halldór að fjármálaráðu-
neytið hefði samþykkt að greiða
til viðbótar við fjárlög sem áttu
að duga út júní, laun starfsmanna
fyrirtækisins í júlí og ágúst. „Á
þeim tíma ætlum við að reyna að
ná einhverju saman um framtíð-
arskipulag í þessum efnum“,
sagði Halldór.
-lg-
Þrjú félög
stofnuð
Að undanförnu hafa þeir Jón
Eiríksson, bóndi í Vorsabæ á
Skeiðum og Ágúst Diðriksson,
bóndi í Litlu-Hildisey í Land-
eyjum verið á fundaferð um
landið til þess að kynna kanínu-
rækt. Með í förinni voru tveir
þýskir sérfræðingar og tvær
þýskar konur, en þar ytra er
vinna úr kanínuullinni heimilis-
iðnaður. Alls héldu þeir félagar 7
fundi.
Á fundunum voru fluttir fyrir-
lestrar um kanínurækt, sýning fór
fram á kanínubúum og ýmsum
áhöldum, sem notuð eru við bú-
skapinn og síðan báru menn fram
fyrirspurnir og spjölluðu saman.
Hvarvetna koma fram mikill
áhugi á þessari nýju búgrein. í
ferðinni var gengið frá stofnun
þriggja félaga áhugamanna um
kanínurækt og það fjórða er í
undirbúningi.
Álafossverksmiðjan vinnur úr
þeirri kanínuull, sem að þessa
hefur verið framleidd hér á landi
og er hún verðmæt útflutnings-
vara. Ýmsir gera sér vonir um að
hér sé í uppsiglingu álitleg auka-
búgrein. -mhg
Á Grímsstaðarholtinu, nánar tiltekið, við Þrastargötu, er verið að færa gömlu húsin í nýjan búning.Hann Árni Ragnar
Ámason, 11 ára, hefur átt heima á Þrastargötu 8 í níu ár. Fyrir einu ári var húsið tekið í gegn. Þetta hús er sýnidæmi um
það hvernig gömul hús verða skemmtileg með smá andlitslyftingu og þá sérstaklega hvað gluggarnir geta breytt miklu.
Mynd: Loftur
Útgerðin
Færsla á milli vasa
Fiskverðshœkkunin hefur lítið að segja
Útgerðarfélag Akureyrar að mati framkvœmdastjó
Petta gengur erfiðlega hjá okk-
ur eins og öllum. Fiskverðs-
hækkunin hafði lltið að segja
fyrir okkur þar sem við erum
bæði með útgerðina og vinnsl-
una. Þetta var ekki nema færsla á
milli vasa. Það er markaðsverðið
sem hefur allt að segja“, sagði
Gísli Konráðsson framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyrar.
Gísli sagði að nú væri staðan
Vínveitingaleyfi
Sextán umsóknir
liggja fyrir
Þegar hafa tólf staðir fengið leyfi það sem
Hjá Dómsmálaráðuneytinu
liggja fyrir sextán umsóknir
um vínveitingaleyfi. Þegar hafa
tólf staðir fengið leyfi sem af er á
þessu ári. Þetta kom fram í sam-
tali við Ólaf Waltcr Stefánsson
hjá Dómsmálaráðuneytinu.
Ólafur Walter sagði að nú þeg-
ar hefðu tólf staðir fengið vín-
af er þessu ári
veitingaleyfi, þar af sex í Reykja-
vík. Af þeim sex sem fengu leyfi
úti á landsbyggðinni eru þrír
sumarstaðir, þ.e. staðir sem að-
eins hafa leyfi til að selja vín um
sumartímann.
Af þeim sextán sem hafa sótt
um vínveitingaleyfi eru fjórir í
Reykjavík og tólf utan höfuð-
borgarsvæðisins, sagði Ólafur.
Aðspurður sagði Olafur að það
tæki mismunandi langan tíma að
fá leyfi eftir að umsókn hafi verið
send inn. Það þyrfti að fá ýmsar
umsagnir s.s. hjá sýslunefnd,
sveitarstjórn, bæjarstjórn eða
hreppsnefnd, svo og umsögn
áfengisvarnarnefndar, og
matsnefndar vínveitingahúsa.
HS
fyrir
ra fyrirtœkisins.
erfið á öllum mörkuðum. „Verð-
ið hefur ekki hækkað heldur hef-
ur þetta frekar verið á hinn veg-
inn. Þessa dagana hefur verið
nógur þorskafli hér á öllu Norð-
urlandi og allir hafa nóg að gera
og jafnvel vel það. Það er verið
að bjóða okkur fisk héðan og
þaðan. Við höfum verið að leita
að þorski hingað til en hann ekki
fundist fyrr en nú að alls staðar er
nóg af þorski í bili“, sagði Gísli en
togarar ÚA eiga einn óveiddan
meirihluta þorskveiðikvóta síns.
„Við fáum ekki meira út úr
þessu en söluverðið gefur og ég
held að engan langi í gengisfell-
ingar. Meðan við getum skrimt
þá höldum við þessu gangandi.
Ég sé ekki hvaðan fé á að koma til
að rétta þetta af svo mér þykir
erfitt að ætlast til þess af ríkis-
stjórninni að hún skapi þennan
rekstrargrundvöll sem við þurf-
urn að hafa. Það er ekki auðvelt
verk. En auðvitað þarf að gera
leiðréttingar þar sem óeðlilegur
gróði hefur safnast saman hjá
þjónustugreinum útgerðarinn-
ar“, sagði Gísli Konráðsson.
-lg-
Akureyri
Álvers-
andstæð-
ingar
Álversandstæðingar á Akur-
eyri munu efna til „uppákomu“ í
göngugötunni í dag föstudag.'
Ljúka þeir þarmeð af sinni hálfu
þeirri fyrstu umferð álslagsins
sem staðið hefur yfir nyrðra að
undanförnu. Þar verður bæði
kaffisala og tónlistarflutningur.
Söfnun undirskrifta er lokið, en
þó mun mönnum gefast færi á
því, að skrifa sig á lista þeirra á
föstudaginn. -þá
Húsnæðislán
Vextir
hækkaðir
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
hækka vexti á húsnæðisstjórnar-
lánum úr 2.25% í 3.5%. Hækk-
unin tekur ekki til eldri Iána.
Þessi hækkun var samþykkt á
ríkisstjórnarfundi nýverið og
hafði áður verið samþykkt í
stjórn Húsnæðismálastofnunar.
Hækkunin tekur gildi fyrir lán
sem tekin eru hjá stofnuninni frá
1. júlí sl. og fram til n.k. áramóta
en þá á að endurskoða vaxtakjör-
in.
Samkvæmt þessari ákvörðun
eru nú 3.5% vextir af öllum nýj-
um lánum til nýbygginga, kaupa
á eldra húsnæði en lán til útrým-
ingar á heilsuspillandi húsnæði og
endurbóta vegna sérþarfa bera
1% vexti. -Ig.
Arnarflug
Miklar annir
Mklar annir hafa verið í vöru-
flutningi til Evrópu undanfarna
daga vegna verkfalls hafnar-
verkamanna í Bretlandi. Er nú
flogið þrisvar á dag, einkum til
London og Amsterdam. Boeing
707 þota félagsins annast flutn-
ingana en hún flytur 42 tonn í
hverri ferð. Er cftirspurn eftir
þessari þjónustu svo mikil að
Arnarflug annar hvergi pönt-
unum.
Á fundi nýkjörinnar stjórnar
Amarflugs var ákveðið að
nafnverð nýrra hlutabréfa sem
aðalfundur félagsins ákvað að
bjóða til sölu skyldi verða 5, 10,
100,1000,10.000,100.000 ogein
miljón króna. Haukur Björnsson
var kjörinn formaður stjórnar-
innar en Axel Gíslason varafor-
maður.
Föstudagur 20. júlí 1984 pJÓÐVIUINN - SÍÐA 3