Þjóðviljinn - 10.08.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 10.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Albert bara situr - aðgerðalaus Albert Guðmundsson var í upphafi valda- tíma ríkisstjórnarinnar fremstur í gorti og stór- karlalegum yfirlýsingum um að nú yrðu hendur látnar standa fram úr ermum. Allt átti að standa - klárt og kvitt - í fyrirheitum hins nýja ráðherra. Hann tilkynnti um prósenturamma fjárlaga, prósenturammaerlendraskulda, pró- senturamma kauphækkana, sölulista yfir ríkis- fyrirtæki og margt annað sem nú átti að marka tímamót í stjórn ríkisfjármálanna. Þegar liðið er eitt ár blasir við sérkennileg niðurstaða. Ráðherrann sem ætlaði að vera sterki maðurinn í ríkisstjórninni situr nú bara aðgerðalaus í fjármálaráðuneytinu og hefur misst öll tök á atburðarás og stefnumótun. í stað þess að horfast í augu við sannleikann og sýna samkvæmni í orðum og athöfnum með því að taka slag við samráðherra sína eða segja af sér ella hefur Albert Guðmundsson greinilega kosið að sitja bara áfram í ráðherra- hægindinu. Stóllinn er honum kærari en stefn- an og verkin. Það er honum nóg að heita ráð- herra þótt atburðirnir sýni að hann sé orðinn áhrifalaus. Fyrsti þátturinn í þessari þróun hófst upp úr áramótum þegar hinir margfrægu prósentu- rammar Alberts á sviðum ríkisfjárlaga og launamála fuku út í veður og vind. Þau voru ófá stóryrtu viðtölin við blöð, útvarp og sjón- varp þar sem ráðherrann sór þess dýra eiða að þessir rammar væru traustirog myndu ekki haggast. Þeir reyndust svo bara vera úr ómerkilegri gúmmíteyju. Þegar búið var að toga þá út og suður og fyrri orð voru ómerk, greip Albert til léttvægra útúrsnúninga og sagði að í næstu lotu yrði sko staðið fast á prinsípunum. Sú lota hófst nánast um leið og hinni fyrstu lauk og þá komst hið fræga Albertsgat í brenni- depil. Þá átti að taka málin föstum tökum fyrir opnum tjöldum. Þjóðinni var lofað að hún fengi að fylgjast náið með sigurglímu ráðherrans við vandann. Það voru ekki liðnar nema fáeinar vikur þegar Albert fór að loka á allar upplýsing- ar. Á endanum sló hann öllu á frest, tók meiri erlend lán og fyllti gatið með bráðabirgða- bómull. Við þinglok var einnig Ijóst að frumvarpa- hrúgan sem lofað var í fyrrahaust um sölu á fjölda ríkisfyrirtækja var bara til í kollinum á ráðherranum. Ríkisforstjórarnir sátu áfram í sætum sínum útum allan bæ og virtist ríkis- báknið frekar vaxa en hitt þegar litið var á opinberar tölur. í sumar hafa Seðlabankinn og Þjóðhags- stofnun komist að þeirri niðurstöðu að er- lendar skuldir séu þegar komnar yfir 60% markið og stefni enn hærra. Albert hafði lýst því yfir í ársbyrjun að ef slíkt gerðist ætti ríkis- stjórnin að fara frá því að tilverugrundvöllur hennar væri þá brostinn. í stað þess að horfast karlmannlega í augu við þessar staðreyndir og breyta samkvæmt fyrri yfirlýsingum tók ráðherrann bara eins og krakki fyrir augun og lét eins og veruleikinn væri ekki til. Seðlabank- inn og Þjóðhagsstofnun væru bara að bulla. Hann ætlaði að sitja áfram enda vissi hann um forsendur sem Seðlabankinn hafði ekki upp- götvað. Þegar hinar svokölluðu aðgerðir ríkisstjórn- arinnar í vanda sjávarútvegsins voru ákveðnar komu Þorsteinn Pálsson og Halldór Ásgríms- son sér saman um að gefa út ávísanir á ríkis- sjóð og lofa ýmsum aðgerðum í fjármálaráðu- neytinu án þess að ganga frá slíkum ákvörð- unum við ráðherrann. Merkilega var að Albert lét sér það vel líka að valdið væri frá honum tekið fyrst hann fékk að halda tigninni. Einu útbrotin voru smánöldur í fjölmiðlum. Það er athyglisvert hvernig eitt ár hefur dug- að til að afhjúpa Albert. KLIPPT 0G SKORIÐ Mjúkir stólar Pað eru engin ný sannindi á ís- landi að þeir séu mjúkir, ráð- herrastólarnir, og erfitt að hífa sig upp úr þeim, hvað sem al- menningsálitinu líður og þrátt fyrir stórkarlalegar yfirlýsingar um annað. Klippari man ekki dæmi þess úr stjórnmálasögu síðari ára að menn hafi látið af slíkum stól, jafnvel þótt þeir væru með allt nið’rum sig eins og sagt er. Með siðaðri þjóðum er það þó fremur regla en undantekning að menn víki ef siðgætisvitund al- mennings er ofboðið með fram- ferði þeirra og þar er líka sú krafa gerð að menn standi við orð sín í þessum efnum sem öðrum. Hús og bíll En það er langt í frá að slíkt eigi við hér á landi. Eða hver man ekki húsið hans Halldórs E. Sig- urðssonar, þáverandi fjármála- ráðherra, og Bleiserinn hans Steingríms, svo tveir góðir frammarar séu nefndir? í þessum dæmum og mýmörgum öðrum hafa ráðherrar gengið svo fram af fólki að flestir hafa talið sjálfsagt að þeir segðu af sér eða bæðust afsökunar á mistökum sínum að minnsta kosti. En því er ekki að heilsa. Halldór lýsti því einfald- lega yfir með þjósti að allir vissu að skuldabréf þyrfti að greiða og húsið væri því alls ekki gjöf frá álfélaginu! Steingrímur setti upp sakleysissvip og sagði að hann sparaði ríkinu heilan helling með því að láta það gefa sér nýjan bíl! Svo ekki sé nú minnst á Tómas Árnason, sem sagði einfaldlega að bíla-„kaup“ sín kæmu engum við! Æ,já. Sem betur fer hafa ráð- herrar af þessu tagi samt látið sér nægja að gera sjálfum sér og sín- um flokki skömm til en nú er öldin önnur. Á undanförnum dögum hefur forsætisráðherrann gengið feti framar og að flestra mati gert ísland og íslendinga alla að athlægi vestur í Los Ange- les, þar sem hann spókar sig á kábojdressi og svindlar sér inn á Ólympíuleikana með nafnspjöld- um frá forsætisráðherraembætt- inu. Menn beinlínis skammast sín fyrir þennan fulltrúa þjóðarinnar á erlendri grund og er ekki nema von: alræmdustu forkólfar Banana-Iýðveldanna svokölluðu og heimsfrægir aftaníossar Bandaríkjanna létu aldrei taka sig svona í bólinu. Eða hefur ein- hver séð mynd af Marcosi íklædd- um öðru en útsaumaðri þjóðbún- ingsskyrtu þegar hann er á ferða- lögum erlendis? Efnahags- aðgerðir - Ekkert blaður Sem fyrr segir þarf enginn að hafa áhyggjur af því að Steingrímur fari að segja af sér af þessu tilefni, fremur en öðrum. Jafnvel þótt á bætist sú vanvirða sem forsætisráðherra sýndi með því að vera ekki viðstaddur emb- ættistöku forseta íslands, hvað þá sú staðreynd að á meðan á ólym- píuleikum hans stóð voru teknar afdrifaríkar ákvarðanir í efna- hagsmálum þjóðarinnar, sem enginn forsætisráðherra annars lands hefði látið fram hjá sér fara. Staðreyndin er sú-^ð menn eru löngu hættir að gera nokkrar sið- gæðiskröfur til þessara karla og upp er komin sá kvittur að Steingrímur hafi ekki bara tekið sér frí, - hann hafi verið sendur í burt svo hann færi ekki að blaðra rétt einn ganginn á viðkvæmum augnablikum í lífi ríkisstjórnar- innar. Það hlýtur þó að vera hægt að gera þá kröfu að maðurinn verði kyrrsettur og skandaliseri bara hér heima. Það er lágmark! 0g svo er það Albert En hvað sem sómatilfinningu ráðherra Iíður, þá er það sjald- gæft að stjórnmálamenn hér á landi setji sér ákveðið mark að keppa að og segi um leið að náist það ekki muni þeir víkja fyrir öðrum. Það var því eftir því tekið sl. vetur, þegar Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra lýsti því yfir í Þjóðviljanum að hann myndi segja af sér ráðherradómi ef erlenda skuldahlutfallið færi upp fyrir 60% af þjóðarfram- leiðslu. Þetta þótti tíðindum sæta, eða hver man ekki eftir sjónvarpsviðtalinu fræga, þegar kappinn lítur fránum augum yfir landslýð og segir með hroka: Hefurðu nokkurn tímann staðið mig að því að standa ekki við orð mín?! Hætt er nú við að svarið sé orð- ið að einum kröftugum já-kór, því nú er komið á daginn að þess- ar yfirlýsingar voru orðin tóm. „Ég sit áfram sem fjármálaráð- herra“, segir Albert og tekur ekkert mark á opinberum tölum sem sýna að skuldahlutfallið er komið upp fyrir hið setta mark. Hann ætlar ekki einu sinni að líta á þessar tölur fyrr en um áramót. Og hver segir svo að stólarnir séu ekki mjúkir? _ÁI DJÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans. Rltatjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fróttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur- dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp- héðinsson. Ljóamyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Lttllt og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur Haraldsson. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Auglýsingastjóri: ólafur Þ. Jónsson. Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasöiu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Á8kriftarverð á mánuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.