Þjóðviljinn - 10.08.1984, Page 9

Þjóðviljinn - 10.08.1984, Page 9
Þing- eyingar fara með friði „Ágústfriður“ Friðarhreyfing- ar Þingeyinga er nú á ferð um landið, og var tíðindamaður blaðsins viðstaddur fyrstu skemmtunina, sem haldin var að Höfn Hornafirði. Fyrri hluti dagskrárinnar felst í nokkrum stuttum fræðsluerind- um og vísnasöng. Að þessu sinni flutti séra Gunnar Kristjánsson hugvekju, Bergljót Ingvadóttir kynnti hugmyndir um friðarupp- eldi, og Þorsteinn Vilhjálmsson sagði frá afleiðingum kjarnorku- hernaðar. Eru þetta einhver bestu fræðsluerindi sem ég hef heyrt, - stutt, auðskilin og hnit- miðuð. Guðrún Hólmgeirsdóttir söng nokkur ættjarðar- og ástar- lög með miklum ágætum. Kamarorghestar byrjuðu síðari hluta dagskrárinnar með magnaðri uppákomu, en síðan spiluðu þau fyrir dansi. Þessir ís- lensku Kaupmannahafnarbúar flytja kraftmikið nýrokk, og eru kærkomin upplífgun í því tíðinda- leysi sem nú nlcir í íslenskum poppheimi. Aðeins eitt er að þessari dag- skrá að finna. Vegna mistaka við framkvæmdastjóm komu auglýs- ingar ekki upp í Homafirði fyrr en seint sama dag og skemmtunin var. Því komu aðeins um 40 full- orðnir, auk slatta af börnum. Dró þetta fámenni úr fjörinu, en við- staddir luku lofsorði á Kamarorg- hesta og samkomuna alla. gg Austurland Sveitar- félögin þinga Átjándi aðalfundur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjör- dæmi verður haldinn á Höfn í Hornafirði dagana 24. og 25. ág- úst n.k.. Á fundinum fara fram veqjuleg aðalfundarstörf en auk þess verða eftirgreind viðfangs- efni tekin til sérstakrar umfjöll- unar. 1. Staða verk- og tækni- menntunar á Austurlandi - Framhaldsskólinn í Neskaup- stað. Framsögumenn verða Smári Geirsson skólameistari og Einar Már Sigurðsson skólafull- trúi. 2. Skýrsla nefndar, sem skipuð var „til að gera úttekt og tillögur um samgöngukerfi, skipulag samgangna og flutningaþjónusta á Austuriandi“. Framsögumaður Ólafur Steinar Valdimarsson, ráðuneytisstjóri. 3. Atvinnumál á Austurlandi, - sjávarútvegur og fiskvinnsla. Gist verður að Hótel Höfn eftir því, sem húsrúm leyfir. Að öðru leyti verður fundarmönnum séð fyrir gistingu annarsstaðar. Árið- andi er að hafa sem fyrst sam- band við Árna Stefánsson hótels- stjóra í síma 97-8240 eða 8265, eða Sigurð Hjaltason í síma 97- 8700, og tilkynna þörf fyrir gistir- ými. - mhg UM HELGINA Norræna húsið Fimm ungir tónsmiðir íslandsdeild Ung Nordisk Mus- ik samtakanna heldur tónleika í Norræna húsinu næstkomandi sunnudag, 12. ágúst, kl. 17.00. Þar gefur að heyra tónlist fimm ungra tónsmiða sem sækja tón- listarhátíð UNM í Malmö 19. - 26. ágúst næstkomandi. Höfundamir eru Mist Þorkels- dóttir, Haukur Tómasson, Árni Harðarson, Lárus Grímsson og Atli Ingólfsson, en fluttur verður einleikur á flautu, sextett, raftón- list, og Hamrahlíðarkórinn syng- ur. Ágóði tónleikanna rennur til starfsemi UNM á íslandi. Gallery Lœkjartorg Blýants- teikningar Ólafur Sveinsson myndlistar- maður opnar sýningu 11. ágúst í Gallery Lækjartorgi. Á sýning- unni eru eingöngu blýants- teikningar. Ólafur sýndi síðast í Djúpinu allan síðastliðinn mán- uð. Sýningin í Gallery Lækjartorgi er 4. sýning Ólafs á þessu ári. Sýningin stendur til 19. ágúst og er sölusýning. Óperan Þjoölegt og alþjóðlegt íslenska óperan hefur á föstu- dagskvöldum í júlí og það sem af er ágúst boðið upp á sumardag- skrá til styrktar óperunni. Sú dag- skrá er með íslensku og erlendu efni, þjóðlegur bragur er yfir fyrri hlutanum en síðari hlutinn er samsettur af atriðum úr óperum, óperettum og söngleikjum. Fram koma óperusöngvarar ásamt kór íslensku óperunnar og allir end- urgjaldslaust. Skemmtun þessi hefst kl. 21.00. Stjórnandi og kynnir er Garðar Cortes og und- irleikari er Þóra Fríða Sæmunds- dóttir. Þau sýna á Kjarvalsstöðum. F.v.: Svala Jónsdóttir, Aðalheiður Valgeirsdóttir, Hildigunnur Gunnardóttir, Lára Gunnars- dóttir og Sigurbjörn Jónsson. Kjarvalsstaðir og teikningar Grafík Á morgun, laugardag, opna 5 ungír listamenn sýningu i austursal Kjarvalsstaða og eru á henni um 40 verk bæði grafik- myndir og teikningar. Sýningin er opin daglega kl. 14 - 22 en henni lýkur 26. ágúst. Þau sem sýna eru Aðalheiður Valgeirsdóttir, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Lára Gunnars- dóttir, Sigurbjörn Jónsson og Svala Jónsdóttir. Þau hafa öll út- skrifast úr grafi'kdeild Myndlista- oghandíðaskólans sl. 3 ár og reka nú saman verkstæði á Seltjarnar- nesi. - GFr Skálholtskirkja Enn barokk Á laugardag og sunnudag verða síðustu tónleikar á þessu sumri í Skálholtskirkju. Þar koma fram trompetleikarinn Ás- geir Steingrímsson og orgelleikar- inn Orthulf Prunner. Á efnis- skránni verður barokktónlist eftir Torelli, Vivaldi, J.S. Bach, Hándel og Purcell auk þess sem flutt verður stef úr Þorlákstíðum frá því á 13. öld. Ásgeir Steingrímsson lauk ein- leikaraprófi frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík árið 1979. Hann hélt eftir það til New York og lauk prófi frá Mannes College of Music árið 1983. Ásgeir hefur starfað í Reykjavík síðastliðið ár og komð fram á fjölda tónleika, meðal annars leikið einleik með íslensku hljómsveitinni og Sin- fóníuhljómsveit íslands. Orthulf Prunner er fæddur í Vín í Austurríki og stundaði þar orgelnám hjá Anton Heilier. Hann hefur haldið fjölda tón- leika í Skandinavíu, Sviss, Þýska- landi og Austurríki. Orthulf hef- ur búið á ísiandi um nokkurra ára skeið og starfar sem orgelleikari við Háteigskirkju í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 báða dagana og aðgangur er ókeypis. Hveragerði Gult og blátt Ólafs Th. Ólafssonar Gult og blátt eru áberandi litir á málverkasýningu Ólafs Th. Ól- afssonar sem opnuð verður í Fé- lagsheimili Ölfusinga í Hvera- gerði á morgun kl. 2. Ólafur útskrifaðist úr málunar- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands vorið 1979. Þetta er 5. einkasýning Ólafs. Áður hefur hann sýnt í Safnahús- inu á Selfossi, Gallerí Langbrók, í Fossnesti á Selfossi og í Þrastar- lundi við Sog. Auk þess tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni eru 40 myndir, unnar með olíulitum og bland- aðri tækni. Myndimar eru allar til sölu. Sýningin er opin kl. 14 - 22 um Ský og buxur, eitt málverka Ólafs helgar og kl. 16-22 virka daga og Félagsheimili Ólfusinga er við stendur til 19. ágúst. hliðina á Eden í Hveragerði. Föstudagur 10. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.