Þjóðviljinn - 30.11.1984, Side 1
ASÍ-þingið
ÞJÓÐMÁL
Fiskvinnslufólk
Vinnuslys ekki tilkynnt
Tveir afhverjum tíu árlega í vinnuslysi. Atvinnurekendur brjóta lög með að tilkynnaþau
ekki. Mikið bónusslit hjá fiskvinnslufólki. Fimmtungur kvenna með vöðvabólgu sem er
rakin til vinnunnar. Lœknar vanrœkja að tilkynna vinnusjúkdóma til Vinnueftirlitsins
Tveir af hverjum tíu sem vinna í
fiskvinnslu verða fyrir einu
eða fleiri vinnuslysum á ári
hverju. Tíundi hluti þeirra sem
slasast verður frá vinnu í viku eða
minna, en tvö prósent þeirra í
meir en mánuð. Þeir sem á annað
borð verða óvinnufærir eru að
meðaltali frá vinnu í 15 daga.
Þetta kemur fram í gagnmerkum
bæklingi um heilsufar og vinnutil-
högun fískvinnslufólks, sem
dreift var á ASÍ þingi í gær.
Annar af höfundum bæklings-
ins, Gyjfí Páll Hersir, sagði í við-
tali við Pjóðviljann að það hefði
jafnframt komið í ljós, að þrátt
fyrir þennan gífurlega fjölda
vinnuslysa, þá bærust Vinnueft-
irlitinu ekki nema 30 tilkynningar
um vinnuslys í fiskiðnaði á því ári
sem könnunin náði til. „Samt ber
atvinnurekendum tvímælalaust
lagaskylda til að tilkynna þau til
Vinnueftirlitsins", sagði Gylfi
Páll Hersir.
I bæklingnum kemur líka fram
að 71 prósent kvenna og 55 pró-
sent karla leita læknis sökum
sjúkdóma. Vöðvabólgaerlangal-
gengust meðal kvennanna en
þriðjungur þeirra þarf til læknis
útaf henni. Gylfi benti á, að
fimmta hver kona hefði fengið
staðfestingu læknis á að vöðva-
bólgu hennar hefði mátt rekja til
starfsins. Hins vegar hefðu á
könnunartímanum ekki verið til-
kynnt nema fjögur tilfelli um
sjúkdóma af svipuðu tagi til
Vinnueftirlitsins. Engu að síður
sagði í lögum um hollustuhætti að
læknum beri tafarlaust að til-
kynna til Vinnueftirlitsins fái þeir
„grun um að einstaklingar eða
hópar manna hafi orðið fyrir
skaðlegum verkunum vegna
vinnu sinnar“. Hvers vegna gera
læknar þetta ekki? spurði Gylfi
Páll.
„Þetta eru svakalegar upplýs-
ingar“, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður Dags-
brún á blaðamannafundi um út-
gáfu bæklingsins í gær, „og líklegt
að þær leiði til breytinga á bónus-
kerfi eða að það verði hreinlega
lagt niður“.
- ÖS/S.dór
Sjá bls. 5
Á Isamningurinn
Brestur
r
i
Framsókn
Magðalena M.
Sigurðardóttir
sat hjá
Þrátt fyrir mikla tilburði for-
ystumanna stjórnarflokkanna og
þá einkum Framsóknarflokksins
til að berja í brestina og reka sitt
lið ósundrað inn á þá niðurlæg-
ingarbraut sem samningur Sverr-
is Hermannssonar við Alusuisse
markar, tókst þeim ekki að ná
öllum sínum sauðum í hús.
Magðalena M. Sigurðardóttir,
eina konan í þingliði Framsókn-
arflokksins, sem nýkomin er á
þing sem varaþingmaður Vest-
fjarðakjördæmis, sýndi það hug-
rekki að neita að taka ábyrgð á
samningnum með hjásetu við at-
kvæðagreiðslu í Neðri deild AI-
þingis í fyrrakvöld.
ólg.
sjá bls. 7.
Dagvistarmál
Framlög
lækka!
Framlög til dagvistarmála eru
lægri samkvæmt fjárlagafrum-
varpi en í fyrra. Þau lækka úr
31.6 miljónum í fyrra í 30 miljón-
ir, þrátt fyrir allmikla verðbólgu.
Þetta kemur fram í grein sem Sól-
rún Gísladóttir borgarfulltrúi rit-
ar í Þjóðviljann i dag.
„Það er niðurskurður á öllum
sviðum", sagði Guðrún Helga-
dóttir þingmaður í gær, „ekki
bara til dagvistarmála, heldur til
fatlaðra og margra annarra þurft-
armála. Þetta er auðvitað skand-
all, það er eina orðið sem nær yfir
þetta“.
- m
Sjá bls. 11
ASÍ þingið
Flokks
böndin
bmstu
Karl Steinar
féll í kjöri vara-
manna í miðstjórn
Þau tíðindi gerðust á þingi ASÍ
í gær, að Karl Steinar Guðnason
varaformaður VMSÍ féll við kjör
varamanna í miðstjórn sam-
bandsins en þar hefur Karl átt
sæti. í hans stað var kjörin Valdís
Kristinsdóttir frá Stöðvarfírði.
Karl steinar hlaut 36.150 atkvæði
en Valdís 37.150.
„Ég hef engar skýringar á
þessu aðrar en þær að hér gengur
yfir mikil kvennabylting. Nafn
mitt var neðst á seðli, sem upp-
stillingarnefnd lagði fram, en
næst á eftir kom svo nafn Valdís-
ar, það gefur líka haft eitthvað að
segja.“
Telur þú að flokksböndin hafi
brostið?
„Það má vera, en ég held þó að
kvennabyltingin eigi stærri hlut
að máli“.
/ gcer héldu flestir þeirra sem í
kjöri voru til miðstjórnar fram-
boðsræður ef svo má að orði
komast, þú lést ekkert íþér heyra,
getur það haft eitthvað að segja?
„Ég veit það ekki, en ég hafði
bara engan tíma til að standa í
ræðuhöldum, ég var á fullu allan
daginn í nefndarstörfum. Mér
sýnist á því, hverjir náðu kjöri að
það skipti ekki máli hvort fólk
heldur ræður, er í nefndarstörf-
um, eða hreinlega situr ekki þing-
ið“.
Ertu sár útaf þessu?
„Þetta kom mér á óvart“
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður VMSÍ sagði um fall
Karls, að það væri afar óheppi-
legt. „Ég tel það í raun mjög al-
varlegt mál að fella varaformann
Verkamannasambandsins í þessu
kjöri“, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson. _ S.dór
Sjá bls. 5