Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 13
U-SÍÐAN
Skonsurnar
r
i
fyrsta
sæti!
skemmtiatriði. Vegleg peninga-
verðlaun eru veitt fyrir þrjú bestu
atriðin, sem eru valin af dóm-
nefnd skipaðri eldri nemendum
og nokkrum kennurum, alls 8-9
manns.
Miðvikudaginn 21. nóv. sl. var
svo haldin Valóvision 1984.
Margir voru mættir á staðinn því
þetta er einn af stærstu viðburð-
um í félagslífi Valhýsinga.
Að þessu sinni voru 8 atriði á
dagskrá, sjö eftirhermur og eitt
frumsamið. Fram komu Eiríkur
Fjalar, Tveir negrastrákar, Ban-
anatríóið, The Goodies, Skon-
surnar, Dial Disco Band, Dolli
og Doddi og Guðjón Guðjónsson
og Co.
Eftir að flutningi laganna var
lokið dró dómnefndin sig í hlé.
Mikil spenna ríkti í húsinu. En að
lokum, úrslitin voru ráðin. Full-
trúi dómnefndar tilkynnti að
Skonsurnar (6 stelpur úr 8. bekk)
hefðu hlotið 1. verðlaun, 1000 kr.
í öðru sæti varð Bananatríóið
með lagið „Vertu ekki að plata
mig“ og í þriðja sæti urðu þrír
félagar með hugljúfa spánska
ballöðu, Benidorm.
í lokin endurtóku Skonsurnar
The Dial Disco Band (Bjössi, Rúnar og Leifur) urðu í þriðja sæti með
spönsku ballöðuna Benidorm. Hér sjáum við þá Bjössa og Rúnartaka sóló af
mikilli innlifun Mynd: Svala.
í Valhúsaskóla á Seltjarnar- sem nemendur velja sér lag til að
nesi er árlega haldin svokölluð herma eftir. Ef vel tekst til geta
Valóvision, en það er keppni þar þetta orðið hin bestu
„Kondu meeð, ég bið, kondu meeeð". Bananatríóið varð í 2. sæti með
þetta vinsæla lag. F.v. Jón Oddur, Ragnheiður, Palli og Þóra. Mynd: Svala.
The Goodies fluttu lagið Funky gibbons en komust ekki í fyrstu þrjú sætin.
The Goodies skipuðu þeir Eddi, Krissi, Gaui og Pétur, en á myndinni sjáum
við f.v. Edda, Pétur og Krissa. Mynd: Svala.
svo atriði sitt við mikinn fögnuð Því miður eru engar myndir af
viðstaddra. Síðan héldu allir út á Skonsunum en vonandi bæta hin-
dansgólfið. ar það upp. - Aþ.
„Ég vona að þú segir ekki nei við mig...“ Ragnheiður og Þóra. Mynd: Svala.
Náum hrekkjusvíninu
Keppni
Ritgerðasamkeppni
Keppnifyrírskólafólk um íslenskan iðnað og
málefni honum tengd
Fyrr á þessu ári efndi
Landssamband iðnaðarmanna til
ritgerðarsamkeppni skólafólks
um íslenskan iðnað og málefni
honum tengd. Skilafrestur var 1.
desember, en nú hefur verið
ákveðið vegna röskunar verk-
fallanna á skólastarfið að lengja
hann til 15. feb. 1985.
Tilgangurinn með samkeppni
þessari er að vekja ungt fólk, sem
senn kemur út á vinnumarkaðinn
og fyllir hóp neytenda, til
umhugsunar um gildi íslensks
iðnaðar og iðnþróunar fyrir ís-
lenskt þjóðlíf. Þátttaka í keppn-
inni er heimil öllum skólanem-
um, jafnt nemendum í grunn-
skólum sem framhaldsskólum.
Við mat á gildi ritsmíðanna verð-
ur að sjálfsögðu tekið tillit til
aldurs og menntunarbrauta þátt-
takenda, þannig að allir eiga
jafna möguleika.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár
bestu ritsmíðarnar. 1. verðlaun
kr. 25.000, önnur verðlaun kr.
15.000 og þriðju verðlaun kr.
10.000. Að auki verða veittar 10
viðurkenningar fyrir ritgerðir
sem dómnefndin telur athygli
verðar. Og sem fyrr segir þá verð-
ur skilafrestur framlengdur til 15.
febrúar 1985. Áþ.
Sem dæmi um efni í ritgerð sem framkvæmdastjórnin nefnir af handahófi er „Nýiðnaður, orkumál og stóriðja". En
á myndinni sjáum við hiðglæsilega álver „okkar" (slendinga.
Föstudagur 30. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13