Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 5
Lofsvert framtak Bœklingur um aðbúnað og kjör fiskvinnslu- fólks kom út í gœr. Dreift af VMSÍ og ASÍ y * Igær var dreift á þingi ASI mjög merkum bækling um heilsufar, vinnutiihögun, aðbúnað og félagslegar aðstæður fiskvinnslufólks. I bæklingnum er að finna stórkostlega merkilegar upplýsingar um sjúk- dóma og slys sem tengjast greininni, einsog greint er frá á forsíðu Þjóðviljans í dag. Höfundar bæklingsins eru Gylfi Páll Hersir og Sigurlaug Gunnlaugsdóttir, en hann er unninn upp úr könnun sem Vinnuvernd- arhópurinn svokallaði gerði og kostuð var af Norrænu Ráðherranefnd- inni. Útgáfa bæklingsins er fjármögnuð af ASÍ og VMSÍ. „Hann er prentaður í um 5000 eintökum, og verður vonandi dreift á öli verkalýðsfélög í landinu", sagði Gylfi Páll Hersir í stuttu spjalli í gær. Von er á öðrum bækling um kjör og aðbúnað starfsfólks í fata- og vefjariðnaði. Bæklingurinn er læsilegur og fallega upp settur, troðinn af merki- legum upplýsingum og ætti að gagnast verkalýðshreyfingunni vel. ASÍ og VMSÍeiga hrós skilið fyrir að sjá til þess að hann kemst fyrir almenningssjónir. _qc y Miðstjórnarkjör Oskar Vigfússon efstur Karl Steinar felldur af varamannalista Talsverð spenna ríkti um úrslit miðstjórnarkjörs, sérstaklega eftir að ákveðið var að birta ekki úrslit fyrr en morguninn eftir kjörið. í gærmorgun kom svo í Uós, að engin óvænt úrslit höfðu orðið, tillaga kjörnefndar fór í gegn. Eftirtaldir voru kjörnir í miðstjórnina og innan sviga er vægi atkvæða sem þeir hlutu: Óskar Vigfússon (53. 825), Kristín Hjálmarsdóttir (53.800), Aðalheiður Bjamfreðsdóttir og Guðjón Jónsson voru jöfn (53.300), Hansína Stefánsdóttir (52.950) , Benedikt Davíðsson (52.475), Ragna Bergmann (51.925), Jón A. Eggertsson (50.825), Jón Helgason (50.650), Guðmundur Þ. Jónsson (50.625), Þóra Hjaltadóttir (49.550), Guð- mundur Hallvarðsson (48.325), Guðmundur J. Guðmundsson (47.550), Karvel Pálmason (46.950) , Magnús Geirsson (46.625), Guðrún Thorarensen (45.800), Þórður Ólafsson (43.750) og Hilmar Jónasson (42.750) . Sem varamenn voru kjörin Bjami Jakobsson, Guðmundur M. Jónsson, Halldór Björnsson, Hrafnkell Jónsson, Ingibjörg Óskarsdóttir, Karítas Pálsdóttir, Sigrún Clausen, Úlfhiidur Rögnvaldsdóttir og Valdís Krist- insdóttir. Helstu fregnir úr því kjöri vom að Karl Steinar Guðnason féll af lista kjörstjórnar. -ÖS Konur Tímamótaþing Kristín Hjálmarsdóttir frá Akureyri fékk nœstflest at- kvœði í miðstjórnarkjöri ASÍ Maður verður að telja þetta ágæta byrjun á að efla hlut kvenna innan ASI, en ég vil taka það skýrt fram að ég tel það ekk- ert lokatakmark 'að fá 7 konur inní 21 manna miðstjórn sam- bandsins, síður en svo, sagði Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju á Akureyri, en hún var ein sjö kvenna sem kjörin var í mið- stjórn ASI. Þykir þér sem hlutur kvenna hafi verið fyrir borð borinn í verkalýðshreyfingunni? „Að sumu leyti þykir mér það, en mér sýnist nú hilla undir það að því sé að ljúka, allavega vil ég vona að svo sé“. Eru það einhver mál öðrum fremur, sem þú munt leggja áherslu á innan miðstjórnar ASÍ? „Já, ég ber mjög fyrir brjósti hag ófaglærðs verkafólks og ég mun leggja sérstaka áherslu á að það eigi kost á starfsmenntun. Segja má að því máli hafi lítið sem ekkert verið sinnt. Það ættu í raun allir að sjá nauðsyn þess að gefa fólki í iðnaði kost á starfs- menntun, svo ég tali nú ekki um ef við ætlum að byggja upp nú- tíma iðnað hér á landi. Menn mega ekki gleyma því að iðnaður er mjög sérhæft starf og nauðsyn Krístín Hjálmarsdóttir ber að mennta starfsfólk í greininni. Slík menntun myndi að mínum dómi auðvelda okkur að lyfta upp launum fólks, sem í dag hefur hvað lægst laun í landinu. Auk þess myndi þetta auka virð- ingu fólks fyrir störfum í iðnaði". Svo við snúum okkur aðeins aftur að miðstjórnarkjörinu, heldur þú að svo margar konur hefðu náð kjöri efekki hefði verið fjölgað í miðstjórn? „Nei, ég tel það mjög hæpið. Þó vil ég taka það fram að ég finn fyrir auknum samtakamætti kvenna hér á þessu þingi, samtakamætti sem nær útfyrir hin flokkspólitísku bönd. Að þessu leytinu tel ég þetta ASÍ þing vera tímamótaþing“. Heldur þú að konur eigi auðveldara með að hrista af sér flokksbönd á þingi eins og þessu, en karlar? „Ég hygg það. Konur eru ekki eins grónar í pólitísku starfi og karlar og eiga þess vegna léttara með að hrista af sér flokksböndin þegar þeim þykir nauðsyn bera til.“ Kom þér kjör þitt á óvart og hve mörg atkvoeði þú fékkst við mið- stjórnarkjörið? „Já, það kom mér á óvart að fá næst flest atkvæðin og eiginlega kom mér kjör mitt á óvart. Hins- vegar má benda á að það lá ljóst fyrir eftir að ákveðið var að fjölga í miðstjóm að einn af þeim sem við bættist væri úr hópi iðnverka- fólks, annað hefði ekki verið sanngjarnt. Nei, ég kvíði því engu að taka til starfa í miðstjórn ASÍ, ég er vön félagsmálastarfi og ekkert óvön því að starfa með körlum. Það samstarf hefur alltaf gengið vel.“ - S.dór Ég hlakka til Hansína Stefánsdóttir frá Selfossi: Hlutur kvenna verði í samrœmi við hlutfall þeirra á vinnumarkaði egar tilkynnt voru úrslit í mið- stjórnarkjöri á þingi ASÍ kom í Ijós að sjö konur höfðu náð kjöri en aðeins tvær konur áttu sæti í síðustu miðstjórn sambandsins. Ein þessara kvenna er Hansína Stefánsdóttir frá Selfossi. Við spurðum Hansínu hvort henni þætti hlut kvenna borgið innan ASÍ með þessari fjölgun. „Ég veit ekki hvort hlutur kvenna er nógu stór, en hann hef- ur vissulega stækkað og þetta hlýtur bara að vera áfangi í þeirri þróun að hlutur kvenna verði í samræmi við þátttöku þeirra í at- vinnulífinu“. Vildir þú að konur vœrufleirí í miðstjórninni nú? „Það er erfitt að svara því, enda hlýtur það alltaf að fara eftir einstaklingum sem eru í framboði og því fólki sem velst til starfa hverju sinni, hvort sem það eru konur eða karlar". Nú er þetta ífyrsta sinn, sem þú situr ASl þing, hvernig líst þér á? „Mér líst í sjálfu sér vel á þessa samkomu, jafnvel mun betur en ég átti von á miðað við þær sögu- sagnir sem ég hafði heyrt af ASÍ- þingum. Það er vissulega fjöl- mennt, en ég held að það sé ekki of fjölmennt, ég teldi lakara að fækka þeim.“ Þú situr nú þitt fyrsta þing og ferð beint inní miðstjórn, kom það þér ekki á óvart? „Að sumu leyti. Ég átti ekki von á því þegar ég lagði af stað til þings, og ég átti heldur ekki von á því að ég nyti þess trausts sem komið hefur í ljós, eftir að þingið var hafið. Ég er hinsvegar afar þakklát fyrir þetta traust sem mér er sýnt og vona að ég standi mig. “ Finnst þér gaman að félags- málastörfum? „Alveg sérstaklega, maður er í miklu sambandi við fjölda manns alla daga og það er afar gaman að geta leyst úr vandamálum fólks, Hansína Stefánsdóttir sem til manns leitar.“ Þannig að þú kvíðir því ekki að setjast í miðstjórn ASI? „Þvert á móti, ég hlakka til og tel víst að það verði ánægjulegt sem þar bíður manns". _ S.dór Fcstudagur 30. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.