Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 16
Aðalsíi’ni: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. uúðviuinn Föstudagur 30. nóvember 1984 238. tölublað 49. árgangur Raufarhöfn Náðu í bjórinn aftur Lögreglan á Raufarhöfn hafði í nógu að snúast um síðustu helgi. Skipverjar á loðnubát sem þangað kom til löndunar höfðu háreysti í frammi og er Iögreglan kannaði málið kom í ljós að um borð í skipinu sem var nýkomið úr siglingu voru rúmlega 30 kass- ar af bjór. Lögreglan gerði bjórinn upp- tækan og kom honum í geymslu á lögreglustöðinni. Daginn eftir þegar löggæslumenn mættu til vinnu sinnar sáu þeir að búið var að brjótast inn í stöðina og hluti bjórkassanna horfinn og loðnu- báturinn sigldur sinn sjó. Beinist grunur manna nyrðra að skipverjum en óhægt er um vik að sanna þann grun. -lg- Flotinn Stærri loðnukvóti? r Eg er ekki trúaður á að til enn : ■frekari stækkunar komi í loðn- ukvótanum, en það er þó ekki úti- lokað. Við munum fara út í leiðangur eftir áramótin og sjáum hvað kemur útúr því, sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur er Þjóðviljinn ræddi við hann í gær. Hjálmar sagði að oft hefði kvótinn verið rýmkaður nokkuð eftir hinn árlega rannsóknarleið- angur eftir áramótin. Nú væru minni líkur til að svo verði að þessu sinni, vegna þess að eigin- lega er búið að rýmka kvótann það mikið í haust, sagði Hjálmar. Hann sagði að það væri ekki úti- lokað að þeim hefði yfirsést eitthvað af loðnu í þeim leiðöng- rum sem farnir hafa verið í haust. Það væri þá á vestursvæðinu ef svo væri. Aðspurður um hvort það kæmi ekki á óvart að þetta mikla loðnu- magn nú væri loðna sem væri af- Hjálmar Vilhjálmsson: Mögulegt, en fráleitt öruggt vegn rakstur einhvers minnsta hrygn- ingarstofns loðnunnar sem vitað væri um, 160 þús. lesta: Nei, í sjálfu sér ekki, vegna þess að klakið tókst með afbrigð- um vel, vegna hagstæðra skilyrða í hafinu. Eg hef að vísu sagt að hrygningarstofninn mætti varla vera minni en 400 þús. lestir, en samt tel ég að 160 þúsund lestir séu ekki fyrir neðan það mark sem getur gefið góðan afrakstur, ef skilyrði í hafinu eru góð, sagði Hjálmar. -S.dór Súgandi Allir nema einn sátu hjá Menn vildu sýna hug sinn til hinna nýgerðu samninga og stjórnarinnar segir formaður félagsins r A fundi verkalýðsfélagsins Súg- n and ida í Súgandafirði í fyrra- kvöld greiddi aðeins einn fundar- manna atkvæði með nýgerðum kjarasamningum ASÍ og VSÍ, all- ir aðrir fundarmenn sátu hjá. „Það var mikill urgur í mönnum vegna aðgerða stjórnvalda og hvernig vegið hef- ur verið að verkalýðshreyfing- unni. Snemma á fundinum kom fram tillaga um að menn sætu hjá við atkvæðagreiðsluna og sýndu þannig hug sinn til þessa samn- ings og aðgerða ríkisstjórnarinn- ar“, sagði Sveinbjörn Jónsson formaður verkalýðsfélasins Súg- anda í samtali við Þjóðviljann í gær. Á fundinum var einnig sam- þykkt einróma að segja upp launaliðum sjómannasamninga. -*g- WKi Branduglan er óðum að hressast og að verða til í flugið. Mynd-E.ÖI. Grútarmengun Uglan frískast Leitaði skjóls á loðnuskipi Það eru fleiri sjaldgæflr fuglar í þvotti og hreinsun á Náttúru- fræðistofnun en haförninn sem kom þangað í fyrradag. Fyrr i mánuðinum var komið þangað með branduglu sem hafði leitað ásjár hjá skipverjum á Eldborg- inni er þeir voru á loðnuveiðum norður í höfum. Uglan hafði lent í grút og átti í erflðleikum með flugið. „Ég held hún sé nær alveg búin að ná sér. Fiðrið var ansi illa farið þegar við fengum hana en hún hefur verið þvegin nokkrum sinn- um og þetta hefur náðst ágætlega úr henni“, sagði Ævar Petersen er hann kynnti blaðamenn fyrir uglunni. Hún hefur látið vel af þeim sem hafa annast hana und- anfarna daga og eins vandist hún fljótt skipverjum á Eldborginni, en er vör um sig þegar ókunnir koma í heimsókn. Branduglan fær að fara til sín heim af hjúkrunardeild Náttúr- ufræðistofnunar nú næstu daga, þannig að ekki þýðir að senda henni kveðju í óskalögum sjúkl- inga héðan í frá! -Ig. vaxtareikningur VÖRNGEGN VEFÐBÓLGU Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. / C Betrí kjör bjóðast varia. #Samvinnubankím

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.