Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 30.11.1984, Blaðsíða 2
FRETTIR Loðnuviðbótin Bílslys Lítill drengur fórst Það hörmulega slys varð á Móðir barnsins sem ók bifreið- gatnamótum Þoríókshafnar- jnnj 0g þnggja ára sonur hennar vegar og Ölfusvegar að fólksbif- voru flutt á Borgarspítalann en reið rakst á langferðabifreið með þau eru ekki alvarlega slösuð. þeim afleiðingum að tveggja ára Talið er að sólin hafi biindað öku- gamall drengur sem var farþegi í mann fólksbifreiðarinnar. fólksbflnum beið bana. -Ig. Eykur þjóðar- framleiðslu Frystitogarar um 4 prosent Iþjóðhagsspá fyrir þetta ár spáði Þjóðhagsstofnun um 5.5 prósent framleiðsluaukningu frá árinu á undan. Vegna fyrirsjáan- legs samdráttar í þorskveiði þar sem ekki næðist að veiða að fullu upp í leyfiiegankvótahafði stofn- unin reiknað með að framleiðslu- aukningin yrði 1-1.5 prósent minni en áður var ráðgert. Aukning loðnukvótans fyrr í haust og aftur núna hefur hins vegar gjörbreytt þessari mynd. Rósmundur Guðnason starfs- maður Þjóðhagsstofnunar sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að hinn aukni loðnukvóti myndi þýða um 4 prósent framleiðslu- aukningu á árinu. í heildina tekið yrði ársframleiðsluaukningin því um 7.5 prósent. Það er nærri 2 prósent meiri en reiknað var með í þjóðhagsspá að teknu tilliti til samdráttar í þorskveiði. -Ig. Gróðafyrirtæki Það kom fram I ræðu formanns LÍÚ á aðalfundi sambandsinr fyrir skömmu að mjög góð reynsla væri komin á frystitogar- TORGIÐ Flokksböndin brustu þegar Karl Steinar féll fyrir Valdísi á ASÍ-þinginu. En sokkaböndin héldu. ana, sem vinna aflann um borð. Sagði Kristján að reynslan gæfi ástæðu til bjartsýni og hugleiði nú nokkrir aðilar að láta breyta tog- urum sínum með það fyrir augum að vinna aflann um borð. Síðan sagði Kristján: „Nokkur reynsla er nú komin á útgerð togara sem vinna aflann um borð. Gefur sú reynsla á- stæðu til bjartsýni um þessa út- gerð og hugleiða nú nokkrir aðil- ar að láta breyta skipum sínum í þeim tilgangi að vinna aflann um borð. Ekki verður um það að ræða að stórum hluta flotans verði breytt á þennan veg, en framleiðsla þessara skipa er mjög eftirsótt vegna ferskleika fisksins þegar hann er frystur. Ljóst er að nýting véla og tækja er miklu betri um borð í þessum skipum, því þau nýtast 24 stundir á sólarhring 7 daga vikunnar í stað þess að þau nýtast oft ekki nema 8 stundir 5 daga vikunnar í landi. Nýting véla og tækja í frystihúsum okkar stenst ekki samanburð við notk- unartíma í samkeppnislöndunum eins og Kanada þar sem vart þekkist annað en að vinna á tví- skiptum 8 tíma vöktum í frysti- húsum.“ -S.dór Stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson bassi (t.h.) og Jónas Ingimundarson píanóleikari efna til tónleika í Háskólabíói á morgun kl. 14.30. Kristinn hefur að undanförnu verið við söngnám vestra í Bandaríkjunum og nýkomin er plata meö honum hér heima. Hinn heimsþekkti söngvari William Parker mun hafa sagt er hann heyrði í Kristni fyrir nokkrum árum: Fyrir þessa rödd er enginn salur nógu stór nema Camegie Hall. Þess skal að lokum getið að um jólin mun Kristinn syngja nautabanann í Carmen í nokkrum sýningum hjá íslensku óperunni. -GFr Unglingar 98% hlusta á rástvö 19% unglinga lesa Þjóðviljann, 94% Moggann Tveir þriðju reykvískra ung- linga horfa á sjónvarp á hverju kvöldi, en sjónvarpsglápið minnkar með aldrinum, öfugt við dagblaðalestur. Nánast allir frá 13 til 17 ára hlusta reglulega á rás tvö, helmingur á kanann. Þetta eru fáeinir fróðleikspunktar úr könnun Adolfs H. Emilssonar á Qölmiðlaneyslu unglinga f Reykjavfk. í janúar á þessu ári lagði Adolf spumingar fyrir úrtak nemenda í reykvískum skólum og em niður- stöður þessarar könnunar nú orðnar lokaprófsverkefni í fjöl- miðlafræðum við háskólann í Gautaborg. „íslenskur æskulýð- ur neytir fjölmiðlaefnis í ríkum mæli, að minnsta kosti til jafr.s við sænskan, ef ekki gott betur“ segir meðal annars í ritgerð Adolfs, og þar er einnig upplýst að hingað til hafa sænskir ung- lingar verið haldnir mestir fjöl- miðlaneytendur á heimsbyggð- inni að bandarískum sjónvarps- sjúklingum einum undan- skildum. Meðal niðurstaðna í fróðlegri ritgerð Adolfs má nefna að reykvískir unglingar em tíðir Laxeldi Hreisturios á sjókvíalaxi Lloyds sendi sérfrœöing að skoða laxinn íHöfnum. Óvíst hvað veldur reisturlos á laxí sem alinn er upp í sjókvíum við Hafnir á Reykjanesi hefur valdið eigend- um stöðvarinnar talsverðu tjóni og því hefur slátrun á laxinum hafist fyrr í ár en venjulega. Hreisturlos kom einnig upp í fyrra og bætti breska tryggingafé- lagið Lloyds þá tjónið vegna þess eldisflsks sem ekki var hægt að selja. Óvíst er hvað veldur. Jón Gunnlaugsson einn eigenda Sjóeldis í Höfnum sagði í samtali við Þjóðviljann að þetta lýsti sér þannig að 2-3 flögur losn- uðu af fiskinum. Þegar frá liði kæmi sár þar sem losið hefði ver- ið og því hefði verið ákveðið að hefja slátmn í fyrra lagi þetta árið. „Það er ekki nema einstaka fiskur sem hefur lent í þessu og það er engin baktería í þessu. Þetta er alveg meinlaust en það er einhver frumorsök að þessu sem við vitum ekki ennþá hver er.“ Tryggingafélagið Lloyds sendi hingað fyrir skömmu breskan sérfærðing í fiskisjúkdómum til að kynna sér hreisturlosið í Höfnum en einnig hefur Sigurður Helgason fisksjúkdómafræðing- ur á Keldum haft þetta mál til rannsóknar. „Ég hef ekkert heyrt frá þeim í Lloyds og við höfum ekki haft samband við þá síðan þeir sendu hingað þennan sérfræðing. Ég hef enga trú á öðru en þeir bæti þetta tjón, annars hefðu þeir varla samþykkt að tryggja hjá okkur áfram eftir síðustu bóta- greiðslu" sagði Jón Gunnlaugs- son. . -lg- gestir kvikmyndahúsa, um 90% fara á bíó a.m.k. einu sinni í mán- uði og yfir fimmtungur minnst vikulega. Myndbandatæki eru á þriðja hverju heimili, og 22% að- spurðra horfa á vídeó þrisvar í viku eða oftar. Höfundur telur myndbandagláp unglinga í Reykjavík þó ekki mjög mikið. Strákar glápa meira en stelpur. Dæmigerður myndbandaung- lingur býr í Breiðholti.á heima- móður og föður sem ekki hefur mikla menntun. Morgunblaðið og DV hafa yfirburði á unglingamarkaði sem annars staðar, lesin af yfir 90% spurðra, Tíminn og Þjóðviljinn af um 20%. Teiknimyndir eru vin- sælastar, poppsíður líka. fþrótta- síður les um helmingur oft eða alltaf, en menning og pólitík fara heldur halloka, og um þau kyk- vendi lesa aðeins um 15%. Áhugi á menningar- og stjómmálum eykst mjög með aldrinum. Og í janúar var David Bowie vinsælasta poppstjama reyk- vískra unglinga samkvæmt könn- un Adolfs. Næstir: Duran Duran, Paul Young, Culture Club, Bubbi Morthens og Michael Jackson, í þessari röð. Niður- stöður ritgerðarinnar eru mjög traustlegar - en þessi vinsælda- listi er ömgglega orðinn úreltur: í heimi unglinga er tíminn fugl sem flýgur hratt. -m

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.