Þjóðviljinn - 30.11.1984, Síða 3

Þjóðviljinn - 30.11.1984, Síða 3
FRETTIR Iðnaðarráðherra Uppsagnir á Orkustofnun Þrjátíu störf undir hnífinn í kjölfar Hagvangsskýrslu. Ekki upplýst hvar á að skera. Lagt til að hœkka taxta á þjónustu við ríkisfyrirtœki og hitaveitur. Starfsmenn segja að Hagvangur skilji ekki rannsóknarstarf ogfari ódrengilegar leiðir. Verður Orkustofnun að hlutafélagi? Igær hélt Sverrir Hermannsson fund með biaðamönnum og kynntu skýrsiugerðarmenn Hag- vangs þar hugmyndir sínar um „umfangsminnkun mannaflalega séð“ á Orkustofnun. Iðnaðar- ráðuneytið hefur ákveðið að segja upp 16 starfsmönnum og vinna að uppsögnum 5 til við- bötar auk þeirra 9 sem hafa hætt síðan í fyrra. Jónas Elíasson stjórnarformaður stofnunarinn- ar sagðist „eftir atvikum ánægð- ur“, en hvorki hann, orkumála- stjóri né Hagvangsmenn vildu upplýsa hvar hagræðingarhníf- inn bæri niður. Reikningur Hag- vangs fyrir skýrsluna er 1.779.079 krónur. Sverrir Hermannsson sagði að Orkustofnun væri traust og góð stofnun, en sitthvað mætti betur fara. Hann kvað samstarf um hagræðinguna hafa verið með ágætum og að samvinna Hag- vangs, ráðuneytis og yfirstjórnar stofnunarinnar væri hrósverð. Á fundinum las formaður starfsmannafélags Orkustofnun- ar upp álit starfsmanna á skýrslu Hagvangs og afleiðingum hennar og kvað þar við annan tón: fé- lagið telur Hagvang hafa farið „ódrengilegar leiðir við fram- kvæmd tillagna um fækkun starfsmanna“, álítur að Hagvang- ur „skilji ekki eðli langtíma- rannsókna" og séu tillögurnar þessvegna ekki marktækar, efast um tæknilega getu Hagvangs til að endurskoða rannsóknarstofn- anir, segir að úttektin hafi raskað vinnufriði og starfsgleði,- og tel- ur tillögur um uppsagnir og sam- drátt í engu samræmi við niður- stöður skýrslunnar sjálfrar! í Orkustofnun starfa nú um 150 manns. Hagvangsmenn telja tillögur sínar geta sparað 15-20 milljónir. Meðal tillagna þeirra er að hækka taxta á útseldri vinnu frá stofnun- inni, en helstu viðskiptavinir eru önnur ríkisfyrirtæki (Landsvirkj- un, Rarik) og almenningshita- veitur. Þeir vilja athuga um að flytja nokkrar deilda yfir til ann- arra ríkisstofnana og gera úr sumum hlutafélög. Raunar gera QL-skák Sovét tapar Okkar skákir flestar í bið Sovétmenn töpuðu í gær í fyrsta sinn á þessu ólympíumóti og það fyrir Bandaríkjamönnum sem þeir hafa unnið hingað til. Þrátt fyrir ósigurinn (IV2-2V2) hafa þeir trausta forystu í karla- flokknum, og raunar í kvenna- flokki líka. Þrjár skáka íslensku karla- sveitarinnar gegn Kínverjum fóru í bið. Stöður Helga og Mar- geirs eru tvísýnar en jafntefli er sennilegt í skák Jóhanns. Jón L. vann skák sína á fjórða borði. Fengur kvennanna varð ekki mikill gegn Sviss, og er þó enn von á einum í biðskák Ólafar. Guðlaug og Sigurlaug töpuðu sínum skákum. Hagvangsmenn tillögu um að breyta Orkustofnun sjálfri í hlutafélag en hugmyndir um hlut- hafa komu ekki fram á blaða- mannafundinum. Hagvangsmenn gagnrýna stofnunina fyrir áhuga á „fag- verkefnum“ og telja stjórnina ekki hafa beitt „gagnrýnismati“ á verkefni. Yfirmenn á Orkustofn- un sátu hljóðir á blaðamanna- fundi Sverris en voru þó ekki sammála Hagvangi um þetta og töldu að hagnýtar rannsóknir yrðu að fá að haldast í hendur við grundvallarrannsóknir. Starfsmönnum á að segja upp „með tillitssemi“ að sögn orku- málastjóra, og fá sumir að vera uppundir þrjú ár enn í starfi. Fram kom á fundinum að starfs- menn vita ekki hverjum verður sagt upp á Orkustofnun. KRON-FURUGRUND í dag, föstudaginn 30. nóvember, opnum við nýja matvöru- verslun KRON að Furugrund 3, Kópavogi. Hið glæsilega nýja verslunarhús er hannað með áherslu á að allur aðbúnaður sé sem bestur - að vel fari um viðskiptavini, starfsfólk og fjölbreytta matvöru. Um leið og við bjóðum ykkur velkomin í þessa nýju verslun vonum við að hún eigi eftir að þjóna ykkur vel og Iengi. M Rúmgott og vel skipulagt húsnæði____________________ Glæsilegt kjöt- og fiskborð Við bjóðum sérlega fiagstætt kynningarverð á fjölda vörutegunda vegna opnunarinnar Allar mjólkurvörur í kæliskápum 2 djúpfrystar fullir af matvælum Avaxta- og grænmetisborð Greið aðkeyrsla Malbikuð bílastæði með hitalögnum Opnunartími: 9-18 mánudaga til fimmtudaga 9-20 föstudaga 9-16 laugardaga FURUGRUND3 KÓPAVOGI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.