Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 1
HEIMURINN FURÐUR Sjómenn Inneign í olíusjóði Sjómannasamband Islands fullyrðir að 260 miljóna Þegar útgerðarmenn l hafa greitt allan olíukostnað fiski- skipaflotans eiga þeir 260 miljón krónur eftir miðað við þá upp- hæð sem tekin er framhjá skiptum til sjómanna og rennur í olíusjóð. króna afgangur verði í olíusjóði Samkvæmt spá Þjóðhagsstofn- unar mun allur olíukostnaður ís- lenska fiskiskipastólsins nema rúmum 1.7 miljörðum króna árið 1985 er sú upphæð sem rennur í olíusjóð útgerðarinnar og er tekin af óskiptum afla fiskiskipa og því framhjá sjómönnum auk styrkj-a nemur rúmum 1,9 milj- örðum króna. Þannig eiga út- gerðarmenn eftir 260 miljónir króna. Sjómannasamband íslands lét reikna þetta dæmi út samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar og iögðu þessar niðurstöður fyrir þá Steingrím Hermannsson forsæt- isráðherra og Halldór Ásgríms- son sjávarútvegsráðherra á fundi sem þessir aðilar áttu í fyrradag. Hér er um algerlega nýjar upp- lýsingar að ræða og munu þessar niðurstöður hafa komið ráðherr- um á óvart. Þess má geta að allur aflahluti íslenskra fiskimanna nemur 2.1 miljarði króna. -S.dór Sjá bls. 3. Kísiliðjan Sverrir bakkar með starfsleyfið Hefur lofað Náttúruverndarráði að veita ekki leyfiðfyrr en málið hefur ver- ið rættnánar við ráðið. Fréttin um starfsleyfið komfrá undirmönnum ráð- herra sem hlupu á sig Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra hefur lofað Náttúru- verndarráði því að starfsleyfi til Kísilgúrverksmiðjunnar við Mý- vatn verði ekki veitt fyrr en eftir ýtarlegar viðræður við ráðið. Sem kunnugt er kom um það frétt í hljóðvarpinu í fyrrakvöld að ráðherra hefði veitt verk- Bandaríkin Mafían í upplausn Áhrifamikill mafíósi í Banda- ríkjunum ákvað fyrir skömmu að segja frá fóiskuverkum samtaka sinna og hafa uppljóstranir hans leitt til handtöku 350 glæpa- manna á Sikiley og í Bandaríkj- Sjá bls. 5. smiðjunni 15 ára starfsleyfi, en Náttúruverndarráð vill ekki veita leyfi nema til 1991 með skilyrðum þó um að fram fari rannsóknir er ljúki 1988. Fréttin í hljóðvarpinu mun vera komin frá undirmönnum ráðherra í ráðuneytinu. Ástæðan fyrir því er sú að bak við tjöldin mun Sverrir Hermannsson hafa verið búinn að ákveða að veita verksmiðjunni 15 ára starfsleyfi og hafði kynnt þá ákvörðun í ríkisstjórninni. Veitingin hafði samt ekki farið fram. Harkaleg viðbrögð, bæði Nátt- úruverndarráðs og landeigenda við Mývatn mun hins vegar hafa orðið til þess að ráðherra ákvað að fresta leyfisveitingunni og ræða frekar við Náttúruverndar- ráð um málið, enda munu slíkir hlutir vera að gerast í lífríki Mý- vatns að náttúruverndarmönnum stendur ekki á sama og vilja mjög ýtarlegar rannsóknir í vatninu. -S.dór Elliðaárdalur Frestun samþykkt Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Umhverfis- málaráði urðu við tilmœlum borgarstjóra um frestun á friðlýsingu Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Umhverfismálaráði sam- þykktu í gær gegn atkvæðum minnihlutaflokkanna að „fresta“ um óákveðinn tíma stofnun fólk- vangs í Elliðaárdal. Þess í stað leggur meirihlutinn áherslu á að endurvekja gamla landamerkja- deilu um Vatnsendahólma og komu ekki fram nein haldbær rök fyrir þessum sinnaskiptum Sjálf- stæðismanna sem á sínum tíma studdu fólkvangsstofnunina ein- dregið. Allar tillögur um að halda áfram undirbúningi að staðfest- ingu friðlýsingarinnar voru felld- ar á fundinum, einnig tillögur um að setja ákveðin tímatakmörk á frestunina. í bókun fulltrúa Al- þýðubandalagsins kemur fram að málatilbúnaður meirihlutans sé ekki á neinum rökum reistur og þær ástæður sem tíndar séu til tómar tylliástæður. -v. Sjá bls. 13. Nýr heimur kannaður Þeir víluðu það ekki fyrir sér að stökkva út í Atlantshafið piltarnir tveir á myndinni, þótt lofthiti væri vel undir frostmarki. Á morgun verða þeir mættir við þriðja mann í Glætuna og segja frá sínu hjartans mali: sportköfun. (Mynd: E.ÓI.)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.