Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. MÓDVIUINN Flmmtudagur 24. janúar 1985 19. tölublað 50. árgangur Ágreiningur um niðurskurð meðal fiskeldismanna Jón í Lárósi: Klakfiskur var einnig seldur úr Kollafjarðarstöðinni. En 13 prósent klakfisks fundust sýkt af nýrnaveikinni Fiskeldi Hrogn, seiði og líka klakfískur voru seld úr Kollafjarðar- stððinni til annarra fískeldis- stöðva, þannig að ákveði fisk- sjukdómanefnd að skera niður í Kollafírði þá verður líka að skera í þeim stöðvum. Hins vegar er óhætt að segja að meðal okkar fiskeldismanna eru skiptar skoð- anir um hvort eigi að grípa til niðurskurðarins eða ekki. En við munum auðvitað sætta okkur við úrskurð Fisksjúkdómanefndar. Þetta sagði Jón K. Sveinsson, formaður Landssambands Fisk- eldis- og hafbeitarstöðva, en við- brögð þeirra við nýrnaveikinni voru rædd á fundi sem haldinn var í Torfunni fyrr í vikunni. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans hallast flestir fiskeldis- manna að því að grípa beri tafar- laust til niðurskurðar til að kom- ast fyrir veikina. -ÖS Stjórn Landssambands Fiskeldis- og hafbeitarstöðva á fundi í Torfunni, þar sem hið alvarlega nýrnaveikivandamál var rætt. Frá vinstri Sigurður Helgson, fisksjúkdómafræðingur, Jón K. Sveinsson í Lárósi, Sigurjón Höskuldsson, Róbert Pétursson, Olafur Skúlason í Laxalóni, Ingimar Jóhannesson og Sig- urður St. Helgason frá Húsatóftum. Mynd -eik. Bláa lónið Fullbókað í sumar Norðmenn ogSvíarflykkjast í heilsubað en íslendingar ekki eins áhugasamir Góð aðsókn hefur verið að gisti- heimilinu við Bláa lónið nú eftir áramótin og þegar er orðið fullbókað á heimilinu stóran hluta á komandi sumri. Það eru einkum Norðmenn sem ætla að baða sig í Bláa lóninu í sumar. „Þetta hefur verið ansi þungt í vöfum fram til þessa en nú er að- sóknin með ágætum og ég hef trú á því að það verði fullbókað hjá mér í allt sumar“, sagði Þórður Stefánsson gistihaldari við lónið er haft var samband við hann í gær. 10 herbergi eru á gistiheimilinu og er verið í 8 þeirra núna. Flestir gestirnir eru starfandi við undir- búning fyrir fiskeldistöð í næsta nágrenni en strax í vor er von á fyrstu útlendingunum til að baða sig. „Það eru aðallega Norðmenn sem sækja þetta hingað erlendis frá og einnig nokkuð um Svía. Það hefur verið mikið skrifað um lónið og lækningamátt þess í blöð og tímarit í þessum löndum og fólk er greinilega mjög hrifið og áhugasamt. í fyrrasumar dvöldu hér þó nokkrir Norðmenn og Bláa lónið mun fyllast af útlendingum í sumar sem hingað koma til að leita sér lækninga við húðsjúkdómum. Ljósm. eik. voru mjög ánægðir með árangur- inn. Þeir hafa flestir skrifað okk- ur kveðju, þakkað fyrir dvölina og segjast ætla að koma aftur“, sagði Þórður Stefánsson. -Ig. Farmenn Boða verkfall 30. janúar Ef til verkfalls kemur mun það ná til 45 farskipa Undirmenn á farskipum hafa boðað verkfall frá og með 30. jan. nk. hafí samningar ekki tek- ist fyrir þann tíma. Verkfallið ef af verður mun ná til 45 íslenskra farskipa að sögn Guðmundar Hallvarðssonar formanns Sjó- mannafélags Reykjavíkur. Guðmundur sagði að á þeim samningafundum sem haldnir hefðu verið undanfarið hefði ým- islegt verið rætt, en málin gengu ekki upp og allt hefur hlaupið í baklás og því ekki um annað að gera en boða verkfall. Deila yfirmanna á farskipum hefur enn ekki verið send til ríkis- sáttasemjara, en þeir viðræðu- fundir sem haldnir hafa verið til þessa með öllu árangurslausir. Guðlaugur Gíslason hjá Stýri- mannafélagi íslands sagði í gær að engin ákvörðun hefði enn ver- ið tekin um verkfallsboðun, en að því myndi draga ef ekkert þokað- ist í samningamálunum. -S.dór Olía Stór- hækkun í Rotter- dam Vilhjálmur Jónsson: Sleppum trúlega við hœkkun í kjölfar hinna miklu kulda bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hefur verð á olíu nú hækkað veru- lega á Rotterdammarkaði eftir að það hafði staðið í stað ogjafnvel lækkað töluvert í lok sl. árs. Sem dæmi má nefna að frá því um áramót og fram undir miðjan þennan mánuð hefur gasolíut- onnið í Rotterdam hækkað um 20 dollara. Að sögn Vilhjálms Jónssonar forstjóra Olíufélagsins var síðasti gasolíufarmurinn hingað til lands keyptur skömmu fyrir áramót á hagstæðu verði. Næsti farmur verður ekki tekinn fyrr en um miðjan febrúar. „Ég er ekki hræddur um að við fáum að finna fyrir kuldakastinu í hærra olíu- verði hér heima. Ég hef trú á því að verðið fari að falla aftur og verði komið niður í það sem það var áður þegar við tökum næsta farm eftir miðjan febrúar“, sagði Vilhjálmur. -|g.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.