Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 9
FURÐUR Vélknúin þríhjól, framleidd af uppfinningamanninum Clive Sinclair, voru sett á markaðinn í síðustu viku í Bretlandi. Samgöngur Rafknúið þríhjól Rafknúin þríhjól komu á enskan markað í síðustu viku. Ná nœr20 km hraða. Fara 40 km á hleðslu. Kosta 20 þúsund Eru rafknúin þríhjól það sem koma skal í umferð stórborg- anna? Það heldur hinn heimsþekkti uppfinningamaður Clive Sinc- lair, sem hefur gert fjöldan allan af uppgötvunum á sviði tölvu- tækni, og setti á síðasta vetri á markað sjónvarpstæki sem hægt var að bera í ól, í stað armbands- úrs. Nú er hann búinn að gera vél- knúið þríhjól, eins og það sem sést á myndinni. Hjólið er þeim ágæta kosti búið, að það gengur fyrir rafmagni og vélin í því er einföld, enda afskaplega lík drif- vél ósköp venjulegra þvotta- maskína. Þríhjólið er tveir metr- ar á lengd, getur farið hátt í 40 kflómetra á einni hleðslu, og há- markshraðinn er nálægt 20 kfló- metrum á klukkustund. Sinclair setti það á markaðinn í síðustu viku og stykkið kostaði einungis tæpar 20 þúsund krónur. Um hundrað þúsund hjól verða framleidd á þessu ári. -ÖS Þjófavörn Vörumerkjaþjófar gómaðir Vörusvik með fölsuðum vörumerkjum kosta framleiðendur og neytendur 23 biljónir dala í Bandaríkjunum. Ný tœkni, sem byggist á því að „fingraför“ vöru- Óvandaðar vörur, sem kosta lítið í framleiðslu, eru búnar til vítt um veröid og seldar dýrum dómum á ólögmætan hátt undir þekktum, dýrum vörumerkjum. Á þann hátt er bæði stolið frá neytendum og fyrirtækjum sem framleiða hina raunverulegu gæðavöru. Breiðskífur með stolnum upp- tökum þekktra hljómsveita úr poppbransanum og upp í galla- buxur eru á meðal vara sem á þennan hátt eru sviknar inná grunlausa viðskiptavini. Einung- merkjanna eru is í Bandaríkjunum er talið að svikin nemi um 23 biljónum doll- ara árlega. Þjófavörn Fyrirtæki í Los Angeles, Ligat Signatures, er nú búið að þróa tækni sem gerir vörusvikurum af þessu tæi mun erfiðara um vik í framtíðinni. Tæknin byggist á nokkurs konar tölvulöggu, sem getur greint „fingraför“ efnisins í vörumerkinu, og kannað hvort það er falsað eða ekki. Grundvöllurinn er sú upp- ?sin, getur komið götvun, að samsett efni eins og klæði eða pappír eru öll gerð af trefjum, sem hafa sína sérstöku lögun og form. Trefjarnar í hverj- um tveimur bútum af sama efni eru aldrei eins. Með öðrum orð- um: Það má nota trefjagerð í vörumerkjunum eins og fingraför á mannfólkinu. „Fingrafara“-skraning Fyrirtækin sem framleiða til- tekna vöru nota sérstaka tölvu frá Light Signature, sem skráir „fin- í veg fyrir þetta graför“ trefjanna í efninu sem er notað í vörumerkið. Tækið byggist á afar sterku Ijósi, sem er Iýst gegnum vöru- merkið hjá framleiðendunum, áður en það er sent til búðanna. Ljósið nemur trefjagerð vöru- merkisins, sem er skráð í smá- tölvu. Hún spýtir því síðan úr sér sem sérstakri tölu sem er stim- pluð á merkið og til frekara ör- yggis er hún á sérstöku dulmáli sem er mjög erfitt að brjóta. Þegar kaupandinn tekur svo við sendingunni les önnur vél númerin á hverri einstakri vöru- eininguogskráir á tölvudisk. Tal- van hefur svo samband við móð- urtölvuna hjá framleiðendum, sem er skráður á vörumerkið. Með einfaldri samkeyrslu gegn- um síma má finna út, hvort vöru- merkið er raunverulegt eða fals- að. Vélarnar geta lesið 100 þúsund stykki á klukkustund, þannig að þetta tekur ekki mikinn tíma og mun vonandi geta sparað neytendum og framleiðendum gífurlegar upphæðir. -ÖS Þingvallavatn Vissirðu þetta? Þingvallavatn er stærst ís- lenskra vatna, enda 83.7 fer- kílómetrar að stærð. Mesta dýpi þess eru 114 metrar en meðaldýpið er 34 metrar. Mesta lengd vatnsins eru 14.5 kílómetrar en mesta breidd þess 9.5 kílómetrar. Vatnið er kaldast í janúar og er þá 0-2°C en heitast í byrjun ágúst og er þá 9-10°C. Síðla í desember leggur vatnið yfirleitt og það er ekki fyrr en seint í mars eða í aprfl að ísinn tekur af. Samkvæmt út- reikningum tekur það vatnið að minnsta kosti 290 daga að endur- nýja sig. Kísilþörungar eru mest áber- andi í jurtasvifinu í vatninu en í dýrasvifinu eru svifkrabbar mest áberandi: Tvær tegundir árfætla Dýralíf sem nefnast rauðdfli og augndfli og auk þess ein vatnsfló, lang- halaflóin svokallaða. Nokkrar hjóldýrategundir eru líka áber- andi. Næst fjörunni (á harðbotnin- um, 0-10 metra dýpi), er vatna- bobbinn í mestu magni hvað þyngd varðar, þó rykmý og ánar séu langalgengust dýra með tilliti til fjölda. -ÖS Himbrími, toppönd og minkur Himbrima ber ósjaldan fyrir brimapör við vatnið. Af öndum augu þeirra sem leggja leið munutoppendurveraalgeng- sína til Þingvallavatns, en að astar. Hettumávar eru al- staðaldri verpa nokkur him- gengir og fýlar sjást þar gjarnan svífa yfir vatnsborð- inu, en í Nesjaey munu nokkr- ir tugir fýlapara verpa reglu- lega. Af þeim fuglategundum sem nytja vatnið eru þó svartbakar og sflamávar algengastir, en báðar tegundirnar verpa í Sandey. Við Þingvallavatn er töluvert af mink, en honum smakkast fátt betur en nýveidd murta og er því glaðari sem hann þarf að hafa minna fyrir því að veiða hana. Þeir eru enda ekki svo fáir sem hafa lent í því að landa nokkrum murtum og snúið sér veiðiglaðir að því að draga næsta fisk úr djúpum Þingvallavatns, en ekki gætt að því að hauglatur minkur er gjaman í næsta nágrenni og ævinlega reiðubúinn til að næla sér í ránsfeng. _ÖS Hilmar J. Malmquist líffræðingur hristir Þingvallamurtu úr neti. Ásamt öðrum vinnur Hilmar að rannsóknum á lífríki Þingvallavatns. Mynd Skúli Skúlason. 24. jWMMT 1985 ÞJÓBWUmM - MftA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.