Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR
Hin háreista borg Skuggahverfis. Til hægri á myndinni er Útvarpshúsið og Seðlabankabyggingin. Framan við þær byggingar vantar á likanið þann hluta
upþfyllingar sem hið nýja Sætún liggur á. Ljósm. E. Ol.
Skörðótti Skúlagötumúrinn
Hvað segja þau?
Rœtt við fulltrúa flokkanna í skipulagsnefnd borgarinnar og við formann íbúasamtakanna
Vilhjálmur P. Vilhjálmsson, Sjálfstœðisflokki:
Mjög athyglisvert
A síðasta ári voru kynntar í
skipulagsnefnd hugmyndir
tveggja arkitektastofa sem bygg-
ingarnefnd réð til að sýna bygg-
ingarmöguleika á þessu svæði.
Skipulagsnefnd óskaði eftir því
að í þessari vinnu yrðu sýndir há-
marks byggingarmöguleikar á
þessum reit, meðal annars að
teknu tilliti til útivistarsvæða og
þjónustustofnana. Borgaryfir-
völd tóku enga afstöðu til þessara
hugmynda.
Iframhaldi af þessari vinnu réð
skipulagsnefnd í júlí síðastliðnum
arkitektana Guðmund Kr. Guð-
mundsson, Ólaf Sigurðsson og
Björn Hallsson til að vinna nán-
ari tillögur.
Pær deiliskipulagshugmyndir
sem nú hafa verið kynntar eru að
mörgu leyti mjög athyglisverðar.
í þessum tillögum er leitast við að
hin nýja byggð falli sem best að
nærliggjandi eldri byggð, þar sem
lögð er áhersla á að útsýni frá
núverandi íbúðabyggð skerðist
sem minnst. Jafnramt er í þessum
skipulagshugmyndum lögð á-
hersla á rúmgóð útivistar- og
leiksvæði, almennar þjónustu-
stofnanir og að hávaði frá umferð
verði innan eðlilegra marka.
í næsta mánuði liggja væntan-
lega fyrir ýtarlegri skipulags-
uppdrættir af öllu svæðinu. Þá tel
ég eðlilegt að þessar skipu-
lagshugmyndir verði kynntar
fyrir íbúum næsta nágrennis og
öðrum þeim sem vilja kynna sér
þær.
Sigurður Harðarson, Alþýðubandalagi:
Hagsmunagæsia fyrir stórfyrirtæki
Með þessum tillögum er viður-
kennt það sjónarmið Borgar-
skipulags og okkar minnihluta-
manna að ekki sé unnt að koma
mannsæmandi byggð fyrir innan
núverandi lóða miðað við þá háu
nýtingu sem gengið er útfrá.
Þessi nýja tillaga er að mínu
mati aðeins önnur útfærsla á
Skúlagötumúrnum alræmda, -
hann er aðeins skörðóttari núna
og hærri.
I þessum tillögum er gert ráð
fyrir að niðurrif allra húsa á svæð-
inu sé eðlilegt og rökrétt, - há
nýting gerir gömlu húsin verð-
laus.
Þótt grunnhugsun skipulagsins
um litlar einingar sé rétt kemur
hún fyrir lítið þegar einingunum
er staflað upp í ellefu hæðir, sem
samræmast illa hinum fíngerða
mælikvarða byggðarinnar fyrir
ofan. Hér er líka augljóslega um
að ræða flókin og dýr hús í bygg-
ingu.
Pað er grunur minn að fram-
haldsvinna við þetta skipulag
verði hálfgerð sýndarmennska
sem fyrst og fremst miði að því að
geraVölundi og Eimskip fært að
stinga skóflu í jörð fyrir næstu
áramót. Eftir þann tfma tekur
gildi ný samþykkt um gatnagerð-
argjöld ígamla bænum. Öll vinna
að þessu skipulagi hefur haft að
leiðarljósi hagsmunagæslu fyrir
þau stórfyrirtæki sem eiga lóðir
við Skúlagötuna. Hvernig þessi
byggð fellur að borgarmyndinni
hefur hinsvegar ekki verið á-
hyggjuefni meirihlutans í borgar-
stjórn hingað til.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði:
íbúarnir hafa gleymst
Einn af megingöllunum á þess-
um nýju hugmyndum er að það er
ekki gerð nein tilraun til að meta
eða koma til móts við þarfir þess
fólks sem nú býr neðanvið
Laugaveginn, - í Skuggahverfinu
í heild. Það er einsog það hafi
gleymst að þarna býr fólk fyrir.
Igreinargerðinni sem tillögun-
um fylgir er í einu og öllu gengið
útfrá nýbyggðinni, bæði í dagvist-
armálum og skólamálum, í úti-
vistarmálum og svo framvegis.
Auðvitað eru í greinargerðinni
gerðir fyrirvarar um flest einsog
alltaf, en mér sýnist til dæmis
dagvistarþörfin vera mjög var-
lega áætluð, jafnvel miðað við
nýbyggðina eina. Lóðin undir
dagvistina er lítil, óljós og illa
staðsett í tillögunum. í þeim er
ekki gert ráð fýrir neinum hverf-
isvelli og engin tilraun gerði til að
koma fyrir almennu útivistar-
svæði fyrir íbúana, og ekki er
heldur félagsmiðstöð í hverfinu.
Þessar nýju hugmyndir arki-
tektanna þýða að það á að rífa
allar byggingar sem nú standa við
Skúlagötuna. Við bentum á það í
upphafi að nýtingin sem gert var
ráð fyrir hefði í för með sér þetta
niðurrif, en þá sögðu Sjálfstæðis-
menn að það væri ekkert gefið.
Annað kemur núna í ljós. Eina
merka byggingin sem þeir hafa
ekki hróflað við enn er Bjarna-
borg, en það er þrengt svo að
henni með byggingum á Vitatorgi
að hætt er við að hún hverfi líka.
Ég hef minnst á einstök atriði;
aðalmálið er að það er gert ráð
fyrir alltof mikilli nýtingu á svæð-
inu, alltof miklum byggingum.
Það er greinilegt að skipulags-
höfundarnir hafa átt í vand-
ræðum með að uppfylla skilyrðin
um nýtingu, og gripið til þess ráðs
að stækka lóðirnar með því að
flytja Skúlagötuna norðar, - að-
eins þannig koma þeir þessum
húsum fyrir. Það er reyndar svo-
lítið undarlegt að nú er einsog
Skúlagatan sé orðin þröskuldur í
veginum en ekki kröfur meiri-
hluta borgarstjórnar um nýting-
una.
Það er rétt að benda á að flutn-
ingur á Skúlagötunni kostar ekki
undir 25 miljónum, - og það
koma engin gatnagerðargjöld af
þessu ef lóðareigendurnir ná að
hefja framkvæmdir fyrir ársbyrj-
un 1986.
Að lokum: eitt virðist alveg
hafa gleymst í tillögunum, - það
er ekkert minnst á holræsamálin.
Klóakútrásirnar þarna uppfylla
ekki einusinni heilbrigðisreglu-
gerð og það hefur komið fram að
á svæðinu er veruleg skolpmeng-
un.
Bíldudalur
Langt stopp?
Engin hreyfing í
Rœkjuversdeilunni
Gunnar Karl Garðarsson, einn
rækjuskipstjóranna á Bfldudal,
sagði við Þjóðviljann í gær að enn
hreyfðist ekkert í samkomulags-
átt í deilu sjómanna á Bfldudal við
Rælriuver hf.
„Eg heyrði það sggt eftir hon-
um (Eyjólfi Þorkelssyni frkvstj.
Rækjuvers) að þetta yrði langt
stopp“, sagði Gunnar. Rækju-
versmenn sögðu á mánudag upp
öllu starfsfólki sínu með venju-
legum vikufresti vegna deilunn-
ar.
- m
Á Costa del Skúló verðurðu
brún, - skólpbrún!
Geirharður Þorsteins-
son, arkitekt, formaður
íbúasamtaka í Skugga-
hverfi:
Reynum
að vera
jákvæðir
Ég get ekkert um þetta sagt á
þessu stigi. Ég hef bara séð
myndir af þessu í dagblöðunum,
en vona að borgin gefi okkur kost
á að athuga tillögurnar sjálfar og
ætla að boða fund í stjórn félags-
ins um þær, og jafnvel fund allra
íbúa á svæðinu. Ég held að íbúar í
Skuggahverfinu muni reyna að
líta þetta jákvæðum augum, geri
það að minnsta kosti þangáð til
annað kemur í Ijós.
- m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 23. janúar 1985