Þjóðviljinn - 24.01.1985, Side 3
FRETTIR
Olíufélögin
UU hlífir ríkisstjóminni
Vilhjálmur Jónsson: Pýðir ekki að kenna Ijótum olíufélögum um allt og líta
framhjá ríkisstjórninni. Kristján Ragnarsson hefur siglt
með íslenska útgerð út í meiri niðurlœgingu en áður hefur þekkst
Kristjáni JRagnarssyni for-
manni LÍÚ hefur tekist að
koma útgerð á íslandi í meiri
niðurlægingu en nokkru sinni
hefur þekkst áður með því að
vera sífellt að berjast við vind-
myllur. Auðvitað á hann að berj-
ast fyrir rekstrargrundvelli út-
gerðarinnar við ríkisvaldið, það
þýðir ekkert að vera að berjast
við okkur og segja þetta allt ljót-
um olíufélögum að kenna. Slíkar
árásir fría bara ríkisstjórnina af
því að ganga í þessi mál og skapa
heilbrigðan grundvöll fyrir út-
gerðina, sagði Vilhjálmur Jóns-
son forstjóri Olíufélagsins i sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Útgerðarmenn hafa mótmælt
harðlega við ríkisstjórnina fram-
komnum óskum olíufélaganna í
verðlagsráði um stórhækkun á
bensíni og olíum. Fara olíufé-
lögin fram á 6% hækkun á bens-
íni, 16% á gasolíu og 21% hækk-
un á svartolíu. Hækkunarbeiðnin
er til athugunar og umfjöllunar
hjá verðlagsstofnun og verð-
lagsráði.
Meginástæðan fyrir hækkunar-
beiðni olíufélaganna er 230 milj-
ón kr. skuld á innkaupareikningi
sem þau vilja jafna út á næstu
þremur mánuðum. Við síðustu
olíuverðshækkun í nóvember sl.
var ákveðið í verðlagsráði að
skuldin yrði jöfnuð út á 10 mán-
uðum. Frá því þá hefur gengi
krónunnar fallið um rúm 4%
gagnvart bandaríkjadollar.
„Ef við ættum ekkert inni á
þessum reikningi þá þyrfti ekki
að hækka neitt. Þessi beiðni okk-
ar á ekki að koma neinum á óvart
því þessir menn hafa allar þessar
tölur fyrir framan sig og vita um
þróun gengis eins vel og við. Eins
og staðan er í dag þá getur þetta
ekki gengið óbreytt. Við liggjum
með þessa skuld á vanskilavöxt-
um og miðað við þau vaxtakjör
sem nú eru í gildi þá fara um 5.5
miljónir eingöngu í vexti af þess-
ari skuld í hverjum mánuði'J
sagði Vilhjálmur. -Ig.
Jóhann Hjartarson skákmeistari tekur við 70.000 kr. verðlaunum úr hendi Lúðvíks Jósepssonar fyrrverandi formanns bankaráðs Landsbankans.
Ljósm. eik.
Skák
Landsbankinn verðlaunar Jóhann
Friðarmál
Delhi-
fundurinn
um helgina
r
Igær afhenti fyrrverandi for-
maður bankaráðs Landsbanka
íslands, Lúðvík Jósepsson, Jó-
hanni Hjartarsyni alþjóðlegum
skákmeistara, verðlaun að fjár-
hæð kr. 70 þús. úr Verðlauna-
sjóði Landsbankans til styrktar
skákíþróttinni.
Verðlaunasjóðinn kvað Lúð-
vík Jósepsson hafa verið stofnað-
an með bréfi í febrúar 1982, þar
sem bankaráð Landsbankans til-
kynnti Skáksambandi íslands, að
bankinn gæfi kr. 100 þús. til
myndunar sjóðs, er úr skyldi
veita fé til skákverðlauna með
tvennum hætti:
1. Til árlegra landsmóta um
skólaskák en þátttakendur í slík-
um mótum hafa verið um 5000. 2.
Ákveðin fjárhæð til sérhvers ís-
lendings er nær alþjóðlegum titli
skákmeistara eða stórmeistara
eftir stofnun sjóðsins.
Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór
fram í maí 1983, vegna úrslita-
keppni skólaskákar, sem haldin
var í Hafnarfirði. Lúðvtk Jóseps-
son, þáverandi formaður banka-
ráðs Landsbankans, afhenti
verðlaunin, sem voru farseðlar á
úrslitamótið og einnig á skákmót
erlendis.
Önnur úthlutun var með sama
hætti er úrsiitainót fór fram í Bol-
ungarvík í maí 1984, en þá afhenti
útibússtjóri Landsbankans á ísa-
firði verðlaunin.
-mhg
Þjóðviljinn
50%, aukning
á ísafirði
Nú stendur yfir útbreiðsluátak
hjá Þjóðviljanum og hefur vösk
sveit manna á vegum blaðsins
unnið við að afla því fleiri áskrif-
enda. Árangur hefur verið góður
og má nefna sem dæmi að um
síðustu helgi var blaðið kynnt á
ísafirði og fólki boðin áskrift með
þeim árangri að 50% aukning
varð á áskrifendatölunni! Und-
anfarin kvöld hafa starfsmenn út-
breiðsludeildarinnar einnig
hringt vítt og breitt um land og
boðið sérstaka kynningaráskrift
og hafa undirtektir fólks verið
afar góðir. -v.
Nicaragua -
fundur
Hér á landi er nú staddur
bandarískur stáliðnaðarmaður
frá Houston í Texas, Dick McBri-
de að nafni. I nóvember fór hann
um Nicaragua sem fararstjóri í
hópferð bandarískra stáliðnaðar-
manna og kom meðal annars á
víglínuna.
í kvöld mun hann segja frá
ferðalögum sínum í Nicaragua,
og lýsa lífi þeirra sem búa nálægt
víglínunni. Hann tók fjölda
skuggamynda, sem hann mun
jatnframt sýna.
Fundurinn hefst klukkan 20.30
að Hverfisgötu 105 í kvöld.
Elfa Björk
skipuð
Menntamálaráðherra valdi
Elfu Björk Gunnarsdóttur til að
gegna framkvæmdastjórastöðu
við útvarpið í stað Guðmundar
Jónssonar. Sjö sóttu um starfið.
Elfa Björk tekur við um næstu
mánaðamót, og lætur þá af störf-
um sínum sem borgarbókavörð-
ur.
Akureyri
Fasteignagjöldum mótmælt
Bœjarstjórnin ákvað að leggja gjöldin á með 25 % álagi
í gær lagði Ólafur Ragnar
Grímsson forseti Alþjóðlegu
þingmannasamtakanna PWO í
ferð áleiðis til Nýju Delhi þar sem
verður fundur þjóðarleiðtoganna
sex um friðarmál.
Þingmannasamtökin hafa átt
veg og vanda af undirbúningi
þessa fundar sem verður um
næstu helgi í Indlandi. Að aflokn-
um þessum fundi munu nokkrir
leiðtoganna, vísindamenn og trú-
arleiðtogar halda vinnuráðstefnu
í Aþenu og hafa samtökin einnig
undirbúið þann fund. Ólafur
Ragnar Grímsson hefur tekið
virkan þátt í undirbúningi þess-
ara funda og verður á þeim báð-
um.
-ÖS
Nærri þúsund fasteignaeigend-
ur á Akureyri mótmæltu
álagningu fasteignagjalda í bæn-
um, sem þcir telja hækka mjög
óeðlilega á yfírstandandi ári.
Samkvæmt upplýsingum Sig-
ríðar Stefánsdóttur bæjarfulltrúa
Alþýðubandalagsins á Akureyri,
hefur bæjarstjóm ákveðið að
leggja á fasteignagjöld með 25%
álagi í stað 12,5% álags á sl. ári
Sagði Sigríður að þetta þýddi að
raunhækkun gjaldanna yrði um
9%. Aðspurð um mótmælin
sagði hún að sveitarfélag eins og
Akureyri þyrfti á öllum tekjum
sínum að halda ef sæmilega þjón-
ustu ætti að veita. Hún kvað
meirihluta bæjarstjórnar ekki
hafa tekið ákvörðun um hve há
útsvarsprósentan yrði og vissu-
iega væri hugsanlegt að hafa út-
svarsprósentuna eitthvað lægri til
þess að koma til móts við íbúða-
eigendur.
Þá væri einnig hugsanlegt að
hækka þjónustugjöld t.d. á barn-
aheimilum og víðar. Því kvaðst
hún algerlega andvíg, og þó að
álagning á Akureyri væri vissu-
lega nokkuð há þá mætti ekki
gleymast að menn yrðu að velja á
milli þess að bærinn veitti sæmi-
lega þjónustu og gæti staðið í
nauðsynlegum framkvæmdum
s.s. skólabyggingum o.fl. þá yrði
að innheimta veruleg gjöld. Bætt
þjónusta skapaði auk þess betri
lífskjör fyrir hina lægst launuðu.
hágé.
ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3