Þjóðviljinn - 24.01.1985, Blaðsíða 7
Upphaflega var talið að líftæknilegar aðferðir gætu nýst
vel við lyfjaframleiðslu. Enn er þó bara eitt lyf, framleitt
með slíkum hætti, komið á markaðinn. Það er bóluefni
við ákveðinni veiki í alisvínum. Ýmis Ijón hafa birst á
veginum, og ef til vill verður líftæknileg lyfjaframleiðsla
ekki sú uppspretta merkilegra læknisdóma (og gróða)
sem fyrrum var talið.
Íslenskirvísindamenn
vinna nú aö því aö framleiða
lífræna ef nahvata - ensím -
úrfiskslógi. Þessi starfsemi,
sem fellur undir líftækni, er á
byrjunarskeiði enn sem kom-
iö er, en lofar góöu. ísíðustu
viku skýröi Þjóðviljinn til dæm-
is frá því, aö þá heföi nýlega
tekist í fyrsta sinn að selja
skammt af efnahvötum til út-
landa fyrir dágótt verö. Vonir
standa til aö af frekari sölu
veröi síðar meir, og verið er aö
framleiða fleiri tegundir líf-
rænnaefnahvataúrslógi hér
á landi. Ýmsir binda því sterk-
ar vonirtil aö líftækniafurðir
eigi eftir að skjóta styrkum
stoöum undirefnahag lands-
manna þegar f ram í sækir.
Vonir daprast
Erlendis hafa miklar vonir
einnig verið tengdar líftækni.
Framtíðarspámenn hafa um
nokkurra ára skeið látið uppi þá
skoðun að líftæknin muni innan
skamms tíma gjörbylta ýmsum
hefðbundnum atvinnugreinum.
Þar eru einkum til nefndar ýmsar
hliðar matvælaframleiðslu. Stær-
stu vonirnar hafa þó verið tengd-
ar framleiðslu á ýmsum mjög dýr-
Líftækni
Minnkandi bjartsýni erlendis
Lyfjaframleiðsla með líftœkniaðferðum virðist erfiðari en œtlað var. Einungis eitt lyfkomið
á markað. Bakteríur eru ekkijafn góðar „lyfjaverksmiðjur(< og fyrst var talið.
um og fágætum lyfjum, sem með
líftækniaðferðum var talið að
mætti fjöldaframleiða. Með þeim
átti að gera kleift að búa til lyf við
háskalegum sjúkdómum á borð
við krabbamein ýmis konar og
sykursýki, svo dæmi séu nefnd, til
mikilla hagsbóta fyrir
mannkindina alla.
Þessi bjartsýni varð þess vald-
andi, að í fjármálaheiminum
greip um sig mikið írafár. Fjöl-
mörg líftæknifyrirtæki voru
stofnuð til að framleiða lyf, sem
síðan áttu að gefa skjótfenginn
gróða.
Enn hafa þó vonir ekki ræst.
Um það bil 200 fyrirtæki hafa ver-
ið sett á laggirnar til að nota líf-
tækni til að framleiða lyf. Samt
hefur einungis eitt slíkt lyf verið
sett á markaðinn enn sem komið
er. Það er bóluefni gegn sérstök-
um sjúkdómi í alisvínum.
Talið er að einungis fá af fyrir-
tækjunum 200 muni ná því að
verða stöndug í lyfjaframleiðslu.
Þar eru efst á blaði Genetech og
Cetus sem eru bæði staðsett í Kal-
iforníu og eru hvort um sig talin
70 miljón sterlingspunda virði.
Biogen í Massachusetts er af svip-
aðri stærðargráðu. Til marks um
erfiðleikana í bransanum má
nefna, að Biogen rak nýlega um
60 starfsmenn, sem unnu að
hagnýtum rannsóknum.
Genaúrklippur
Líftæknileg lyfjaframleiðsla
byggist á nýlegum uppgötvunum
í erfðafræði. Duglegum vísinda-
mönnum tókst að þróa aðferðir
til að „klippa“ úr litningum
mannsfrumu tiltekin gen, sem
innan frumunnar stjórna fram-
leiðslu á sérstökum próteinum.
Sum þessara próteina eru gífur-
lega mikilvæg, og skortur sumra
varðar líf eða dauða manneskj-
unnar. Sem dæmi um slík efni má
nefna vaxtarhormón, en einnig
prótein sem sjá um blóðstorknun
og önnur sem vinna að blóðþynn-
ingu.
Genaúrklippunum er svo kom-
ið fyrir í bakteríum af sértakri
tegund (E. coli), og tengdar inn í
litninga þeirra með efnafræði-
legum tengiaðferðum. Bakteríur
eru þeim eiginláíkum gæddar að
fjölga sér ótrúlega ört við hag-
stæð skilyrði. Með því að rækta
svo bakteríur sem búið er að
tengja genaúrklippurnar inní, má
þannig búa til „verksmiðju" sem
hamast í óða önn við að framleiða
hið eftirsótta prótein.
Hugsunin var því sú, að með
þessu mætti framleiða í bakterí-
um ýmis mikilvæg efni sem
mannslíkaminn þarfnast í litlum
mæli.
Skjótur gróði?
Menn töldu því einfalt að
græða á þessum aðferðum: fyrst
þurfti bara að finna prótein sem
er mjög nauðsynlegt fyrir
mannslíkamann og skortur á í
lyfjaformi. Síðan að finna leið til
að fjöldaframleiða það í bakterí-
unum.
í sjálfu sér var auðvelt að finna
heppilega kandídata. Vaxtar-
hormón var fljótt tekið til reynslu
víða. Það spornar gegn dverg-
vexti, og er fáanlegt einungis í
mjög litlum mæli enda unnið úr
heiladinglum dauðra manna. Int-
erferon, sem talið var lausnarorð
í baráttunni við krabbamein, var
líka vinsæll kandídat. Blóðstor-
knunarefnið Faktor-8, sem er
afar mikilvægt fyrir dreyrasjúka
var talið sömuleiðis í hópi hinna
álitlegustu vonarlamba og líka
TPA (tissue plasminogen activat-
or) sem stuðlar að því að leysa
upp blóðtappa og vinnur gegn
hjartaáfalli.
Aukaverkanir
Mörg fyrirtæki hófu tilraunir
með framleiðslu á þessum og
raunar mörgum öðrum efnum.
Hins vegar varð eftirleikurinn
ekki jafn auðveldur og upphaf-
Framhald á bls. 8
UMSJÓN: ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Talkennsla
Tölva kennir málhöltum að tala
Orðum er breytt í línur á skermi. Málhaltir líkja svo með rödd sinni
eftir línum sem rödd kennarans framleiðir.
Tæki til að hjálpa málhöltum
og mállausum til að ná valdi á
töluðu máli hefur verið hannað af
japönskum vísindamönnum. Tal-
ið er að það gefi góða möguleika
á að aðstoða fólk sem sökum
heyrnarleysis á erfitt með að læra
að tala.Sjúklingar sem hafa misst
málið vegna heilablóðfalls og
þurfa að læra að tala upp á nýtt
munu einnig hagnast af því. í
framtíðinni kann tækið að
reynast brúklegt við sjálfsnám í
erlendum tungumálum.
Tækið byggist á því að smá-
tölva breytir töluðu máli í línur á
tölvuskermi. Kennari sjúklings-
ins talar ákveðinn texta, sem
sjúklingurinn sér sem línur á
skerminum framan við sig. Hann
reynir síðan að segja sama texta
og láta þau hljóð sem hann fram-
leiðir líkjast línum sem rödd
kennarans myndar á skerminum.
Með því að fikra sig áfram nær
sjúklingurinn smám saman að
líkja eftir kennaranum og lærir
þannig að segja orðin - og ákveð-
in hljóð - á réttan hátt.
Nemi í munni
Til frekari aðstoðar er sérstak-
-ur nemi í munni sjúklingsins sem
skráir hreyfingar og stöðu tung-
unnar og afstöðu hennar
gagnvart gómnum hverju sinni,
og flytur jafnframt upp á skerm-
inn. Það auðveldar nemendunum
talsvert að færa tunguna í þá
stöðu sem best hæfir myndun sér-
hvers hljóðs.
Upphaflega var óttast að nem-
inn í munninum myndi valda
óþægindum en tilraunir sýna að
það varð einungis óverulegt.
Góður kostur þessa tækis er,
að hægt er að skrá texta kenna-
rans inná tölvuna, þannig að
nemandinn getur æft sig í einrúmi
hvenær sem er, án aðstoðar
kennara. _ö§
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7