Þjóðviljinn - 25.01.1985, Qupperneq 2
FRETTIR
Málmiðnaðarmenn
Fangelsanir fordæmdar
Sambönd málmiðnaðarmanna á Norðurlöndum senda áskorun til yfirvalda í S-Afríku
Formenn sambanda málmiðn-
aðarmanna á Norðurlöndum
hafa sent Botha forseta minni-
hlutastjórnar hvítra manna í
Suður Afríku áskorun um að
sleppa þegar úr haldi og fella nið-
ur ákærur á hendur tveggja for-
ystumanna málmiðnaðarmanna
þar í landi sem handteknir voru
meðan á tveggja daga friðsam-
legri vinnustöðvun stóð í nóvem-
ber sl.
Það voru þeir Moses Mayekiso
ritari sambands málmiðnaðar-
manna í Transvaal og Jerry Kau
starfsmaður Renaults-verksmiðj-
anna og stjórnarmaður í lands-
sambandi starfsmanna í bílaiðn-
aði sem voru fangelsaðir meðan á
verkfallinu í nóvember stóð.
Moses hefur verið sleppt og á yfir
höfði sér ákæru er varðar 25 ára
fangelsi en Jerry Kau er enn í
haldi.
í áskorun sambanda málmiðn-
aðarmanna á Norðurlöndum
segir m.a. að óraunhæfar ákærur
sem beitt er til að brjóta niður
starfsemi löglegra verkalýðsfé-
laga verði einungis til þess að ýta
undir ofbeldi og beina reiði al-
mennings um heim allan gegn því
samfélagi sem fordæmt hefur ver-
ið og áfram mun verða fordæmt
fyrir apartheidstefnu sína.
-íg
Reykingar
Minnka
meðal
gmnnskóla
Þorvarður Örnólfsson greindi
frá því á fundi Tóbaksvarna-
nefndar með fjölmiðlafólki nú ný-
lega að athuganir bentu til þess,
að tóbaksreykingar grunnskóla-
nema hefðu stórlega minnkað.
Minna væri þó vitað hversu
þessu liði á landsbyggðinni en
naumast ástæða til að ætla að þar
horfði neitt lakar. Þetta þýðir að
unglingar byrja seinna að reykja
en áður og er það út af fyrir sig
ærinn ávinningur.
Talið er að um 40% af íslend-
ingum, 18 ára og eldri, reyki og er
það svipað eftir kynjum. Um 300
manns deyja árlega á íslandi úr
sjúkdómum, sem rekja má til tó-
baksreykinga og hefur dánartala
aukist mjög síðustu áratugina.
Farmgjöld
Hvert er
lægstaboð?
Þórður Sverrisson fulltrúi hjá
Eimskip hafði samband við Þjóð-
viljann í gær vegna frétta hér í
blaðinu sem og öðrum fjölmiðl-
um um að skipafélagið Víkur
væri með lægsta tilboðið í flutn-
inga á frystum fiski til Bandaríkj-
anna fyrir SH.
Sagði Þórður að taka þyrfti til-
lit til fjölmargra annarra þátta í
tilboðunum, en bara sjálfs flutn-
ingsgjaldsins. Sjálft flutnings-
gjaldið væri aðeins hluti af því
sem kalla mætti heildarflutnings-
gjald. Þar inní kæmu atriði eins
og söfnun á ströndinni, flutning-
ur frá uppskipunarhöfn á áfang-
astað, geymslukostnaður, hve
tíðar ferðirnar eru og margt fleira
sem taka verður tillit til, þegar
tilboðin eru metin í heild, sagði
Þórður. -S.dór
Halldór Ásgrfmsson sjávarút-
vegsráðherra hefur afhent
Slysavarnafélaginu að gjöf 2000
eintök af sérunnu korti af fisk-
veiðilandhelgi íslands sem sjávar-
útvegsráðuneytið hefur látið gera
í samvinnu við Landmælingar
ríkisins. Auk þess hefur Slysa-
varnafélaginu verið veittur útgáf-
uréttur að 8000 eintökum til við-
bótar.
„Þessi góða gjöf verður von-
andi til stórstyrktar félaginu og
við óskum þess að kortinu verði
vel fagnað þegar félagar okkar
munu bjóða það til sölu. Hér er
um mjög merkilegt og vandað
kort að ræða“, sagði Hannes Haf-
stein hjá Slysavarnafélaginu.
Kortið er sett saman af um 13
sérkortum. Það stærsta sýnir haf-
dýpi kringum landið að 200 míl-
um, heita og kalda strauma og
útbreiðslu hafíss. Átta sérkort
sýna hrygningarstöðvar og
göngur helstu nytjafiska og tvö
þeirra sýna framleiðni svifþör-
unga og magn rauðátu í sjónum.
-«g-
T0RGIÐ
Hvort skyldi hafa meiri um-
framorku Landsvirkjun eða
Jón Páll?
Ibúðir
Nýja kortið yfir fiskveiðilandhelgina er nær meter að flatarmáli og utan um aðalkortið er á annan tug fróðlegra korta og
upplýsinga um fiskveiðar og fiskvinnslu. Mynd -eik.
Slysavarnafélagið
Stórgjöf
til fjáröflunar
Sjávarútvegsráðuneytið veitir SVFI viðurkenningu.
Fœrsölu- og útgáfurétt á nýju merkilegu landhelgiskorti
Yngri
eigendum
fækkar
Ungu fólki, sem getur keypt sér
íbúð fer nú fækkandi, samkvæmt
upplýsingum Fasteignamats
ríkisins. Að óbreyttri kaupgetu
þess munu einungis 60-70%
þeirra, sem nú eru undir þrítugu
geta búið í eigin húsnæði.
Hingað til hefur 80-85% ís-
lendinga búið í eigin húsnæði og
telur Fasteignamatið að það hlut-
fall sé með því allra hæsta sem
þekkist í okkar heimshluta.
Þá er á það bent að breytt
vaxtakjör og mikill skortur á
lánsfé skapi íbúðakaupendum
mikla erfiðleika, en auk þess
valdi rýrnandi kaupmáttur því að
mörgum veitist æ erfiðara að
standa í skilum með afborganir
og vexti af lánum sínum.
í nýju fréttabréfi frá FMR,
koma einnig fram merkar upplýs-
ingar um mat á fasteignum í
landinu. Af þeim er ljóst að gífur-
legur munur er á fasteignamati
eftir byggðarlögum. Nákvæmur
samanburður er nokkuð erfiður,
en í fljótu bragði virðist munur-
inn á sambærilegum eignum á
t.d. Akureyri og Reykjavík geta
verið a.m.k. 50%. Fasteigna-
matið er eins og kunnugt er skatt-
stofn sem sveitarfélögin nota við
álagningu fasteignagjalda. Mis-
munandi fasteignamat þýðir því
mishá fasteignagjöld eftir
sveitarfélögum. Þannig getur Da-
víð Oddsson borgarstjóri
auðveldlega veitt borgarbúum
„afslátt“ á fasteignagjöldum, en
innheimt eigi að síður mjög há
gjöld, þar sem skattstofninn er
miklu hærri en víðast annarsstað-
ar.
hágé.
Svar við athugasemd borgarstjóra
Athugasemd
gavíðs borgarstjora
Q
Þjóðviljinn er blað sem stendur
öllum opið. Þessvegna birti
blaðið í gær einstaklega rætna og
ómálefnalega athugasemd Davíðs
Oddssonar, borgarstjóra. Þar
ræðst hann gegn fréttaflutningi
Þjóðviljans af frestun á friðlýs-
ingu Elliðaárdalsins, og lætur sér
sæma að ráðast með óbóta-
skömmum á blaðamann Þjóðvilj-
ans, S.dór. Málflutningur í slík-
um umbúðum dæmir auðvitað
harðast þann sem heldur á penna.
Eftir stendur þetta:
1. Davíð Oddsson á í harðvít-
ugum deilum við flokksbræður
sína í Kópavogi útaf því að hann
vill eyðileggja Fossvogsdal með
því að leggja hraðbraut um hann,
þvert gegn vilja íbúanna.
2. Davíð Oddsson greiddi á
sínum tíma atkvæði með því að
Elliðaárdalurinn yrði friðlýstur
sem fólkvangur. Með því hefði
endanlega verið komið í veg fyrir
svonefnda Elliðaárdalsbraut sem
átti að verða framhald hrað-
brautarinnar sem hann vill leggja
í Fossvogsdalnum. Nú hefur Da-
víð skipt um skoðun. Hvers-
vegna? Þessari spurningu hefur
borgarstjóri enn ekki svarað, og
eru þó margir flokksbræður hans
furðu lostnir.
3. Af ummælum Davíðs í
Morgunblaðinu fyrr í vikunni má
ráða að hann vill hafa frjálsar
hendur um ráðstöfun Elliðaár-
dalsins. Þar með er auðvitað
gamla Elliðaárdalsbrautin komin
á dagskrá, og meðan Davíð kem-
ur ekki með trúverðuga skýringu
á skyndilegum sinnaskiptum sín-
um varðandi friðlýsingu Elliðaár-
dalsins hníga öll rök að því, að í
bígerð sé að ráðast í samtengda
hraðbraut um Elliðaárdal sem
myndi tengjast hraðbrautinni í
Fossvogsdalnum.
Þetta óttast margir innan sem
utan Sjálfstæðisflokksins. Of-
stækisfull viðbrögð borgarstjóra
við upplýsingum Þjóðviljans sýna
það eitt að Davíð er búinn að
koma sér í erfiða klípu. Þess
vegna virðist hann um stund hafa
glatað rósemi hugans jafn illilega
og kom fram í persónulegum á-
rásum hans á blaðamann Þjóð-
viljans í fyrrnefndri athugasemd.
Ritstj.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. janúar 1985