Þjóðviljinn - 25.01.1985, Side 7

Þjóðviljinn - 25.01.1985, Side 7
Strákar, sjáiðið kvikindið! (Myndirnar tók E.ÓI. í Straumsvíkinni.) Köfun Það opnast alveg nýr heimur Dýrt sport: Útbúnaðurinn kostar 70-90 þúsund Rœtt við þrjá unga sportkafara Glætan frétti á dögunum af þremur ungum mönnum sem eru miklir áhugamenn um köfun og þótti tilvalið að tala við þá og forvitnast nánar um þetta óvenjulega áhugamál. Þeir Ólafur, Gunnar og Bergur tóku vel í það og úr varð þetta spjall. Kveikjan að áhuga þeirra var grein í blaði sem Olafur og Bergur lásu. Eftir langa leit höfðu þeir uppi á Sportkafara- félaginu fóru þeir á námskeið og útskrifuðust sem áhugakaf- arar og þá var hægt að byrja að kafa. Ekki vildu þeir segja að þetta væri dýrt sport nema sjálfur út- búnaðurinn sem kostar 70 - 90 þúsund nýr en það er hægt að fá hann ódýrari notaðan. Þetta er heldur enginn smáræðis útbúnað- ur. Fyrst má telja gallann sjálfan sem til er í tveimur útgáfum, þ.e.a.s. blautgalli og þurrgalli. Blautgallinn blotnar eins og nafn- ið gefur til kynna við köfun og við það kemst vatn inn á milli gallans og líkamans. Líkaminn sér svo um að hita þetta vatnslag og halda því heitu. Að sögn strák- anna er manni bara kalt fyrst meðan líkaminn er að hita vatn- ið. Þurrgallinn er samfestingur en ekki einstakir hlutar eins og blautgallinn og hefur þann kost að halda kafaranum þurrum og heitum. En gallin einn og sér er ekki nóg. Kafari þarf líka að eiga kút, flotjöfnunarvesti, lóðabelti, fros- klappir, gleraugu, hníf, snorku, dýptarmæli og síðast en ekki síst lunga. Lungað er tækið sem andað er með og jafnframt við- kvæmasti hluti búnaðarins. En það var einmitt uppgötvun lung- ans árið 1942 sem gerði sportköfun mögulega. Fyrir þann tíma voru kafarar tengdir yfir- borðinu með loftsiöngu og hlunk- uðust um á þungum búningi og á blýskóm. Lungað gerði kafarann óháðan yfirborðinu, allur útbún- aður breyttist og léttist og menn fóru að kafa að gamni sínu. f stað lungans er snorkan notuð ef svamlað er rétt undir yfirborði. Þyngdarleysið er hrífandi En iátum þetta nægja um út- búnaði, hvað gerist svo í köfunar- ferð? - Við hiöðum draslinu í bílinn og svo er haldið af stað. Þetta er enginn smá útbúnaður, ca 35 til ■ 40 kg á mann. Fyrst verðum við , að fá loft í kútana sem getur verið maus en þeir hjá Slysavarnafé- laginu eru mjög elskulegir og yf- irleitt fáum við loft þar. Svo er keyrt á áfangastað, farið í búning og allt tiiheyrandi og þar með er ævintýrið byrjað. - Maður er eins og fáviti á landi í þessum búningi enda 120 kg þungur, en þyngdarleysið í vatn- inu er hrífandi. Þarna niðri opn- ast alveg nýr heimur, það er það sem er aðalfúttið í þessu. Það iðar allt af lífi, maður sér alls konar kvikindi. Við erum svo í skoðunarferð eins lengi og loftið endist en það er misjafnt eftir því hvað við köfum djúpt og hvað maður andar hratt. I venjulegri sportköfun endast þessi 3000 pund af lofti, það er loftmagnið sem kúturinn tekur, í svona 40 mínútur. Það er hinsvegar þjálf- unaratriði hversu hratt maður andar og eitt af því sem við lærðum á námskeiðinu. Maður verður líka að ná afslöppun í Við verðum að kafa til botns í þessu! Umsjón: Aftaltyyg RJjÓskarsdáak Framhald á bls. 8 Föstudagur 25. janúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.