Þjóðviljinn - 29.01.1985, Síða 1
VIÐHORF
MANNLfF
HEIMUR
ÍÞRÓTTIR
Nokkrir starfsmanna RÚV á blaðamannafundinum í gær: Ævar Kjartansson, ögmundur Jónasson, Dóra Ingvadóttir, Ragnheiður Valdimarsdóttir, Gunnar Baldursson. Mynd: eik.
Dómskerfið
Pólitísk aðgerð
Starfsmenn Ríkisútvarpsins: með málshöfðun ríkissaksóknara er hafin aðför að samtökum
launamanna- alvarlegt mál sem vekur spurningar um starfsemi frjálsra verkalýðsfélaga á Islandi.
RÚV-menn skiptimyntí ráðabruggi valdsmanna um einkaútvarp?
Margt bendir til að hér sé um
pólitíska aðgerð að ræða
fremur en venjulega málshöfðun,
segja starfsmenn útvarps og sjón-
varps um málshöfðun Þórðar
Sverrissonar ríkissaksóknara á
hendur sér.
Þeir undrast vinnubrögð sak-
sóknara og spyrja hvers vegna
þeir einir séu lögsóttir af þeim
stóra hópi sem svaraði ákvörðun
Stefnt er að helmingsfækkun
starfsfólks hjá áhaldshúsi
Vita- og hafnarmálastofnunar og
töluverðum tilfærslum í helstu
stjórnunarembættum stofnunar-
innar, samkvæmt áfangaskýrslu
sem Rekstrarstofan í Kópavogi
hefur nýlega lagt fram og kynnt
hefur verið fyrir Hafnarráði.
Skýrsla þessi hefur verið í smíð-
um frá um mitt sl. sumar og er
unnin á vegum Matthíasar
Bjarnasonar samgönguráðherra.
Kristján Kristjánsson starfs-
fjármálaráðherra um að greiða
ekki laun í október með því að
leggja niður vinnu. Þeir benda á
að saksóknari hefur spyrt saman
tvö ólík mál, vinnustöðvunina og
ólögleg einkaútvörp, og segja þá
spurningu áleitna „hvort ákveðið
hafi verið að gera starfsmenn út-
varps og sjónvarps að skiptimynt
í einhvers konar hagsmunabar-
áttu“.
maður Rekstrarstofunnar sem
hefur unnið að úttekt á starfsemi
Vita- og hafnarmálastofnunar
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að lagt væri til að ýmis stjórn-
unarstörf yrðu stokkuð upp og
menn fluttir á milli starfa. Þá yrði
stefnt að töluverðum samdrætti
hjá áhaldahúsi stofnunarinnar í
Kópavogi en þar vinna nú um 20
manns. Reiknað væri með 10-12
föstum stöðugildum en engum
yrði sagt upp störfum heldur
reynt að koma mönnum fyrir
Á blaðamannafundi sem félög
starfsmanna á ríkisfjölmiðlunum
héldu í gær kom ennfremur fram
að allflestir starfsmenn hafa vott-
fest með undirskrift sinni að
ákvörðun um vinnustöðvun 1.
október hafi verið fullkomlega
lýðræðisleg og starfsmenn staðið
nær einhuga að baki.
Ákæra ríkissaksóknara var
send dagblöðunum 11. janúar sl.,
annars staðar og ráða ekki í
lausar stöður.
Töluverður samdráttur hefur
orðið í starfsemi áhaldahússins
eftir að dýpkunarskipið Grettir
sökk á Faxaflóa fyrir rúmu ári. í
skýrslu Kristjáns er lagt til að
ekki verði ákveðin kaup á nýju
dýpkunarskipi strax. í fjárlögum
fyrir þetta ár er gert ráð fyrir nær
helmingi minna framkvæmdafé
til hafnarmála en var að raungildi
á liðnu ári.
-lg-
en hefur enn ekki borist hinum
ákærðu. „Þessi vinnubrögð eru
sjaldgæf og nánast einsdæmi um
meðferð sakamála hér á landi“,
segir í fréttatilkynningu starfs-
mannanna.
Á blaðamannafundinum var
bent á að nokkrum sinnum áður
hefur komið til þess að útsend-
ingar ríkisfjölmiðlanna hafa
stöðvast vegna kjaradeilna (út-
varp ’82 í tæknimannadeilu, sjón-
varp ’76 í setuverkfalli) án þess
starfsmenn hafi fengið fangelsis-
hótanir. Nú sé hinsvegar brotið
blað, - á sama tíma og saksóknari
neitar að fallast á ósk BSRB um
opinbera rannsókn á meintum
lögbrotum á Keflavíkurflugvelli.
„Við mundum ganga út aftur“,
sagði Ögmundur Jónasson á
fundinum, „vinnuveitandinn
stóð ekki við lögbundnar skyldur
sínar um launagreiðslur, og því
fórum við þessa leið“.
f iok fréttatilkynningar sinnar
spyrja starfsmenn útvarps og
sjónvarps, hvort nú sé „runninn
upp sá tími þar sem fólk sem
tekur þátt í lýðræðislegri kjara-
baráttu megi búast við því að
standa stöðugt frammi fyrir dóm-
stólum”, og hvetja „alla þá sem
vilja að á íslandi fái að starfa
sjálfstæð og frjáls verkalýðs-
hreyfing að staldra nú ögn við og
íhuga þessi mál af kostgæfni því
að ljóst er að hafin er grimmileg
aðför að samtökum íslenskra
launamanna”.
- m
Vita- og hafnarmálaskrifstofan
Fækkun starfsfólks
Úttekt Rekstrarstofunnar: Tilfœringar á toppnum
Starfsmönnum áhaldahússins verðifœkkað um helming
Ekkertnýtt skip íbráðina ístað Grettis
Farskip
Undir eriendum fana
Um þessar mundir sigla ein 6
íslensk farskip undir erlendum
þjóðfánum. Ástæðurnar fyrir
þessu eru fleiri en ein.
Tveir af fossum Eimskipafé-
lagsins sigla undir Bahamafána
vegna þess að íslensk lög kveða
svo á að íslenskir aðilar verði að
eiga 33% í skipunum svo þau
megi sigla undir íslenskum fána.
Aðrir tveir fossar sigla undir
þýskum fána vegna þess að lög í
Þýskalandi segja svo til um að
skip smíðuð þar í landi skuli sigla
undir þýskum fána í 8 ár, ef þau
eru leigð. Allir þessir fossar eru á
leigusamningum hjá Eimskip.
Þá munu ein tvö skip hjá Nes-
skip sigla undir Panamafána
vegna þess að þau eru á einhvers-
konar kaupleigusamningi og
eignarhlutur Nesskips er ekki
orðinn 33%.
- S.dór.